Dagur - 23.03.1990, Qupperneq 15
Föstudagur 23. mars 1990 - DAGUR - 15
íþróftir
Þriðja Vetraríþróttahátíð ÍSÍ verður sett á Akureyri í kvöld:
„Reynum fyrst og fremst að ná til a]meimings“
- segir Þröstur Guðjonsson forráðamaður Vetraríþróttanefndar
Vetraríþróttahátíð ÍSÍ hefst á
Akureyri í kvöld. Hátíðin er sú
þriðja í röðinni og verður án
efa sú glæsilegasta hingað til.
Sérstök Vetraríþróttanefnd
hefur lagt dag við nótt til að
gera megi hátíð þessa sem
glæsilegasta og hefur sérstak-
lega mikið mætt á Þresti Guð-
jónssyni en hann er formaður
nefndarinnar. Dagur ræddi við
Þröst af þessu tilefni og hann
var fyrst spurður hvernig
undirbúningurinn hefði
gengið.
„Hann hefur gengið nokkuð
vel. Ég átti ekki von á að þetta
yrði svona mikil vinna en hún
hefur verið mjög mikil. Við sem
skipum þessa nefnd fórum að tala
saman fyrir rúmu ári síðan og
fyrsta verkefnið var að ákveða
dagsetningu. Það tók nokkurn
tíma af ýmsum ástæðum, t. d.
urðum við að hugsa um að
skautasvellið yrði í góðu ástandi.
íþróttir
um helgina
Handknattleikur
Síðan höfum við verið að ræða
um skipulagið á þessu og tókum
þá ákvörðun aö hafa hátíðina
lengri en hún hefur verið, þ.e. tíu
daga í stað fjögurra. Tilgangur-
inn meö því var fyrst og fremst að
reyna að ná til almennings. Við
bjóðum auðvitað upp á ýmsar
keppnisgreinar en einnig upp á
heilmikið fyrir almenning.
Það eru nokkrir aðilar sem
standa að hátíðinni núna sem
ekki hafa verið með áður. Þarna
má nefna hestamenn, sem verða
með mjög góða dagskrá, vél-
sleðamenn og skáta. Þetta eru
allt aðilar sem standa fyrir tals-
verðri útiveru á veturna og okkur
fannst sjálfsagt að bjóða þeim að
vera með. Við erum með nýja
grein sem kallast þríþraut, en
hún verður bæði í keppnisformi
og trimmformi, og það er mjög
athyglisverð grein sem saman-
stendur af skíðagöngu, hlaupum
og sundi. Þetta er mjög heppilegt
fyrir almenning. Síðan verðum
við með gönguferðir, . skíða-
kennslu o.fl. sem almenningur
tekur vonandi þátt í. Við vonum
bara að sem flestir verði með og
það má benda á að ÍSÍ veitir öll-
um sem þátt taka viðurkenningu.
„Geruin okkur vonir um aft hægt
verfti aft virkja um 2000 manns til
þátttöku hér í bænum,“ segir Þröst-
ur Guðjónsson.
Síðan má ekki gleyma að nefna
framlag Akureyrarbæjar en
starfsmenn hans hafa lagt nótt
við dag við að undirbúa þau
svæði sem við þurfum á að halda.
Það er erfitt verk vegna snjó-
þyngsla og bærinn hefur unnið
mikið verk og á þakkir skildar.
Nefndin hcfur unnið að því að
fá erlenda gesti á hátíðina og hef-
ur orðið nokkuð ágengt. „Núna
um helgina koma góðir gestir frá
Austurríki en það eru fulltrúar
frá alþjóða ísknattleikssamband-
inu sem koma hingað eingöngu
til að líta á aðstæður. Við teljum
afar mikilvægt að fá þessa menn
hingað. Einnig koma hingað
hestamenn frá Þýskalandi sem
sýna listir sýnar og heimsmeistar-
ar unglinga í listdansi á skautum
sýna hér þrívegis um helgina.
Einnig má ncfna skíðagöngu-
menn frá Svíþjóð og Bretlandi,
keppnisfólk í alpagreinum frá
Svíþjóð og von er á fleirum sem
ekki hafa gefið ákveðið svar
ennþá.“
- Hvaða tilgang og þýðingu
hefur hátíð af þessu tagi?
„Hugmynd ÍSÍ með þessu er
að kynna á l() ára fresti starfsemi
sambandsins. Fólk verður senni-
lega frekar meðvitað um þá
möguleika sem það hefur og ég
held að þessi hátíð höfði sérstak-
lega til almennings. Það þarf ekki
endilega að keppa, það er hægt
að gera sér svo margt til skemmt-
unar og ánægju og ég held að það
sé markmiðið í dag. Það er talaö
um að einkunnarorð hátíðarinn-
ar séu „æska og íþróttir" og það
segir mikið.
Þá er mikilvægt að benda fólki
á aö það eru engin þátttökugjöld
nema í skíðaskólann og svo hefð-
bundin þátttökugjöld í keppnis-
greinunum.
Einn þáttur sem lítið hefur ver-
ið minnst á eru verðlaunaafhend-
ingar. Þær fara allar fram í
göngugötunni ef veður leyfir og
þar verða jafnframt uppákomur
af ýmsu tagi. Nemendur úr Tón-
listarskóla Akureyrar munu
flytja þar tónlist, liingað koma
austurrískir jóðlarar sem munu
koma fram á verðlaunaafhend-
ingum alla næstu viku og fleira
mætti nefna. Ef veður verður
slæmt erum við með staði til vara
eins og íþróttahöllina og Sjall-
ann,“ sagði Þröstur Guöjónsson.
Forráðamenn hátíðarinnar
gera sér vonir um að hægt verði
að virkja um 2000 manns til þátt-
töku hér í bænum. Þá er búist við
mikilli þátttöku frá utanbæjar-
fólki, óskað hefur verið eftir úti-
vistardegi í skólum landsins og
hefur menntamálaráöuneytið
veitt samþykki sitt fyrir því. Er
full ástæða til að hvetja almenn-
ing til þátttöku í hátíðinni enda
ættu allir að finna eitthvað við sitt
hæfi og tímanum verður vart bet-
ur varið.
l.íiugurdagur:
l. deilil karla....(BV-KA í Hyjum kl.
16.30
Fiinleikar
Laugardugur:
Akureyrarmót í (þróttahúsi Glerár-
skóla. Keppni hefst kl. 15.
Blak
Sunnudugur:
Úrslitakeppni karla...KA-ÍS í íþrótta-
höllinni á Akureyri kl. 14.00.
Úrslitakeppni kvenna...KA-ÍS í
íþróttahöllin á Akurcyri kl. 15.15.
Vaxtarrækt
.Suniiudugur:
Islandsmöt unglinga og B mót fuliorð-
ina ( Sjallanum á Akureyri. Keppni
hefst kl. 14 en úrslit verða um kl. 20.00.
Bikarkeppni HSÍ:
IBV sigraði KA í framlengdum leik
„Þetta var hörkuleikur sem
var jafn og spennandi frá upp-
hafi til enda. Bæði liðin börð-
ust af krafti og sigurinn gat lent
hvorum megin sem var. Þrátt
fyrir tap, var þetta einn besti
leikur KA-liðsins í vetur að
mínu mati,“ sagði Þorleifur
Ananíasson liðsstjóri 1. deild-
arliðs KA í handbolta, eftir
tapið gegn ÍBV í 1. umferð
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
Skarphéðinn kominn
í aðra umferð
Skarphéðinn Leifsson byrjaði vel sem arftaki Rúnars Sigurpáls-
sonar er hann lagöi Jóhánn Pálsson í síðustu viku. Skarphéð-
inn hafði 6 rétta en Jóhann 5. Leikurinn berst nú áfram um Kjöt-
iðnaðarstöðina því Skarphéðinn skoraði á Gunnar Austfjörð
sem tók áskoruninni og mætast þeir því um þessa helgi. Skarp-
héðinn sagði seðilinn vera frekar erfiðan að þessu sinni. „Eg
get sem dæmi nefnt leik Sheffield Wednesday og Wimbledon
en ómögulegt er að segja til um hvernig hann fer. Þessi lið
'brugðust mér líka illa í síðustu viku.“
Sjónvarpsleikurinn að þessu sinni er viðureign Q.P.R. og
Nottingham Forest og gefst nú fslendingum vonandi tækifæri á
að sjá Þorvald Örlygsson í leik með síðarnefnda liðinu. Þorvald-
ur var að vísu ekki með í síðasta leik en er vonandi í náðinni nú.
Leikur Man. City og Chelsea sem er á seðlinum, var spilaður
í fyrrakvöld og lauk með jafntefli 1:1. Því mun fulltrúi dómsmála-
ráðuneytisins kasta tening um þann leik í Sjónvarpinu á
morgun, í hálfleik í sjónvarpsleiknum.
Skarphéöinn:
Coventry-Charlton 1
C. Palace-Aston Villa 2
Derby-Arsenal X
Everton-Norwich 1
Luton-Millwall 1
Man. City-Chelsea 1
Q.P.R.-Nott. For. X
Southampton-Man. Utd. X
Wimbledon-Sheff. Wed. 1
Blackburn-Newcastle 2
Oxford-Swindon X
Sunderland-West Ham 1
Gunnar:
Coventry-Charlton 1
C. Palace-Aston Villa 2
Derby-Arsenal X
Everton-Norwich 1
Luton-Millwall 1
Man. City-Chelsea 2
Q.P.R.-Nott. For. 2
Southampton-Man. Utd. 1
Wimbledon-Sheff. Wed 1
Blackburn-Newcastle X
Oxford-Swindon 2
Sunderland-West Ham 1
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
bikarkeppni HSI. Leikurinn
fór fram í Eyjum og sigurðu
heimamenn í framlengdum
Handbolti 1. deild:
Leik KA og
Víkings frestað
KA-mcnn halda til Eyja á
morgun laugardag og leika
gegn heimamönnum í 1. deild
Islandsniotsins í handknatt-
leik. KA lék gegn ÍBV á úti-
velli í bikarkeppninni í fyrra-
kvöld, eins og fram kemur
annars staðar á síðunni en varð
þá að láta í minni pokann í
framlengdum leik.
KA-menn ætla sér örugglega
að hefna ófaranna á morgun og
má búast við hörku viðureign.
KA átti að leika gegn Víkingi á
miðvikudaginn kemur í Laugar-
dalshöll en vegna ferðar lands-
liðsins til Noregs um helgina, hcf-!
ur þeint leik verið frestað til 25.
apríl. Næsti heimaleikur KA er
gegn KR laugardaginn 31. mars.
Akureyri:
Námskeið í
skíðagöngu
Skíðaskólinn í Hlíðarfjalli
gengst fyrir námskeiði í skíða-
göngu í næstu viku. Fyrra
námskeiðið stendur frá mánu-
degi til miðvikudags en það
seinna frá miðvikudegi til
föstudags.
Ef næg þátttaka fæst verða
haldin tvö námskeið á dag, það
fyrra í Hlíðarfjalli frá kl. 17-19 og
það seinna í Kjarnaskógi frá kl.
20-22.
Innritun fer fram að Skíða-
stöðum í síma 22280 og í síma
22722 og þar eru jafnframt veitt-
ar allar nánari upplýsingar.
leik, 26:23, eftir að staðan
hafði verið jöfn að loknum
venjulegum leiktíina, 23:23.
Eyjamenn náðu forystunni
strax í upphafi og héldu eins til
tveggja rnarka forskoti fram að
leikhléi. í hálfleik var staðan
13:11. Heimamenn héldu tveggja
marka forskoti lengst af í síðari
hálfleik en KA-mönnum tókst að
jafna 23:23 fyrir leikslok og því
þurfti að framlengja um 2x5 mín.
Þrátt fyrir að KA-menn léku
einunt færri fyrstu tvær mín.
framlengingarinnar, tókst hvor-
ugu liðinu að skora í fyrri hálf-
leik. í síðari hálfleik skoruðu
heimamenn þrjú mörk, án þcss
að gestunum tækist að svara fyrir
sig og þeir fögnuðu því sigri í
leikslok.
Erlingur Kristjánsson átti mjög
góðan leik fyrir KA bæði í vörn
og sókn. Björn Björnsson mark-
vörður KA átti einnig mjðg góð-
an leik en hann tók við stöðu
Axcls Stefánssonar snemma í
fyrri hálfleik og lék út leikinn. Þá
var Guðmundur Guðmundsson
sterkur framan af leiknum. Pétur
Bjarnason meiddist snemma í
leiknum og gat ekkert leikið í
sókninni eftir þaö og þá átti
Sigurpáll Árni Aðalsteinsson
einnig við einhver meiðsli að
stríða.
1 liði ÍBV var Sigurður Gunn-
arsson mest áberandi en þó er
liðiö nokkuð jafnt að getu, með
mikla baráttujaxla innanborðs.
Mörk KA: Erlingur Kristjánsson 10/6,
Guömundur Guðmundsson 5. Jóhannes
Bjarnason 3, Pétur Bjarnason 2. Bragi
Sigurösson 1. Karl Karlsson I og Sigur-
páll Árni I.
Mörk ÍBV: Siguröur Friöiksson 7, Sig-
urður Gunnarsson 6. Guðmundur Al-
hertsson 4, Jóhann Pétursson 3. Sigbjiirn
Óskarsson 2. Þorsteinn Viktorsson 2.
Guötinnur Kristmannsson 1 og Hilmar
Sigurgíslason 1.
Laugardagur kl.14:55
12. LEIKVIKA** 24. mars 1990 1 X 2
Leikur 1 Coventrv - Charlton
Leikur 2 C. Palace - Aston Villa
Leikur 3 Derby - Arsenal
Leikur 4 Everton - Norwich
Leikur 5 Luton - Millwal!
Leikur 6 Man. City - Chelsea
Leikur 7 Q.P.R. - Nott. For.
Leikur 8 Southampton - Man. Utd.
Leikur 9 Wimbledon - Sheff. Wed.
Leikur 10 Blackburn - Newcastle
Leikur 11 Oxford - Swindon
Leikur 12 Sunderland - West Ham
Allar upplýsingar um getraunir vikunnar hjá : LUKKULÍNUNNI s. 991002
I! i
Tvofalaur pottur