Dagur - 09.05.1990, Side 1

Dagur - 09.05.1990, Side 1
73. árgangur Akureyri, miðvikudagur 9. maí 1990 86. töiublað y\Il± fyn'r HAFNAflSTRÆTI 92 60? AKUREYRI SiMI 96 76708 BOX 397 Verkun á Ítalíuskreið: „Gengur ekki í dag“ Eins og horfurnar eru í dag í fiskverkuninni eru litlar lýkur á að útgerðarmenn og fiskverk- endur verki fisk fyrir Ítalíu- markað á næstu mánuðum. „Að verka í skreið fyrir Ítalíu- markað gengur ekki í dag,“ sagði Valdimar Kjartansson, útgerðar- maður og fiskverkandi á Hauga- nesi við Eyjafjörð. Fiskverkendur eiga töluverðar birgðir og að sögn Valdimars liggur hann með 'A af fyrraárs- framleiðslu. Víða er þessu farið á sama veg og jafnvel eru birgðir meiri hjá sumum. Skreiðarkaupmenn frá Ítalíu skoðuðu eyfirska skreið í gær, en Valdimar sagðist ekki búast við að í kjölfar þeirrar heimsóknar myndi færast kippur í sölu skreið- ar til Ítalíu. „Af sölu verður ekki fyrr en með haustinu, en þá kaupa ítalir alltaf visst magn. Breyttar reglur Landsbanka íslands vegna afurðalána hamla einnig verulega gegn skreiðarverkuninni fyrir Italíumarkaðinn. Hér verka menn í salt. Það er hagkvæmast. Salan er góð og sá fiskur sem er fullgerður selst jafnóðum,“ sagði Valdimar útvegsbóndi. ój Vor í lofti. Mynd;.KL Fasteignamarkaðurinn á Akureyri: Lífleg viðskipti og fremur hátt verðlag - húsbréfakerfið virðist lofa góðu Eftir hefðbundinn vetrardvala er fasteignamarkaðurinn á Akureyri að vakna til lífsins og eru viðskipti með húseignir blómleg um þessar mundir. Eftirspurn er mikil eftir íbúð- um og verðlag hefur stigið. Flóðgáttir húsbréfakerfis opn- ast fyrir almenning 15. maí næstkomandi en forgangshóp- ar hafa þegar nýtt sér þetta nýja kerfi. Björn Kristjánsson, sölumaður hjá Fasteignatorginu, sagðist vera ánægður með fasteigna- markaðinn á Akureyri þessa dag- ana. Hann segir að eignir liafi hrúgast inn með vorinu og við- skiptin séu orðin lífleg, en mark- aðurinn er ávallt í lægð yfir vetrarmánuðina. „Ég er alls ekki óánægður með viðbrögðin síðustu vikurnar. Það hefur vantað eignir á söluskrá í allan vetur en þær hafa streymt inn núna. Eftirspurn hefur veriö meiri en framboð og þess vegna hefur verðið stigið,“ sagði Björn. Hann sagði að nú vantaði helst Framtíð Álafoss hf. til umræðu í Bæjarstjórn Akurevrar: Hugmyndii: um stóraukna Ijárfestingu Alafoss á Akureyri Hörð fundi gagnrýni kom fram á Bæjarstjórnar Akureyr- ar í gær á þá hugmynd að flytja hluta aðalskrifstofu Álafoss hf. úr bænum. Bæjarfulltrúarnir Björn Jósef Arnviðarson og Sigríður Stefánsdóttir töldu að fyrr eða síðar kæmi að því aö öll starfsemi fyrirtækisins færi frá Akureyri, næði þetta fram að ganga. Úlfhildur Rögn- valdsdóttir og Þórarinn E. Sveinsson bentu hins vegar á að engin merki væru um að öll starfsemi Álafoss færi úr bænum, þvert á móti standi fyrir dyrum vélvæðing á Gler- áreyrum fyrir tugi milljóna króna, og nýlega hafj verið ráðið í 20 ný störf hjá Álafossi hf. Björn Jósef Arnviðarson hóf umræðuna í tilefni af samþykkt bæjarráðs um að skuldbreyta 40 milljóna króna skuld Álafoss hf. við Akureyrarbæ til 6 ára. Kvað hann það undarlegt að daginn Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri: Skortur á hjúkrunarfræðingum gæti hamlað starfsemi deída Á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri ríkti töluverð bjart- sýni í vetur um að skortur á hjúkrunarfræðingum yrði ekki tiltakanlegur í sumar, en að sögn Sonju Sveinsdóttur, hjúkrunarframkvæmdastjóra, hafa þessar vonir ekki ræst. Færri hjúkrunarfræðingar koma frá Háskóla íslands en reiknað hafði verið með og þá sagði Sonja að nokkrir hjúkr- unarfræðingar hefðu hætt störfum vegna þess að eigin- menn þeirra misstu atvinnu sína á Akureyri og fjölskyld- urnar hefðu því flutt úr bænum. Fjórðungssjúkrahúsið hefur að undanförnu auglýst eftir hjúkr- unarfræðingum í fastar stöður og afleysingastöður á barnadeild, handlækningadeild, gjörgæslu- deild, skurð- og svæfingadeild, lyfjadeild og geðdeild. Astandið mun vera dálítið misjafnt eftir deildum en skortur á hjúkrunar- fræðingum er svipaður og á sama tíma síðustu ár. Að sögn Sonju gefur það auga leið að þegar deildir eru undir- mannaðar yfir vetrarmánuðina þá getur ástandið ekki annað en versnað yfir sumartímann þegar starfsmenn fara í sumarfrí. Sumir hjúkrunarfræðingar eru með mikla starfsreynslu og eiga rétt á allt að sex vikna sumarleyfi. Skortur á hjúkrunarfræðingum er því skiljanlega mestur á þessum árstíma. Einnig hafa hjúkrunar- fræðingar sem starfað hafa lengi farið í námsleyfi og ársfrí. „Ljósi punkturinn hjá okkur núna er sá að þeir hjúkrunarnem- ar sem lokið hafa þremur árum í Háskólanum á Akureyri koma inn sem lykilhjálp í sumar. Einnig fáum við nokkra nýút- skrifaða hjúkrunarfræðinga að sunnan en þeir koma ekki' inn fyrr en 9. júlí og þurfa þá ákveð- inn aðlögunartíma," sagði Sonja. Aðspurð, sagði Sonja að þrátt fyrir skort á hjúkrunarfræðingum yrði bráðaþjónusta alltaf til stað- ar á deildunum, ánnað hefði aldrei kömið til gréina. Hins veg- ar yrði að koma í ljós hve mikið hj úkrunarfræðingaskorturinn myndi hamla starfsemi deildanna fyrir utan bráðaþjónustuna. „Það hefur oft syrt í álinn hjá okkur en síðan hefur þetta bjargast furð- anlega á síðustu stundu,“ sagði Sonja. SS eftir að bæjarráð hafi samþykkt þetta sjái menn yfirlýsingar for- stjóra Álafoss um að vilja flytja hluta aðalskrifstofu á brott. Taldi Björn Jósef að fyrr eða síðar færi öll skrifstofan, starfsfólkið hefði m.a. verið spurt að því nýlega hvort það vildi flytja til Reykja- víkur. Orðrómur væri um að söludeildin ætti einnig að flytja flótlega. Hann sagði að með sörnu rökum og forstjóri Álafoss notaði um að ekki finndist fólk í stjórnunarstörf á Akureyri, mætti segja að tilgangslaust væri að ræða um álver við Eyjafjörð, því þangað fengist ekki sér- menntað fólk í vinnu við fjár- málastjórnun o.s.frv. Þórarinn E. Sveinsson sagði að meirihluti bæjarstjórnar hefði tæpast kynnt sér málefni ullariðn- aðar á kjörtímabilinu. „Álafoss hefur barist í bökkum, og skiljan- legt að erfiðleikum hafi verið bundið að ráða fólk til starfa hjá fyrirtæki sem hefur verið í óvissu. Én dylgjur Björns Jósefs og fleiri um flutning allrar starfseminnar eiga ekki við rök að styðjast, og í því sambandi get ég upplýst að ætlunin er að kaupa vélbúnað fyrir tugi milljóna króna og setja upp hjá Álafossi á Akureyri, enda er stefnt að því að sérhæfð ullarvinnsla verði hér í bæ, svo framarlega sem ullariðnaður heldur áfram í landinu." Ekki náðist samband við for- stjóra Álafoss vegna þessa máls eftir að fundi bæjarstjórnar lauk í gær. EHB hæðir og einbýli á skrá, sérstak- lega á Brekkunni. Þeir sem fengu lánsloforð frá Húsnæðisstofnun fyrir 1. mars 1989 komust inn í húsbréfakerfið og segir Björn að töluvert hafi verið selt af eignum í þessu kerfi. Hann segir jafnframt að svo virð- ist sem fólk sé þokkalega ánægt með húsbréfakerfið og að það lofi góðu. Eftir 15. maí nk. getur hver og einn gengið inn í húsbréfakerfið í viðskiptum með eldri fasteignir, en að sögn Björns verður kcrfið að öllum líkindum ekki opnað fyrir viðskipti með nýjar eignir fyrr en 15. nóvember. SS Grenivík: Kappnóg að gera Mikil vinna hefur verið undan- farið í frystihúsi Kaldbaks hf. á Grenivík. Unnið hefur verið á laugardögum frá því í mars. Þorsteinn Pétursson, fram- kvæmdastjóri. segir að afli hafi veriö tregur á togaraslóðum síð- ustu vikur, en afli smærri báta oft verið þokkalegur. Vinnudagur- inn í frystihúsinu er níu klukku- stundir, og unnið alla laugar- daga. „Við fáum fisk úr Frosta, Sjöfn og trillubátum. Afli hefur aðeins glæðst en hefur verið lélegur hjá togurunum undanfarnar vikur. Frystihúsið er ekki stórt, þannig að við þurfum ekki svo mikið,“ segir Þorsteinn Pétursson. EHB Skafti SK-3: Hvalur í trollið Grálúðuveiðin hefur gengið heldur treglega hjá skagfirsku togurunum. Skagfirðingur og Hegranes fengu þó góðan alla og fylltu sig á fjórum dög- uin um páskana. Síðan hafa veiðar gengið hægt og hafís á grálúðumiðunum fyrir vestan gerir sjómönnum lífið leitt. Skafti SK-3 varð að hörfa und- an ís á vestfjarðarmiðunum um helgina. Að þessum túr loknum verður Skafti tekinn í slipp á Akureyri. Verður hann botn- skrapaður og málaður, búist er- við að skröpun taki þrjá daga. Skagfirsku togararnir hafa „fiskað" nokkuð af hákörlum undanfarið. Um fimm hákarlar hafa fengist í einum túr. Sjómenn selja hákarlinn til verkunar og er líklegt að hann verði á borðum á þorrablótum á næsta ári. Skipverjar á Skafta urðu fyrir ónotalegri lífsreynslu í síðasta túr. Þótt ótrúlegt megi virðast fengu þeir hval í trollið. Sá var dauður og dragúldinn og ólyktin svo megn að trollið lyktaði í lang- an tíma á eftir og mögum köstum seinna. Skipverjum á Skafta bar saman um að meiri ódrátt hefðu þeir aldrei fengið. kg

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.