Dagur - 21.03.1990, Qupperneq 10
10 - DAGUR - Miðvikudagur 21. mars 1990
myndasögur dags
ÁRLAND
Eg vil bara
ná í
dótið!
Auðvitað, þeir
þurfa alltaf að láta
það á botninn í
pakkanum!
Getur þú ekki gleymt þessu
núna Daddi... Þetta er
hvort sem er svo ómerkilegt
dót alltafl! j
Teddi, viltu Daddi, mamma
tala við þín hefur rétt fyrir
son þinn!? sér! Dótið er
ómerkilegt!..
Sko ... heyrir
þú hvað
pabbi þinn
segir!
Auk þess náði
ég því úr pakk-
anum í gær!
ANDRÉS ÖND
HERSIR
# Seinheppinn
þingmaður
íbúar Norðurlandskjördæm-
is eystra eiga vafalaust ein-
hvern seinheppnasta þing-
mann, sem nú sigur á þingi.
Hann er sítalandi á Alþingi,
sérstaklega utan dagskrár
og iðinn við að skrifa í
Morgunblaðið. Nýjustu af-
rek hans á þeim vettvangi
voru greinar um álver við
Eyjafjörð og jarðgöngin í
Ólafsfjarðarmúla.
# Múlagöngin
Sama dag og Eyfirðingar
fögnuðu því innilega að
samgöngumálaráðherra
kom norður og framkvæmdi
síðustu sprenginguna í
j Ólafsfjarðargöngunum,
| skrifaði þingmaðurinn grein
í Morgunbiaðiö þar sem
| hann þakkaði sér og öðrum
[ sjátfstæðismönnum þessa
\ framkvæmd. Flestir gera sér
auðvitað grein fyrir því að í
fyrsta lagi greiðir þjóðin öll
þessa framkvæmd, að í
öðru lagi er það sú, ríkis-
stjórn sem nú situr sem hef-
ur komið þessu máli í höfn
öðrum fremur og að í þriðja
lagi eru umræddur þing-
maður og flokkurinn hans
ekki aðilar að þeirri ríkis-
stjórn. Þess vegna var til-
raun þingmannsins til að
eigna sér og sínum fram-
kvæmdirnar í Ólafsfjarðar-
múla kostuleg og dæmd til
að mistakast.
• Um
frumkvæði
í álmálinu
Það vakti ekki síður athygli
manna þegar þingmaðurinn
reyndi í einni Morgunblaðs-
greininni að slá Sigurð J.
Sigurðsson, forseta bæjar-
stjórnar Akureyrar, til ridd-
ara í álmálinu. Þetta gerði
hann með því að tala fjálg-
lega um „frumkvæði Sig-
urðar J. í álmálinu". Sann-
leikurinn er sá að núverandi
meirihluti í bæjarstjórn
Akureyrar hefur ósköp fátt
látið frá sér fara um álmálið
svokallaða. Það var Héraðs-
nefnd Eyjafjarðar sem fyrst
hreyfði því máli, síðan
ályktuðu verkalýðsfélögin í
Eyjafirði um málið og þá
framsóknarmenn á Akur-
eyri, fyrstir stjórnmála-
flokka. Hvernig í ósköpum
umræddur þingmaður getur
lesið frumkvæði forseta
bæjarstjórnar út úr þessu,
er flestum hulin ráðgáta.
Sigurði J. er örugglega eng-
inn greiði gerður með svona
„sagnfræði". Þingmannin-
um væri nær að reyna að fá
samflokksmenn sína fyrir
sunnan, Friðrik Sophusson
og Co., til að standa með
Eyfirðingum i álmálinu.
Já, það er sannarlega gott |
j að eiga H ... í horni, eða jj
j þannig. f
dagskrá fjölmiðla
Sjónvarpið
Miðvikudagur 21. mars
17.50 Töfraglugginn (21).
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Poppkorn.
19.20 Umboðsmaðurinn (2).
(The Fameous Teddy Z)
Bandarískur gamanmyndaflokkur.
19.50 Bleiki pardusinn.
20.20 Fréttir og veður.
20.35 Á tali hjá Hemma Gunn.
írski þjóðlagasöngvarinn Michael Kiely
tekur lagið. Söngvaramir Reynir Guð-
mundsson og Sigríður Beinteinsdöttir
koma í heimsókn sem og ramm-vestfirsk-
ur dúett. Spurningakeppnin og falda
myndavélin verða á sínum stað og margt
fleira verður til gamans gert.
Umsjón Hermann Gunnarsson.
21.40 Skilnaður.
(Bill of Divorcement.)
Bandarísk bíómynd frá árinu 1932.
Aðalhlutverk John Barrymore, Katharine
Hepburn og Billie Burke.
Manni tekst að strjúka eftir 15 ára vist á
geðveikrahæli. Hann kemst að því að
margt er öðruvísi en áður var hjá konu
hans og dóttur.
23.00 Ellefufréttir.
23.10 íþróttaauki.
Evrópumótin í knattspyrnu. Svipmyndir
frá leikjum fyrr um kvöldið m.a. 15 mín-
útna kafli úr leik PSV Eindhoven og
Bayern Munchen.
23.30 Dagskrárlok.
Stöð 2
Miðvikudagur 21. mars
15.25 Emma, drottning Suðurhafa.
(Emma, Queen of the South Seas.)
Seinni hluti.
17.05 Santa Barbara.
17.50 Fimm félagar.
(Famous Five.)
18.15 Landslagið.
Nú verða leikin lögin tíu sem komust í
úrslit í Landslaginu, söngvakeppni Stöðv-
ar 2.
19.19 19:19.
20.30 Af bæ í borg.
21.00 Á besta aldri.
21.40 Snuddarar.
(Snoops.)
22.25 Michael Aspel.
23.05 Sofið hjá.
(Cross My Heart.)
„Ef þú hefur einhvern tímann endað
stefnumót heima hjá henni eða honum þá
er þessi mynd fyrir þig," segir leikstjórinn
Armyan Bumstein um þessa mynd sína.
Þetta er mannleg gamanmynd um þau
David og Kathy sem bæði eru einhleyp og
eru að fara á sitt þriðja stefnumót.
Aðalhlutverk: Martin Short, Annette
O'Tool, Paul Reiser og Joanna Kerns.
Bönnuð börnum.
00.35 Dagskrárlok.
Rás 1
Miðvikudagur 21. mars
6.45 Veðurfregnir • Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið.
Randver Þorláksson.
Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00
og veðurfregnir kl. 8.15. Auglýsingar
laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00.
Bergljót Kristjánsdóttir talar um daglegt
mál laust fyrir kl. 8.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn: „Eyjan hans
Múmínpabba" eftir Tove Jansson.
Lára Magnúsardóttir les þýðingu Stein-
unnar Briem (13).
9.20 Morgunleikfimi.
9.30 Landpósturinn - Frá Norðurlandi.
Umsjón: Áskell Þórisson.
10.00 Fréttir.
10.03 Neytendapunktar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Úr bókaskápnum.
Ema Indriðadóttir skyggnist í bókaskáp
Guðmundar Stefánssonar framkvæmda-
stjóra. (Frá Akureyri.)
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur.
11.53 Á dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar.
12.15 Daglegt mál.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir • Dánarfregnir • Aug-
lýsingar.
13.00 í dagsins önn - Að komast upp á
topp.
Umsjón: Bergljót Baldursdóttir.
13.30 Miðdegissagan: „Fátækt fólk" eftir
Tryggva Emilsson.
Þórarinn Friðjónsson les (21).
14.00 Fréttir.
14.03 Harmonikuþáttur.
15.00 Fréttir.
15.03 Samantekt um barnaverndarnefndir
á landsbyggðinni.
Umsjón: Guðrún Frímannsdóttir.
15.45 Neytendapunktar.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin.
16.08 Þingfréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi.
18.00 Fréttir.
18.03 Að utan.
18.10 Á vettvangi.
18.30 Tónlist • Auglýsingar • Dánarfregnir.
18.45 Veðurfregnir • Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Auglýsingar.
19.32 Kviksjá.
20.00 Litli barnatíminn.
20.15 Samtímatónlist.
21.00 Ráðskona í sveit.
Umsjón: Steinunn Harðardóttir.
21.30 íslenskir einsöngvarar.
22.00 Fréttir.
22.07 Að utan.
22.15 Veðurfregnir • Dagskrá morgun-
dagsins.
22.20 Lestur Passíusálma.
Ingólfur Möller les 32. sálm.
22.30 íslensk þjóðmenning - Uppruni
íslendinga.
23.10 Nátthrafnaþing.
Málin rædd og reifuð.
Umsjón: Ævar Kjartansson.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómuí.
01.00 Veðurfregnir.
Rás 2
Miðvikudagur 21. mars
7.03 Morgunútvarpið - Úr myrkrinu, inn
í ljósið.
Leifur Hauksson og Jón Ársæll Þórðarson
hefja daginn með hlustendum.
08.00 Morgunfréttir.
- Morgunútvarpið heldur áfram.
9.03 Morgunsyrpa.
Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir.
11.03 Gagn og gaman
með Jóhönnu Harðardóttur.
12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
- Gagn og gaman heldur áfram.
14.03 Brot úr degi.
Eva Ásrún Albertsdóttir.
16.03 Dagskrá.
Dægurmálaútvarp.
Sigurður G. Tómasson, Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson og Katrín Baldursdóttir.
- Kaffispjall og innlit upp úr kl. 16.00.
- Stórmál dagsins á sjötta tímanum.
- Gæludýrainnskot Jóhönnu Harðardótt-
ur.
18.03 Þjóðarsálin, þjóðfundur í beinni
útsendingu, sími 91-38500.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Zikk zakk.
Umsjón: Sigrún Sigurðardóttir og Sigríður
Arnardóttir.
20.30 Gullplatan.
Að þessu sinni „Imagine“ með John
Lennon.
21.00 Rokksmiðjan.
Lovísa Sigurjónsdóttir kynnir rokk í
þyngri kantinum.
22.07 „Blítt og Iétt...“
Gyða Dröfn Tryggvadóttir rabbar við sjó-
menn og leikur óskalög.
23.10 Fyrirmyndarfólk.
00.10 í háttinn.
01.00 Næturvakt á báðum rásum til
morguns.
Fréttir eru sagðar kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9,
10, 11, 12, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22
og 24.
Næturútvarpið
1.00 Áfram ísland.
2.00 Fréttir.
2.05 Raymond Douglas Davies og hljóm-
sveit hans.
3.00 Á frívaktinni.
4.00 Fréttir.
4.05 Glefsur.
4.30 Veðurfregnir.
4.40 Á vettvangi.
5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
5.01 Ljúflingslög.
6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
6.01 Á þjóðlegum nótum.
Ríkisútvarpið á Akureyri
Miðvikudagur 21. mars
8.10-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
Hljóðbylgjan
Miðvikudagur 21. mars
17.00-19.00 Tími tækifæranna
á sinum stað kl. 17.30. Þáttur fyrir þá sem
þurfa að selja eða kaupa.
Beinn sími er 27711.
Fréttir kl. 18.00.