Dagur - 05.05.1990, Page 2
2 - DAGUR - Laugardagur 5. maí 1990
Ársskýrsla Mjólkursamlags KEA fyir 1989:
Tuttugu milljónir í hagnað
- 0,84% aukning í innveginni mjólk
Um 20 milljóna króna hagnad-
ur varð af rekstri Mjólkursam-
lags KEA á síðasta ári. Veru-
leg umskipti hafa orðið í
rekstri fyrirtækisins frá árinu
1988, en þá varð 64 milljóna
króna rekstrartap.
Pessar upplýsingar komu fram
í máli Pórarins E, Sveinssonar,
mjólkursamlagsstjóra, á aðal-
fundi Félags eyfirskra nautgripa-
ræktenda í vikunni.
I skýrslu mjólkursamiagsstjóra
kom fram að á sl. ári hafi Mjólk-
ursamlagið tekið á móti 20.446.540
lítrum af mjólk, sem er 0.84%
aukning í innvegnu magni frá
fyrra ári. Þar af voru tæplega 190
þúsund lítrar utan fullvirðisréttar
sem gáfu um 6,6% af grundvall-
arverði. Fituinnhald mjólkurinn-
ar var að meðaltali 4,08% og
98,34% af innlagðri mjólk fór í
fyrsta flokk.
Vinnsla Mjólkursamlagsins var
svipuð og undanfarin ár. Sam-
dráttur varð í sölu nýmjólkur, en
neysla á léttmjólk jókst. Sala á
ostum og smjörva jókst en neysla
á smjöri dróst saman.
Á árinu 1989 tók Samlagið í
notkun nýjan tankbíl og ýmis
minni tæki voru endurnýjuð.
Tækjabúnaður fyrir skyr- og
jógurtgerð var endurnýjaður og
nú hafa opnast möguleikar á
vöruþróun tengdri skyri, jógúrt
og ostagerð. Mjólkursamlags-
stjóri sagði að næst þyrfti að huga
að endurnýjun tækja til ostagerð-
ar og átöppunar mjólkur.
Um síðustu áramót voru fast-
ráðnir starfsmenn Samlagsins 65
talsins auk sex tankbílstjóra.
Þetta er svipaður fjöldi starfs-
manna og undanfarin ár.
I máli samlagsstjóra á aðal-
fundi FEN kom fram að tekist
hafi aö snúa rekstri Samlagsins úr
miklum halla árið 1988 í hagnað í
fyrra með margháttuðum hag-
ræðingaraðgerðum. Hann sagði
að laugardagsvinna hafi verið
skorin verulega niður og þannig
náðst inikill sparnaður. Þórarinn
sagði að mikil og góð samstaða
hafi tekist um hagræðingu og
þakkaði hann starfsmönnum
Samlagsins fyrir skilning á
aðhaldi og minnkandi vinnu.
Þórarinn sagðist hafa af því
nokkrar áhyggjur að mjólkur-
tankar út í sveitum væru komnir
Slippstöðin hf.:
Flestir starfsmenn í
sumarfrí á sama tíma
Ráðgert er aö flestir starfs-
nienn Slippstöðvarinnar á
Akureyri taki suniarfrí á
sama tíma í suniar. Að sögn
Gunnars Skarphéðinssonar,
starfsmannastjöra, hefur
þessi háttur verið liafður á
undanfarin ár í Slippstööinni.
Su m arf r í slarf sm a n na n n a
munu standa um þriggja vikna
skeiö, frá rniðjum júli' og fram
að verslunarmannahelgi. „Við
höfum beint okkar inönnum inn
á þennan tíma með fríin sín.
Pað er hagstæöara fyrir okkur
að þeir sem ætla að taka frí geri
það á svipuöum tíma. Um
hreina lokun hefur hins vegar
aldrei verið að ræða enda er
þetta þjónustufyrirtæki og alltaf
geta koniið inn verkefni á þess-
um tíma sem þarf að sinna,"
stigöi Gunnar.
Verkefni hjá Slippstöðinni
fara nú vaxandi enda sá tími að
fara i hönd sem mest er um
slipptökur skipa. Guiinar gerir
táð fyrir að 15-20 manns verði
ráðnir í verkamannavinnu i
sumar hjá stöðinni og byrja þeir
á tímabilinu frá 10 maí til mán-
aöamóta. Gunnar sagði jafn-
framt að þetta séu ívið færri
verkamenn en ráðnir hafa verið
síðustu sumur. JÓH
til ára sinna og því mætti búast
viö að þeir kölluðu á stóraukið
viðhald.
Varðandi neyslu mjólkur sagð-
ist Þórarinn ekki búast við að hún
myndi aukast, en hins vegar hefði
hann trú á að unnt væri að auka
ostasölu. óþh
Unnið við ostagerð í Mjólkursainlagi KEA.
Nítján hlutu viðurkenningu
Á aðalfundi FEN í Hlíðarbæ
var tilkynnt hverjir hefðu
hlotið viðurkenningu fyrir að
hafa framleitt úrvals mjólk er
lögð hefur verið inn hjá
Mjólkursamlagi KEA á árinu
1989.
Skilyrði fyrir úrvals mjólk cr
að gerlainnihald hafi aldrei far-
ið yfir 30.000 gerla pr. ml.,
meöaltals frumutala sé undir
300.000 pr. ml., mjólk hafi allt-
af farið í fyrsta llokk við flokk-
un á hitaþólnum og kuldakær-
um gerlum ög aldrei hafi orðið
vart fúkkalyfja og/cöa annarra
efna er rýrt gætu gæði mjólkur-
innar. Auk þess að umgcngni
og þrif í mjólkúrhúsi og fjösi
hafi verið góð.
Eítirtáldir fengu afhentan
brúsa, sem verðlaun fyrir að
standast framangreind skilyrði:
Félagsbúið Vöglum, Þór Aðal-
steinsson Kristnesi, Gísli
Björnsson Grund, Þorvaldur
Hallsson Ysta-Gcrði, Óiafur
Thorlacius Óxnafelli, Félags-
búið Eyvindarstöðum, Leifur
Guðmundsson Klauf, Hreiöar
Sigfússon Ytra-Hóli, Haukur
Berg Fífilgerði, Stcfán
Júlíusson Breiðabóli, Gylfi SÍg-
urðsson Ásláksstöðum, Svcrrir
Svcrrisson Neðri-Vindhcimum,
Kristján Buhl Ytri-Rcistará.
Kristján Hermannsson Löngu-
hlíð, Siguröur Jónasson Efsta-
landi. Þorstcinn Rútsson Þverá,
Félagsbúið Bakka, Fclagsbúið
Höfða og Fclagsbúið Selár-
bakka.
Fjórir fengu stóran brúsa fyr-
ir aö halá fengiö þessa viöur-
kenningu þrjú ár í röð. Sverrir
Sverrisson Neöri Vindheimum.
Félagsbúið Eyvindarstöðum (í
sjöunda skipti), Fclagsbúið
Bakk-a og Félagsbúið Selár-
bakka. óþh
Höfði hf. á Húsavík:
Tapaði 172 þúsimdum 1989
Aðalfundur Höfða hf. á Húsa-
vík var haldinn sl. miðviku-
dagskvöld. Höfði gerir út rækju-
togarann Júlíus Havsteen og
starfrækir netagerð. Fram-
kvæmdastjóri er Kristján
Ásgeirsson. Heildarvelta fyrir-
tækisins var um 150,9 milljónir
á síðasta ári, hjá því störfuðu
30 manns og námu heildar-
launagreiðslur tæpum 55 millj-
ónum.
í skýrslu stjórnar kemur frain
að tekjur af seldum afla af Júlíusi
nema 100,5 milljónum króna.
Aflinn nam um 600 tonnum af
rækju og um 65 tonnum af öðrum
fiski en skipið fór á þorskveiðar, í
tvær veiðiferðir, til að leysa hrá-
efnisvöntun hjá Fiskiðjusamlagi
Húsavíkur hf. á þeim tíma sem
Kolbeinsey seldi afla sinn erlend-
is.
Rekstur vciðarfærageröar hef-
ur gengið vel og nam salan 42,7
milljónum á síðasta ári. Stjórnin
Álver við EyjaQörð:
Almennur fundur í Sjallanum
- haldinn sunnudaginn 13. maí nk.
Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar
og álviðræðunefnd sveitarle-
laga við Eyjafjörð boðar Ak-
ureyringa og aðra Eyfirðínga
til almenns fundar um álver við
Eyjafjörö í Sjallanum á Akur-
frTrr-.mstuŒJC-
Laus staða deildarstjóra
í heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu
Laus er til umsóknar staöa deitdarstjóra í heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytinu. Staðan veitist frá 1.
júlí nk.
Umsóknir, ásamt ítarlegum upplýsingum um mennt-
un og störf, sendist ráðuneytinu fyrir 1. júní nk.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
30. apríl 1990.
eyri, sunnudaginn 13. maí nk.
kí. 20.00.
Á fundinum verða flutt nokkur
framsögurerindi, m.a. um álver í
atvinnulegu og félagslegu tilliti,
umhverfisáhrif stóriðju við
Eyjafjörð og gang álmálsins
svokallaða til þessa. Óhætt cr ;ið
fullyrða að fyrirhuguð bygging
nýs álvers á Islandi sé mál mál-
anna á Eyjafjarðarsvæðinu um
þessar mundir. Búast má við að
Sjallinn verði þétt setinn sunnu-
dagskvöldið 13. maí, enda nálg-
ast óðum þau tímamót að
ákvörðun verði tekin urn staðar-
val nýs álvers.
Gerð verður nánarj grein fyrir
dagskrá fundarins í blaðinu eftir
helgi.
tciur að erfitt sé að spá um
afkomu veiðarfærargerðarinnar í
framtíðinni vegna ástands í
útgerðarmálum.
Heildarskuldir félagsins í árs-
lok námu 236,6 milljónum og var
efnahagsstaða fyrirtækisins slæin.
Eiginfjárstaða lagaðist verulega á
árinu með 40 milljón króna
hlutafjáraukningu, einnig lékk
félagið skuldbreytingarlán hjá
Atvinnutryggingasjóði. Veltu-
fjárhlutfall nam 0.59. Rekstur
ársins sýnir rekstfarhagnáð lyrir
afskriftir og fjármagnskostnað
17,5 milljónir. Tap ársins 1989.
var tæp 172 þúsund en var áriöá
undan 22,9 milljónir. IM
Sjallinn:
Hátt í þrjú þúsund
manns sóttu Pálma
Um síðustu helgi voru síðustu
sýningar Sjallans á skemmti-
dagskránni „Staðan í hálf-
leik“. Skenuntun þessi, sem
hefur verið í Sjallanum í vetur,
hefur gengið með ágætum og
vel á þriðja þúsund manns hafa
notið hennar.
Að sögn Sigurðar Thoraren-
sen, framkvæmdastjóra Sjallans,
verður hljómsveit Pálma Gunn-
arssonar í Sjallanum um næstu
helgi, en fer síðan suður og verð-
ur í sumar á Hótel íslandi. Ekki
er ákveðið hvort „Staðan í hálf-
leik" verður sýnd þar næsta
vetur.
„Ákveðin ein hljómsveit verð-
ur ekki í Sjallanum í surnar.
Þetta verður breytilegt frá helgi
til helgar. Ríó-tríó verður hjá
okkur 19. maí, en við auglýsum í
tíma hverjir leika fyrir dansi
hverju sinni og þá skemmtikrafta
sem troða upp.
Sumarið leggst vel í okkur sem
endranær," sagði Sigurður að
lokum. ój
Akureyri:
Fimm sóttu rnn stöðu
bæjarlistamauns
Fimm sóttu um stöðu bæjar-
listamnnns á Akureyri, en
umsóknarfrestur rann út nú í
vikunni.
Að sögn Ingólfs Ármannsson-
ar, skóla- og menningarfulltrúa
Akureyrar, verður nú í fyrsta
sinn veitt staða bæjarlistamanns á
Akureyri lil sex mánaða frá 1.
júlí. Fimm sóttu um stöðuna, en
ekki tékkst uppgetiö hverjir sóttu
um.
„Málið er í höndum menning-
armálanefndar og niðurstöðu er
að vænta um miðjan mánuð,
sagði Ingólfur.
Akureyri:
Litli drengurinn sam drukkn-
aði í Glerá sl. föstudag hét
Hartmann Hermannsson til
heimilis að Háteigi við Akur-
eyri. Hann var sjö ára gamall,
fæddur 21. júlí 1982. óþh