Dagur


Dagur - 11.05.1990, Qupperneq 5

Dagur - 11.05.1990, Qupperneq 5
\ Föstudagur 11. maí 1990 - DAGUR - 5 VINNUBUXUR HERRADEILD Fiimn námsmenn hljóta Námu- styrk Landsbanka íslands Fulltrúar Landsbanka íslands og dómnefnd ásamt styrkþegum eftir að Námu-styrkirnir höfðu verið afhentir. Frá vinstri: Kristrún Hcimisdóttir, Sólveig Asa Arnadóttir, Gylfi Þ. Gíslason, Auður Alexandersdóttir, Valur Arnþórs- 'son, Gísli Gylfason, Svala Sigurðardóttir, Sverrir Hermannsson, Hlín Pétursdóttir, Eyjólfur K. Sigurjónsson og Kristín Rafnar. Fimm námsmenn hlutu föstu- daginn 4. maí, styrki frá Landsbanka íslands að upp- hæð kr. 100.000 hver og voru þeir afhentir við hátíðlega athöfn í Háskólabíói. Styrkina hlutu Svala Sigurðardóttir og Sólveig Asa Arnadóttir sem stunda báðar nám við Háskóla íslands en Sólveig Ása útskrif- aðist frá M.A. vorið 1987, Alexander Kr. Smárason sem stundar doktorsnám í læknis- fræði við háskólunn í Oxford, Gísli Gylfasor vélskólanemi og Hlín P- mrsdóttir sem stundað hefrt nám í Tónlistar- Norræn við- skiptasíma- skrá 1990 komin út Ut er komin Norræn viðskipta- símaskrá 1990, NordEx. Þetta er þriðja árið sem skráin er gefin út, en hún er prentuð í fimm mismunandi útgáfum, þ.e. á máli hvers lands fyrir sig, íslands, Danmerkur, Noregs, Finnlands og Svíþjóð- ar og er efnið hið sama í þeim öllum. NordEx er í sama broti og íslenska símaskráin og er í meg- inatriðum skipt í tvennt, starfs- greinaskrá og nafanskrá, þ.e. gular síður og hvítar. Fremst í skránni eru upplýsing- ar um hvernig hringja á til Norðurlanda og hvernig sam- skiptum milli Iandanna er háttað með telex- og telefaxsendingum, gagnaflutningi og símafundum. NordEx er ætlað að greiða fyr- ir viðskiptasamböndum milli Norðurlanda og ætti að koma að góðum notum fyrir stofnanir, fyrirtæki og einstaklinga sem starfa við inn- og útflutning og ýmiss konar þjónustu. NordEx er dreift ókeypis til þeirra sem eru í skránni, til stór- kaupmanna og iðnrekenda, utan- ríkisþjónustunnar og alira sem þess óska á meðan upplag endist. I henni er að finna upplýsingar um rúmlega þrettán þúsund norræn fyrirtæki og kemur hún út í 70.000 eintökum. íslenska útgáfan er gefin út í um 2.500 eintökum. NordEx er sameiginlegt verk- efni símastjórna Norðurlanda undir umsjón vinnunefndar sem skipuð er einum fulltrúa frá hverju landi. Fulltrúi íslands í nefndinni er Ágúst Geirsson, símstjóri í Reykjavík, og er hann jafnframt ritstjóri íslensku útgáf- unnar. ára og eldri. Ýmsir þjónustuþætt- ir bankans, svo sem einkareikn- ingur, Visa-kort, námslokalán, Kjörbók og fleira eru settir sam- an í pakka sem er sérstaklega sniðinn að þörfum námsmanna. Má þar nefna að námsmenn geta fengið sveigjanlegri einkareikn- ingslán, stofnfjárhæð tékkareikn- irtgs er lægri en fyrir hinn al- menna viðskiptavin, bankinn annast dreifingu upplýsinga og móttöku gagna fyrir Lánasjóð íslenskra námsmanna og ráðgjafi í Austurbæjarútibúi bankans sinnir sérstaklega námsmönnum. Meðal nýjunga í Námunni er að nú er mögulegt að fá námslán greidd inn á innlendan gjaldeyris- reikning og námsmenn erlendis geta síðan látið skuldfæra hann fyrir útgjöldum. Með því sparast leyfisgjöld og millifærsla gjald- eyris verður hraðari og þægilegri en ef ávísanir eru sendar milli landa. Við athöfn í Háskólabíói þar sem Námu-styrkirnir voru afhentir kynnti Sverrir Her- mannsson bankastjóri nýjungar Námunnar, slagorða- og hug- myndasamkeppni sem hleypt hefur verið af stokkunum og sér- staka „Námuviku" sem var hald- in dagana 7. til 11. maí og^ fer fram í Vesturbæjarútibúi Lands- bankans. Þar geta nemendur kynnt sér alla þætti Námunnar. Gylfi Þ. Gíslason afhenti síðan styrkina. í lokin söng Hlín Pét- ursdóttir styrkþegi við undirleik Krystynu Cortes. HITASTILLT MORATERM blöndunar- tæki með sjálfvirkri hita- stillingu og öryggis- hnapp, sem takmarkar hitastig við 38 C. MORA sænsk gæða- vara fyrir íslenskar aðstæður. meiri ánægja WUi DRAUPNISGÖTU 2 SÍMI (96)22360 Verslið við fagmann. AKUREYRI skólanum í Reykjavík og er nú á leið til framhaldsnáms í Þýskalandi. Styrkveitingin er liður í þeirri starfsemi Landsbankans að styðja við námsmenn og ýmsa menntastarfsemi. Upphaflega var ráðgert að veita tvo styrki en alls bárust á annað hundrað umsóknir og var því ákveðið að fjölga þeim í fimm. Allir náms- menn í framhaldsskólum og framhaldsnámi erlendis sent eru í „Námunni", námsmannaþjón- ustu Landsbankans, geta sótt um þessa styrki. Dómnefnd skipa Sverrir Her- mannsson bankastjóri, Eyjólf- ur K. Sigurjónsson formaður bankaráðs Landsbankans, Krist- ín Rafnar starfsmaður á mark- aðssviði, dr. Gylfi Þ. Gíslason fyrrverandi ráðherra og Kristrún Heimisdóttir formaður Félags framhaldsskólanema. Ingólfur Guðmundsson er ritari dóm- nefndar. Sverrir Hermannsson segir að stefnt sé að því að bank- inn veiti styrkina jöfnum höndum til nemenda í háskóla - sem og tækni- og listanámi. Næsta styrk- veiting verður að ári og sagðist Sverrir vilja hvetja nemendur til að fylgjast með tilkynningu um styrkveitingu og sækja um því allt framhaldsskólanám væri styrk- hæft. Sem fyrr segir er „Náman“ sér- stök þjónusta við námsmenn 18 r---------------------------\ HÁMARKSGREDSUIR vegna sérfræðilæknishjálpar Frá 1. maí 1990 til ársloka skulu hámarksgreiðslur sjúkratryggðra, annarra en elli- og örorkulífeyrisþega, vegna sérfræðilæknishjálpar, röntgengreininga og rannsókna, miðast við kr. 8.000,00. Gegn framvísum kvittana fyrir greiðslum þessum hjá skrifstofu Tryggingastofnunar ríkisins, Tryggvagötu 28, Reykjavík, fá sjúkratryggðir skírteini, sem undanþiggja þá frekari greiðslum til áramóta. Kvittanirnar skulu auk nafns útgefanda bera með sér tegund þjónustu, fjárhæð, greiðsludag, nafn og kenni- tölu hins sjúkratryggða. Tryggingastofnun ríkisins. Lyngholt: Til sölu 4ra herb. efri hæö í tvíbýlishúsi. íbúðin er um 100 fm. Laus eftir samkomulagi. Fasteignasalan —■ Brekkugötu 4 • Sími 21744 -\F Gunnar Solnes hrl . Jon Kr Solnes hrl og Arni Palsson hdl Solust. Sævar Jonatansson

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.