Dagur - 27.04.1990, Blaðsíða 7
Föstudagur 27. apríl 1990 - DAGUR - 7
Pedromyndir 25 ára:
Ferðavinningur kom í hlut tólf ára pilts
Pedromyndir á Akureyri fagna
25 ára afmæli sínu uin þessar
mundir. Dregið var í afmælis-
getraun, sem lyrirtækið efndi
til. 11. apríl sl. Alls bárust um
1400 seðlar og voru 1000 með
rétt svar. Aðalverðlaunin,
ferðavinning að eigin vali hjá
Ferðaskrifstofu Akureyrar fyr-
ir 40 þtisund krónur, hlaut 12
ára piltur, Heimir Tryggvason,
Stapasíðu 1, Akureyri.
Myndavél, Chinon Handy-
zoom 5001, kom í hlut Ragnheið-
ar Tryggvadóttur, Vöglum,
Guðriin Hjaltadóttir athendir Heimi Tryggvasyni aðalvinninginn, ferð frá Ferðaskrifstofu Akurcyrar fyrir 40 þús-
und krónur.
„Ætli ég verði ekki sjáíf-
boðaliði eitthvað áfram“
- segir Þorgrímur Hallsteinsson, nýkrýndur „Plötusnúður ársins“
Þorgrímur Hallsteinsson, 16
ára gamall Akureyringur,
hlaut á dögunum nafnbótina
„Plötusnúður ársins“ er hann
sigraði á Islandsmóti plötu-
snúða. Aður hafði hann sigrað
í plötusnúðakeppni í Dyn-
heimum á Akureyri og fór
hann því til Reykjavíkur í úr-
slitakeppni þar sem hann
keppti fyrir hönd Dynhcima og
sigraði.
Við báðunt Porgri'm að lýsa því
hvernig liann kynntist starfi
plötusnúðs og hvernig keppni
skífuþeytara gengur fyrir sig.
„Þetta byrjaði með því að ég
fór á plötusnúðanámskeið í Dyn-
heimum fyrir um tveimur árum
og lærði þá allt um græjurnar. Ég
byrjaði samt ekki að spila strax,
en fyrir ári fór ég að fikta aðeins
í græjunum í Dynheimum. Síðan
gerðist ekkert fyrr en í vetur að
ég fékk starf sem plötusnúður í
sjálfboðavinnu í Lundarskóla,
sem er gífurlega vinsælt starf! Þá
byrjaði ég að æfa mig í því að
„rnixa" og svoleiðis og undirbúa
mig fyrir keppnina hér.“
„Maður var rennblautur
af svita fyrst“
- Hvenær var þessi keppni og
hvernig fór hún fram?
„Keppnin í Dynheimum var
fyrir rúmum mánuði. Þar kepptu
12 strákar og keppnin fór þannig
fram að hver plötusnúður kom
með sínar plötur og fékk síðan 15
mínútur til að spila sitt
prógramm. Við vorum 5 sem
komumst í úrslit og þar fengum
við 25 mínútur. A þessum 25
inínútum urðum við samt að spila
minnst 12 lög.“
- Það hefur verið mikill hraði í
þcssu, er ekki stressandi að þurfa
að koma tólf lögum frá sér á svo
stuttum tíma?
„Jú, en þetta venst. Maður var
rennblautur af svita fyrst þegar
maður byrjaði í þessu. í keppn-
inni reyndi ég bara að vera róleg-
ur en það er erfitt því fyrir utan
það að leika að minnsta kosti tólf
lög og „mixa“ þau þá þarf maður
að kynna þau, þannig að hraðinn
er mikill.“
Þorgrímur sigraði í þessari
keppni, eftir harða baráttu í úr-
slitakeppninni.
„Stelpurnar spila ekki“
- Segðu mér, þetta voru allt
strákar í keppninni. Eru engar
stelpur plötusnúðar?
„Nei, þær láta þetta alveg vera.
Ég held þó að ein eða tvær stelp-
ur spili í Glerárskóla og það hafa
stelpur verið á plötusnúðanám-
skeiðum og fengið skírteini, en
þær spila ekki.“
- Segðu mér frá íslandsmótinu
í Reykjavík.
„Já, ég fór suður helgina 7.-9.
apríl og tók þátt í keppninni sem
haldin var í Frostaskjóli. Þar
voru fjórir strákar í úrslitum og
var keppnin með svipuðu sniði og
í Dynheimum."
- Og þú sigraðir þar. Var sér-
stök dómnefnd sem kvað þennan
úrskurð að þú værir „Plötusnúð-
ur ársins"?
„Já, það voru ýmsir þekktir
menn í dómnefndinni, t.d. Ás-
geir Tómasson. Kiddi „Big-Foot"
og gaurarnir sem sáu um þáttinn
Popp og kók.“
„Þyrfti helst að vera
orðinn 18 ára“
- Hvernig hefur Akureyringum
vegnað í þessari keppni til þessa?
„Fremur illa. Keppnin hefur
reyndar ekki verið haldin nema í
fjögur ár á báðum stöðurn. Fyrsta
árið fór keppnin hér fram um
sömu helgi og keppnin fyrir
sunnan, þannig að sigurvegarinn,
Jón Andri. komst ekki suður.
Næsta ár sigraði Jón Andri aftur
og hann lenti síðan í 2. sæti í
keppninni fyrir sunnan. Þriðja
árið keppti Jón Baldvin fyrir
hönd Dynheima og hann lenti í 3.
sæti fyrir sunnan. Þetta er í fyrsta
sinn sem við vinnum."
Þorgrímur er nemandi í 9.
bekk og starfar enn sem sjálf-
boðaliði við skífuþeytingar í
Lundarskóla. En skyldi hann
stefna að því að vera plötusnúður
að atvinnu?
„Ég þyrfti helst að vera orðinn
18 ára til að geta spilað á vínveit-
ingahúsunum, en þeir fyrir sunn-
an segjast geta reddað mér starfi
ef ég kem þangað. Ætli ég verði
ekki sjálfboðaliði eitthvað áfram,
þótt það sé frekar dapurt."
' - Þú fékkst farandbikara bæði
fyrir sigurinn í Dynheimum og
fyrir sunnan. Stefnirðu að því að
halda þeint?
„Ég get það ekki. Þessi keppni
er bara fyrir plötusnúða 16 ára og
yngri þannig að ég verð að láta
bikarana af hendi næsta ár,“
sagði „Plötusnúður ársins" að
lokum, en hann segist hafa fullan
hug á því að reyna að hasla sér
völl sem plötusnúður. SS
Hrafnagilshreppi. Þá komu 10
aukavinningar í hlut eftirtalinna
aðila:
María G. Hannesdóttir,
Staðarhóli, Aðaldal
Margrét Þorbergsdóttir,
Stapasíðu 4, Akureyri
Júlía Garðarsdóttir,
Vanabyggð 6e. Akureyri
Anna Guðný Sigurgeirsdóttir,
Aðalstræti 50. Akureyri
Magnús Guðmundsson.
Seljahlíð 13c, Akureyri
lngibjörg S. Siglaugsdóttir,
Arnarsíðu lOc, Akureyri
Hulda Þórey Gísladóttir,
Vallargerði 2b, Akureyri
Erla Sif Magnúsdóttir,
Tjarnarlundi 3b, Akureyri
Jórunn Marinósdóttir.
Einholti 16a, Akureyri
Sigurður Jóhannesson,
Útsteini
Aðalvinningar hafa þegar ver-
ið afhentir en aukavinninga má
vitja hjá Pedromyndum Hafnar-
stræti 98. Eigendur Pedromynda
óska vinningshöfum til hamingju
og þakka öllum sem þátt tóku í
getrauninni. Næsti afmælisleikur
verður Ijósmyndasamkeppni í
samvinnu við dagblaðið Dag og
verður hún kynnt síðar.
Friðrik Vestmann. frarn-
kvæmdastjóri Pedromynda, sagði
í samtali við Dag að fyrirtækið
hefði verið stofnað í apríl fyrir 25
árum og hefði hann þá hugsað sér
að vinna við þaö í hjáverkum. en
liann vann sem prentari á þeim
tíma. Hann segir að þessa þjón-
ustu hafi sárlega vantað á Ákur-
eyri.
Pcdromyndir hófu göngu sína í
húsnæði við Hafnarstræti, þar
sem Hótel Stefanía er nú, og
vann Friörik við myndirnar á
kvöldin og að næturlagi. Fljót-
lega varð þetta fullt starf og
umsvifin fóru vaxandi. Fyrirtæk-
iö hefur um árabil verið til húsa
að Hafnarstræti 98 og stutt er síð-
an Pcdromyndir stækkuðu viö sig
og cru nú einnig í nýju húsnæði í
Hofsbót. SS
Eva Guðrún dregur út getrauuaseðla, en alls bárust iim 1400 slíkir seðlar.