Dagur - 09.03.1990, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Föstudagur 9. mars 1990
fréttir
í-
Sænskur viðskiptaaðili vill markaðssetja vatnableikju sem hreina náttúruafurð:
Félag silungsveiðibænda stofiiað
í kringum útflutning á vatnableikju
Fyrr í þessari viku var stofnað
Félag silungsveiðibænda á
Hólum í Hjaltadal. Á bilinu
30-40 bændur af öllu landinu,
flestir frá Norður- og Suður-
landi, hafa gengið til liðs við
félagið og stefnt er að fjölgun
félaga fyrir framhaldsstofn-
fund, sem er ákveðinn um
mánaðamótin ágúst-septem-
ber.
Silungsveiðibændur hafa í vik-
unni setið námskeið hjá Tuma
Tómassyni, hjá Norðurlands-
deild Veiðimálastofnunar. Par
var farið yfir ýmsa þætti silungs-
veiðinnar, m.a. lagningu neta
undir ís og markaðsmál erlendis.
Á námskeiðinu var einnig ann-
ar eigenda sænska fyrirtækisins
sem sýnt hefur áhuga á kaupum á
íslenskri vatnableikju. Bjarni
Skytterí á „salmonellufugli“:
Málið enn strand
vegna fjárskorts
Ef nægir fjármunir fást er ætl-
unin að gera úttekt á þessu ári
á salmonellusýkingu í vargfugli
hér á landi.
Að sögn Páls Hersteinssonar
veiðistjóra er hugmyndin að
skjóta nokkra fugla út um allt
land tii að fá mynd af útbreiðslu
salmonellunnar en síðan er mið-
að við skipulagt „skytterí“ á fugl-
inum á suðvesturhorninu.
Veiðistjóri segir að ekki hafi
enn fengist fjármunir til þessa
verkefnis en vonir standi til að
sjóðir, eins og t.d. Vísindasjóð-
ur, hlaupi undir bagga. Fjár-
mögnunin ætti að skýrast innan
skamms.
Fyrirhuguð úttekt er tilkomin
vegna salmonellu sem greindist í
vargfugli á Suðurlandi á síðasta
ári. Ætlunin er að greina sýnin á
Tilraunastöð Háskólans á
Keldum. óþh
Vissuð þið að í Vöggunni fæst
flest sem ungabörn þarfnast?
T.d. barnavagnar, burðarrúm, bílstólar, rimlarúm, baðkör,
baðborð, fatnað, vöggusett, rimlahlífar í rúm, höfuðpúðar í
bílstóla, pela, túttur, snuð o.fl.
Handa stærri börnunum:
Nærföt, náttföt, gallabuxur og hinir vinsælu Dúa vörubílar og
Dúdú dúkuvagnar.
Nýtt! Lúffur og hlífðarföt frá Regnfatabúðinni.
ATH! Bjóðum 20% kynningarafslátt af Absorba-
fatnaði út næstu viku.
Vaggan Sunnuhlíð,
Sími 27586.
Opið frá kl. 09.00-18.00,
laugardaga frá kl. 10.00-12.00.
Portið
Dalsbraut 1
Við þökkum frábærar viðtökur og
höldum galvaskir næsta markað
laugardaginn 1 O. mars frá
kl. 10-16.
M.a. verða seldar: Skinnavörur, matvörur, reykt-
ur lax, bækur, plötur, fatnaður, vefnaðarvara,
búsáhaldavörur, húsgögn, ávextir, kartöflur og
margt fleira.
FerÖakynningar frá ferðaskrifstofunni
Úrval-Utsýn.
Kaffikynning frá Bragakaffi.
Kakó, vöfflur, gos og fleira verður til sölu í veit-
ingabásnum.
Básapöntun í síma 96-22381 alla
virka daga milli kl. 13 og 15.
Egilsson bóndi Hvalsnesi í
Skefilsstaðahreppi, formaður
stjórnar Félags silungsveiði-
bænda, segir að Svíinn hafi sýnt
fiskinum mikinn áhuga og góðar
vonir séu með útflutning til Sví-
þjóðar á þessu ári. Svíinn hefur
sett fram hugmyndir um kynn-
ingu á vatnableikjunni ytra í eitt
ár á sérstöku kynningarverði, 27
krónum sænskum fyrir kílóið,
sem gefur 180-200 króna skila-
verð til hérlendra silungsveiði-
bænda.
Svíarnir vilja frysta bleikju
„Svíarnir vilja fá fiskinn frystan,
en þeir leggja ekki mikið upp úr
því að fá hann ferskan. Þá líst
þeim mjög vel á fryst flök,“ sagði
Bjarni. Hann sagði að áhugi
hinna erlendu aðila beindist fyrst
og fremst að smáfiskinum, allt
niður í 150 grömm að þyngd.
„Þetta kemur sér mjög vel því að
af þessari stærð af fiski er lang-
mest til,“ sagði Bjarni.
„Svíarnir eru búnir að fá tvær
prufur og hafa þær báðar fengið
mjög góðar viðtökur. Síðan var
send út á dögunum stór prufa, 90
kíló, og við bíðum eftir viðbrögð-
um við henni. Það veltur satt að
segja töluvert á viðbrögðum við
þessari prufu hvert framhaldið
verður. Ef viðbrögðin verða góð
er rætt um að flytja út um 40 tonn
á ári. Við erum ekkert voðalega
spenntir fyrir því að fara í stórar
tölur til að byrja með. Við viljum
fara hægt en örugglega af stað,“
sagði Bjarni.
„Fram kom hjá Svíanum, sem
ræddi þessi mál við okkur á
Hólum, að ef bleikjan næði fót-
festu á markaðnum úti, myndi
aukin eftirspurn eftir henni leiða
síðar til verðhækkunar. Hann tel-
ur að nú sé lag að markaðssetja
bleikjuna erlendis, því umræða
um mengun og aukaefni í eldis-
fiski sverti ímynd hans og styrki
um leið stöðu íslensku bleikjunn-
ar. Hann sagði að leggja yrði
áherslu á að markaðssetja bleikj-
una sem ómengaða náttúruafurð,
sem væri einskorðuð við ísland."
Frakkland
áfram í myndinni
Eins og fram hefur komið hafa
Kirkjuvikan:
Kvöldvaka í
Akureyrarkirkju
í kvöld er síðasta kvöldvaka á
dagskrá kirkjuviku í Akureyr-
arkirkju, og hefst hún klukkan
20.50.
Fyrst á dagskránni er tónlist-
arflutningur. Lilja Hjaltadóttir
leikur á fiðlu og Björn Steinar
Sólbergsson á orgel, verk eftir A.
Corelli, sónötu í e-moll.
Því næst flytur Þóra Steinunn
Gísladóttir ávarp, sunginn verð-
ur sálmur númer 96, Guðrún
Agnarsdóttir, alþingismaður,
flytur ræðu, en að því búnu syng-
ur Þuríður Baldursdóttir ein-
söng.
Kynning verður á verkum Elísa-
betar Geirmundsdóttur í umsjón
Þóru Steinunnar Gísladóttur.
Konur úr Félagi kvenna í fræðslu-
störfum, BETA deild, annast
kynninguna. Þá er helgistund í um-
sjón sr. Þórhalls Höskuldssonar,
sóknarprests. Sunginn verður
sálmur númer 32, og að síðustu
leikur Dagný Pétursdóttir orgel-
tónverk eftir Cesar Frank. EHB
silungsveiðibændur einnig áhuga
á útflutningi vatnableikju til
Frakkalands. Sigmar B. Hauks-
son og Skúli Hauksson fóru til
Frakklands fyrir skömmu og
kynntu bleikjuna. Að sögn
Bjarna voru viðtökur Frakkanna
góðar og flest bendir til að þar sé
vænlegur markaður fyrir bleikj-
una. Hins vegar er mikið óunnið
í markaðsmálum í Frakklandi og
verður hugað markvisst að þeim
á næstunni. „Um er að ræða aðila
sem hefur þræði í Lyon og
Boulogne. Óneitanlega er svolít-
ið vandamál með flutningaleiðir
til Frakklands. Þessi franski aðili
sýndi einnig áhuga á kaupum á
sjávarfiski. Við eigum eftir að
skoða þetta dæmi betur því verið
er að tala uin stórar sendingar af
ferskum fiski, kannski eitt til tvö
tonn í einu, og þá getur verið
vandamál að útvega svo mikið af
ferskum silungi í einu. Því verð-
um við að hafa eitthvað annað
með til að ná hagkvæmum flutn-
ingum,“ sagði Bjarni.
Útflutningur fyrir haustið?
Fimm manna stjórn Félags sil-
ungsveiðibænda, sem kjörin var á
Hólum, hefur umboð fram að
framhaldsstofnfundi í haust til að
vinna áfram í markaðsmálunum
og hefja útflutning á vatnableikj-
unni ef þurfa þykir.
Að sögn Bjarna hefur lítið ver-
ið unnið í að afla fjár til að vinna
í markaðsmálunum, en hann seg-
ir að undirtektir þeirra aðila sem
leitað hafi verið til, landbúnaðar-
ráðuneytis, Framleiðnisjóðs
landbúnaðarins og Byggðastofn-
unar hafi verið jákvæð. „Við
þurfum ekki að kvarta yfir við-
tökunum. Málið er að þarna
erum við ekki að tala um stórar
upphæðir, við erum ekki að rúlla
af stað dæmi sem krefst stórra
upphæða," sagði Bjarni Egilsson.
óþh
bridds
Bridgefélag V-Húnvetninga Hvammstanga:
Sveit Karls sigraði
í aðaisveitakeppninni
Aðalsveitakeppni Bridgefé-
lags Vestur-Húnvetninga á
Hvammstanga er nú lokið.
Fjórar sveitir tóku þátt í
keppninni og var spiluð tvö-
föld umferð. Sveit Karls Sig-
Halldórsmót Bridgefélags Akureyrar: Sveit Hermanns efst að
loknu fyrsta Keppni á Halldórsmóti Bridge- félags Akureyrar hófst s.I. þriðjudagskvöld en alls eru spilakvöldin fjögur. Alls taka 12 sveitir þátt í mótinu og eru spilaðir þrír átta spila leikir hvert kvöld. Keppnisstjóri er Albert Sigurðsson. Að loknu fyrsta spilakvöldi er röð efstu sveita þessi: spilakvöldi 1. Hermann Tómasson 72 2. Stefán Vilhjálmsson 55 3. Ragnhildur Gunnarsdóttir 51 4. Grettir Frímannsson 49 5. Örn Einarsson 48 6. Gissur Jónasson 46 7. Sigfús Hreiðarsson 42 Meðalárangur er 42 stig. Mót- inu verður framhaldið n.k. þriðjudagskvöld kl. 19.30 í Félagsborg. -KK
urðssonar sigraði mjög örugg-
lega og hlaut 133 stig.
Auk Karls voru í sveitinni þeir
Kristján Björnsson, Eggert Ó.
Levy, Erlingur Sverrisson,
Sigurður Sigurðsson og Einar
Sigurðsson. 1 öðru sæti varð sveit
Arnar Guðjónssonar með 88 stig
en auk Arnar voru í sveitinni þeir
Einar Jónsson, Marteinn Reim-
arsson, Sigurður Hallur Sigurðs-
son og Egill Egilsson.
Sveit Sigurðar Þorvaldssonar
hafnaði í þriðja sæti með 77 stig
og sveit Bjarna R. Brynjólfsson-
ar í því fjórða með 55 stig.
Næsta keppni félagsins er eins
kvölds rúbertukeppni og verða
pörin dregin saman. Þetta er
nýbreytni og er ástæða til að
hvetja unga sem aldna spilara að
mæta í félagsheimilinu kl. 20 á
þriðjudagskvöldum og taka spil.
-KK