Dagur - 05.05.1990, Síða 17
Laugardagur 5. maí 1990 - DAGUR - 17
Kvikmyndasíðan
Jón Hjaltason
Iitlir meðal risa
- en kunna manna best að sjá út Óskarsverðlaunamyndir
Okkur bíóförum hættir svolítiö
til að alhæfa um Hollywood. Það
er til dæmis ekki óalgengt að við
bölsótumst út í lélega framleiðslu
er kemur frá bíóborginni og segj-
um Mammon hafa fyrir löngu
st'ðan tekiö þar öll völd og steypt
listagyðjunni af stóli. Og við för-
um ekki með staðlausa stafi en
engu að síður hafa myndir eins
og Regnmaðurinn og Félag
dauðu skáldanna litið dagsins ljós
Mestu stórgróða-
myndirnar 1989
- Brúttóinnkoma í
milljónum ísl. króna
1. Batman
2. Indiana Jones and
the Last Crusade
3. Lethal Weapon 2
4. RainMan
5. Honey, I Shrunk
the Kids
6. Look Who's Talking
7. Ghostbusters II
8. Parenthood
9. Backtothe
Future Part II
10. Dead Poets Society
11. WhenHarryMet
Sally
12. TurnerandHooch
13. UncleBuck
14. National Lampoon's
Christmas Vacation
15. Field of Dreams
16. PetSemetary
17. SeaofLove
18. Beaches
19. Twins
20. TheAbyss
WarnerBros 15.072
Paramount 11.772
Warner Bros 8.838
MGM/UA 8.226'
BuenaVista 7.812
Tri-Star 6.864
Columbia 6.750
Universal 5.736
Universal 5.712
Buena Vista 5.670
Columbia 5.520
BuenaVista 4.206
Universal 3.852
Warner Bros 3.630
Universal 3.816
Paramount 3.450
Universal 3.396
Buena Vista 3.390
Universal 3.372
Fox 3.288
1 Áriö á undan (1988) halaöi Regnmaðurinn
inn rúma tvo milljaröa sem ekki eru taldir inn I
þessari tölu.
og meira að segja orðið met-
gróðamyndir.
Önnur goðsögn um bandaríska
kvikmyndaheiminn segir okkur
að góðar myndir hljóti að kosta
óheyrilega peninga. Og sem fyrr
er þetta ekki eintómt orðagjálfur
en undantekningarnar eru þó til;
um það eru bræöurnir Harvey
(37 ára) og Bob Weinstein (35
ára) lifandi vitnisburður. Kvik-
myndaheimurinn var áþreifan-
lega minntur á tilvist þeirra
bræðra núna í byrjun apríl þegar
tvær þeirra kvikmynda er þeir sjá
um dreifingu á unnu til þriggja
Óskarsverðlauna; Cinema
Paradiso var verðlaunuð setn
besta erlenda kvikmyndin og My
Left Foot gat státað af tveimur
styttum. My Left Foot er raunar
gott dæmi um sjálfstæöi þeirra
bræðra og in.nsæi. Þessi írska
mynd, sem byggð er á sjálfsævi-
sögu alvarlcga fatlaðs listamanns,
virtist ekki hafa neitt til að bera
scm draga myndi almenning í
bíó. En þeir bræður voru annarr-
ar skoðunar og innsæi þeirra
reyndist rétt. Þannig hafa þeir
I’eir eru óhræddir aó fara eigin lciöir hræðurnir Itoh og Harvey Weinstcin.
Þetcr Gallaglier og Laura San Gia-
eonio í Ses, lies and videotape.
risið til vegs, með því að veðja á
ódýrar myndir sem stóru kvik-
myndaverin hafa hafnað og sagt
of áhættusamar cða lítið gróöa-
vænlegar.
Upphafið að velgengni þeirra
Wcinstein-bræðra er að finna í
Buffalo. Fyrir l() árurn síðan
keyptu þeir þar aflóga bíóhús,
gcrðu það upp og stofnuöu
Miramax (nefnt eftir foreldrum
þeirra, Miriam og Max). Bráð-
lcga byrjuðu peningarnir að rúlla
inn í kassann. Fyrir ágóðann
liófu þeir að kaupa kvikmyndir.
Sú fyrsta var The Secret
Policeman's Other Ball, rokk-
söngleikur í gamansömum dúr.
Hagnaður varð um 360 milljónir
íslenskra króna. Þetta var 1982.
Það var svo ekki fyrr en 19S8 að
Miramax vakti verulega athygli
og þá fyrir sniðuga og árangurs-
ríka markaðssetningu The Tliin
Blue Line, leikinnar heimildar-
myndar um ranglátan líflátsdóm í
Dallas, og hinnar sænsku sögu
um Pcllc sigurvegara. Hagnaður
af Pelle varð þó ákaflega hófleg-
ur en það sem meira var um vcrt;
hún vann til Óskarsverðlauna.
The Thin Bluc Line vakti ekki
síður athygli, þó það væri frckar
á heimaslóðum. Meðal annars
fyrir áhrif frá henni ákváðu yfir-
völd í Texas að ekki væri lengur
stætt á líflátsdómum og í kjölfar-
ið var þessi þyngsta refsing dóm-
kerfisins lögö niður.
Hin aldna .lesseca Tandy í Driving Mi.ss Daisy.
Bretar fagna
Þegar litið er til baka og athugað
hvert Óskarsverðlaunin fóru nú
seinast kemur í ljós að banda-
rískir riðu ckki sérlega feitum
hesti frá hátíðinni. Margir höfðu
spáð því fyrirfram að sýningin,
sem sjónvarpað var til 39 landa,
myndi verða stórsigur fyrir
Oliver Stone og kvikmynd hans
Born on the Fourth ofJuly. Að
vísu hafði komið á óvart að
Driving Miss Daisey skyldi fá
fleiri tilnefningar en kvikmynd
Stone’s, níu á móti átta. Og það
kom á daginn að þetta var örlítill
fyrirboði um úrslitin.
Kvöldið varð stórsigur fyrir
bresk-ættaða leikara. Daniel
Day-Lewis, aðaleikarinn í My
Left Foot. og Jessica Tandy, eða
Miss Daisy, fengu bæði Óskarinn
fyrir frammistöðu sína. En þau
eiga það sameiginlegt að vera
bæði fædd á Englandi. Þá fékk
írinn Brenda Fricker Óskarinn
fyrir aukahlutverk sitt í My Left
Foot.
Besti leikstjórinn var þó
bandarískur, Oliver Stone.
Kvikmyndir í burðarliðnum
THE DOORS
Frá Tri-Stars og Oliver Stone er von á kvikmynd byggðri á storma7
samri ævi tónlistarmannsins Jim Morrisons. Val Kilmer leikur
Morrison en önnur helstu hlutverk eru í höndum Kyle MacLachlan,
Kevin Dillons og Frank Whaley.
MISERY
Enga sögu hef ég ennþá lesið eftir Stephen King en næsta mynd
Rob Reiners byggir á einni þeirra. Sagt er frá vinsælum rithöfundi
sem ekki fær um frjálst höfuð strokiö vegna ógnana aðdáenda.
James Caan leikur rithöfundinn. Myndin kemur frá Columbia,
væntanlega næsta vetur.
ONCE AROUND
Sænski leikstjórinn Lasse Hallstrom (My Life as a Dog) er hér á
ferðinni með fyrstu Hollywood-framleiðslu sína, ástarmynd sem
gerist í nútímanum. Aðalhlutverkin eru í höndum Cinecom/Double
Play, veturinn 1990.
PACIFIC HEIGHTS
Af lýsingum að dæma virðist þetta ekki vera kvikmynd við hæfi
leigusala. Melanie Griffith leigir íbúð sína en leigjandinn, Michael
Keaton, leiðir yfir hana ómældar skelfingar. Leikstjóri er John
Schlesinger. 20th Century Fox, veturinn 1990.
SLEEPING WITH THE ENEMY
Hér virðist magnaður reyfari vera á ferð. Julia Roberts bregöur á
það ráð að setja sinn eigin dauða á svið til þess eins að flýja
skelfilegt hjónaband. Höfundur handrits eru Lloyd Fonvielle og
Óskars-maðurinn Ron Bass (fíain Man). 20th Century Fox, haustið
1990.
Árið eftir (1989) settu þeir
bræður í þriðja gír og gerðust
umsvifameiri en nokkru sinni
fyrr. Óskarsverðlaunamyndirnar
þeirra tvær. 'að viðbættri hinni
umtöluðu sex. lies and video-
tape. Iiafa fært þeim 2,340 millj-
ónir og ennþá eru ekki öll kurl
komin til grafar. Hver þeirra
kostaði þó innan við 120 milljónir
í framleiðslu sem eru ekki annað
en spápeningar þegar haft er í
huga að meðalkostnaður við
kvikmynd er sagður vera nokkuð
á annan milljarð króna. Þannig
hafa Weinstein bræður hagnast
með því einu að láta eigin smekk
ráða. Ef kvikmyndin fellur þeim
sjálfum í gerð finnst þeim sjálf-
sagt að gefa henni tækifæri.
Úr þriðja gír í fyrra hafa þeir
bræður skipt upp í fjórða gír á
þessu ári. Þeir hafa nú 14 niyndir
á sínum snærum og fjórar af þeim
eru eigin framleiðsla - og af þeim
eru tvær þegar í vandræðum.
Strike It Rich, með Molly
Ringwald, virðist ekki ætla að
eiga sér viðreisnar von og The
Lemon Sisters, með Diane
Keaton, hefur verið send aftur í
klippingarherbergið til endur-
vinnslu. En Bob og Harveý
Weinstein eru ekkert á þeim bux-
unum að gefast upp. „Við reyn-
um aö fylgja fordæmi Rolls-
Royee. Við ætlum aðeins að gera
fáa bíla en hafa þá þeim mun
betri. Við crum ekki í neinni
samkeppni við GM."
Rafgeymar
og
hjólbarðar
ttott verð.
10% afsláttur
næsta mánuð á rafgeymum.
Verð:
107 a.h. kr. 8.662,50
133 a.h. kr. 10.296,-
70 a.h. kr. 4.940,10