Dagur - 09.03.1990, Page 7
Föstudagur 9. mars 1990 - DAGUR - 7
Knstinn situr her Freydisi, 7 vetra hryssu, sem hann á ásamt föður sínum, Huga Kristinssyni. Faðir Freydísar er
Freyr 931 frá Akureyri en móðir hennar er Freyja frá Ytra-Dalsgerði í Eyjafirði. Sveinn Jónsson í Kálfsskinni á
Árskógsströnd er nú eigandi Freyju.
Sýnum Subaru Legacy
1,8 GL árg. 1990
í sýningarsal okkar
að Bifreiðarverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar, Óseyri 5,
laugardaginn 10. mars og sunnudaginn 11.
mars frá kl. 14.-17. báða dagana.
Einnig verða á sýningunni Nissan bifreiðar.
Þá er ekki síður mikilvægt að
ræktendur læri sýningartækni
hrossa. Það er mörgum góðum
hestamönnum ekki gefið að sýna
hvað virkilega býr í hrossunum.
Þetta er þáttur sem leggja verður
mikla áhersla á og ég bind vonir
við að áðurnefndar reglur um
dóma og sýningu kynbótahrossa
verði til þess að hestafólk átti sig
frekar á dómkröfunum.“
Kristinn leggur einnig áherslu
á nauðsyn símenntunar ráðu-
nautanna og hann telur að
hrossaræktendur verði að geta
sótt leiðbeiningar í ríkari mæli til
búnaðarsambandanna í landinu.
Þá nefnir hann mikilvægi þess að
tengja saman eigendur íslenskra
hesta víðsvegar í heiminum.
Arðvænleg
útflutningsgrein
„íslenskir hrossaræktendur hafa
mikið að bjóða og það leikur
ekki neinn vafi á því að hér er um
arðvænlega útflutningsgrein að
ræða og hún ætti að geta orðið
mun öflugri en hún er í dag.
Þetta búfjárkyn stendur þó í
mikilli samkeppni við önnur tölt-
hrossakyn og jafnvel íslenska
blendinga. Eg tel að til að
sporna við að blendingsrækt nái
að skjóta rótum sé mikilvægt að
þjappa saman unnendum
íslenskra hesta. Það er enginn
vafi að áhugamenn um íslenska
hestinn erlendis vilja kaupa góða
hesta héðan og það er ekkert eins
slæm auglýsing fyrir íslenska
hrossakynið og bykkjur af íslenk-
um stofni. Þess vegna er nauð-
synlegt að miðla þekkingunni og
þar ber okkur sem störfum hjá
Búnaðarfélagi íslands að taka
forystuna. Það verður að sjá til
þess að áfram verði litið á ísland
sem ættaróðal íslenska hestsins.“
Útflutningur reiðhrossa frá ís-
landi hefur stóraukist á undan-
förnum árum og á síðasta ári sló
hann öll met. Kristinn er bjart-
sýnn á framhaldið en segir nauð-
synlegt að Búnaðarfélag íslands í
samvinnu við Félag hrossabænda
efli eftirlit og nákvæmni í vinnu-
brögðum hvað varðar útflutning
hrossa, þ.m.t. kynbótahross,
sæði og fósturvísa. „Eg er ekki að
tala um neinskonar haftakerfi.
Heldur er ég hér að tala um
nauðsyn þess að hafa fulla yfirsýn
yfir hvaða gripir fara úr landi
þannig að forkaupsréttur íslend-
inga sé virtur í þeim tilvikum sem
hann gæti átt við og starfið í
heild verði trúverðugra í augum
erlendra kaupenda."
Fæðingarnúmer í stað
ættbókarnúmera
Að sögn Kristins þarf að stór-
auka skýrsluhald í hrossarækt á
vegum Búnaðarfélags íslands á
næstu misserum. Liður í því er
upptaka nýs númerakerfis.
Gamalt kerfi ættbókarnúmera
hefur verið lagt af og í stað þess
tekin upp fæðingarnúmer. Sam-
kvæmt nýrri reglugerð er heimilt
að frostmerkja fæðingarnúmerin
á hrossin. „í vetur er ætlunin að
skipta upp fæðingarnúmerakerf-
inu þannig að hvert býli fái
ákveðið raðnúmer.
Við bindum vonir við að frost-
merking hrossa stóraukist og
almenn skráning hrossa verði
meiri en fram að þessu.“
Kristinn segir að ekki sé ein-
ungis verið að hverfa frá gamla
ættbókarnúmerakerfinu breyt-
inganna vegna. „Við erum að
breyta til hagræðingar og fram-
fara og á því hafa þeir hrossa-
ræktendur og hestafólk sem
þekkja til þessara mála fullan
skilning," segir Kristinn og bætir
við. „Orækastur vitnisburður um
það eru samþykktir til stuðnings
nýja númerakerfinu frá síðasta
ársþingi Landssambands hesta-
mannafélaga og aðalfundi Félags
hrossabænda."
Tveir rithöfundar, Jónas Krist-
jánsson, ritstjóri, sem skrifaði
bókina „Heiðajarlar" og Anders
Hansen, sem hefur ritað bækur
um Svaðastaðahrossin, hafa lýst
þeirri skoðun að beri að halda í
gömlu ættbókarnúmerin. „Það
eru engin rök fyrir að leggja upp
með tvö númerakerfi að þarf-
lausu þó svo að það sé hægt,“
segir Kristinn um þetta atriði.
Mál Jónasar Kristjánssonar
er sér kapítuli
„Þetta mál með Jónas Kristjáns-
son á síðasta ársþingi LH var
alveg sér kapítuli. Hann geystist
fram á ritvöllinn og fór með mjög
vafasamar fullyrðingar, t.d. um
fræðilega hluti eins og BLUP-
kerfið. Þá bar hann okkur
hrossaræktarráðunautum Búnað-
arfélagsins persónulegum ávirð-
ingum á brýn. Mál Jónasar er
einstakt á margan hátt og þessi
uppákoma hans á þingi Land-
sambands hestamannafélaga var
alveg kostuleg og helgaðist af
dæmafáum hroka hans.“
Óneitanlega hefur oft gustað
hressilega um hestamenn og þeir
hafa ekki alltaf verið sammála.
Nægir þar að nefna illvígar deilur
milli stjórnar Landssambands
hestmannafélaga annars vegar og
eyfirsku hestamannafélaganna
hins vegar. Kristinn tekur undir
þetta, en segir að sem betur fer
hafi Búnaðarfélag íslands náð að
leiða deilur hestamanna hjá sér.
„Ég lít svo á að eitt af hlutverk-
um Búnaðarfélagsins á meðal
hestafólks sé að vera sverð og
skjöldur vitsmunalegrar umræðu.
En ég get vel skilið að menn
verði heitir á dómþingum. Menn
geta orðið innilega reiðir við
sjálfa sig ef þeir finna að þeim
hefur ekki tekist sem skyldi.
Stundum vill brenna við að reiðin
bitni á öðrum, og í sumurn tilvik-
um getur slíkt verið eðlilegt og
réttmætt.“
Hrossaræktin
á réttri leið
„Ég held tvímælalaust að hrossa-
ræktin sé á réttri leið,“ segir
Kristinn þegar hann er spurður
um stöðu hennar í dag. „Hrossin
eru mun eðlisbetri en fyrir t.d.
um 20 árum síðan. Hesta-
mennskunni hefur einnig fleygt
fram. Hún er nú almennt áhuga-
mál, bæði til sveita og í þéttbýli.
Þá hafa íslendingar sótt þekkingu
erlendis og nýtt sér hana.
Á sviði kynbóta hafa orðið
miklar framfarir á þessum ára-
tug. Skýrsluhaldið er í uppstokk-
un og stefnt er að því að efla
útgáfu. Ég vænti þess að með
traustari vinnubrögðum við sýn-
ingar og dómstörf, öflugra upp-
gjöri og stóraukinni útgáfu megi
takast að auka framfarirnar í
hrossaræktinni til muna á næstu
árum. Um leið verður að treysta
markaðsmálin. í því sambandi
ber að fagna miklum og góðum
árangri Félags hrossabænda í að
ná niður kostnaði við útflutning
reiðhrossa og hrossakjöts.
Samt er það nú svo að hrossa-
ræktendur búa við of mikla
óvissu, markaðsmálin eru of
sveiflukennd. Við þurfum að
vera með marga markaði í takinu
í einu.
Hrossaræktin er og háð mörg-
um mörgum þáttum eins og aðrar
útflutningsgreinar, s.s. gengi,
stöðu gjaldmiðla og ástandi pen-
ingamála innanlands sem erlend-
is.“ óþh
Komið og skoðið glæsilega bíla.
Bifreiðaverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar
Óseyri 5 - Sími 22520 - Akureyri.
HOTEL KEA
Laugardagskvöld
Hin frábæra hljómsveit
Ingimars Eydal
leikur fyrir dansi
Borðapantanir fyrir matargesti í síma 22200
Húsið opnað fyrir aðra en matargesti kl. 23.00
Minnum á KÚTTMAGAKVÖLDIÐ 23. mars
★
... og áfram bjóðum við upp á
SUNNUDAGSVEISLU
Á SÚLNABERGI
Rósinkálsúpa, reykt grísalæri og/eða lambasteik.
Þú velur sjálfur salatið, sósurnar og meðlætið og endar þetta
á glæsilegu deserthlaðborði.
Verö aöeins kr. 890.-
Frítt fyrir börn 0-6 ára Vi gjald fyrir 6-12 ára.
Ath. veislan er bæði í hádegi
og um kvöld.