Dagur - 21.03.1990, Side 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 21. mars 1990
Búnaðarsambönd eiga í vemlegum Qárhagserfiðleikum:
Dæmalaus meðferð á greiðslu
lögboðinna framlaga
- ríkisvaldið á enn eftir að gera upp árin 1988 og 1989
IHa horfir í starfsemi búnaðar-
sambandanna í landinu sökum
fjárhagserfiðleika. Ástæðan er
fyrst og fremst sú að tekjur
sambandanna, samkvæmt
jarðræktar- og búfjárræktar-
lögum, hafa ekki borist á til-
settum tíma. Félag héraðs-
ráðunauta fjallaði um þetta
mál á aðalfundi sínum í janúar
sl. og lagði stjórn Búnaðarfé-
lags Islands ályktun fundarins
fyrir Búnaðarþing.
Félag héraðsráðunauta bendir
á að t.d. hafi greiðslur til búnað-
arsambandanna, þ.e. aðrar en
launa- og ferðakostnaðarhluti,
fyrir starfsemi og jarðræktar-
framkvæmdir á árinu 1987 ekki
borist samböndunum fyrr en á
gamlársdag 1989 og í janúar
1990. Engin vissa liggi fyrir hjá
búnaðarsamböndunum um
greiðslur hliðstæðra framlaga
vegna áranna 1988 og 1989.
Starfsemi sambandanna á þessu
ári byggist á því að þessar tekjur
skili sér með eðlilegum hætti.
Ráðunautarnir benda jafn-
framt á í ályktun sinni að hvað
laun varðar hafi þeir dregist
nokkuð aftur úr starfsbræðrum
sínum hjá Búnaðarfélagi íslands.
Þá liggi ennfremur fyrir háar fjár-
kröfur á a.m.k. sum búnaðar-
samböndin um greiðslu til Lífeyr-
issjóðs opinberra starfsmanna
vegna greiðslu eftirlauna.
„Niðurstaða í því hvort búnaðar-
samböndin fái nýja tekjustofna
til að mæta þeim samdrætti í tekj-
um sem hér er bent á þarf að
liggja fyrir eigi síðar en í mars-
mánuði. A því veltur hvort sam-
böndin geta starfað á árinu 1991.
Fáist ekki vitneskja um lausn á
fyrirsjáanlegum fjárhagsvanda
búnaðarsambandanna fyrir þann
tíma, sem tilgreindur er hér að
framan, felur fundurinn stjórn
félagsins að boða til fundar með
félagsmönnum til þess að ræða og
taka afstöðu til þeirrar óvissu
sem þá ríkir í atvinnuöryggi
félagsmanna hjá búnaðarsam-
böndunum,“ segir í ályktun aðal-
fundar Félags héraðsráðunauta.
Búnaðarþing sendi landbúnað-
arnefndum Alþingis bréf þar sem
vonbrigðum er lýst með að van-
greidd framlög fyrri ára hafi ekki
verið greidd eins og samkomulag
hafi verið um. í ályktun þingsins
er skorað á landbúnaðarráðherra
og fjármálaráðherra að færa þessi
mál í rétt horf nú þegar.
„Búnaðarþing harmar dæma-
lausa meðferð á greiðslu fram-
laga skv. búfjárræktar- og jarð-
ræktarlögum og gerir þá ein-
dregnu kröfu, að tafarlaust verði
fylgt fram því samkomulagi, sem
gert var við setningu þeirra um
uppgjör skulda og fjárveitingu á
fjárlögum skv. heimildum lag-
anna,“ segir í ályktun Búnaðar-
þings. JÓH
Próun landbúnaðar til aldamóta:
Raimhæf spá erfið
sökum margra óvissuþátta
Hver verður þróun landbúnað-
ar á íslandi til aldamóta?
Nefnd sem skipuð var á búnað-
arþingi í fyrra vinnur að heild-
aráætlun um þetta efni og skil-
aði áfangaskýrslu á nýafstöðnu
búnaðarþingi. í skýrslunni
kemur fram að það kunni að
reynast erfitt að spá um fram-
tíðarþróunina þar sem svo
margir óvissuþættir séu nú í
stöðu og þróun landbúnaðar-
ins.
„f>ótt sett séu fram ákveðin
markmið til að stefna að um
stöðu landbúnaðar og dreifbýlis
um aldamót ræðst það mjög af
aðgerðum stjórnvalda hver skil-
yrði þjóðfélagið býr landbúnað-
inum til að ná þeim markmiðum
sem við setjum okkur.
Með aukinni tæknivæðingu má
reikna með að færri ársverk þurfi
til að framleiða það magn land-
búnaðarafurða sem þjóðin þarfn-
ast og því þurfa að koma til ný
atvinnutækifæri í dreifbýli til að
vega upp á móti þeirri fækkun
sem af þessu leiddi," segir í
áfangaskýrslunni.
Fram kemur að í starfi nefnd-
arinnar hefur víða verið leitað
eftir upplýsingum um stöðu og
horfur í íslenskum landbúnaði,
fjölda bænda, framleiðslu og sölu
afurða liðna áratugi og vísbend-
ingar um mannfjölda og neyslu
næsta áratuginn. Eitt þeirra
atriða sem erfiðleikum veldur
hvað framtíðarsýn í þessum
málaflokki varðar er að endur-
skoðun á búvörusamningi milli
bænda og ríkisvaldsins, sem
reiknað hafði verið með að gerð
yrði á síðast ári, hefur ekki farið
fram.
„Stöðug ásókn um aukinn inn-
flutning ýmissa landbúnaðarvara,
erfið staða og óljós hjá nokkrum
búgreinum t.d. sauðfjárrækt,
loðdýrarækt og fiskeldi eru því
valdandi að nefndin telur rétt að
fresta um sinn frekari vinnu og
framlagningu álits.“ JÓH
Bylting hcfur átt sér stað í heyskap hér á landi á síðustu árum þar sem eru
rúllubaggar. Kannski er hér aðeins upphafíð á miklum breytingum í land-
búnaði hér á iandi.
Búnaðar-
þings-
molar
Landbúnaður og salmonellasmit
í erindi sínu til Búnaðarþings skora Sigurður Pórólfsson, Jón Hólm Stefáns-
son, Jón Guðmundsson og Bjarni Guðráðsson á þingið að taka til umfjöllunar
og ályktunar þann vanda sem steðjað gæti að íslenskri landbúnaðarframleiðslu
í kjölfar salmonellasmits, sem upp kom á síðasta ári. í ályktun þingsins um
málið segir að brýnt sé að snúist verði til varnar sýkinga af völdum smitbera
vegna lélegrar umhirðu sorphauga, fiskúrgangs, úrgangs frá sláturhúsum og
ófullnægjandi frágangs við frárennsli. Héraðsnefndir skuli gangast fyrir
fræðslu- og kynningarfundum um þessi mál og í tengslum við þá hafa samband
við Hollustuvernd ríkisins, embætti yfirdýralæknis, embætti landlæknis og
embætti veiðistjóra.
Skipulag á sölu og dreifmgu
á kartöflum og grænmeti
Jón Hólm Stefánsson óskaði eftir því við þingið að til umfjöllunar og ályktunar
yrði tekin nauðsyn þess að skipulagi verði komið á dreifingu og sölu á kartöfl-
um og grænmeti, svo sem kveðið sé á um í búvörulögum. Fyrir þingið voru
lögð drög að reglugerð um afurðastöðvar fyrir kartöflur, nýtt grænmeti og
sveppi og til afgreiðslu á erindi Jóns Hólm mælti þingið með að tillögur að
reglugerðinni yrðu staðfestar, þó með þeirri breytingu að inn komi ákvæði sem
heimila framleiðendum grænmetis að selja framleiðslu sína á svonefndum.úti-
mörkuðum.
Forfalla- og afleysingaþjómista
Fjórar breytingar vill Búnaðarþing að gerðar verði á frumvarpi til laga um for-
falla- og afleysingaþjónustu í sveitum en Stéttarsamband bænda mælti með
lögfestingu á frumvarpinu á síðasta aðalfundi sínum, þó með því skilyrði að
framleiðendagjald til Stofnlánadeildar lækki um sama hlutfall og gjaldtökunni
nemur. Pær breytingar sem Búnaðarþing vill eru:
- að niður falli að bændur njóti forfallaréttinda fyrir starfsfólk,
- að gjald fyrir þessa þjónustu skuli vera 0,4% af verði til framleiðenda í 'stað
0,5%,
- að allir bændur og makar þeirra, svo og bústjórar, eigi rétt á aðstoð í veik-
inda- og slysatilfellum, enda séu þeir fullgildir aðilar að búnaðarsambandi
og að til að njóta réttinda til forfallaþjónustu verði bændur að vera fullgildir
aðilar að búnaðarsambandi, annað hvort í gegnum búnaðarfélag eða bú-
greinafélög.
Stimplun á kjöti
Þingið tók til umfjöllunar erindi Jóseps Rósinkarssonar um stimplun kjöts við
heilbrigðisskoðun. „Búnaðarþing beinir því til yfirdýralæknis og yfirkjötmats
ríkisins, að hlutast til um, að stimplun á kjöti verði framvegis hagað þannig að
fram komi frá hvaða ári framleiðslan er og af hvaða gæðaflokki.“
Kjarasamningur lausráðins
fólks í sveitum
Síðastliðið sumar gerðu Verkamannasamband íslands og Stéttarsamband
bænda samning um kaup og kjör lausráðins fólks á bændabýlum. Búnaðarþing
beindi því til stjórnar Búnaðarfélags íslands að hún sjái til þess að samningur-
inn verði rækilega kynntur bændum, enda eru réttindi starfsfólksins til bóta úr
Atvinnuleysistryggingasjóði byggð á þessum samningi.
Ríkisstjórn og Alþingi
taki á vanda fóðurstöðvanna
Egill Jónsson, alþingismaður og fulltrúi á Búnaðarþingi, gerði vanda loðdýra-
bænda að umtalsefni á þinginu og sagði í erindi sínu að við þær aðstæður sem
þessi grein búi nú geti Búnaðarþing ekki látið málið afskiptalaust. Ekki taldi
þingið forsendu fyrir ályktun um vanda loðdýrabænda sem einstaklinga þar
sem nú standi yfir skuldbreyting samkvæmt nýsamþykktum lögum á Alþingi.
„Hins vegar bendir þingið á að málefni og staða fóðurstöðvanna hefur ekki
verið tekin til meðferðar á sama hátt og einstaklinganna. Svo kann að fara að
vandi fóðurstöðvanna komi í veg fyrir að aðrar úrlausnir komi að gagni. Bún-
aðarþing skorar því á ríkisstjórn og Alþingi að hlutast nú þegar til um að vandi
fóðurstöðvanna verði leystur á raunhæfan hátt.“ JÓH