Dagur - 23.03.1990, Blaðsíða 1
Filman þin
á skiliö þaö
besta1
Nýja Filmuhúsió
Hafnarstræti 106 Sími 27422 Pósthólf 196
gæðaframköllun
Hrað-
framköllun
Opið á
laugardögum
frá kl. 9-12. :'
Sláturhúsið á Dalvík:
Úrelding á dagskrá
á firndi með ráðherra
Þess er vænst að úreldingarmál
sláturhússins á Dalvík skýrist
eftir fund Magnúsar Gauta
Gautasonar, kaupfélagsstjóra
KEA, og Steingrínis J. Sigfús-
sonar, landbúnaðarráðherra,
Lögreglan:
Fimm óhöpp
á Akureyri
Síðdegis í gær höfðu fimm um-
ferðaróhöpp verið tilkynnt til
lögreglunnar á Akureyri. Þar
var um að ræða þrjá árekstra
og tvær ákeyrslur þar sem ekið
var á kyrrstæða bíla. Öku-
menn stungu af í báðum tilvik-
um og voru málin óupplýst í
sem áætlaður er undir lok
þessarar viku.
Úrelding sláturhússins-á Dal-
vík hefur lengi velkst í kerfinu.
Eins og kunnugt er var sauðfjár-
slátrun í húsin’u lögð af samhliða
því sem fjárstofn í Svarfaðardal
var skorinn niður vegna riðu.
Bændur í Svarfaðardal og Ár-
skógshreppi hafa lagt á það
áherslu að úrelding hússins nái
aðeins til sauðfjárslátrunar en
áfram verði heimilt að lóga þar
stórgripum.
„Ég vona að þetta mál fari að
skýrast. Mikilvægt er að fá skýr
svör um fyrirkomulag slátrunar
fyrir deildarfund KEA hér 3.
apríl nk.,“ sagði Rögnvaldur
Skíði Friðbjörnsson, útibússtjóri
KEA á Dalvík. óþh
Undanúrslitakeppni Islandsinótsins í bridds hófst í Alþýðuhúsinu á Akur-
eyri í gær. Bridgesamband íslands stendur fyrir mótinu og á innfelldu
myndinni er Helgi Jóhannsson frá sambandinu, en hann setti mótið form-
lega í gær. Mynd: KL
Skoðanakönnun SKÁÍS sýnir að flestir vilja reisa álver við Eyjafiörð:
„Viöhorflð er að breytast okkur í hag“
segir Sigfús Jónsson, bæjarstjóri
gær.
Á Siglufirði hélt áfram að
snjóa í gær og það mikið, að sögn
lögregluþjóns á staðnum. Hann
sagði að búast mætti við snjó-
flóðahættu ef fannkoman héldi
áfram og skafrenningur bættist
við.
Umferðin var óhappalaus á
Siglufirði í gær. Ekki var rutt til
bæjarins og landleiðin því enn
ófær. Hins vegar var flogið þang-
að um hádegisbilið áður en hríð-
in skail á. SS
Tekist hafa samningar um aö
Ferðaskrifstofan Nonni hf. á
Akureyri veröi söluaðili fyrir
farþegaflutninga með nýju
Hríseyjar-Grímseyjarferjunni,
sem væntanleg er til landsins í
byrjun næsta mánaðar.
Eins og kunnugt er kom upp
vélarbilun í ferjunni ytra og var
hún snarlega tekin til viðgerðar í
Bergen í Noregi. í fyrradag var
byrjað að setja vélina saman á ný
og að sögn Guðjóns Björnssonar,
sveitarstjóra í Hrísey, verður
ljóst um eða eftir helgi hvenær
nákvæmlega er von á ferjunni
hingað til lands.
Gert er ráð fyrir að ferjan fari
þá þegar í vöruflutninga og
samhliða þeim verði unnið að
breytingum á henni fyrir fólks-
flutninga á komandi sumri.
Fólksflutningaáætlun ferjunn-
ar sem gildir 1. júní til 30. sept-
ember mun líta dagsins Ijós á
næstunni. Ákveðið hefur verið
að Ferðaskrifstofan Nonni hf. á
Akureyri annist sölu sæta í ferðir
ferjunnar.
Samkvæmt upplýsingum Dags
Skoðanakönnun SKÁÍS fyrir
Stöð 2 leiðir í Ijós að lands-
menn vilja helst sjá nýtt 200
þúsund tonna álver rísa við
Eyjafjörð. Af þeim 707 sem
verða farþegaferðir á leiðinni
Hrísey-Dalvík-Grímsey-Dalvík-
Hrísey á mánudögum og föstu-
dögum en á fimmtudögum er gert
ráð fyrir ferðum á leiðinni Hrís-
Á Akureyri hafa mörg hundr-
uð eintök þcgar verið pöntuð
af Yrkju, afmælisriti í tilefni af
sextugsafmæli forseta íslands,
frú Vigdísar Finnbogadóttur,
og fleiri pantanir bætast stöð-
ugt við.
JC- hreyfingin á íslandi sér um
að dreifa Yrkju, eins og áður hef-
ur komið fram í Degi. Hallgrím-
ur Indriðason, framkvæmdastjóri
Skógræktarfélags Eyfirðinga,
segir að í síðustu viku hafi verið
hringt í fólk á Akureyri á vegum
félagsins, sem aðstoðar JC við
sölu Yrkju á svæðinu, og hafi
selst um 400 eintök með síma-
spurðir voru í könnuninni tóku
505, eða 71,4%, afstöðu og
40% þeirra vildu að nýtt álver
risi við Eyjafjörð. Straumsvík
studdu 36,8% þeirra sem tóku
ey-Akureyri-Hrísey. Aðra daga
vikunnar er ferjan laus til ann-
arra verkefna, t.d. vöruflutninga,
útsýnissiglinga fyrir hópa, mið-
nætursólarsiglinga og Grímseyj-
pöntunum í síðustu viku.
Kynningarriti um Yrkju var
dreift í öll hús á Akureyri fyrir
skömmu, og hafa hundruðir
pantana borist með pöntunar-
seðlum. F*að er samdóma álit
þeirra sem til þekkja að Yrkju
hafi verið afar vel tekið.
Yrkja kemur út 15. apríl, á
afmælisdegi frú Vigdísar. Fólki
gefst kostur á að árna forsetanum
heilla með því að fá nafn sitt
prentað í bókina og gerast um
leið áskrifendur að Yrkju. Ágóði
af sölu bókarinnar rennur til
skógræktarátaks ungs fólks.
EHB
afstöðu en 22,2% vildu nýtt
álver á Austfjörðum.
Sigfús Jónsson, bæjarstjóri á
Akureyri, segir þetta ánægjulega
niðurstöðu fyrir Eyfirðinga og
arferða. Þá kemur til greina að
leigja ferjuna fyrir hverskonar
ráðstefnuhald fyrir minni hópa.
Tímasetningar áðurnefndra
ferða ferjunnar á mánudögum og
föstudögum eru eftirfarandi:
Ferjan leggur upp frá Hrísey kl.
7.30 og leggst að bryggju á Dal-
vík kl. 8.00. Þá liggur leiðin kl.
9.30 til Hríseyjar og þaðan verð-
ur siglt klukkustund sfðar til
Grímseyjar. Til Grímseyjar er
áætlað aö koma kl. 13.30. Til
Dalvíkur er lagt í 'ann kl. 16.30
og komið þangað kl. 20.00. Frá
Dalvík er förinni síðan heitið til
Hríseyjar og þangað komið kl.
21..
Gert er ráð fyrir rútuferð frá
Umferðarmiðstöðinni á Akureyri
þessa daga kl. 8.30 til Dalvíkur
fyrir þá farþega sem ætla til
Grímseyjar. Að sama skapi flyt-
ur rútan farþega frá Dalvík til
Akureyrar að kvöldi.
Á fimmtudögum er miðað við
að ferjan fari frá Hrísey til Akur-
eyrar kl. 12 á hádegi og þangað
komið kl. 14. Frá Akureyri er
siglt til baka til Hríseyjar kl. 17.
óþh
hún styðji þá skoðun hans að
þjóðin hafi alltaf verið skynsöm.
„Viðhorfið er að breytast okkur í
hag,“ segir Sigfús. „Það er alveg
ljóst að mjög mikill hluti fólks á
höfuðborgarsvæðinu utan af landi
vill uppbyggilega byggðastefnu,
en ekki byggðastcfnu sem er rek-
in eins og slökkviliðsstarf," sagði
Sigfús.
Ingimar Brynjólfsson, formað-
ur Héraðsnefndar Eyjafjarðar,
sagðist ekki vera hissa á þessum
niðurstöðum. Menn væru farnir í
ríkara mæli að líta á atvinnumál
landsmanna í heild og nauðsyn
væri á uppbyggingu á lands-
byggðinni. Ingimar benti hins
vegar á að hér væri um viðhorfs-
könnun að ræða og menn skyldu
halda ró sinni og bíða ákvörðun-
ar um staösetningu álversins.
Umrædd könnun SKÁÍS er
birt á bls. 2 í dag. óþh
Vinnuslys
við Blönduvirkjun:.
Tvítugur madur lést
Tvítugur maður lést í vinnu-
slysi við Blönduvirkjun.
Hinn látni var starfsmaður
Hagvirkis og vann við fram-
kvæmdir á efra svæði
Blönduvirkjunar. Slysið átti
sér stað um kvöldmatarleyt-
ið á miðvikudag.
Verið var að vinna við
skurðgröft við væntanlegt
miðlunarlón. Hinn látni var að
segja til stórri vinnuvél við
skurðgröft þegar slysið átti sér
stað. Hann féll ofan af háum
ísruðningi og hafnaði undir
ísblokk og lést samstundis.
Ekki er hægt að greina frá
nafni hins látna að svo stöddu.
kg
Ferðaskrifstofan Nonni hf. á Akureyri verður söluaðili fyrir
farþegaflutninga Hríseyjar-Grímseyjarferjunnar:
Farþegaáætlun þrjá daga vikunnar
og önnur verkefni hina dagana
Yrkju vel tekið
við Evjafiörð