Dagur - 11.05.1990, Side 4
4 - DAGUR - Föstudagur 11. maí 1990
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, S(MI: 24222
ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 90 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON
BLAÐAMENN:
JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir),
KÁRI GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON,
ÚSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON,
VILBORG GUNNARSDÓTTIR. LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Erfiðleikar Sambandsins
og skipulagsbreytingar
Stjórn Sambands íslenskra samvinnufélaga kem-
ur saman til fundar í dag til að fjalla um afkomu
Sambandsins á liðnu ári. Þrátt fyrir veigamiklar
aðhaldsaðgerðir á síðasta ári er ljóst að Sam-
bandið býr enn við gífurlegan taprekstur, en tap-
ið á síðasta ári er af stærðargráðunni 650-700
milljónir króna. Auk þess þarf Sambandið að af-
skrifa meira af útistandandi skuldum en ráð var
fyrir gert og þá hefur það einnig þurft að afskrifa
hlutafé í nokkrum fyrirtækjum vegna gjaldþrota
þeirra eða viðvarandi tapreksturs. Það gæti því
látið nærri að Samband íslenskra samvinnufé-
laga hafi tapað um það bil einum milljarði króna
á síðasta ári. Árið 1988 var einnig mjög erfitt ár
fyrir Samband íslenskra samvinnufélaga. Það ár
nam tapreksturinn 1156 milljónum króna og eig-
ið fé Sambandsins rýrnaði um rúman milljarð, en
hefði þurft að hækka um einn og hálfan til þess
að halda í við verðlagsþróunina það ár. Á sama
tíma, þ.e. á árinu 1988, töpuðu kaupfélögin í
landinu rúmum milljarði króna en þau hafa
smám saman verið að rétta við síðan og sýna
flest umtalsverðan rekstrarbata á síðasta ári.
Samband íslenskra samvinnufélaga er jafnan
talið stærst íslenskra fyrirtækja, þótt það sé í eðli
sínu ólíkt flestum öðrum fyrirtækjum landsins
vegna samvinnurekstrarformsins. En þótt Sam-
bandið sé öflugt þolir það ekki þennan gífurlega
taprekstur, hvað þá þegar sagan endurtekur sig
ár eftir ár. Ekkert fyrirtæki þolir slíkt til lang-
frama. Sambandinu blæðir og yfirstjórn þess hef-
ur ekki tekist að finna ráð til að stöðva blæðing-
una, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir á síðustu árum.
Ef fram heldur sem horfir dreguiLjafnt og þétt úr
mætti samvinnuhreyfingarinnar til að taka virk-
an þátt í framfarasókn þjóðarinnar. Smám saman
dregur úr mætti þessarar mikilvirku fjöldahreyf-
ingar til að stuðla að atvinnulegri og félagslegri
uppbyggingu á öllum sviðum þjóðlífsins, svo
sem hún hefur gert um ríflega hundrað ára skeið
og allt fram á þennan dag.
Rekstrarerfiðleikar Sambandsins eru komnir á
það alvarlegt stig að samvinnumönnum verður
að takast að snúa taflinu við á næstu mánuðum,
eigi ekki illa að fara. Þeir verða að grípa til mjög
róttækra aðgerða til að binda enda á viðvarandi
taprekstur. Þær aðgerðir hljóta að felast í breyttu
rekstrarformi að einhverju leyti, þar sem ýmsar
deildir Sambandsins yrðu gerðar að.sjálfstæðum
hlutafélögum. Samvinnumenn verða að horfast í
augu við það að skipulag Sambandsins og fyrir-
tækja þess er ekki í fullkomnum takti við sam-
tímann. Þeir verða að horfast í augu við það að
kosti hlutafélagaformsins þarf og verður að nýta
samvinnuhreyfingunni til hagsbóta. Þó þarf að
fara fram með fyllstu gát. Skipulagsbreytingarn-
ar mega ekki verða til þess að raska undirstöð-
um hreyfingarinnar eða eðli hennar sem sam-
vinnuhreyfingar. BB.
hvað er að gerast
Tónlistarskólinn á Akureyri:
Þrennir nemendatónleikar
Nú um helgina verða þrennir
nemendatónleikar á vegurn Tón-
listarskólans á Akureyri.
Hinir fyrstu verða kl. 10.00 á
sunnudagsmorgun í Lóni við
Hrísalund. í>ar koma fram
nemendur á píanó og fiðlu sem
lært hafa eftir svokallaðri „Suz-
uki“ aðferð. Jafnframt eru þessir
tónleikar liður í fjáröflun for-
eldrafélags Suzukideilar Tónlist-
arskólans og verður kaffi og með-
læti innifalið í aðgangseyri sem er
kr. 300.
Sama dag verða tvennir tón-
leikar í íþróttaskemmunni, tón-
leikar yngri nemenda kl. 14.00 og
eldri nemenda kl. 17.00. Þar
koma fram einleikarar á píanó,
fiðlu, selló, gítar og ýmis blást-
urshljóðfæri og flytja fjölbreytta
og vandaða efnisskrá.
Seinna í vikunni er svo boðið
upp á áframhaldandi tónleika-
veislu í Skemmunni. Þriðjudag-
inn 15. maí eru vortónleikar slag-
verksdeildar Tónlistarskólans,
sem er í örum vexti, miðvikudag-
inn 16. maí eru tónleikar A-, B-,
C- og D-blásarasveita, fimmtu-
daginn 17. maí eru tónleikar
strengjasveita I og II og Sinfóníu-
hljómsveitar Tónlistarskólans og
að lokum eru tónleikar Big-
bands tónlistarskólans föstudag-
inn 18. maí. Allir tónleikarnir
hefjast kl. 20.30.
Tónlistarskólanum verður slit-
ið laugardaginn 19. maí í Akur-
eyrarkirkju kl. 17.00.
Tónlistarskóli Eyjafjarðar:
Skólaslit á Grenivík á morgun
nemandanum rúm 50 ár. I skólann, auk Atla Guðlaugsson-
í vetur störfuðu 9 kennarar við ar, skólastjóra.
Húsavík:
Silla sýnir í
Safiiahúsinu
Tónlistarskóli Eyjafjarðar er nú
að ljúka öðru starfsári sínu. Lýk-
ur því með hefðbundnu tónleika-
haldi og endapunkturinn er
skólaslit með tónlistarívafi á
Grenivík á morgun, laugardag-
inn 12. maí kl. 17.
í vetur hafa 235 nemendur
stundað nám við Tónlistarskóla
Eyjafjarðar, en það er hátt í 10%
íbúa á starfssvæði hans, sem
starfar í 10 sveitarfélögum við
Eyjafjörð.
Hljóðfæraval er mjög fjöl-
breytt og eru nemendur skólans á
ýmsum stigum í hljóðfæraleik og
söng, allt upp í 7. stig. Þá er
aldursmunur á yngsta og elsta
Stuðningshópur fyrir aðstand-
endur aldraðra heldur síðasta
fund vetrarins í dag, föstudag,
klukkan 17.00. Fundurinn verður
haldinn á fjórðu hæð heilsugæslú-
Páll Einarsson, jarðeðlisfræðing-
ur við Raunvísindastofnun Há-
skóla íslands, flytur fyrirlestur
laugardaginn 12. maí klukkan
14.00 í húsnæði Háskólans á
Bílasýning verður haldin á Akur-
eyri hjá Skálafelli um helgina.
Skálafell er með söluumboð fyrir
Jöfur hf. Sýndur verður Skoda
Favorit, framhjóladrifinn 5
manna fjölskyldubíll, með fallegt
Sigurlaug Jóhannesdóttir, Silla,
opnar sýningu í Safnahúsinu á
Húsavík í dag kl. 18-21. Á sýn-
ingunni eru 10 skúlptúrar, unnir
stöðvarinnar. Á fundinn kemur
Magnús Ólafsson, sjúkraþjálfari,
og ræðir um hreyfingu fyrir aldr-
aða og hreyfiörvun. Allir sem
áhuga hafa eru velkomnir.
Akureyri við Þingvallastræti,
stofu 24. Fyrirlesturinn nefnist
„Eldgos og eldgosaspár." Allir
velkomnir meðan húsrúm leyfir.
útlit og frábæra aksturseigin-
leika. Favorit er sparneytinn og á
góðu verði
Sýningin er opin á laugardag
og sunnudag frá kl. 13.00 til
17.00.
úr grjóti og hrosshári, hrosshári
og plexigleri. Frá 12.-14. maí
verður sýningin opin kl. 14-20.
Silla starfar sem myndmennta-
kennari við Grunnskólann á
Dalvík. Hún stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla
íslands og lauk þaðan vefnaðar-
kennaraprófi 1967. Einnig nam
hún við Instituto Allende Mexico
1972.
Silla hefur haldið einkasýning-
ar í Reykjavík , á ísafirði, í Dan-
mörku og Finnlandi og auk þess
tekið þátt í fjölda samsýninga.
Hún hefur hlotið viðurkenningar
og verk eftir hana eru í opinberri
eigu hjá Listasafni íslands, Húsa-
víkurbæ og Sambandi íslenskra
samvinnufélaga. IM
Akureyri:
StoMmdur
kvikmynda-
áhugamanna
Formlegur stofnfundur Félags
áhugamanna á Akureyri um
kvikmyndir og kvikmyndagerð
verður haldinn á morgun, laugar-
daginn 12. maí kl. 14 í Möðru-
vallakjallara, raungreinahúsi
Menntaskólans á Akureyri.
Allir kvikmyndaáhugamenn
eru hvattir til að mæta.
Skákfélag Akureyrar:
Tíu mínútna
mót
Skákfélag Akureyrar heldur 10
mínútna mót í kvöld, föstudags-
kvöld, og hefst það kl. 20.00.
Teflt er í félagsheimilinu við
Þingvallastræti. Á laugardaginn
kl. 13.30 verða barna- og ungl-
ingaæfingar í félagsheimilinu.
Æfingunum fer nú fækkandi, en
þeim lýkur síðar í þessum mán-
uði. Skákunnendur eru hvattir til
að taka þátt í 10 mínútna mótinu
og yngri kynslóðin er velkomin á
skákæfingarnar á laugardag.
Akureyri:
Stuðningshópur aðstand-
enda aldraðra
Háskólinn á Akureyri:
Fyrirlestur um eldgos
Skálafell:
Sýnir Skoda
Favorit