Dagur


Dagur - 05.05.1990, Qupperneq 18

Dagur - 05.05.1990, Qupperneq 18
18 - DAGUR - Laugardagur 5. maí 1990 efst í hugo Hestamenn Kynbótadómar og héraðssýning á hrossum á svæði Búnaðarsambands Eyjafjarðar verða sem hér segir: 22. maí: Svarfaðardalurog Ólafsfjörður. Flötutungur. 23. maí: Melgerðismelar. 24. maí: Melgerðismelar. 25. maí: Melgerðismelar. 26. maí: Héraðssýning. Skráning hrossa fer fram hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar og hjá Rafni Arnbjörnssyni Dalvík. Skráningu skal lokið fyrir 16. maí. Skráningargjald er kr. 1200,- en félagar í búnaðarfé- lagi greiða kr. 500,- fyrir skráð hross. Tímasetningar verða auglýstar síðar. Búnaðarsamband Eyjafjarðar. Hrossaræktarsambandið. Á AKUREYRI Kaupvangsstræti 16 Myndlistaskólinn á Akureyri auglýsir inntöku nýrra nemenda í fornámsdeiid veturinn 1990-1991. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans Kaupvangsstræti 16. Allar nánari upplýsingar veittar í síma 24958. Umsóknarfrestur er til 24. maí. Skólastjóri. Innilegar þakkirfærí ég þeim erglöddu mig með blómum, skeytum og gjöfum á 70 ára afmæli mínu 29. apríl s.l. JÓHANNES ÓLAFSSON, Skarðshlíð 14 c, Akureyri. LOKAÐ Vegna útfarar Aðalsteins Magnússonar verður Fóðurvörudeild vor lokuð frá kl. 12.15-15.00 mánudaginn 7. maí 1990. Kaupfélag Eyfirðinga. Útför móöur okkar, HALLDÓRU J. ANDRÉSDÓTTUR, frá Lokinhömrum, er lést aö Hjúkrunarheimilinu Seli 26. apríl, fer fram frá Akur- eyrarkirkju þriöjudaginn 8. maí kl. 13.30. Sigrún Ragnarsdóttir, Lilja Ragnarsdóttir. Faöir okkar, stúpfaöir, tengdafaöir og afi, AÐALSTEINN MAGNÚSSON, Sólvöllum, Akureyri, sem lést 1. þ.m. veröur jarösunginn frá Akureyrarkirkju mánu- daginn 7. maí kl. 13.30. Ragnheiður Aðalsteinsdóttir, Helga Aðalsteinsdóttir, Magnús Jón Aðalsteinsson, Bjarni Aðalsteinsson, Páll Magnússon, Álfheiður Magnúsdóttir, Sveinn Magnússon, Sigrún Magnúsdóttir, tengdabörn og barnabörn. Sóun á gjöfum jarðar Dagur jarðar er mér efst í huga þegar þetta er ritað sl. miðvikudag. Ég hef nefnilega dregist svolítið afturúr að undanförnu við að halda upp á hátíðis- daga og aðra daga, þannig að 1. maí var Dagur jarðar hjá mér, langt á eftir öðrum sem þá héldu 1. maí hátíðlegan. Með haustinu fer ég líklega ein í 1. maí kröfu- göngu og krefst meira kaups fyrir minni vinnu. Þegar forseti íslands heimsótti Húsa- vík sl. laugardag spurði hún börnin fyrst af öllu frétta af fuglasöng í þessu héraði. Undanfarna daga hafði ég reynt að hafa augu og eyru opin, því mig var farið að lengja eftir lóunni, þó bletturinn sem blasir við úr elhússglugganum, þar sem ég er vön að sjá fyrstu lóur vorsins, sé enn þakinn þykkum skafli. En það þýðir lítið að sitja inni í húsi og bíða eftir að farfuglarnir láti sjá sig. Ég rifjaði það upp að síðan ég náði fullri lengd, hef ég yfir- leitt alltaf verið úti að hengja upp eða taka niður þvott þegar ég hef heyrt í fyrsta hrossagauknum á vorin, en ég hef suma forna siði í heiðri og .finnst máli skipta úr hvaða átt hneggið heyrist. 1. maí dreif ég mig út og gekk að sorpeyð- ingarstöðinni, til að geta spjallað ein við fuglana, fuglaskoðunarvegurinn minn að vitanum var nefnilega enn ófær, nema fólki á gönguskíðum. Eins og venjulega á þessum árstíma reyndi ég að búa til kríur úr hettumávunum, en það tekst væntanlega ekki fyrr en á föstudaginn. Æðarfugl og margur annar fugl lét ? sér heyra þarna út á bjarginu og á bakaleið- inni gerðist það allt í einu; aftan við mig til hægri söng lóa þrisvar sinnum um dýrðina og svo komu þær þrjár fljúgandi, hækkuðu sig og báru við bjartan himin og Kinnarfjöllin. Þá kom sumarið loks- ins til fulls og skyndilega kom heiil flokk- ur af lóum frá hægri og sameinaðist litla hópnum mínum og nú létu þær aldeilis í sér heyra. Þegar snjórinn fer kemur ýmiss konar rusl í Ijós og hugurinn hvarflar að meng- un og ofnotkun umbúða, þannig að gengið er á gæði jarðar. Það eru þó margir farnir að hugsa sig um, en marg- falt fleiri þarf til svo fjöldinn geti tekið höndum saman og unnið markvisst að því að bæta ástandið í þessum málum. Ég vissi ekki hvort ég átti að hlægja eða gráta nú um daginn, er mér barst í hend- ur hið ágætasta blað erlendis frá. í rit- stjórnargrein er fjallað um sóum á gjöf- um jarðar og sagt að nú skuli tekið á þeim málum og blaðið framvegis prent- að á endurunninn pappír, enda fari grár pappír betur með augu lesandans en hvítur. Gott mál, allt saman. En utan um blaðið var efnismikið umslag, fóðrað með margföldu plasti og loftbólur í, strimill með sterku limi til lokunar um- slagsins, og þrír límmiðar framaná. Umslagið var litlu efnisminna en blaðið sjálft. - Vinstri hendin hafði greinilega ekki frétt af markmiðum þeirrar hægri. Ingibjörg Magnúsdóttir. vísnoþáftur Hér birtist upphaf rímu er Snæbjörn Jónsson kvað fyrir miðja öldina okkar. Hann hafði langar dvalir á Bret- landi og orti mikið. Hlýði í bili horskir menn sem hafa nægan tíma og ferskeytlunni unna enn, upp er hafin ríma. Glöddu alla áður Ijóð og ómar sögukvæða, við þau gleymdi vökul þjóð vöntun margra gæða. Ýmsu að vísu um er breytt í okkar landi víða, en ferskeytt Ijóð er alltaf eitt eldri og nýrri tíða. Geymi lengi göfug þjóð gullið Ijóða dýra, þennan okkar erfðasjóð ekkert megni að rýra. Öldruð sómakona sagði mér næstu vísurnar. Hafði lært þær á barnsaldri og mundi ekki höfundana. Hamingjan býr í hjarta manns. Höpp eru ytri gæði, en dyggðin ein má huga hans hvíla og gefa næði. Auðnuslingur einn þá hlær, annar grætur sáran, þriðji hringafoldu fær, fjórða stinga dauðans klær. Næsta vísa var ort í vinahópi Bárðar Sigurðssonar. Hann hafði farið til Vesturheims: Ég er sestur öls við skál, orðinn hresstur bara. Sjaldan brestur Bragamál hjá Bárði vesturfara. Þessi veðurfars vísa mun ort áður en Veðurstofan varð til: Veltast í honum veður stinn - veiga mælti skorðan kominn er þefur í koppinn minn, kemur hann senn á norðan. Magister Ingólfur Davíðsson sendi þættinum vísur. Hann segir: í tilefni komu páfans, rifjaðist upp fyrir mér gömul minning frá K.höfn: Á páskum kom ég í kirkjur tvær, kynbornar systur eru þær. Lýtur sií yngri Lúthers dóm, lofar hin eldri páfann í Róm. Til beggja systra ber ég traust, blendinn í trúnni efalaust. Held við báðar hollan frið, að Helga magra ættarsið. Ingólfi verður hugsað norður á hörðu vori, sem oftar: Vetrarklæði vorið ber, víða gráir tindar. Seint á fætur sumar fer, svalir gnauða vindar. Erlingur Friðjónsson stýrði Kaupfélagi verkamanna á Akureyri um skeið. Eitt sinn leit hann út um glugga og sá roskna konu ganga hjá. Þá kvað hann: Aldrei giftist Imba greyið. enginn vill hana. Margur hefur þynnra þegið, það má gylla ’ana. Vísan barst víða. En nokkru síðar kom önnur vísa á loft ófeðruð: Aldrei giftist Elli greyið, enga sponsar hann. Margar hafa þynnra þegið, það má bronsa hann. Á búnaðarmálafundi: Metorðastiginn er meinlega háll, margan á rasinn hahn setur. Gróflega bítast þeir „Gvendur og Páll“, ég get ekki sett þá á vetur. Á skógræktarfundi: Æskulýðinn ég helst kaus, okkar trú að boða. En margan skalla og hæruhaus hér má sjá og skoða. Á öldungsárum: Þó að ég sé gamall og grár, geymi á kollinum lítið hár, leita ég samt í Ijós og yl, löngum þess nýt að vera til. Þá koma tvær vísur eftir Kristján Ólason á Húsavík: Morgungolan mild og hlý mjúkum fingrum sínum flettir bláum blöðum í blómagarði mínum. Vorsins glaða vaxtarþrá vcrmdi yndislega, en í haustsins svip ég sá söknuð minn og trega.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.