Dagur - 11.05.1990, Page 3

Dagur - 11.05.1990, Page 3
f -i fréftir Föstudagur 11. maí 1990 - DAGUR - 3 mmmm Sportveiði: Dorgveiðifélag íslands stofnað um helgina í húsnæði Sportveiðiblaðsins, Hverfisgötu 76 í Reykjavík. Björn bjóst við að nokkrir dorgveiðimenn frá Noröurlandi leggi leið sína á stofnfundinn en fyrir þá sem áhuga hafi á að láta skrá sig í félagið sé það mögulegt hjá honum í síma 96-27563. JÓH Fjórðungssjúkrahúsið: Yfirlæknir bæklunar- deildar í ársleyfi Halldór Baldursson, yfirlæknir á bæklunardeild Fjóróungs- sjúkrahússins á Akureyri, e.r í ársleyfi. Júlíus Gestsson, starf- andi sérfræðingur á FSA, leys- ir liann af. Að sögn Halldórs Jónssonar, framkvæmdastjóra FSA, fór Halldór Baldursson í ársleyfi í byrjun mársmánaðar. Hann hef- ur fengið hlutastarf við Land- spítalann og einnig opnað lækn- ingastofu í Reykjavík. Slysadeild FSA var undir stjórn Halldórs. EHB Dorgveiðifélag Islands verður stofnað í Reykjavík á morgun. Að sögn Björns Sigurðssonar dorgveiðimanns á Akureyri verða engin inntökuskilyrði í þetta félag önnur en þau að hafa áhuga á dorgveiði. Áhugi á dorgveiði hefur verið vaxandi í vetur, a.m.k. sýnir það þátttaka í þeim almennings- keppnum sem haldnar hafa verið. Björn segir að ætlunin sé að Dorgveiðiféíag íslends sendi hér eftir mann á heimsmeistara- keppni í dorgveiði og jafnframt reyni þessi landssamtök að end- urvekja landskeppni í dorgveiði hér á landi. Einnig að stuðla að því að dorgveiði verði leyfð gegn vægu gjaldi víðs vegar um land. Stofnfundurinn verður haldinn Umhverfismáladeild Akureyrarbæjar: Málið snýst um gróður, ræktun og gott sumar „Gróður, ræktun og gott sumar, um það snýst allt hjá okkur,“ sagði Eiríkur Bóas- son hjá Umhverfismáladeild Akureyrarbæjar. . Mikil ásókn er að garðlönd- urn í bæjarlandi Akureyrar og 378 garðholur eru til útleigu þetta árið. Gjald fyrir 100 fer- metra lands er kr.1200,- og hefur hækkað milli ára um kr. 200,-. Tvö hundruð Akureyringar hafa sótt um garðholu og ætla að pota útsæðinu niður í von um góða uppskeru í haust. Hjá Umhverfismáladeild vinna 30 manns að föstum störfum í sumar, en auk þeirra 25 flokksstjórar við skólagarð- ana tvo, þar sem 200 börn verða að ræktunarstörfum. í vinnuskólanum verða 400-450 unglingar og með þeim vinna hátt í 20 flokksstjórar. „Þetta er stór hópur og von- andi verður sumarið sólríkt og gróðursælt og þá verða allir ánægðir," sagði Eiríkur Bóas- son að lokum. ój Sigluprður: „Ég er eldd bjartsýnn“ - segir ísak Ólafsson, bæjarstjóri Af og til fréttum við af slæmu atvinnuástandi á Siglufirði, þessum fornfræga bæ síldar- áranna. Er Dagur hafði samband við Hafþór Rósmundsson hjá Verkalýðsfélaginu Vöku á Siglufirði og spurði hann um atvinnuntál staðarins, sagði Hafþór. „Ástand atvinnumála verka- fólks á Siglufirði er ekki meira en svo þokkalegt. Á atvinnu- leysisskrá fyrir þremur vikum voru 52. Eitthvað hefur þeim fækkað nú, því trillukarlar og vörubifreiðastjórar eru óðum að komast til vinnu. Ófærð vegna snjóa og vond veður hafa hamlað þessum mönnum frá að stunda sína vinnu allt fram á þennan dag.“ Um atvinnuhorfur skóla- fólks, þá þegar skólar hætta, sagði Hafþór: „Um vinnu fyrir skólafólkið vitum við lítið enn. Hún verður örugglega lítil. Ég hef heyrt að frystihúsið verði starfrækt i sumar. Fað er breyt- ing frá því sem verið hefur og skapar örugglega vinnu fyrir skólafólkiö." Er samband var haft við bæj- arstjórann ísak Ólafsson og hann spurður um verklcgar framkvæmdir á vegum bæjarfé- lagsins, sagöi ísak: „Fram- kvæmdir verða litlar. Viö vinn- um við nýja kirkjugarðinn og við gangstéttagerö." Hvað um sumarvinnu skóla- fólks? „Ég cr ekki bjartsýnn," sagði ísak bæjarstjóri að lokum. ój Nám í uppeldisgreinum fyrir list- og verkmenntakennara: Hefst á Akureyri í janúar ’91 Námi í uppeldisgreinum fyrir list- og verkmenntakennara á framhaidsskölastigi veröur komið á í janúar 1991 hér á Akureyri. Þetta er réttinda- nám fyrir leiðbeinendur, en svo eru þeir kallaöir er stunda kennslu en hafa ekki fullgild réttindi kennara. Að sögn Trausta Þorsteins- sonar, fræðslustjóra Norðurlands eystra, er þetta nám mikið hags- munamál þeirra mörgu hand- verks- og iðnaðarmanna sem að kennslu vinna á framhaldsskóla- stigi. „Nú þegar hafa 15-16 leiðbein- endur gert vart við sig vegna áhuga til frekara náms og kennsl- an fer fram við Verkmenntaskól- ann á Akureyri með fjarkennslu- Að sögu fræðslustjóra fer kennslan fram í VMA sniði. Nám þetta verður á allan hátt hið sama og Kennaraháskóli íslanda býður uppá á haustdög- um 1990 í Reykjavík," sagöi Trausti Þorsteinsson, fræðslu- stjóri. ój Hegningarhúsið við Skólavörðustíg: Athugasemdum heilbrigðisyfirvalda fullnægt I þeirri miklu umræðu, sem orðið hefur um fangelsismál og aðbúnað fanga, hefur komið fram að Hegningarhúsið við Skólavörðustíg er ekki nothæft til vistunar fanga. Stjórnvöld settu skilyrði um lagfæringar á Hegningarhúsinu, þannig að hægt væri að nota húsið, en jafnframt gáfu þeir út viljayfir- lýsingu um að loka beri húsinu eins fljótt hægt væri. í samtali Dags við forstöðu- mann húsins, Guðmund Gísla- son, kom fram, að öllum athuga- semdum heilbrigðisyfirvalda hefði verið fullnægt hvað lagfær- ingar snerti og búið væri að hanna loftræstikerfi fyrir húsið og enn væri rætt um að leggja Hegn- ingarhúsið niður. „Málið er hjá réttum yfirvöld- um til umfjöllunar,“ sagði Guð- mundur Gíslason, forstöðumað- ur Hegningarhússins við Skóla- vörðustíg. ój Óli P. Guðbjartsson, dómsmálaráðherra: Tjaldað til einnar nætur Eins og fram kemur í ummæl- um Guðmundar Gíslasonar, forstöðumanns Hegningar- húsins við Skólavörðustíg, hafa lagfæringar átt sér stað í Ilegningarhúsinu, cn hvað hefur ráðherra dúmsmála Óli Þ. Guðbjartsson um máliö að segja? H Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg hafa farið fram lagfæringar eftir úttekt þá sem heilbrigðisyfirvöld gerðu á hús- inu, en mér er ljóst samt sem áður, að hér er aðeins tjaldað til eitinar nætur. Áhugi ntinn og margra embættismanna ríkisins er að koma nýju fangelsi inn á fjárlög. Þetta er stórmál. Ósk mín er sú að þetta takist í embættistíð minni sem ráð- hcrra. Fangelsismál verður að skoða þjóðarinnar í heild og breyta og lagfæra. Nokkuð hef- ur áunnist, meðal annars fjár- veiting að upphæð tólf milljónir króna til gæsluvarðhaldsfanga. Mcð opinni umræðu um fangelsismál hefur skapast mik- ill velvilji ráðamanna og von mín og vissa er, að við náunt settu takinarki í fangelsismálum þjóðarinnar,” sagði Óli Þ. Guð- bjartsson, dómsmálaráðherra. ój Möldursf. BÍIASAIA við Hvannavellí. Símar 24119 og 24170. Toyota Landcruser II árg. '87, ekinn 60 þús. Verð 1.400.000.- MMC Lancer 4x4 árg. '87, ekinn 44 þús. Verð 850.000.- | !wý]hHK!3L' ’ Daihatsu Rocky árg. '87, ekinn 75 þús. Verð 1.250.000.- MMC Lancer GLX árg. '86, ekinn 35 þús. Verð 570.000,- MMC Pajero bensín árg. '85, ekinn 58 þús. Verð 960.000.- MMC Galant 2000 GLS árg. '87, ekinn 35 þús. Verð 820.000,- MMC Colt 1500 GLX A/T, ekinn 43 þús. Verð 580.000,- ★ Greiðslukjör við allra hæfi rÍIJSAUWH Stföldursf. BÍXASAIA við Hvannavelli. Símar 24119 og 24170.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.