Dagur - 16.03.1990, Blaðsíða 1
73. árgangur
Akureyri, föstudagur 16. mars 1990
S3. töluhlaö
Venjuiegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddír samdægurs
GULLSMKNR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Sigri hrósandi lyfta „bormenn íslands“ glösunt mcö
koníaki að aflokinni sprvngingu samgönguráðherra.
A innfelldu myndinni sést er Steingrímur J. Sigfússon,
samgönguráðherra ýtir á sprengjutakkann. A mynd-
inni til vinstri takast Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri á Dalvík, og Bjarni Kr. Grímsson, bæjarstjóri í
Olafsfirði, í hendur fyrir utan gangamunnan Dalvík-
urmegin. Myndir: KL
Ólafsfj arðargöngin:
Raftákn hf. á Akure\ri
vinnur að hönnun lýsingar
- „mjög spennandi verkefni,“
segir Jóhann Sigurðsson, iðnfræðingur
Fyrirtækið Raftákn hf. á
Akureyri vinnur nú að hönnun
lýsingar í jarðgöngin í Ólafs-
fjarðarmúla, en gert er ráð fyr-
ir að setja hana upp í ágúst nk.
Að sögn Jóhanns Sigurðsson-
ar, iðnfræðings hjá Raftákni
hf., er um mjög spennandi
verkefni að ræða og segir hann
að af skiljanlegum ástæðum sé
ekki við annað að styðjast en
fyrirmyndir erlendis frá.
Margs þarf að gæta við hönnun
lýsingar í jarðgöngum eins og.
Múlagöngunum. sem eru rúmir
þrír kílómetrar að lengd. „Augað
er ákveðinn tíma aö venjast
myrkrinu. Göngin þurfa að vera
meira lýst að degi til en á nótt-
unni sem helgast af því að þá er
bjartara úti. Að sama skapi er
hægt að hafa minni lýsingu að
nóttunni í göngunum vegna þess
Samgönguráðherra sprengdi í Múlagöngunum og síðasta haftið steinlá:
Koníak, kaffi og hnallþórur á tímamótum!
Flánar blöktu við hún í Óiafs-
firði í gær og létt var yfir
bæjarbúum. Tilefnið var ærið,
sprengt var síðasta haftið í
jarðgöngunum í Ólafsfjarðar-
múla. Þar með færðust Ólafs-
firðingar nær þeim merka
áfanga í samgöngumálum
byggðarlagsins að keyra um
veggöng inn í Eyjafjörð.
Steingrímur J. Sigfússon, sam-
gönguráðherra, sprengdi fyrstu
hleðsluna í Ólafsfjarðargöngun-
um á hausidögum 1988 og hann
lék sama leikinn í gær með sfð-
ustu hleðsluna. Eins og mönnum
er í fersku minni átti samgöngu-
ráðherra í nokkrum erfiðleikum
með upphafssprengju Múlagang-
anna, en af lokasprengjunni í gær
að dæma hefur hann verið í
ströngum æfingabúðum að
undanförnu!
Viðstaddir sprenginguna voru
þingmenn Norðurlandskjördæm-
isins eystra, forráðamenn verk-
takafyrirtækisins Krafttaks sf.,
Vegagerðar ríkisins, forsvars-
menn bæjarfélaganna í Ólafsfirði
og á Dalvík og aðrir gestir.
Að aflokinni síðustu spreng-
ingunni klöngruðust viðstaddir
yfir mulið basaltið og önduðu að
sér fersku lofti úti fyrir ganga-
munna Dalvíkurmegin.
Verktakinn bauð starfsfólki og
gestum upp á dýrindis koníak
inni í göngunum og jafnframt var
ein flaska af þeim miði brotin á
grjóthrúgunni. Þetta mun vera til
siðs á þessum tímamótum í jarð-
gangagerð.
Bæjarstjórn Ólafsfjarðar bauð
öllum Ólafsfirðingum og gestum
til veglegs kaffisamsætis í félags-
heimilinu Tjarnarborg síðdegis í
gær. Óhætt er að segja að þar
hafi verið þétt setinn Svarfaðar-
dalur og ríkti mikil gleði meðal
heimafólks.
Bjarni Kr. Grímsson, bæjar-
stjóri, las við þetta tækifæri
nokkur heillaóskaskeyti sem
Ólafsfirðingum bárust í gær. Þau
voru frá Ásgrími Hartmannssyni,
fyrrv. bæjarstjóra og Helgu Sig-
urðardóttur konu hans, Fjórð-
ungssambandi Vestfirðinga,
Þingeyrarhreppi, Kaupfélagi
Dýrfirðinga, Ingvari Gíslasyni,
Helgu Sigurðardóttur Kambi í
Eyjafirði, Suðureyrarhreppi,
Félagi íslenskra bifreiðaeigenda
og Stjórn Byggingaþjónustunnar.
í máli Steingríms J. Sigfússon-
ar við þetta tækifæri kom fram að
Múlagöngin væru árangur mikill-
ar samstöðu þjóðarinnar allrar
um jarðgangagerð. „Ég vonast til
að samstaða og vilji verði til að
sambærileg byggðarlög við Ólafs-
fjörð fái nú úrlausn sinna mála,“
sagði samönguráðherra.
I lok ávarps sins greindi hann
frá vísu og blómvendi sem hon-
um hefði borist af þessu tilefni frá
saumaklúbbnum Náttfara á Súg-
andafirði. Vísan er eftirfarandi:
Rauðar rósir í ráðherra hendi
um rétt okkar stendur hann vörð.
Bormenn íslands brátt hann sendi
beint á Súgandafjörð.
óþh
73. Búnaðarþingi slitið í gær:
Að móta ekki framtíðina
væri aJgjör uppgjöf
- sagði Hjörtur E. Þórarinsson við þingslitin
Búnaðarþingi 1990 lauk ekki
fyrr en síðdegis í gær, fímmtu-
dag, en stefnt hafði verið að
því að slíta því sl. miðvikudag.
Þrátt fyrir það er þetta 73.
Búnaðarþing það næst stysta
frá upphafí, stóð yfír í ellefu
daga og haldnir voru tólf
fundir. Búnaðarþing í fyrra
stóð yfír í 10 daga. Það var
Hjörtur E. Þórarinsson, for-
maður Búnaðarfélags Islands,
sem sleit þinginu í gær, en auk
þingfulltrúa var fjöldi góðra
gesta viðstaddur þingslitin,
þ.á.m. nokkrir alþingismenn.
Á þinginu voru afgreidd 40 mál
og sagði Hjörtur E. Þórarinsson í
samtali við Dag, að það væri
minnstur fjöldi mála frá upphafi
á Búnaðarþingi. Hjörtur sagði að
aðalmál þingsins að þessu sinni
hafi verið skipulagsmál búnaðar-
samtakanna. „Skipulagsmálin
eru mikið í deiglunni. Það kom
m.a. fram tillaga um fimm manna
stjórn Búnaðarfélagsins í stað
þriggja og að hún yrði svæðis-
bundin, einn af hverjum lands-
fjórðungi," sagði Hjörtur, en
umrædd tillaga var felld.
Aðspurður sagðist Hjörtur
vera ánægður með nýafstaðið
þing. „Eins og alltaf var góður
andi og vinnubrögðin ágæt.
Bændur eru ekkert svartsýnir.
Fjárhagsmál Búnaðarfélagsins
eru í betra lagi en þau voru í um
skeið, þannig að það var léttara
yfir mönnum,“ sagði Hjörtur.
Meðal þess sem Hjörtur sagði
við þingslitin var þetta: „Hver
verða svo örlög allra þeirra mála
sem þingið hefur ályktað um?
Það er hulið móðu framtíðar eins
og reyndar atvinnuvegir okkar í
heild eru og allt okkar brölt og
umstang hér á jörðunni mann-
anna baraa. En með ályktunum
og áformum okkar leitumst við
við að móta framtíðina að ein-
hverju leyti. Að gera það ekki er
algjör uppgjöf.“
Við þingslitin var Hjörtur
leystur út með gjöfum frá þing-
fulltrúum og þær afhenti Jón
Ólafsson, aldursforseti Búnað-
arþings. Þess má geta að Hjörtur
E. Þórarinsson lætur af starfi for-
manns Búnaðarfélags íslands á
næsta Búnaðarþingi eftir löng og
gifturík störf í þágu bændahreyf-
ingarinnar á íslandi. -bjb
að þá hefur ökumaður keyrt í
myrkri áðyr en hann fer inn í
þau," segir Jóhann.
Gert er ráð fyrir að setja kapal-
stiga eftir miðjum göngunum og
neðan í hann verði ljósin fest.
Jóhann telur líklegast að 10-15
metrar og allt upp í 20 metrar
veröi á milli ljóslampanna. Vænt-
anlega verða notaðir svokallaðir
natríum-lampar í göngin, sem
gefa lýsingu með gulum blæ.
Til tals hefur komið að setja
upp sjálfvirkar hurðir sitt hvoru
megin í göngunum, en Jóhann
segir það ekki endanlega ákveð-
ið. Verði það niðurstaðan er
hugsanlegt að lýsing inni í
göngunum verði tengd við hurð-
irnar þannig að kvikni og slokkni
sjálfvirkt á lömpunum þegar
hurðirnar opnast og lokast.
Að sögn Jóhanns verður lokið
við hönnun lýsingar í göngunum
eftir um mánuð. Annar aðili mun
sjá um uppsetningu hennar.
„Þetta er vissulega spennandi
og eitthvað sem maður er ekki að
glíma við dags daglega og í raun
er á takmörkuðum upplýsingum
að byggja. Til dæmis höfum við
þurft að leita eftir upplýsingum
erlendis frá um hvernig ljós-
streymið frá natríum-lömpunum
er,“ segir Jóhann Sigurðsson.
óþh
Slökkviliðið
á Akureyri:
Eldur í
timburhúsi
við Ásabyggð
Um kiukkan 06.00 í gær-
morgun var slökkviliðið á
Akureyri kaliað út vegna elds
í íbúðarhúsi úr timbri sem
stendur við Ásabyggð á
Akureyri. íbúar hússins, hjón
með tvö börn, voru heima
þegar eldurinn kom upp en
þau vöknuðu tímanlega og
tókst að forða sér út.
Eldurinn kom upp undir
stigauppgangi inni í húsinu en
að sögn Daníels Snorrasonar
rannsóknarlögreglufulltrúa, er
talið víst að hann hafi kviknað
vegna hita frá óvarinni ljósa-
peru í ljósastæði undir stigan-
um. Ofan við peruna stóð hilla,
en gleymst hafði að slökkva
ljósið og er talið að hitinn hafi
kveikt eld í hillunni.
Eldurinn var nokkuð búinn
að ná sér á strik þegar íbúarnir
vöknuðu en þrátt fyrir það tókst
slökkviliðinu að slökkva eldinn
á tiltölulega skömmum tíma og
olli hann ekki mjög miklu tjóni.
Þó er talið að í þessu tilviki
hefði getað farið mun ver ef
tbúar hússins hefðu ekki vakn-
að svona fljótt. VG