Dagur - 09.05.1990, Page 12
í
Akureyri, miðvikudagur 9. maí 1990
Kodak
Express
Gædaframkollun
★ Tryggðu f ilmunni þinni
fbesta ^PediGmyndir
Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324.
Aðalfundur LA:
„Erum ekki á
heljarþröm“
Á aðalfundi Leikfélags Akur-
eyrar sl. mánudag kom fram
að fjárhagsstaða félagsins er
ekki góð um þessar mundir og
skuldabyrðin þung. Að sögn
Sigurðar Hróarssonar, leikhús-
stjóra, virtust tölur um stöðu
LA koma sumum á óvart en á
hinn bóginn eru menn bjart-
sýnir í kjölfar þess hve Fátækt
fólk fær góða aðsókn. Hitt er
þó ljóst að fjárhagsgrundvöll
félagsins þarf að treysta.
Sigurður sagði að nefnd skipuð
fulltrúum frá Leikfélaginu,
Akureyrarbæ og ríkinu væri nú
að vinna að endurskoðun á þrí-
hliða samningi þessara aðila sem
féll úr gildi um síðustu áramót.
Hann vonaðist til að sú vinna
myndi skila viðunandi árangri.
„Við erum samt ekki á heljar-
þröm. Þetta gengur mjög vel
núna, enda er búið að sýna
Fátækt fólk 14 sinnum og um
helgina verða þrjár sýningar. Þar
af er uppselt á eina og nálægt því
að verða fullt á aðra. Við erum
full bjartsýni, en eftir næsta fund
nefndarinnar mun rekstrargrund-
völlur Leikfélagsins vonandi
verða skýrari,“ sagði Sigurður.
Sunna Borg var endurkjörin
formaður Leikfélags Akureyrar.
Anna G. Torfadóttir var kjörin
varaformaður, en Jón Arnþórs-
son gaf ekki kost á sér. Þráinn
Karlsson var kjörinn ritari.
A aðalfundinum gengu sautján
nýir félagar í Leikfélag Akureyr-
ar, sem er hlutfallslega mikil
aukning þar sem félagsmenn
voru í kringum 70 talsins fyrir
þennan fund. Sigurður sagði
þetta mjög ánægjulegt, en það
nýmæli var tekið upp að þeir sem
gerast félagsmenn í LA fá tvo
frímiða á hvert verkefni hjá
félaginu. SS
A myndinni eru Jón Ingi Guðmundsson mjólkurfræðingur, Örn Vigfússon framleiðslustjóri og Kristín Halldórs-
dóttir lærlingur. Mynd: im
Húsavík:
Baulubros í mjólkursajnlaginu
- 40 tonn af jógúrt framleidd á mánuði
Fyrstu Baulujógúrtinni sem framleidd er hjá Mjólkursamlagi KÞ á Húsavík var pakkað í dósir sl. mánu-
dag. Örn Vigfússon, framleiðslustjóri, sagðist vera mjög ánægður með aðstöðuna fyrir framleiöslulín-
una í húsnæði santlagsins. Áætlað er að framleiðslan nemi um 40 tonnum af jógúrt á mánuði. Mun stór-
um tengivagni frá Aðalgeiri Sigurgeirssyni verða ekið til Reykjavíkur vikulega meö framleiðsluna. Þrír
starfsmenn vinna að framleiðslunni, auk þess sem flutningar á vörunni skapa einnig atvinnu. Að sögn
Hlífars Karlssonar samlagsstjóra vænta kaupfélagsmenn mikils af samvinnunni við Baulu. Hugntyndir
eru um að sölukerfi Baulu sjái um dreifingu á unnum kjötvörum á markað á Reykjavíkursvæðinu, og
ef til vill einnig fiskafurðum í neytendaumbúðum. IM
Þórarinn E. Sveinsson:
Tillaga í ábnálinu
Þórarinn E. Svcinsson flutti í
gær tillögu í Bæjarstjórn
Akureyrar vegna staösetningar
álvers. Tillögunni var vísað til
bæjarráös.
Tillaga Þórarins er á þá leið að
bæjarstjórnin opni umfjöllun um
álver við Eyjafjörð með myndun
þverpólitísks, faglegs hóps, sem
afli sér umboðs sveitarfélaganna
16 við fjörðinn til umræðna og
stöðumats. Nauðsynlegt sé að
gera undirbúningsstarfið faglegra
á þeim skamma tíma sem til
stefnu er í álversmálinu.
Starfshópurinn myndi starfa
með Iðnþróunarfélagi Eyjafjarð-
ar, og ættu að vera sérfræðingar
innan hans á sviði verkfræði, hag-
fræði, lögfræði og landbúnaðar-
mála.
Miklar umrÉeður urðu um til-
löguna. Á fundinum var m.a.
upplýst að fljótlega verður hald-
inn kynningarfundur með íbúum
Arnarneshrepps, og í dag verður
fundað í Héraðsnefnd Eyjafjarð-
ar, sem hefur unnið að málinu í
samvinnu við þrjá stærstu þétt-
býlisstaðina við fjörðinn.
Sigurður J. Sigurðsson, forseti
bæjarstjórnar, fagnaði ályktun-
um frá fundi samtaka sveitarfé-
laga á Norðurlandi, Vestfjörðum
og Austfjörðum með alþingis-
mönnum í sfðasta mánuði. EHB
Fyrstu laxarnir undir hnífmn hjá Miklalaxi:
Parísarbúar hrifnir af laxi úr Fljótum
„Við ætlum að slátra tvisvar
enn í þessum mánuöi en eftir
mánaðamótin vonast ég til að
hægt verði að slátra í hverri
viku, allt árið um kring,“ sagði
Reynir Pálsson, framkvæmda-
stjóri fiskeldisstöövarinnar
Miklalax í Fljótum en í síðustu
viku var fyrsta slátrun á laxi
hjá fyrirtækinu.
Fyrsta sendingin frá Miklalaxi
fór á uppboðsmarkað í París í
Frakklandi og segist Reynir mjög
ánægður með það verð sem
fékkst fyrir fiskinn. Laxinum var
Sigluflörður:
Sjóstangveiðimenn frá
Sviss líta á aðstæður
„Ég var að fá það staðfest að í I hópur
sumar kemur til Siglufjarðar kanna
frá Sviss til þess að
hér aðstæður til sjó-
Húnavatnssýslur:
Miklar vcgabætur í sumar
Vegagerð Ríkisins hefur boðið
út vegagerðarframkvæmdir á
nokkrum vegaköflum í Húna-
vatnssýslum. Vegakaflarnir
eru á Svínvetningabraut,
Vatnsnesi og Skaga. Á Svín-
vetningabraut er boðin út upp-
bygging á veginum frá Norður-
landsvegi að Hnjúkahlíð, 1,6
km, Gert er ráð fyrir að klæðn-
ing verði lögð á þennan kafla
næsta sumar.
Á Vatnsnesi eru vegakaflarnir
þrír. Vegakaflinn um Tjarnará
sem er 560 m. á lengd. Aðkoman
að brúnni o. mjög slæm og verð-
ur hún lagfærð. Nýbygging um
Ósa, austan á Vatsnesi. Þar verð-
ur vegurinn færður á kafla og lag-
færður.
Frá Þórsá að Ósum verður veg-
urinn styrktur og er það 6 km.
kafli.
Vegurinn um Laxá í Nesjum á
Skaga verður lagfærður. Á þeim
kafla verður unnið að ræsagerð
og öðru viðhaldi.
Útboð í vegaframkvæmdir
þessar verða opnuð 21. þessa
mánaðar og framkvæmdum á að
Ijúka í sumar.
Hjá Vegagerð ríkisins eru í
vinnslu kort sem sýnir þær fram-
kvæmdir sem áformaðar eru á
vegum í kjördæminu í sumar.
Kortið birtist í blaðinu þegar það
kemur úr vinnslu. kg'
stangaveiði,“ sagði Björn
Valdimarsson, umsjónarmað-
ur átaksverkefnis í atvinnumál-
um á Siglufirði.
„Ég hef unnið að þessu máli
frá því unt áramót og þetta er í
samráði við veiðiklúbba í Sviss
og Austurríki. Málið er nú komið
á það stig að forstöðumenn þess-
ara klúbba koma hingað í sumar
og gera úttekt á svæðinu. Ef þeim
líst vel á staðinn, Iiggur fyrir að
hann fer inn á dagskrá þessara
erlendu aðila. Þetta gæti orðið
töluverð búbót fyrir svæðið,"
sagði Björn.
Að öllum líkindum koma hinar
erlendu veiðiklær í beinu flugi
Saga-Reisen til Akureyrar og er
von á þeim um mánaðamótin
júlí-ágúst.
Siglufjörður þykir henta vel til
sjóstangaveiði og þar í bænum
eru margir góðir veiðimenn. Á sl.
ári var þar haldið stórt sjóstanga-
veiðimót, sem þóttist takast vel.
óþh
pakkað á Hofsósi, síðan ekið á
bílum til Keflavíkur þaðan sem
flogið var með fiskinn beint til
Parísar. Reynir segir að Frakk-
landsmarkaður sé að því leyti til
hagstæður að ekki þurfi að gera
að fiskinum fyrir markaðinn.
„Mér sýnist að þegar hjólin
verði farin að snúast á fullu þá
slátrum við um 60 tonnum á mán-
uði. í þessari fyrstu slátrun var
um að ræða fisk í stærðarflokk-
unum 1-2 kíló og 2-3 kíló en við
viljum fá hann stærri fyrir slátrun
enda er verulega hærra verð í
stærðarflokknum 3-4 kíló. Við
verðum því nokkuð rólegir fram
yfir mánaðamótin," sagði Reyn-
ir.
Eftirspurnin eftir laxi er mikil á
öllum mörkuðum en Reynir seg-
ist gera ráð fyrir að í framtíðinni
fari um helmingur framleiðslunn-
ar á Frakklandsmarkað og helm-
ingur á Bandaríkjamarkað.
Reynt verði einnig að komast inn
á Japansmarkað enda fæst þar
besta verðið fyrir stærsta fiskinn.
Verð á laxi á erlendum
mörkuðum hefur stigið verulega
á síðustu mánuðum. Reynir segir
að enginn hafi búist við þessari
verðhækkun nú, hennar hafi
menn ekki vænst fyrr en á næsta
ári.
„Mér kemur á óvart hve
snemma þessi verðhækkun kem-
ur en þessar þjóðir sem selja lax
eru að reyna að koma sér saman
um að reyna að halda framboði
og eftirspurn í jafnvægi. Takist
það getur verðið haldist hátt
áfram,“ segir Reynir. JÓH
Grásleppuvertíðin:
Léleg vertíð og færri
sjómenn stunda veiðar
- birgðir að
íslenskir smábátasjómenn gera
út á grásleppu nú þetta vor
sem fyrr, en veiðin hefur verið
léleg.
Að sögn Arnar Pálssonar,
framkvæmdastjóra Landssam-
bands smábátaeigenda, hefur
grásleppuveiði landsmanna vérið
með minna móti. Veiðin hófst
20. mars á svæðinu frá Skagatá
að Hvftingum, en veiði fyrir
Vesturlandi er vart byrjuð enn.
„Já, þetta er lélegt og færri
sjómenn stunda veiðarnar í ár.
mestu seldar
Erfitt er um sölu hrogna og verð-
ið ekki gott. Sjómenn hafa farið
eftir fyrirmælum okkar í Lands-
sambandinu og hefja ekki veiðar
fyrr en sala hrogna er trygg,“
sagði Örn.
Aðspurður um gamlar birgðir
og hvaða veiðisvæði reyndust
best, sagði Örn: „Gamlar birgðir
í landinu eru litlar, þetta er að
mestu farið og selt og veiðin er
hvað skást frá Siglufirði og Rauf-
arhöfn í ár.“ ój