Dagur - 27.04.1990, Blaðsíða 14

Dagur - 27.04.1990, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Föstudagur 27. apríl 1990 Gol£k!úbbur Akureyrar Félagsfundur verður haldinn í Golfskálanum föstudaginn 27. apríl kl. 20.30. Rætt um stöðu Golfklúbbs Akureyrar og framtíð. Stjórnin (Skápagjald óskast greitt fyrir föstudag, annars fá aðrir skápana). Þ.A. smiðjan óskar eftir að ráða járniðnaðarmenn til starfa. Upplýsingar í síma 26336 eða að Fjölnisgötu 6, Akureyri. AKUREYRI! Óskum að ráða duglegan starfs- kraft til sölustarfa. Þarf að hafa reynslu í sölumennsku og/eða þjón- ustustarfi. Góð framkoma og þjónustulund er nauð- synleg. Starfið fellst að mestu í að heimsækja við- skiptavini, fylgja eftir sölu og taka niður pantanir. Umsóknir merktar „sölustarf" sendist til Dags fyrir 3. maí ’90. Starfskraftur óskast til almennra afgreiðslustarfa og fleira. Áskilið: Enska (talkunnátta og bréfaskriftir). Vélritun. Æskilegt er að viðkomandi sé yfir 25 ára aldri. Þarf að geta byrjað strax. Upplýsingar í síma 27422 frá 9.00-18.00 virka daga eða á staðnum. NÝJA FILMUHÚSIÐ Hafnarstræti 106, 600 Akureyri. Oskum eftir fólki til þjónustustarfa 1. Fullt starf, vaktavinna. 2. Aukavinna á kvöldin. Upplýsingar á staðnum milli kl. 14.00 og 17.00, föstudag og 12.00-15.00 laugardag. ATVINNA Okkur vantar nú þegar starfsmann í ýfingar- deild, allan eða hálfan daginn. Einnig getum við bætt við fólki við jakka og peysusaum allan daginn eða hluta úr degi. Þá viljum við ráða vant starfsfólk við saumaskap á kvöldvakt. Um er að ræða tvö til þrjú störf. Uppl. hjá starfsmannastjóra í síma 21900 (220) Álafoss hf. Akureyri myndlist Dalsa á Blönduósi - Málverkasýning Hjördísar Bergsdóttur Austur-Húnvetningar halda nú Húnavöku sína. í tengslum við hana opnaði Hjördís Bergsdóttir sýningu sumardaginn fyrsta á nokkrum verkum eftir sig í sal Hótels Blönduóss. Hjördís hefur starfað við kennslu í Reykjavík. Nú er hún hins vegar myndlistar- kennari við Grunnskólann á Blönduósi og hefur verið það þetta skólaár. Hjördís er með sjö málverk á sýningu sinni. Þau eru öll unnin i olíu og máluð á striga. Hjördís er djörf í notkun lita í verkum sínum. Þeir eru sterkir og óvenjulegir. Til dæmis eru andlitslitir manna með ýmsu móti jafnvel innan sama verksins. Með þessu meðal annars tekst Hjör- dísi að stöðva augað og vekja spurn um ástæðu og markmið. Uppbygging verka Hjördísar er ekki flókin við fyrstu sýn. Yfir þeim cr nokkuð hrár hlær. Fletir eru stórir og lítið um nostursleg smáatriði. Það er afstaða og útlit hinna stílfærðu fyrirbæra og per- sóna, sem felur í sér inntak þeirra. tónlist Andlit eru til dæmis gjarnan meitluð og allt að því stöðluð. En í dráttum þeirra, augnstöðu og áhorfsátt liggur boðskapur lista- mannsins. Það samfélag, sem við nú hrær- umst í, er að reynslu okkar margra gjörólíkt því. sem við ólumst upp í. Þær breytingar, sem orðið hafa á allra síðustu tímum, eru ekki síst orðnar fyrir starfsemi ýmissa baráttuhópa, sem hafa með miklum árangri leitast við að bylta viðhorfum og skoðunum, ekki síst þeim, sem lúta að stöðu og verksviði kvenna. Þetta hefur óhjákvæmi- lega valdið miklu róti bæði innra með einstaklingum, konum ekki síður en körlum, og í umhverfi þeirra. í verkunum á sýningunni á Hótel Blönduósi fjallar Hjördís um stöðu mannsins almcnnt og konunnar sérstaklega í hinu breytta samfélagi samtíma okkar. Hún lítur á vandamálin fyrst og fremst frá sjónarhóli konunnar. Því eru það konur, mm_________________ sem birtast í myndum hennar, þegar persónur koma fram í þeim. Hjördís leitast við að túlka þá streitu og þau átök, sem nú eru uppi. Myndmál hennar er tákn- rænt og henni tekst allvel, en mis- vel þó, að koma meiningu sinni til skila. Auk verkanna sem slíkra, birta einnig nöfnin. sem hún velur myndum sínum, mark- mið hennar. Þar má nefna til dæmis Höfnun, Vetur I og II, Flækjur og Einsemd. Lítið er um lausnir eða leiðar- vísun út úr þeirri kreppu, sem Hjördís túlkar í verkum sínum, þó að slíkt komi þó vissulega fyrir. Meira mætti vera af bjart- sýni í verkum hennar. Kyrrstaða og allt að því vonleysi er töluvert um of yfirgnæfandi. Án efa er misjafnt, hvernig áhorfendum líkar framsetning og boðskapur Hjördísar Bergsdótt- ur í málverkum hennar. Hvort tveggja er þó umhugsunarvcrt. I Ijósi þeirrar ígrundunar ber að skoða sýningu hennar. Hún er innileg í umfjöllun samtímans um sjálfan sig. Haukur Agústsson Lóuþrælar - Tónleikar á Hvammstanga Karlakórinn Lóuþrælar hélt tón- leika föstudaginn 20. apríl. Sam- koman var haldin í Félagsheimil- inu á Hvammstanga og var fjösótt. Auk Lóuþræla kom fram kvennakórinn eða kvennasöng- sveitin Sandlóur. Gestakór var Karlakórinn Söngbræður úr Borgarfirði. Söngfélagar í Lóuþrælum eru átján. Söngstjóri þeirra er Ólöf Pálsdóttir og undirleikari með kórnum var Elínborg Sigurgeirs- dóttir. Lóuþrælar fluttu átta lög. Eftirtcktarverður var góður hljómur kórsins og gott vald hans á styrkbreytingum svo fámennur sem hann er. Öryggi í innkomum var einnig í góðu lagi og einnig afsláttur. Ljóst var, að kórfélagar höfðu ánægju af því að syngja saman, en í raun er það grundvöllur kórsins. Hann er fyrst og fremst tómstundagaman kórfélaga, en ekki hugsaður sem eiginlegur konsertkór. Hins vegar var frammistaða hans á tónleikunum á Hvammstanga með því móti, að full ástæða er til þess að veita honum athygli. Gallalaus var söngurinn þó samt ekki. Mest bar á því, að rödd í tenór kom mjög fram í mörgum laganna. Þá mætti slípa nokkuð raddir kórsins ekki síst efri raddirnar. Loks hefðu sum lögin mátt fá nokkru meiri æfingu. Sandlóurnar eru átta að tölu. Þær sungu nokkur létt lög í nokk- urs konar langri syrpu við und- iiieik Þorvaldar Pálssonar á harmoniku. Söngur kvennanna var alláferðargóður og hljómaði almennt vel. Léttur bragur var yfir lögunum og ánægja í söngnum. Sandlóurnar eru eiginlega kvennaflokkur Lóuþrælanna. Það er vel til fundið að hafa þannig kvennakór aðstandenda karlakórsfélaganna með í starf- inu. Það eykur vídd kórstarfsins og gefur kost á meiri fjölbrcytni í söngstarfi og tónleikahaldi. Söngbræður úr Borgarfirði fluttu átta lög. Söngstjóri þeirra er Sigurður Guðmundsson frá Kirkjubóli í Hvítársíðu og undir- lcikari Ingibjörg Þorsteinsdóttir. Kórinn var ekki fullskipaður á tónleikunum á Hvammstanga. Ef til vill er þar skýringar að leita á því, að hann virtist ekki ráða nægilega vel við margt af því cfni, sem var á söngskrá hans. Bestur var kórinn í laginu „Ég reið um sumaraftan einn '. Þar söng hann bakraddir með Theó- dóru Þorsteinsdóttur, sem söng einsöng. Theodóra hefur þróttmikla og afar áheyrilega söngrödd, sem hún bcitir af smekkvísi. Því mið- ur söng hún ekki nema eitt lag á tónleikunum. Að skaðlausu hefðu þau mátt vera fleiri. Haukur Agústsson Minning: Mig langar til að minnast Fjólu með nokkrum orðum nú. þegar hún er ekki lengur á meðal okkar. Hún var alltaf sterk þegar á reyndi. hún var sannarlega hetja, hún barðist við ólæknandi sjúkdóm í 5 ár. Ég heyröi hana aldrei segja að þetta væri von- laust. Upp á sjúkrahús þurfti hún oft að fara en hún vildi vera þar sem styst og þráði alltaf að kom- ast lieim. Fjóla var mikil hús- móðir og alltaf vildi hún fegra og prýða heimili sitt og þangaö var alltaf gott að koma. Þar fann maður hlýju og góðvild um leið og komið var inn úr dyrum. Öll- um leið vel í návist Fjólu, hún var einstakur barnavinur og hafði gott lag á börnum. Við Fjóla hitt- umst fyrst þegar ég var 17 ára og hún rúmlega tvítug. Síðan eru liðin mörg ár cn vinátta okkar hélst og var alltaf samgangur milli okkar og barnanna okkar. En nú er hún horfin okkur og við stöndum eftir með allar okkar spurningar en fáum engin svör. Hvers vegna, af hverju? En vcgir Guðs eru órannsakanlegir. Ég sendi mínar innilegustu samúðar- kveðjur til eiginmanns hennar, barna, barnabarna og annarra ættingja og \ ina. Ég kveð Fjólu nteð þessum orðum. Far þú í friði, friður guðs þig blessi. Fíafðu þökk fyrir allt og allt. Guðrún María Óskarsdúttir.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.