Dagur - 05.05.1990, Page 4

Dagur - 05.05.1990, Page 4
4 - DAGUR - Laugardagur 5. maí 1990 Gróður og garðyrkja " „“„j^Syr^uSðrf!í þættinum°verðÚ™ eHast ^agaGró";XViXrð«r á vísum s.að í blaðinu annan hvorn laugardag. Mikflvægi réttrar útplöntunar Nú fer bráöum að koma sá tími þegar plönturnar vakna upp af djúpum svefni vetrarins, dagur- inn að lengjast og sólin að láta sjá sig oftar og lengur. Tréin fara að bruma sig, laukarnir sem settir voru niður um haustið og fjölæru plönturnar, gægjast upp úr mold- inni. Pað þýðir að vorverkin í garðinum fara að bvrja af fullum krafti. Útplöntun eða gróðursetning er aðgerð sent oft á tíðum er van- metin þannig að fólk plantar of djúpt, of grunnt, gætir ekki að skýla rótum fyrir sól eða grefur of þrönga holu og treður síðan plöntunni niður. Öll þessi atriði Umsjón: Baldur Gunnlaugsson, skrúðg.yrkjufr. og mörg fleiri geta skipt sköpum í uppvexti og vaxtarhraða plantn- anna. En þó svo að þetta eigi við um allar plöntur ætla ég að halda mig viö útplöntun á trjám og runnum. Útplöntunin sjálf skiptist í nokkra hluta sem þarf að athuga. Umbúöir plöntunnar Plöntum er pakkað á marga vegu áður en þær eru seldar t.d. í pokti, potta, striga eða nælon- net. Hafi planta verið lengi í sötnu umbúöunum t.d. í potti verður að rífa dálítið neðan í hnausinn til að ræturnar standi út í allar áttir. Petta er gert vegna þess að ræturnar eiga þaö til að fara að vaxa í hringi og ef ekki er greitt úr því kyrkir plantan sig. Þctta gctur maður stundum séð á litlum vexti og smáum Iaufblöð- um plantna sem svo hefur fariö fyrir. Nægilega djúpar og víðar holur Pegar grafa á holu fyrir plöntu er Hér er sýnl á skoplegan hátt liversu niikla vatnsþörf maísplantan hefur. AÐ H’OUVATNI Innritun er hafin Flokkaskra sumarið 1990 Fl. Aldursflokkar FráAk. Til Ak. Dvalartími 1. Drengir 8 ára og eldri 5. júní 15. júní 10dagar 2. Drengir 8 ára og eldri 18. júní 28. júní 10 dagar 3. Stúlkur8 ára og eldri 29. júní 9. júlí 10 dagar 4. Stúlkur 8 ára og eldri 10.júlí 20. júlí 10 dagar 5. Stúlkur 8 ára og eldri 20. júlí 27. júlí 7 dagar 6. Drengir 8 ára og eldri 2. ágúst 9. ágúst 7 dagar Dvalargjald er kr. 11.000 fyrir 7 daga en kr. 15.500 fyrir 10 daga. Innritun fer fram í félagsheimili KFUM og KFUK Sunnu- hlíð, Akureyri, mánudaga og miðvikudaga kl. 17-18 sími 26330 og utan skrifstofutíma hjá Önnu í síma 23929 og Hönnu í síma 23939. Sumarbúðirnar Hólavatni. Plastpokar eins og þessir eru algengar umbúðir hérlcndis. það algjört skilyrði að hún sé það víö að rætur plöntunnar þurfi ekkert að bögglast eða brotna. Sumar plöntur þola ekki að vera gróðursettar djúpt og dæmi unt það er Birki og Rcynir en aðrar þola það vel eins og Alaskaösp. Paö er nokkurs k'onar þumalfing- ursregla að planta 15-20 cm dýpra en plantan stóð áður. Skýla rótum við sólarljósi og vindi Þegar planta á út cr það frumskil- yrði að plantan sé ekki látin liggj;i óbirgð í sólarljósi því að það ásanrt vindþurrki eyðileggur fínustu rætur plantnanna og það cru einmitt þær rætur senr eru hvað virkastar t öflun vatns. Plantan þarf ekki að liggja í sól- arljósi nema eina mínútu til að fínustu ræturnar eyðileggist. Ef plantan þarf að liggja í sólinni er best að bleyta strigapoka og leggja yfir. Það ver hana í dálitla stund. Að leysa upp jarðveginn Mikið atriði er fyrir plöntuna að jarðvegurinn sé vel uppleysturog grjót liggi ekki við ræturnar. Ávallt skal leitast við að setja besta jaröveginn við ræturnar. Að þjappa vel að plöntunni Mikilvægt cr að þjappað sé vel að plöntunni eftir útplöntun, með því að stíga fast kringum plönt- una. Þetta er gcrt til þess að plantan haldist sem kyrrust í jarðveginum á meðan hún er að festa rætur. Að vökva Vatnið er eins nauðsynlegt plöntunum eins og maturinn er mönnunum. Plöntur taka nær- ingarefni sín úr vatninu, en nrörg efni leysast mjög vel upp í vatni. Vatnið sér einnig um flutning næringarefnanna um plöntuna. Plönturnar nota aðeins 1% af því vatni sem þær taka upp, til stækk- unar frumna og ljóstillífunar. Ný tegund uppbindinga úr mjúku frauöefni. Vatnið sér einnig um að tempra plöntuna í miklum hita sól. Best er að vökva ofan í holuna, fylla hana af vatni og bíöa uns það hefur sigið niður, og eins að vökva vel yfir aö lokinni útplönt- un. Plönturnar þurfa mcst á vökvun að halda rétt eftir út- plöntun. Staðsetning plantna Þegar gróðursetja á plöntu í garði er nauðsynlegt að huga að því hvernig hún muni komi til með að vaxa og dafna og hvort hún muni skyggja mikið á hús eða annan gróður. Staðarvalið skiptir miklu máli og gæta veröur þess sérstaklega að planta aldrei alveg út við lóðarmörk. Ranga staðsetningu er oft erfitt að laga. Reynið því að afla ykkur upplýs- inga um það hversu plantan verð- ur há og hversu mikið vaxtarrými hún þarf áður en staðurinn er valinn. Uppbindingar á trjám Þegar útplöntun er lokið er rétt að huga að uppbindingu ef um tré er að ræða. Úppbinding skipt- ir miklu máli en henni erætlað að halda plöntunni fastri á meðan hún er að festa sig í jarðveginum. Örgrannar rætur sjá um að afla vatnsins í fyrstu og ef plantan er alltaf á hreyfingu slitna þær í sundur. Ákjósanlegt efni í upp- bindingu er tveir tré-staurar og gúmmí-teygja scm heftuð er á annan staurinn, vafinn einn hring um stofn trésins og loks hcftuð á hinn staurinn. Gúmmí-teygjan skal vera fest frekar ofarlega á stofninn. Varast skal að nota ýmis hörð efni eins og vír í upp- bindingu því allt svoleiðis skaðar stofn trésins. Að vanda vel til gróðursetningarinnar Af þessari lesningu hlýturáð vera ljóst að ekki er alveg vandalaust að planta trjám og runnurn og ekki dugar að troða þeim niður eins og um urðun sé að ræða. Þó svo að í einu og einu tilfelli, þar sem illa var staðið að gróðursetn- ingu. hafi hún lukkast er þó ljóst að ef rétt cr að staðið og gróður- setningin unnin af natni mun uppskeran alltaf verða betri. -Plöntukynning- Úlfareynir-Sorbus x hostii Úlfareynir er um 4 metra hátt margstofna tré eða runni. Lauf- blöð hans eru dökkgræn og gljá- andi og stofninn er líka mjög gjáandi brúnn. Hann hefur ekki mikið verið ræktaður í görðum hér fyrir norðan en þar sem hann vex er hann mjög áberandi og blómgast rnjög fallega. Hann kel- ur mjög lítið og er talinn saltþol- inn. Eftir blómgun fær hann stór dökkrauð ber. Blómgast í júní bleikum blómurn sem mynda klasa. Úlfareynir (Sorbus x hostii). Úlfareynir er ótrúlega falleg planta sem vert er að gefa gaum.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.