Dagur


Dagur - 05.05.1990, Qupperneq 8

Dagur - 05.05.1990, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Laugardagur 5. maí 1990 IUMFERÐAR RÁÐ Höröur G. Ólafsson, Grétar Örvarsson, Sigríður Beinteinsdóttir og Aðal- stcinn Asberg Sigurðsson eftir sigurinn í forkeppninni á Islandi. Biluðum bílum á að koma út fyrir vegarbrún! Söngkonan Kita frá ísracl þykir fög- ur en hvort það nægir henni til sigurs skal ósagt látið. Söngvakeppni evrópskra sjón- varpsstöðva er löngu búin að vinna sér hefð sem árlegur stórviðburður á sjónvarps- skjám landsmanna, ekki síst eftir að íslendingar hófu þátt- töku í keppninni. Undan- keppnin hér lieima vekur ein- att mikla athygli og hafa marg- ar fallegar Ijóð- og laglínur sprottið úr þeirri lindinni, þótt ekki hafi öll lögin ratað á svið hinnar evrópsku keppni. Að þessu sinni verður keppnin haldin í borginni Zagreb í Júgó- slavíu og fer hún fram undir þaki Vatroslav Lisinski sönghallarinn- ar, sem er mikið mannvirki. Þar er mikill viðbúnaður í gangi und- ir stjórn Gorans Radmans, sjón- varpsstjóra TV Zagreb. Gest- gjafar í hinni beinu útsendingu verða starfsmenn hans, þau Oliver Mlakar og Helga Vlaho- vie. Keppendur mættu til Zagreb fyrir viku og hafa þeir æft stíft síðan. Júgóslavar hafa lagt sig í líma við að stytta hinum erlendu gestum stundir. Ýmis nýmæli verða í framgangi keppninnar. Má þar nefna að ýmis rafmagnshljóðfæri eru nú gerð útlæg, t.a.m. svonefndir „samplerar". Þá mun hvert lag ekki kynnt sérstaklega heldur verða þau kynnt í kippum. Sér- legt lukkudýr Söngvakeppninnar 1990, Evrókötturinn, verður Finnar hafa sjaldan riðið feitum hesti frá söngvakeppninni en hvað gerir hljómsveitin Beat með lagið Fri? kynnunum tveimur til aðstoðar. Arthúr Björgvin Bollason lýsir keppninni í kvöld fyrir íslenskum sjónvarpsáhorfendum en áætlað er að einn milljarður áhorfenda muni sjá keppnina, ýmist í beinni útsendingu eða á bandi. Skagfírska sveiflan Við höfum nú fengið að sjá myndbönd með keppendunum sem leiða saman hesta sína í kvöld og rná segja að nokkur lög séu sigurstranglegri en önnur. Gestgjafarnir binda miklar vonir við fulltrúa sinn, hina 19 ára gömlu Tajönu Matejas, er tekið hefur sér listamannsnafnið Tajci. „Almættið hefur veitt stúlku þessari jafnt fögur hljóð sem fríð- leiks-útlit, en slík samtvinnun hefur einatt hrifið vel í Evrópu- söngvakeppninni,“ segir í kynn- ingu frá Sjónvarpinu. Okkar menn hafa líka fengið góðar viðtökur fyrir Eitt lag enn. Þá þykir lag Frakka, White and black blues, með söngkonunni Joelle Ursull þýsna vænlegt og þannig mætt lengi telja. Athygli vekur að margir textar í keppn- inni fjalla um fall Berlínarmúrs- ins, frelsi og einingu. Róleg lög eru æði áberandi og þá er bara að sjá hvort Evrópubúar falli ekki fyrir skagfirsku sveiflunni úr smiðju Harðar G. Ólafssonar. SS Frltt!! Fyrir byrjendur vikuna 7.-14. maí Þarftu að létta þig? Styrkja þig? Þyngja þig? Eða bara komast í góðan félagsskap? Vaxtarræktin á Akureyri er ein fremsta líkamsræktarstöð á íslandi í dag. Komið og skoðið eða verið með Vaxtarræktin íþróttahöll Nánari upplýsingar í síma 21061 kl. 09.00-13.00 og 25266 kl. 16.30-21.30. Aðalfundur Bílstjóradeildar Einingar, veröur haldinn sunnudaginn 6. maí nk. kl. 16.00, Alþýðuhúsinu Skipagötu 14 annari hæö (Einingarsal). Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kynning á frumvarpi til félagslaga Vlf. Einingar. 3. Önnur mál. Stjórn Bílstjóradeildar. Auglýsing frá utanríkisráðuneytinu Hinn 8. maí n.k. heldur Igor Vallye, fulltrúi ráöning- arskrifstofu Sameinuöu þjóðanna, fyrirlestur um atvinnumöguleika háskólamenntaöra kvenna hjá Sameinuöu þjóðunum í stofu 101, Lögbergi, Háskóla íslands kl. 20.00. Utanríkisráðuneytið, Reykjavík, 3. maí 1990. Hvers vegna er nágranni þinn áskrifandi að Heima er bezt Vegna þess að það er staðreynd að „Heima er bezt“ er eitt af vinsælustu tímaritum hérlendis. Þú ættir að hugleiða hvort ekki væri skynsamlegt að slást f þennan stóra áskrifendahóp, og eignast þar með gott og þjóðlegt íslenskt tímarit við vægu gjaldi, sem þú fengir sent heim til þín í hverjum mánuði. Útfylltu þess vegna strax í dag áskriftarseðilinn hér fyrir neðan og sendu hann til „Heima er bezt“, pósthólf 558, 602 Akureyri, og þú munt um leið öðlast rétt til að njóta þeirra hlunninda sem eru því samfara að vera áskrifandi að „Heima er bezt“. Nýir áskrifendur fá eldri árgang í kaupbæti. Til „Heima er bezt, pósthólf 558,602 Akureyri. Ég undirrit óska að gerast áskrifandi að tímaritinu „Heima er bezt“. □ Árgjald kr. 2.000,00. □ Sendið mér blaðið frá 1. janúar 1990. Nafn: _______________________________________________________ Heimili:__________________________________ Söngvakeppnin: Úrslitin ráðast í kvöld

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.