Dagur - 27.04.1990, Blaðsíða 11
—II
hvað er að gerast
Akureyrarkirkja:
Messuferð að Grund
Föstudagur 27. apríl 1990 - DAGUR - 11
W3HMÆ1M
Halla Haraldsdóttir við eitt verka sinna.
Gamli Lundur:
Sýning á glerlistaverk-
um og vatnslitamyndum
Halla Haraldsdóttir, gler- og
myndlistarkona frá Keflavík,
opnar sýningu á verkum sínum í
Gamla Lundi við Eiðsvallagötu á
Akureyri, á morgun 28. apríl kl.
16.
Halla er Siglfirðingur, nam í
Myndlista- og handíðaskólanum
þar sem aðalkennari hennar var
Erró. Hún fór einnig seinna í
kennaradeild skólans. Halla nam
einnig { Danmörku þar sem
kennari hennar í tvo vetur var
Sören Esbjcrg, þekktur listmál-
ari. Frá 1978 hefur Halla verið í
tengslum við gler- og Iistiðnaðar-
verkstæði D.H. Oidtmann í
Þýskalandi, fyrst við nám og síð-
ar við störf hjá fyrirtækinu.
Halla hefur haldið fjölda
einka- og samsýninga heima og
erlendis og hefur hlotið fjölda
viðurkenninga fyrir list sína.
Myndir Höllu á þessari sýningu
eru vatnslitamyndir, unnar með
blandaðri tækni, auk glerlista-
verka. Allar myndirnar á sýning-
unni eru til sölu. Sýningin cropin
virka daga kl. 16-22 og um helgar
kl. 14-22.
Fyrirbænavika íyrir fóngum
og fjölskyldum þeirra
- guðsþjónusta í Glerárkirkju
Islenska þjóðkirkjan hefur
ákveðið að dagana 29. apríl til 6.
maí verði sérstök fyrirbænavika
fyrir föngum og fjölskyldum
þeirra.
Biskup segir í bréfi sínu til
presta landsins: „Það þarf ekki
að fara mörgum orðum um hlut-
skipti fanga og ástvina. Fangelsis-
dómur er skipbrot, þótt oftast
eigi að vera unnt að gera sér
grein fyrir að hverju var stefnt.
Kirkjan setur sig ekki í dómara-
sætið og ásakar ekki þá, sem hún
er að reyna að hjálpa, heldur
réttir fram hendi sína af um-
hyggju og skilningi í sannri bæn.“
Málefni fanga og fangelsismál
almennt hafa verið til umræðu í
þjóðfélagi okkar, og viðtal við
Ola G. Jóhannsson í Degi í vetur
hefur haft sitt að segja til að
koma hreyfingu á þessi mál.
Guðsþjónusta verður n.k.
sunnudag 29. apríl í Glerárkirkju
kl. 21 um kvöldið. Unglingar úr
æskulýðsfélaginu munu sýna
helgileik. Kirkjukórinn leiða
söng undir stjórn Jóhanns Bald-
vinssonar og Óli G. Jóhannsson
mun stíga í stólinn, og flytja hug-
Leikfélag Akureyrar:
Fátækt fólk
vekur lukku
Sýningar Leikfélags Akureyrar á
Fátæku fólki liafa gengið mjög
vel og vakið stormandi lukku hjá
áhorfendum. Uppselt hefur verið
á margar sýningar og þegar er
orðið uppselt á nokkrar sýningar
fram í tímann.
Uppselt er á sýninguna í kvöld,
en Fátækt fólk verður einnig sýnt
á laugardagskvöld kl. 20.30 og
sunnudagkl. 17. Þá verður hátíð-
arsýning þriðjudaginn 1. maí og
uppselt er á sýningu miðvikudag-
inn 2. maí, sem jafnframt er 11.
sýning á leikritinu. Það er því
óhætt að segja að Fátækt fólk
hafi hitt í mark.
vekju um hvað er aö vera fangi
og fangelsismál.
Beðiö verður fyrir föngum og
fjölskyldum þeirra og miðviku-
daginn 2. maí verður fyrirbæna-
stund að vanda í kirkjunni kl. 18,
og þá sérstaklega beðið fyrir
þessu málefni.
Nk. sunnudag mun Kór Akureyr-
arkirkju ásamt organista og sókn-
arprestum kirkjunnar halda fram
að Grund í Eyjafirði. Verið er að
endurgjalda heimsókn Kirkju-
kórs Grundarkirkju og sóknar-
Freyjulundur:
Skemmtidagskrá
og kaffisala
Kirkjukór Möðruvallaklausturs-
kirkju mun efna til skemmti-
dagskrár og kaffisölu að Freyju-
lundi þriðjudaginn 1. maí kl.
15.00.
Til skemmtunar verður bland-
aður kórsöngur, tvöfaldur karla-
kvartett, upplestur o.fl. Þessi
skemmtun er haldin til fjáröflun-
ar orgelsjóðs kirkjunnar en org-
elið hennar er gamalt og þarf
endurnýjunar við.
Fólk er því hvatt til mæta vel
og styðja við bakið á góðu mál-
elni.
Akureyri:
Fyrirlestur á
vegum Háskólans
Laugardaginn 28. apríl kl. 14.00,
flytur Hjalti Kristgeirsson, hag-
fræðjngur fyrirlestur á vcgum
Háskólans á Akureyri sem nefn-
ist Byltingaráriö 1989 í Austur-
Evrópu - dæmi Ungverjalands.
Hjalti stundaði háskólanám í
Ungverjalandi á 6. áratugnum og
hefur sfðan fylgst náið með þró-
un mála í Austu-Evrópu.
Fyrirlesturinn fjallar um umrót
síðustu mánaða í Austur-Evrópu
og byggir m.a. á upplýsingum
sem Hjalti safnaði á meðan hann
dvaldi í Ungverjalandi í síðasta
mánuöi.
Fyrirlesturinn verður í stofu 24
og er öllum opinn.
prestsins í Laugalandsprestakalli.
Guðsþjónustan að Grund hefst
kl. 13.30. Meðal þess sem Kór
Akureyrarkirkju syngur undir
stjórn Björns Steinars Sólbergs-
sonar er lag eftir Jakob Tryggva-
son organista og sálmur eftir
Mendelsohn. Séra Birgir Snæ-
björnsson, séra Þórhallur
Höskuldsson og séra Hannes Örn
Blandon munu annast prédikun
og altarisþjónustu.
Klukkan 11 verður athöfn í
Akureyrarkirkju. Þar mun for-
seti íslands afhenda dróttskátum
forsetamerki. Þess er vænst að
seni flest sóknarbörn úr Akureyr-
arsókn sjái sér fært að renna fram
að Grund til þess að eiga helga
stund með sóknarfólkinu þar.
Akureyri:
Fjórvelda-
keppni í skák
Föstudaginn 27. apríl fer fram
hin svokallaða fjórveldakeppni í
skák, en það er keppni milli
sveita Skákfélags Akureyrar,
Skákfélags Eyjafjarðar. Taflfé-
lags Dalvfkur og Skákklúbbs
KEA. Scx menn skipa hverja
sveit.
Keppnin hefst kl. 20 í félags-
heimili Skákfélags Akureyrar viö
Þingvallastræti. Umhugsunartími
er hálf klukkustund á skák.
Ráðsfimdur
II. ráðs ITC
24. ráðsfundur II. ráðs ITC á ís-
landi verður haldinn á Akureyri
laugardaginn 28. apríl að Lund-
argötu 7. Fundurinn hefst með
skráningu kl. 10.00 f.h.
Á dagskrá verður m.a. skálda-
kynning og kappræður.
Fundurinn er öllum opinn.
í gon^u^ötunni kl. Ib-'OO
föstudacjinn 2.7.(
Góáon daginn. Gjöriel sVo ve\
að koma og fó ykkur kaffi!
f]á., góðan óaginn. Þið eruð
að razða bcejarmálin heyn'
ég.Þið eruS kannski að
Svipast um eftir
bœjarstjóra ?
Viá vorum nú að huqsií
um
d?3
pn
ÖoejQrbúQ
Komið og
r<Eðið mólin
V_qí skynsemj,
Q - )isr.inn~er
±>e-e5tinr!
i/ídokkur
franntjóðendur
en vicTverðumo
Somt a lcltu
nótunu^n
lika.
Höldursf.
BflASAÍA
við Hvannavelli.
Símar 24119 og 24170.
Subaru Cupe 4x4 árg. '86
ekinn 27 þús. Verð 770.000.-
MMC Colt Turbo árg. '88
ekinn 16 þús. Verð 850.000,-
MMC Galant 1600 GL árg.
'87 ekinn 53 þús. Verð
690.000.-
z 190 E árg. '88 ekinn
35 þús. Verð 2.000.000,-
Toyota Tercel 4x4 árg. '84
ekinn 90 þús. Verð 450.000.-
MMC Pajero turbo diesel
ekinn 54 þús. verð
1.350.000.-
CH Blaser S 10 árg. '83 ekinn
66 þús. Verð 1.150.000.-
★
Greiðslukjör
við allra hæfi
Höldur sf.
bíiasaia
við Hvannavelli.
Símar 24119 og 24170.