Dagur - 11.05.1990, Blaðsíða 7

Dagur - 11.05.1990, Blaðsíða 7
Föstudagur 11. maí 1990 - DAGUR - 7 Á að bjarga Búðar- gili og Grófargili? Af einhverjum ástæðum þykir mannskepnunni það eftirsóknar- vert að halda í arfleifð sína, að minnsta kosti einhverja hluta hennar. Við Akureyringar erum engir eftirbátar annarra í þessum efnum. Stoltir leiðum við útlend- inga og aðra gesti inn Fjöruna, sýnum þeim gömlu húsin, fylgj- um þeim um hýbýli Nonna og inn í Minjasafn, bendum upp í brekkuna og segjum frá kartöflu- áhuga forfeðra okkar. Af tölu- verðri alvöru, sem jaðrar við heilbrigt mont, hömpum við minningu Matthíasar Jochums- sonar og Davíðs Stefánssonar. Enginn getur borið okkur á brýn áhugaleysi um fortíðina - en samt erum við einkennilega kærulaus þegar kemur að varð- veislu gamalla og gróinna örnefna í bænum. Öll höfum við tekið eftir því að Akureyri er sannkallaður giljabær. Upp af Gróðrarstöðinni leynist Nausta- gil falið undir laufkrónum mikilla trjáa. Fyrir ofan Minjasafnið oíckar, sunnan Nonnahúss, er Skammagil og lætur lítið yfir sér. Norðar er Búðargil (ekki Búða- gil), sem margir kalla Lækjargil. Niður Búðargilið rann Búðarlæk- urinn og myndaði með framburði sínum Akureyri. Töluvert norð- ar, fyrir utan Bakkahöllina, stendur Flvammur sem í mínu ungdæmi var kallaður Sýsló. Hús þetta var byggt laust fyrir alda- mótin síðustu af Páli Briem sýslu- manni. Nú á efri hluta 20. aldar hafa skátarnir hreiðrað þarna um sig. Hvamms-nafnið er frá þeim komið. Gilið upp af, sem er hvorki lítið né ómerkilegt, hef ég aldrei heyrt kallað neinu sérstöku nafni í daglegu tali manna, nema ef vera skyldi Sýslumannsgil. Steindór Steindórsson, sem er allra manna fróðastur um örnefni í Akureyrarlandi, nefnir gilið Djúpulaut. Forvitnilegt væri að Jón Hjaltason. vita hvort gamlir Akureyringar nota þetta heiti eða muna eftir að það hafi verið notað. Djúpalaut er hljómfagurt nafn og svo sann- arlega ástæða til að halda því á lofti. Nokkru utar, fyrir norðan Menntaskólaveginn og ofan Sjónarhæð, er Barðsgil. Það giljanna á Akureyri, sem lætur mest yfir sér í dag, er vafa- laust Grófargil uppaf Torfunefi, fyrir norðan kirkjuna. Og það verður að segjast eins og er að við Akureyringar höfum átt í . mesta basli við að nefna það réttu nafni. Einu sinni var það kallað Laugaskarð og hefur líklega átt að skírskota til sundlaugarinnar. Síðar, þegar KEA byrjaði að skyggja á gruggugan sundlaug- arpyttinn, fóru menn að tala urn Kaupfélagsgil. í dag fæ ég ekki betur séð en að Kaupvangsgil (dregið af Kaupvangsstræti) ætli endanlega að drepa Grófargils- nafnið. Nyrst giljanna er svokallað Skátagil sem gengur niður í mibæinn sunnan við útibú ís- landsbanka (þar sem Útvegs- bankinn var áður) og skrifstofur sýslumanns. Mér er sagt að ástæða nafngiftarinnar sé sú að skátarnir, undir forystu Jóns Norðfjörð, reyndu sumarið 1937 að breyta gilinu í fallegan gróður- reit. Með skóflur að vopni réðust þeir í að útrýma þúfum og hlaða stalla. En hugmyndin fékk að sögn lítinn hljómgrunn meðal íbúanna í kring og féll því um koll. Gaman þætti mér að vita hvað bæjarbúar kölluðu þetta gil fyrir 1937. Ný sýnist mér að við Akureyr- ingar verðum að gera það upp við okkur hvort við viljum halda í tvö merkustu giljanöfnin, Búð- argil og Grófargil, eða láta þau fyrir önnur nýrri. .Sjálfur er ég ekki í nokkrum vafa um að það væri stór missir ef Búðargil og Grófargil breyttust í Kaup- vangsgil og Lækjargil. Gömlu örnefnin eru hluti af sögu bæjar- ins rétt eins og húsin í Fjörunni. En hvað ér til ráða? Um það hef ég brotið heilann í tíma og ótíma en án árangurs. Svo var það hér um daginn að Lárus á bókasafn- inu hjó áreynslulítið á þennan Gordíonshnút þegar hann sagði: „Skírum göturnar upp og látum Lækjargötu heita Búðargil og Kaupvangsstræti Grófargil." Petta er einföld og snjöll lausn sem ég held að sé alls ekki of seint að hrinda í framkvæmd. Ég hlýt að skora á bæjaryfirvöld að taka þetta til alvarlegrar íhugun- ar og minni aftur á að hér er um að ræða sögulega arfleifð sem við erum í þann veginn að umbreyta í steingerving sem aðeins fáeinir sérvitringar munu halda upp á í framtíðinni. jón Hjaltason. Höfundur er sagnfræöingur og vinnur aö ritun á sögu Akureyrar. Framsókn er framtíðin Senn líður að sveitarstjórnar- kosningum og er því ekki óeðli- legt að kjósendur fari að hugsa um hvað frambjóðendur hafa helst fram að færa bænum okkar til framdráttar. Margt hefur verið get en alltaf er þó ýmislegt sem má til betri vegar horfa. Fyrst er að nefna atvinnumál- in, þau mál sem varða alla er hér vilja búa. Við þurfum að skapa hér fleiri atvinnutækifæri. Þar vil ég leggja áherslu á aukna hlut- deild okkar í sjávarafla og upp- byggingu iðnaðar, bæði sem lýtur að úrvinnslu þess hráefnis sem við höfum, þar á ég við sjávarút- vegsvara og landbúnaðarvara sem hafa verið undirstaða at- vinnulífs í bænum. Eins þurfum við að vera vakandi fyrir hverjum þeim nýjuin hugmyndum sem fram kunna að koma um stofnun fyrirtækja sem skapa atvinnu, og vera tilbúin að búa þeim gott umhverfi og alla þá bestu þjón- ustu svo þau megi dafna. Við eigum að nota fram- kvæmdalánasjóð bæjarins til að aðstoða við jrær hugmyndir sem sýnt er fram á að eigi framtíð fyr- ir sér, t.d. með lánum, hlutafjár- kaupum eða lánsábyrgðum. Athuga þarf hvort ekki megi gera sjóðinn öflugri en hann er nú. Atvinna af þjónustu við ferða- menn hefur farið mjög vaxandi hér á landi undanfarin ár og þurf- um við að vera vakandi fyrir því að fá sem mest af þeirri vinnu, ekki síst þar sem margar vinsæl- ustu náttúruperlur landsins eru í nágrenni Húsavíkur. Umhverfið næst okkur þurfum við að hafa hreint og aðlaðandi fyrir ferðafólk og aðra. Við þurfum að ýta vel á stjórn- völd um gerð millilandaflugvallar i Aðaldal, því ef sú framkvæmd yrði þar rnyndi það skapa mikla atvinnu og greiða fyrir útflutningi á ferskum matvælum á erlenda markaði. Nú er unnið að framkvæmdum við Norðurgarðinn en þar með er framkvæmdum við Húsavíkur- höfn ekki lokið, því áfram þarf að vinna að úrbótum við höfnina og á hafnarsvæðinu, þar þarf meðal annars að finna lóð fyrir byggingu bátaskýlis fyrir björg- unarsveitarbátana og þá starf- semi sem þeim er tengd. Því það hlýtur að vera öryggismál sjó- rnanna, og kappsmál okkar allra að þeir séu í góðu lagi og ávallt til taks ef á þarf að halda. í skólamálum er verið að semja við ríkið um viðbyggingu við barnaskólann. Það þarf að fylgja þeim málum vel eftir svo staðið verði 'við þær skuldbind- ingar sem gerðar hafa verið. Halda þarf áfram að efla fram- haldsskólann og kemur jafnvel til greina að fjölga brautum á verk- námssviði í samvinnu við þau iðnfyrirtæki sem fyrir eru í bænum. Varðandi íþróttamál tel ég að við stöndum nokkuð vel að vígi með nýja íþróttahúsið og nokkuð góða velli sem samt þarf ávallt að sjá svo um að alltaf sé eðlilegt við- hald á þes_sum mannvirkjum sem búið er að byggja upp. Helsta verkefni á þessu sviði tel ég vera að bæta skíðamannvirki í fjall- inu, því þá aðstöðu nýta sér mjög margir á veturna. í æskulýðsmálum er brýnast að finna gott húsnæði fyrir unga fólkið, þar sem það getur komið saman og eytt frístundum sínum í góðu og heilbrigðu umhverfi. í þessari grein hef ég minnst á nokkur mál sem næsta bæjar- stjórn þarf að takast á við, þó mörgu sé sleppt, einnig koma ávallt upp ný mál sem leysa þarf á hverjum tíma. Framsóknarflokkurinn býður fram við þessar kosningar lista sem er bæði skipaður mönnum með mikla og góða reynslu í bæjarstjórnarmálum og einnig ungu fólki sern er fullt áhuga til að takast á við hver þau málefni sem upp kunna að koma. Þess vegna er B-listinn góður kostur fyrir alla jafnt unga sem aldna. X-B. Sveinbjörn Lund. Greinarhöfundiir skipar þriðja sæti Iram- huöslista Framsóknarflokksins við bæjar- stjórnarkosningarnar á Húsavík. spurning vikunnar Kemst þú í sérstaka vorstemmningu? Sigfús Hansen: Gera það ekki allir? Já, maður verður léttari í lund þegar vorið er komið. Manni finnst léttast yfir þessu öllu þegar sauðburð- urinn byrjar og fuglarnir fara að koma. Steinunn Sigurðurdóttir: Já, maður gerir það náttúrlega. Maður verður kátari þegar veðr- ið batnar og byrjar að taka til hendinni í garðinum. Jóhanna Guðmann: í vorstemmningu? Já, það geri ég. Maður verður á allan hátt léttari, vinnur jafnvel meira og vakir meira. Dagurinn verður lengri á þessum árstíma. Guðmundur Óskarsson: Ég veit það ekki. Maður er í prófum sem eru að verða búin þannig að maður verður léttari í skapi að því loknu. Vorið er eig- inlega ekki komið fyrr en maður er laus úr skólanum. Kristín Steindórsdóttir: Já, ég myndi halda það að maður komist í sérstaka stemmningu þegar snjóa tekur. Mér finnst ég vaka meira og vinna meira, verða á allan hátt léttari þegar þessi tími kemur.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.