Dagur - 16.03.1990, Blaðsíða 3
Föstudagur 16. mars 1990 - DAGUR - 3
fréftir
f
Bæjarstjórn Sigluijarðar:
Fjárhagsáætlun afgreidd í gær
Bæjarstjórn Siglufjarðar af-
greiddi fjárhagsáætlun bæjar-
ins við síðari umræðu, sem
fram fór í gær. Frumvarpið var
Frá Siglufírði.
Mynd: SS
lagt fram með samþykki allra
fulltrúa í bæjarráði.
Heildartekjur bæjarsjóðs
Siglufjarðar eru rúmlega 170
milljónir króna, þ.e. af útsvari,
aðstöðugjöldum, fasteignagjöld-
um og Jöfnunarsjóðsframlagi.
Rekstrarniðurstaða fyrir fjár-
magnsliði er jákvæð um nærri 78
milljónir króna.
Sigurður Hlöðversson, bæjar-
fulltrúi, segir að stærstu útgjalda-
liðirnir séu rekstrarkostnaður,
almenn rekstrargjöld nema 93
milljónum, nettó fjármagns-
kostnaður er 84 milljónir, 9,5
milljónir fara til eignfærðra fjár-
festinga en 7,4 milljónir í gjald-
færða fjárfestingarliði.
Helstu framkvæmdir á vegum
bæjarins í ár eru við gangstéttar-
lagnir 4 milljónir, æskulýðs- og
íþróttamál 4 milljónir, en inni í
þeirri tölu er kostnaður við að
opna hið nýja íþróttahús, til inn-
réttinga í slökkvistöð er varið 350
þúsund krónum, til vélamið-
stöðvar 350 þúsund, og til fast-
eigna er varið rúmum 11 milljón-
um króna, aðallega í leiguíbúð-
irnar í Gamla bakaríinu.
Búið er að úthluta íbúðum í
Gamla bakaríinu, og verða þær
afhentar innan hálfs mánaðar.
Skuldir Sigufjarðar eru á bilinu
300 til 400 milljónir króna. Eins
og áður sagði er fjármagnskostn-
aður 84 milljónir, en inni í þeirri
tölu eru áfallnar verðbætur og
vextir, sem ekki eru gjaldfallnir,
upp á 43 milljónir króna. „Þetta
er mjög hógvær fjárhagsáætlun á
kosningaári, sýnist mér,“ segir
Sigurður Hlöðversson. EHB
í gær og í dag hcfur staðið yfir sýning á tölvum og skrifstofutækjum á Hótel
Noröurlandi. Sýningin er opin milli kl. 10.00 og 18.00 í dag. Sýndar allar
gerðir af Hy Xerox og Konica Ijósritunarvélar og tclefaxtæki, nýjustu gerðir
af Star og Facit prenturum o.fl. Tölvutæki þessi og aðrar vörur eru sýndar á
vegum Bókvals, sem er með söluumboð fyrir Gísla J. Johnscn.
Útafkeyrsla við Vesturós Héraðsvatna
- staðið til í tíu ár að byggja nýja brú
Umferðaróhapp varð við Vest-
urós Héraðsvatna síðastliðinn
miðvikudag. Bíll ók norður af
veginum vestan við brúna á
Héraðsvötnum. Töluverð
Bæjarstjórnarkosningarnar á Akureyri:
Framboðslisti Sjálfstæðis-
manna lagður fram
Framboðslisti Sjálfstæðis-
flokksins til bæjarstjórnar-
kosninganna í vor hefur verið
lagður fram, en fulltrúaráð
Sjálfstæðisfélaganna í bænum
samþykkti tillögu kjörnefndar
á miðvikudagskvöld.
Athygli vekur að Guðfinna
Thorlacius, bæjarfulltrúi, er ekki
á þessum framboðslista, en hún
var í 4. sæti í skoðanakönnun
sem fram fór fyrir nokkru hjá
Sjálfstæðismönnum á Akureyri.
Sigurður J. Sigurðsson, forseti
Bæjarstjórnar Akureyrar, er í
efsta sæti listans, Björn Jósep
Arnviðarson er í öðru sætinu,
Birna Sigurbjörnsdóttir í þriðja,
Jón Kr. Sólnes í fjórða, Val-
gerður Hrólfsdóttir í fimmta sæt-
inu og Hólmsteinn Hólmsteins-
son í því sjötta.
Röð annarra frambjóðenda er
sem hér segir: Gunnar Jónsson 7.
Sjómannskonur
á Akureyri:
Safiia undir-
skriftumí
verslunran í
bænran
Sjómannskonur gangast
þessa dagana fyrir undir-
skriftum til stuðnings áskor-
un þeirra á stjórnvöld um
niöurfellingu á virðisauka-
skatti af flotgöllum og öðr-
um öryggisbúnaöi fyrir
sjómenn.
Undirskriftalistar liggja
frammi næstu daga í Matvöru-
markaánum, Kaupangi, KEA
Hrísalundi og Sunnuhlíð.
Upplýsingar um söfnunina
gefa María Agnarsdóttir sími
26032 og Alda Pálsdóttir sími
22398.
sæti, Jón Már Héðinsson 8., Þór-
unn Sigurbjörnsdóttir 9., Ómar
Pétursson 10., Ásdís Loftsdóttir
11., Erna Pétursdóttir 12., Gunn-
laugur Búi Sveinsson 13., Sigurð-
ur Hannesson 14., Þorsteinn Vil-
helmsson 15., Ása Helgadóttir
16., Bjarni Jónsson 17., Margrét
Yngvadóttir 18., Ólafur H.
Oddsson 19., Tómas Ingi Olrich
20., Margrét Kristinsdóttir 21. og
Gunnar Ragnars skipar 22. sætið.
Knútur Karlsson, formaður
stjórnar fulltrúaráðsins og for-
maður kjörnefndarinnar, segist
vera ánægður með listann og þá
afgreiðslu sem hann tekk í full-
trúaráðinu, en listinn var sam-
þykktur með yfirgnæfandi meiri-
hluta atkvæða. „Þetta er búin að
vera mikil vinna. Sú aðferð sem
valin er um forvaliö, skoðana-
könnun eða prófkjör, ræður
miklu um hversu miklum tíma
þarf að verja til þessa," segir
hann. EHB
Heilsugæslustöðin á Akureyri:
Gott heilsufar í febrúar
Heilsufar íbúa á svæði Heilsu-
gæslustöðvarinnar á Akureyri
hefur verið með ágætasta móti
í vetur að mati heimilislækna
og hefur inflúensu t.d. ekki
tekist að verða að neinum far-
aldri.
í febrúar voru aðeins 11 manns
skráðir með flensu, 5 lungna-
bólgu og 248 með kvef og háls-
bólgu. Þá fengu 24 streptókokka
hálsbólgu og 4 eitlafár.
Hlaupabólutilfellin eru alltaf
nokkur, að þessu sinni 9 talsins.
Hettusóttartilfellin eru tvö og
magakveisan virðist vera í rénum
því hana fengu nú „aðeins“ 42.
Þrír sjúklingar eru skráðir með
kláðamaur í mánuðinum, 1 fékk
flatlús og 3 þvagrásarbólgu.
Upplýsingar þessar ber að taka
með þeim fyrirvara að það er
matsatriði einstakra lækna hvort
og hvenær skrá skuli einstök
sjúkdómstilfelli. VG
DNG og Sæplast:
Sýna í Bandaríkjunum
og Skotlandi
DNG á Akureyri og Sæplast á
Dalvík taka bæði þátt í stórum
sjávarútvegssýningum á
erlendri grund á næstunni.
Fyrri sýningin er „Boston
Seafood“ sem haldin verður
dagana 20.-22. mars og sú síð-
ari er „Fishing ’90“ sem haldin
verður dagana 2.-8. apríl.
Nokkur íslensk fyrirtæki sýna á
sameiginlegu sýningarsvæði
Útflutningsráðs íslands, bæði í
Boston og Glasgow. Þeirra á
meðal er Sæplast á Dalvík. Á
sýningunni í Glasgow slæst DNG
ásamt fleiri fyrirtækjum í sýning-
arhópinn en í heild kynna 11
íslenskir aðilar vörur sínar á
þessari sýningu.
Á þessum sýningum hafa fjöl-
mörg íslensk fyrirtæki komist í
viðskipti á síðustu árum og á
þessum vettvangi hafa opnast
leiðir inn á nýja markaði. JÓH
hálka var þar sem óhappið átti
sér stað. Engin meiðsl urðu á
fólki en bíllinn skemmdist mik-
ið og er sennilega ónýtur.
Staðið hefur til síðastliöin tíu
ár að byggja nýja brú á Vesturós
Héraðsvatna. Vegurinn er mjög
varasamur eins og hann er beggja
vegna við brúna. Austan við
brúna er S-beygja í talsverðum
bratta og að vestan er mjög
lúmsk beygja cinmitt þar sem
óhappið átti sér stað.
Brúin sjálf er orðin mjög hrör-
leg og tclst vera orðin óhæf fyrir
þá miklu umferð sem er yfir
hana. Bundið slitlag er langleið-
ina að brúnni og því ökuhraði
talsvert mikill.
Að sögn Jónasar Snæbjörns-
sonar hefur ný brú á Vesturós
verið á langtímaáætlun undanfar-
in ár. Þó verður ekki farið í fram-
kvæmdir við brúna fyrr en 1993 í
fyrsta lagi. kg
HOTEL KEA
Laugardagskvöldið 17. mars
Hljómsveitin kvartett
leikur fyrir dansi
Húsið opnað fyrir aðra en matargesti kl. 23.00.
SUNNUDAGSVEISLA
Á SÚLNABERGI
sem slegið hefur svo skemmtilega í gegn,
næsta sunnudag um hádegi og kvöld.
★
Nú fara að verða síðustu forvöð að panta
fermingarveisluna
Íl
frá veislueldhúsi Hótel KEA.
Bjóðum nú sem áður
okkar glæsilegu „Köldu borð"
sem gegnum árin hafa gert
þúsundir veislugesta hæstánægða.
Hótel KEA
fyrir vol /ieppnað«i ve/s/n
i