Dagur - 09.05.1990, Síða 3
Miðvikudagur 9. maí 1990 - DAGUR - 3
Aðalfundur Kaupfélags Þingeyinga:
Rekstrarhagnaður 11 milljóiiir
14 milljónir eftir afskriftir
Hagnaður hjá Kaupfélagi Þingeyinga í fyrra var 11 inilljónir en tapið 1988
var 69 milljónir.
Aðalfundur Kaupfélags Þing-
eyinga var haldinn í samkomu-
sal Barnaskólans á Húsavík,
laugardaginn 5. maí sl. og
hófst hann klukkan 10 árdegis.
A fundinn mættu 103 fulltrúar
úr 9 félagsdeildum. Félags-
menn voru 1.962 í árslok 1989.
Fram kom á fundinum að
heildarvelta félagsins var 1.450
milljónir króna og hafði hún
aukist um 19,8%. Rekstrar-
gjöld án fjármagnsliða voru
1.365 milljónir króna og höfðu
aukist um 15,5%, en þar af var
launakosnaður 205 milljónir
króna, eða 5,6% hærri en á
fyrra ári. Rekstarhagnaður
ársins var tæpar 11 milljónir
króna, eftir að búið var að
færa niður og afskrifa útistand-
andi kröfur og hlutafé að fjár-
hæð rúmlega 14 milljónir
króna. Til samanburðar var
tap á árinu 1988 upp á 69 millj-
ónir. Samanlagt eigið fé Kaup-
félags Þingeyinga og Mjólkur-
samlags KÞ var 159 milljónir
króna í árslok 1989. Fjármuna-
myndun frá rekstri var rúm-
lega 44 milljónir króna, en var
neikvæð um tæpar 47 milljónir
króna árið áður.
í skýrslu stjórnarformanns,
Egils Olgeirssonar, kom fram að
megin verkefni stjórnar félagsins
á síðasta ári hafi verið að fylgja
eftir þeim aðgerðum sem sam-
þykktar voru á framhaldsaðal-
fundi 11. júní 1989. Fyrir ári síðan
hefðu menn talað um að fram-
Þann 11. inaí nk. eru 60 ár lið-
in frá stofnun Skógræktar-
félags Eyfirðinga.
Félagið, sem er elsta skógrækt-
arfélag á íslandi, minnist þessara
tímamóta með sérstökum hátíða-
fundi, sem haldinn verður laugar-
daginn 12. mai og hefst hann að
loknum aðalfundi félagsins, kl.
16.00 í Svartfugli, Alþýðuhúsinu
á Akureyri. í lok aðalfundarins
verða tilkynnt úrslit í samkeppni
um myndverk, sem efnt var til
meðal grunnskólanemenda í
undan væri lífróður til að bjarga
kaupfélaginu. Róttækum aðgerð-
um hefði verið hrundið af stað
sem fólust fyrst og fremst í sam-
þjöppun verslunardeilda, lækkun
sameiginlegs skrifstofu- og
stjórnunarkostnaðar, eflingu
þeirra þátta sem skiluðu arði,
skuldbreytingum, aðhaldi í fjár-
festingu og sölu eigna. Með þess-
um aðgerðum hefði tekist að
snúa rekstri félagsins til betri
vegar. „Þessi árangur er ánægju-'
legur, sem vert er að þakka öllum
sem að hafa unnið, ekki síst
dugnaði starfsfólks og samstöðu
og velvild félagsmanna. Þá er
brýnt að undirstrika að þetta er
aðeins fyrsti áfangi til betri tíðar,
enn er staða félagsins veik og því
aðhald, aðgát og raunsæi á öllum
sviðum nauðsynlegt,“ sagði Egill.
í skýrslu kaupfélagsstjóra,
Hreiðars Karlssonar, kom fram
að hagur félagsins batnaði veru-
lega á árinu 1989 borið saman við
fyrra ár, bæði vegna aðgerða
Eyjafirði og verður jafnframt
opnuð sýning í Dynheimum á
úrvali verka þeirra sem bárust í
samkeppnina. Sýningin verður
opin frá 12.5. til 17.5.
I tengslum við afmæli félagsins
verður uppeldisstöðin í Kjarna
opin almenningi sunnudaginn 13.
maí frá kl. 14 til 17 og starfsemin
kynnt. Auk þess verður saga
félagsins rakin í stórum dráttum í
blaðagrein og viðtölum við for-
ystumenn félagsins.
(Fréttatilkynning).
stjórnenda og starfsmanna svo og
bærilegri ytri skilyrða. Taldi hann
að rekja mætti árangurinn bæði
til aðgerða sem ákveðnar voru á
árinu 1988, auk þeirra aögerða
sem gripið var til á árinu 1989.
í umræðum á fundinum kom
fram ánægja með þann árangur
sem náðst hefur í rekstri félagsins
á síðastliðnu ári, en varað var við
of mikilli bjartsýni og hvatt var til
varfærni.
Á fundinum var samþykkt
úrsögn félagsins úr Tryggingar-
sjóði innlánsdeilda. Er þetta gert
þar sem Innlánsdeild Kt> hefur
undanfarið eitt og hálft ár veriö
tryggð með ábyrgð Samvinnu-
banka íslands hf. cn með samein-
ingu hans við Landsbanka
íslands, hefur sá síðarnefndi tek-
ið á sig þessa ábyrgð.
Úr stjórn félagsins áttu að
ganga Böðvar Jónsson, Gaut-
löndum og Egill Gústafsson,
Rauðafelli. Egill gaf ekki kost á
sér til endurkjörs. í stað hans var
kjörinn Skarphéðinn Sigurðsson,
Úlfsbæ, en Böðvar var endur-
kjörinn.
Hlöðver Þ. Hlöðversson, Björg-
um, gaf ekki kost á sér til endur-
kjörs sem endurskoðandi félags-
ins, en hann hefur verið kjörinn
endurskoðandi frá 1956, eða síð-
astliðin 34 ár. I hans stað var
kjörinn Egill Gústafsson, Rauða-
felli.
I stjórn félagsins sitja: Egill
Olgeirsson, formaður, Húsavík,
Ari Tcitsson, Hrísum, Baldvin
Baldursson, Rangá, Brynjar Sig-
tryggsson, Húsavík, Böðvar
Jónsson, Gautlöndum, Helga
Valborg Pétursdóttir, Austurhlíð
og Skarphéðinn Sigurðsson,
Úlfsbæ. Kaupfélagsstjóri er
Hreiðar Karlsson.
Skógræktarfélag Eyfirðinga:
Mikið um dýrðir um helgina
Minningarsjóður
Þorgerðar S. Eiríksdóttur
Umsóknir um styrk úr sjóðnum þurfa að berast Tón-
listarskólanum á Akureyri fyrir 16. maí n.k.
Rétt á styrkveitingu eiga þeir er lokið hafa námi við
Tónlistarskólann á Akureyri og hyggja á, eða eru í
framhaldsnámi í tónlist.
Utvegsmenn
Norðurlandi
Útvegsmannafélag Norðurlands heldur fund
mánudaginn 14. maí n.k. að Hótel KEA kl. 14.00.
Fundarefni:
1. Ný samþykkt lög um stjórnun fiskveiða.
2. Afkomuskýrsla bátaflotans.
3. Önnur mál.
Kristján Ragnarsson formaður L.Í.Ú. og Sveinn
Hjörtur Hjartarson koma á fundinn.
Stjórnin.
JS/LAmLAJDZJR
hefst miðvikud. 9. maí að Hafnar-
stræti 88 (áður Fatalagerinn)
Opið verður frá kl. 13-18.
Glæsilegur sumarfatnaður frá fyrra ári
og vandaður heilsársfatnaður á stór-
lækkuðu verði.
Gríptu tækifærið
Gerðu góð kaup!
Aðalskipula^ Ólafsíjarðar:
Boltinn hjá Olafsfírðingum
Skipulag ríkisins starfrækir
skrifstofu á Akureyri eins og
flestum er kunnugt. í vetur
sem leið yar unnið að aðal-
skipulagi Olafsfjarðar og Dag-
ur hafði samband við Benedikt
Björnsson og spurði hvað væri
að frétta af þessu verkefni.
„Hvað varðar aðalskipulag
Ólafsfjarðar þá er boltinn hjá
Ólafsfirðingum. Öll vinna við
þetta verkefni er frá þó svo að
Íiún hafi dregist vegna veðurfars
og annars. Lokaskýrsla og jafn-
framt uppdráttur er í höndum
Ólafsfirðinga, en þeir eiga eftir
að skila inn athugasemdum. Viss
atriði eru umdeild, smáatriði
verða stór, þegar kjósa á til
bæjarstjórna. Trúlega verður öll
ákvarðanataka geymd fram yfir
kjördag þar til að ný bæjarstjórn
tekur við,“ sagði Björn. ój
Sæplast hf. á Dalvík:
Austursvæðm könnuð í Gautaborg
Dagana 25.-28. apríl var sjáv-
arútvegssýning haldin í Gauta-
borg í Svíþjóð. Þrjú fyrirtæki
tóku þátt í sýningu þessari frá
Islandi, þar á meðal Sæplast
h.f. á Dalvík.
Að sögn Kristjáns Aðalsteins-
sonar, sölustjóra Sæplasts h.f.,
var sýning þessi smá í sniðum
miðað við sýningarnar í Kaup-
mannahöfn og Reykjavík.
„Við fórum eingöngu til að
kanna austursvæðin þ.e. Svíþjóð
og Finnland, en mikið af finnsk-
um sjó- og útgerðarmönnum
sóttu sýninguna," sagði Kristján.
ój
(TRIO)
. skemmtun
18.og19.mai
Helgi Pé
Óli Þórðar
Ágúst Atla
Gunni Þórðar
Magnús Einars
Aðeins þessi
tvö kvöld
Mida- og boröa-
panianir í S* 96-22770