Dagur - 09.03.1990, Side 5

Dagur - 09.03.1990, Side 5
Föstudagur 9. mars 1990 - DAGUR - 5 Ferðamálavor Það er vor í íslenskum ferðamál- um. Að undanförnu hafa verið miklar umræður um ferðamál á íslandi almennt. Ég hef fylgst með þessum umræðum nokkuð lengi og langar til að koma á framfæri skoðunum mínum á þessum málum, sérstaklega hvað varðar uppbyggingu ferðaþjón- ustu hér fyrir norðan. Ég tók þátt í íslandskynningu á „World Trade Market“ í London, sem Flugleiðir ásamt Ferða- málaráði skipulögðu. Mín skoð- un er sú að standa hefði mátt allt öðruvísi og betur að þessari kynningu til að laða fólk enn frekar að bás okkar. Skreyta hefði mátt básinn á þjóðlegan og heimilislegan hátt, sýna fyrir framan hann íslenska þjóðdansa, glímu eða eitthvað því um líkt og hafa á boðstólum þjóðlegan, íslenskan mat og íslenskt vatn. Ekki sá maður hvaða tilgangi það þjónaði að vera þarna með drykkjusamkvæmi fyrir íslend- inga á svæðinu. Það hefði frekar átt að halda boð fyrir viðskipta- vini, til dæmis á vegum sendi- ráðsins. Með dollaramerki í augum Yfirleitt finnst mér íslensk (eins og reyndar júgóslavnesk) ferða- þjónusta um of byggja á löngun- inni í skjótfenginn gróða; eins konar lottóvinning eða góða loðnuvertíð, samanber heimsókn þeirra Reagans og Gorbatsjov hér um árið. Ferðaþjónusta er ekki byggð upp svona. Það tekur mörg ár að byggja upp traust við- skiptavinanna og það gengur ekki að við lofum einhverju og stöndum svo ekki við það. Hér þarf breyttan hugsunar- hátt, því eins og við vitum öll, þá er í ferðaþjónustunni unnið með fólk og fyrir fólk, og því þýðir ekki að vera með fýlu í þessu starfi eða svara fólki stuttaralega með: „Ég veit það ekki.“ Ég hef oft heyrt útlendinga kvarta yfir einmitt þessu eða þá því - eins og oft gerist á Islandi - að menn séu með dollaramerki í augunum, líkt og Jóakim frændi Andrésar andar. Það þarf að þjóna frá hjartanu. Það tekur lengri tíma en kostar minni peninga. Fólk sem fer út í ferðaþjónustu með það eitt í huga að fá ódýrar ferðir, veislur eða skemmtanir, ætti ekki að fara í þetta starf. Menn eiga að gleðja sjálfa sig með því að þjóna öðrum. Einblínt á Mývatn Er Norðurland bara Mývatn? Mér hefur fundist að flestallar ferðaskrifstofur, sem flytja útlendinga til landsins, liafi ein- blínt um of á suðvesturhornið en gleymi Norðurlandi sem væri það eins konar Þyrnirós. í þeirra aug- um takmarkast Norðurland við Mývatn. Auðvitað eru allir Norð- lendingar stoltir af Mývatni en Norðurland hefur upp á miklu meira að bjóða en bara Mývatn. Ég hef oft heyrt frá útlendingum, til dæmis júgóslavneska stór- HVÍTUR STAFUR er aðal hjálpartæki blindra og sjónskertra umferðinni BLINORAFÉLAGIÐ ||rJ[oERDAR Helena Uejak. meistaranum Ljubojevic, að Ak- ureyri sé fallegasti staðurinn á íslandi og að hann ætli að segja kollegum sínum að heimsækja Norðurland ef þeir eigi leið til íslands. En það er ekki nóg að hafa fagurt umhverfi, við verðum að læra að bera virðingu fyrir því og gera það að lífvænlegum atvinnuvegi fyrir fólk á svæðinu. Við megum ekki láta útlendinga eina græða á þessari fegurð nteð því til dæmis að koma með eigin rútur, eigin mat, eigið bensín og eigin leiðsögumenn. Slíkt er ekki leyfilegt í útlöndum. Mér blöskr- aði strax þegar ég kom fyrst til íslands fyrir 15 árunt og sá skeyt- ingarleysi íslendinga í þessum efnunt. Mér sýnist viðhorfið til þessara mála því miður lítið hafa breyst síðan þá. Hvað er til ráða? Hvernig eigum við að fá fólk til að staldra við í einhvern tíma á svæðinu? Svarið við þessari spurningu er auðvitað það að gera nákvæntlega eins gagnvart útlendingum og við gerum sjálf þegar við förum til sólarlanda. Fólk fer yfirleitt á einhvern ákveðinn stað, dvelur þar á hóteli í nokkrar vikur og fer í skoðun- arferðir út frá staðnum. Að sjálf- sögðu ntyndi vika líklega duga í íslenska tilfellinu. Þetta er það sem ég hef verið að reyna að byggja upp í tengslum við Ferða- skrifstofuna Nonna. En það þarf fleiri til en Ferðaskrifstofuna Nonna, ef takast á að hrinda þessari hugmynd í framkvæmd. I þessu sambandi er eitt vanda- mál sem mér finnst vera áberandi en það eru samskiptaörðugleik- ar. Það er eins og hver vilji alltaf vera að bauka í sínu horni, án þess að hugsa um aðra. Þarna fer mikil orka og miklir peningar til spillis. Hvernig væri að allir aðil- ar, sem að þessum málum starfa, færu nú að vinna saman í stað þess að vera alltaf að tala um að vinna saman? Róm var ekki byggð á einum degi Akureyri getur vel orðið dvalar- staður á borð við þá sem lýst var hér að framan. En til þess þarf að vekja athygli fólks á ýmsum merkum stöðum í nágrenni bæjarins. Jafnframt þarf þá að skipuleggja ferðaþjónustuna á Akureyri á „svæðisvísu". Það þýðir ekkert að benda fólki á að skoða bæinn í Laufási eða að fara til Ólafsfjarðar, ef ekki gengur einu sinni rúta þangað. Og ef hægt er að ferðast með áætlunar- rútu þangað, kemur hún ekki til baka samdægurs. Róm var ekki byggð á einum degi. Hið sama gildir um ferða- þjónustu, bæði hér norðanlands og annars staðar. Sem svæðis- stjóri ferðaþjónustu bænda, hef ég oft þurft að segja fólki að það ntegi ekki búast við hagnaði fyrstu fjögur árin og að það þurfi mikla þolinmæði áður en traustur grunnur sé kominn undir rekstur- inn. Það sem við erum að byggja upp í dag eru atvinnumöguleikar fyrir börnin okkar og barnabörn í framtíðinni. Þess vegna er nauð- synlegt að hefja markvissa fræðslu um alla þætti þessara mála og það þegar í grunnskóla. Helena Dejak. Höfundur er framkvæmda.stjóri Ferða- skrifstofunnar Nonna á Akureyri og svæðisstjóri Ferðaþjónustu bænda á Norðurlandi. i nsiclrniinti 1' UQSNmUI i i il 1 Skíðanámskeiðin hefjast n.k. mánudag Upplýsingar og innritun að Skíðastöðum, sími 22280. Skemmtiklúbburinn Líf og fjör Dansskemmtun verður í Allanum, Skipagötu 14, laugard. 10. mars, frá kl. 22.00-03.00. Húsið opnað kl. 21.30. Mætið vel og stundvíslega. Hljómsveitin 5 félagar sjá um fjörið. Sjáumst hress! Stjórnin. Námskeið I tengslum við vetraríþróttahátíð ÍSÍ efnir íþróttasamband Fatlaðra til leiðbeinendanám- skeiðs í vetraríþróttum fatlaðra á Akureyri dag- ana 23.-26. mars n.k. Námskeiðið verður bæði bóklegt og verklegt og er öll- um heimil þátttaka. Tilkynna þarf þátttöku á nám- skeiðiðtil skrifstofu íþróttasambands Fatlaðra, íþrótta- miðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík fyrir föstudag- inn 16. mars n.k. Þar er einnig unnt að fá nánari upp- lýsingar um námskeiðið. Síminn á skrifstofunni er (91) 83377. Viltu breyta til, komast í nýtt umhverfi, slappa af og njóta þess að vera tU. Komdu þá til Reykjavíkur Þú lætur okkur eftir að sjá um málin, panta hótel, bílaleigubílinn, miða í leikhús eða hvað annað sem þú vilt. FERÐASKRIFSTOFA AKUREYRAR HF. AKUREYRI TOURIST BUREAU FLUGLEIDIR

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.