Dagur - 16.03.1990, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 16. mars 1990
Vetrarhátíð
23. mars - 1. apríl.
Alpagreinar unglinga
Skíðaganga unglinga
Skíðabretti
Hlíðarfjall, sýning.
Skíðastökk
Skautaíþróttir
Listdans á skautum, sýning.
Skíðaganga fullorðnir
Ski cross (þrautabraut).
Boðganga landskeppni.
Alpagreinar aiþjóðamót
Vélsleðaíþróttir
Vetrarþríþraut
Hestaíþróttir
TilkynniÖ þátttöku
strax í dag
Heilsugæslustöð
Akureyrar stendur
fyrir fjölskyldutrimmi
Skíðagöngunámskeið
í Hlíðarfjalli
Skólatrimm
Vetrarþríþraut
Skíðagöngutrimm
í Hlíðarfjalli
fyrir alla fjölskylduna
Skautatrimm
fyrir alla fjölskylduna
Skíðatrimm
fyrir 12 ára og yngri
Fyrirlestrar:
Áhrif hreyfingar á líkamann.
★
Leikvöllur fyrir smábörn
í Hlíðarfjalli.
★
Sleðakeppni
Snjómyndakeppni
Gönguferðir
innanbæjar
Fjallaferðir, skíði
Upplýsingar í síma 96-22722.
4
fréttir
Lárus Hinriksson leggur áherslu á gæði hrácfnis en hér er hann í vcrksmiðju Dettifoss hf. á Akureyri. Á innfelldu
myndinni má sjá sýnishorn af framleiðslu fyrirtækisins sem verið er að setja á markað þessa dagana. Myndir: kl
Gæludýrafóður Dettifoss hf.:
Á markað um land aJlt á næstumii
Um þessar mundir er að koma
á markað innlent gæludýrafóð-
ur frá Dettifossi hf. í nýjum
umbúðum, en að undanförnu
Kjörbúð KEA
Byggðavegi 98
Fanta 2 lítrar
Áður 200 kr. - Nú 99 kr.
Coca Cola 2 lítrar
Áður 200 kr. - Nú 158 kr.
Kjúklingahlutar
579 kr.
Wc-pappír 8 rúllur
Áður kr. 210 - Nú 179 kr.
Lambakjöt á
lágmarksverði
a Je
ATH! Heimsendingarþjónusta
Opið alla daga til kl. 20.00
y
E
líka sunnudaga
KJÖRBÚÐ KEA
BYGGÐAVEGI 98
hefur mikil vinna verið lögð í
að hanna umbúðirnar og vinna
að markaðssetningu vörunnar.
Þá hefur sömuleiðis verið unn-
ið að vöruþróun síðan í haust,
en þar sem framleiðsla sem
þessi á sér ekki hliöstæðu á ís-
landi eru tilraunir ýmiss konar
mikilvægur þáttur í vöruþró-
un.
Dettifoss hf. var stofnað í
nóvember sl. og er tilgangur
félagsins framleiðsla og sala á
gæludýrafóðri og öðrum vörum
fyrir gæludýr. Hluthafar félagsins
eru níu en hlutafé er 2,2 milljónir
króna. Verksmiðja Dettifoss hf.
er til húsa að Tryggvabraut 22 á
Akureyri.
Þær tegundir sem Dettifoss hf.
er nú að setja á markað eru
hunda- og kattavítamín, hunda-
nammi, fuglafóður og nagdýra-
fóður auk þurrfóðurs fyrir hunda
og ketti. Þá eru á döfinni að gera
tilraunir með nýjar tegundir,
m.a. fyrir hesta og einnig er áætl-
að að athuga með framleiðslu á
kattasandi.
Að sögn forsvarsmanna Detti-
foss hf. er engin innlend fram-
leiðsla fyrir á vörum eins og þeim
sem fyrirtækið er að markaðs-
setja nema á fuglafóðrinu. Þeir
fara því beint í samkeppni við
erlendan innflutning sem hingað
til hefur verið alls ráðandi á
markaðnum. Akureyringarnir
eru þó hvergi smeykir, viðbrögð
fram til þessa hafa verið mjög
jákvæð og í flestum tilfellum er
vöruverð þeirra lægra en á inn-
fluttu vörunni.
Lárus Hinriksson er upphafs-
maður að framleiðslu Dettifoss
hf. en það er hann sem hefur
þróað framleiðsluna frá upphafi.
Hann sagði að megin áhersla væri
lögð á gæði hráefnis í fóðrinu en
megin uppbygging þess er fiski-
mjöl, loðna, og mjókurduft. Jón
Árnason gæðastjóri ístess hefur
ráðlagt um fiskimjöl og Ræktun-
arfélag Norðurlands hefur
aðstoðað við efnagreiningu.
Dettifoss á nú í samstarfi við
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðar-
ins varðandi þróun á alhliða þurr-
fóðri fyrir hunda og ketti. Sam-
eiginlega hafa Iðnþróunarfélag
Eyjafjarðar, sem verið hefur fyr-
irtækinu innan handar varðandi
undirbúning markaðsátaks,
Dettifoss hf. og Rannsóknar-
stofnun fiskiðnaðarins sótt um
styrk til Rannsóknarráðs ríkisins
vegna þessa verkefnis, sem áætl-
að er að standi yfir í eitt ár. VG
Húsavík:
H Bæjarráð hefur samþykkt
að taka tilboði frá Akureyri
um kaup á snjótroðara bæjar-
ins á kr. 650.000.-. Einnig hef-
ur bæjarráð heimilað bæjar-
stjóra að panta troðara af
gerðinni Leitner 360, árgerð
1989 en kaupverð f.o.b. er kr.
5.300.000.-.
■ Veitunefnd hefur sam-
þykkt að leggja til við bæjar-
stjórn að framkvæmdum við
skipti úr hemlum í mæla, vcrði
dreift á tvö ár og að byrjað
verði á fyrirtækjum og opin-
berum byggingum. Fjárveiting
til 'þcssa verkefnis verði lækk-
uð í kr. 3.000.000,-og liðurinn
óráðstafað hækki þvf um kr.
2.970.000.-.
■ Veitunefnd leggur áherslu
á að Hitaveitan fái sérfræðinga
til að koma til Húsavíkur og
kynna kosti mælakerfisins, svo
og að farið veröi til Dalvíkur
til að fá upplýsingar urn
reýnslu þeirra af mælakerfinu.
■ Halnarstjórn fjallaði á
fundi sínum nýlega um hugs-
anlega forgangsröðun verk-
efna í Húsavíkurhöfn á þessu
árabili. Hafnarstjórn leggur
áherslu á aðframkævmdum við
Norðurgarðinn verði að fullu
lokið og hafi forgang fyrir öðr-
um verkefnum.
■ Á jfundi atvinnumálanefnd-
ar nýlega var lagt fram bréf frá
iðnráðgjafa, þar sent greint er
frá viðbröðgum Landsvirkjun-
ar hf. við hugmyndinni um
virkjun Kvíslarfoss. Þar kem-
ur fram að frumhönnun virkj-
unarinnar kostar kr. 300.000,-
en hana þarf að vinna til að
hægt-sé að meta hvort virkjun-
arkosturinn er hagkvæmur eða
ekki. Atvinnumálanefnd legg-
ur til að kannað verði hvort
frumhönnun geti orðið hluti
þeirrar auðlinda/könnunar
sem hafinn er undirbúningur
að.
■ Á fundi skólanefndar
nýlega var frá því greint að
Sigurður Gunnarsson fyrrver-
andi skólastjóri hefði boðið
skólanum að gjöf, barnabóka-
safn sitt, u.þ.b. 300 titla og
safn eldri námsbóka. Safn
þetta yrði væntanlega sér-
merkt á skólasafninu.
■ Hafnarstjóri kynnti á fundi
hafnarstjórnar nýlega, bréf frá
Samgönguráðuneytinu en því
fylgdu drög aö nýrri reglugerð
um hafnir. í brcfinu kemur
fram að nú eru í gildi 111
reglugerðir fyrir hafnir en
drögin gera ráð fyrir sam-
ræmdri reglugerð fyrir allar
hafnir landsins en þó með
sérkafla fyrir hverja einstaka
höfn.
■ Bæjarráði barst nýlega bréf
frá handboltastúlkum á aldrin-
um 15-18 ára, þar sern óskað
er eftir fjárstyrk vegna ferðar
til vinabæjarins Frederikstad í
Noregi, til þátttöku f hand-
böltamóti 2.-4. júní n.k.
Bæjarráð hefur tekiö jákvætt í
erindið.