Dagur - 21.03.1990, Side 1
Ætt tynrir-
Herrauna
Í|errabodin
■ HAFNARSTRXTI 9? 60? AKURE YRI Sl«l 9676708 BOX 397
Dómur fallinn í hrossamálinu:
73. árgangur Akureyri, miðvikudagur 21. mars 1990 56. töiublað
Hrossið verður bætt
- landslög banna ekki lausagöngu hrossa
Dómur er fallinn í máli Magn-
úsar Svavarssonar og Magnús-
ar Sigmundssonar. Eins og
kunnugt er kærði Magnús
Svavarsson nafna sinn Sig-
mundsson. Hann krafðist þess
að Magnús Sigmundsson borg-
aði skemmdir þær sem urðu á
bíl hans þegar hann ók á hross
nafna síns. Tryggingafélag
Magnúsar Svavarssonar hefur
tekið þá ákvörðun að bæta
hrossið.
Spurningakeppni
framhaldsskólanna:
Síðari undan-
úrslit verða
í Reykjavík
Ákveðið hefur verið að síðari
undnaúrslitakeppni í spurn-
ingakeppni framhaldsskólanna
fari fram í Reykjavík þrátt fyr-
ir að Menntaskólinn á Akur-
eyri, sem kcppir við Mennta-
skólann við Sund, hafí fengið
heimaleik í drætti í undanúr-
slitin. Af hálfu Sjónvarpsins
reyndist ekki unnt að taka
keppnina upp á Akureyri og
senda út samdægurs.
í viðræðum milli Sjónvarpsins
og Skólafélags M.A. varð að
samkomulagi að Sjónvarpið veiti
klappliði M.A. í staðinn fjár-
stuðning til að fara til Reykjvíkur
og styðja sína menn í keppninni
en þessi lið mætast næstkomandi
föstudagskvöld. Jafnframt var sú
hugmynd viðruð að ef liði M.A.
tækist að komast alla leið í úr-
slitakeppnina þá færi hún fram á
Akureyri. Þessari hugmynd
munu sjónvarpsmenn ekki hafa
tekið fálega. JÓH
Hjá Sjóvá Almennum fengust
þær upplýsingar að meðan lands-
lög bönnuðu ekki lausagöngu
hrossa yrði að bæta þau hross
sem ekið væri á.
í Staðarhreppi þar sem óhappið
átti sér stað, er lausaganga hrossa
ekki bönnuð. í næsta hreppi,
Skarðshreppi, er lausaganga
hrossa hins vegar bönnuð.
Hefði Magnús Svavarsson ekið
á hrossið þremur kílómetrum
norðar á Sauðárkróksbraut hefði
það legið óbætt.
Ólíklegt verður að teljast að
Magnús Sigmundsson þurfi að
borga skemmdir á bíl nafna síns
eins og hann gerði kröfu um.
Fljótlega heyra sögunni til
dómar af þessu tagi ef bann við
lausagöngu hrossa nær fram að
ganga. Búnaðarþing lýsti nýlega
yfir stuðningi við tillögur þess
efnis. kg
*.
V
Gleymið ekki að gefa smáfuglunum.
Mynd: KG
A Flugleiðir og FN:
Alagstími framundan á Akureyrarflugvelli
- Qöldi fólks væntanlegur til bæjarins
Búist er við mjög mikilli
umferð um Akureyrarflugvöll
næstu vikurnar. Þessi törn
hefst á fímmtudag þegar
briddsspilarar flykkjast til
bæjarins og síðan hefst Yetrar-
íþróttahátíð ÍSÍ á föstudaginn
og stendur hún til 1. apríl.
Fjölmargt fólk er væntanlegt
til Akureyrar í tilefni hátíðar-
innar og í apríl verður líka
mikil umferð, t.a.m. vegna
páskatrimms Flugleiða og
Andrésar Andar-leikanna.
Gunnar Oddur Sigurðsson,
umdæmisstjóri Flugleiða, sagði
að lítið væri að marka tölur yfir
íslandsbanki á Akureyri:
Guðjón Steindórsson
ráðinn útibússtjóri
í gær var Guðjón Stein-
dórsson ráðinn útibússtjóri
íslandsbanka hf. á Akureyri.
Gengið var frá ráðningu hans
á bankaráðsfundi í gær.
Guðjón er Akureyringur,
Guðjón Steindórsson útibússtjórí
íslandsbanka.
fæddur 7. ágúst 1949. Hann
lauk prófi frá Verslunarskóla ís-
lands árið 1969, og starfaði eftir
það í tæpt ár hjá uinboði Sjó-
vátryggingafélags íslands á
Akureyri. Að því búnu fór
hann til starfa hjá Búnaðar-
banka íslands, Akureyri, og var
þar í átta ár. Guðjón réðist því
næst til starfa hjá Iðnaðarbanka
íslands. Hjá útibúi Iðnaðar-
bankans á Akureyri starfaði
Guðjón frá miðju ári 1977.
Guðjón tók við starfi útibús-
stjóra Iðnaðarbanka íslands á
Akureyri I. júlí 1987, af Sigurði
Ringsted.
Foreldrar Guðjóns eru Svava
Guðjónsdóttir, sem starfaði
lengi hjá Lindu hf., og Steindór
Jónsson, sölumaður, en hann er
látinn. Eiginkona Guðjóns er
Ásla Hrönn Björgvinsdóttir, og
eiga þau tvö börn, Davíð Stein-
ar 6 ára og Helgu Margréti 4
ára. EHB
fjölda bókana, þær breyttust dag
frá degi, en ljóst væri að mikill
álagstími væri framundan á
Akureyrarflugvelli. Hann sagði
að janúar og febrúar hefðu verið
lélegir mánuðir en bókanir hefðu
tekið kipp í mars.
„Við erum í viðbragðsstöðu og
verðum tilbúnir til að anna allri
eftirspurn. Það verður mikið að
gera hjá okkur frá næstu helgi og
út apríl og líklegt að Flugleiðir
þurfi að taka þotur úr milli-
landafluginu á mestu álagstímun-
um. Við fengum með skipi stóran
bíl fyrir nýju þoturnar svo hægt
verði að afgreiða þær hér,“ sagði
Gunnar Oddur.
Flugfélag Norðurlands og
Flugleiðir munu að vanda hafa í
mörg horn að líta í kringum
páskana og hina fjölmennu
Andrésar Andar-leika sem hefj-
ast strax eftir páska.
Þegar svo margt fólk kemur
með flugi noröur er hætt við að
vélarnar fari hálftómar suöur aft-
ur en ferðaskrifstofurnar hafa
gripið inn í og boðið fólki ódýrar
pakkaferðir til Reykjavíkur
þannig að vélarnar ættu að nýtast
vel.
„Við lítum fram á veginn í von
um bjart og gott vcður,“ sagði
Gunnar Oddur að lokum. SS
Kaupfélag Skagfirðinga:
Verulegur bati í
rekstri fyrirtækisins
- rekstrarhagnaður um 16,7 milljónir
Rekstur Kaupfélags Skagfírö-
inga gekk mun betur áriö 1989
heldur en 1988. Talsverð veltu-
aukning varð í rekstri fyrir-
tækisins. Heildarvelta varð
2.323 milljónir króna. Er það
aukning um 22.5% frá árinu á
undan. Mest varð veltuaukn-
Bæjarstjórn Akureyrar:
Rætt um staðsetningu
slökkvistöðvar
Nokkrar umræður urðu um
staðsetningu nýrrar slökkvi-
stöðvar á Akureyri á fundi
bæjarstjórnarinnar í gær. Sam-
þykkt var tillaga frá Alþýðu-
bandalaginu um að bæta Krók-
eyri við þá staði sem sýndir
verða í skipulagstillögu um
mögulega staðsetningu stöðv-
arinnar.
Freyr Ófeigsson, formaður
skipulagsnefndar, gerði staðsetn-
ingarmál slökkvistöðvar að
umræðuefni á fundinum. Hann
sagði að meirihluti nefndarinnar
væri á móti staðsetningu slökkvi-
stöðvar við Drottningarbraut,
sunnan bensínstöðvar Esso, en
tók jafnframt fram að minnihluta
nefndarinnar í þessu máli skip-
uðu hann sjálfur og fulltrúi Fram-
sóknarflokksins, Jónas Karles-
son.
Sigríður Stefánsdóttir flutti til-
löguna um að Krókeyri yrði sýnd
sem valkostur á skipulagsstillögu.
Hinir staðirnir sem skipulags-
nefnd mælti með að sýna eru lóð
vestan gatnamóta Dalsbrautar og
Borgarbrautar, og staðsetning
við Krossanesbraut norðan
Undirhlíðar. „Mér finnst sjálf-
sagt að hafa Krókeyri inni í
myndinni, svo sá staður verði
ekki útilokaður,“ sagði Sigríður á
fundinum. EHB
ingin í verslun eða um 30%.
Þær rekstrareiningar sem
bættu rekstur sinn hvað mest
eru útibúið í Varmahlíð og
Skagfírðingabúð á Sauðár-
króki.
Heildarvelta Kaupfélags Skag-
firðinga og Fiskiðju Sauðárkróks
varð 2.8 milljarðar. Er það veltu-
aukning um 33% frá árinu á
undan.
Eiginfjárstaða fyrirtækisins
skánaði til muna á síðasta ári.
Eigið fé var í árslok 629,1 milljón
og er það aukning um 122 millj-
ónir.
Að sögn Þórólfs Gíslasonar
kaupfélagsstjóra er hagræðing í
verslun megin skýring á bættri
afkomu Kaupfélags Skagfirð-
inga. „Við stefndum að hallalaus-
um rekstri á síðasta ári og það
markmið náðist. Útlitið fyrir
þetta ár skýrist fljótlega. Áhrif
virðisaukaskattsins koma í Ijós
eftir uppgjör fyrir fyrstu þrjá
mánuði ársins," sagði Þórólfur.
H ignaður af rekstrinum á síð-
asta ári var 16,7 milljónir saman-
borið við 36.8 milljóna tap árið
1988.
Heildarfjárfesting fyrirtækisins
var rúmlega 80 milljónir. Hluta-
fjáraukning í fyrirtækjum í sjáv-
arútvegi voru þar af um 55 millj-
ónir króna. kg