Dagur - 11.05.1990, Side 9

Dagur - 11.05.1990, Side 9
Föstudagur 11. maí 1990 - DAGUR - 9 - segir Hallgrímur Indriðason, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga „Á svæði Skógræktarfélags Eyfirðinga er að mínu mati hvergi svo rýrt land að ekki sé hægt að bæta umhverfið með skógrækt. Þetta er eitt af markmiðum félagsins og við bjóðum upp á samstarf við sveitarfélögin á svæðinu á þessu sviði. Reynsla okkar er dýrmæt og við erum alltaf til- búin að miðla af henni,“ segir Hallgrímur Indriðason, sem verið hefur framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga frá árinu 1976. „Snemma í starfi Skógræktar- félags Eyfirðinga var farið að 'huga að því hvernig félagið gæti sinnt best markmiðum sínum, m.a. annars því markmiði að útvega fólki trjáplöntur til rækt- unar. Þá var ráðist í að stofna gróðrarstöð sem valinn var stað- ur á Kjarnanýræktinni við Akur- eyri og þar sáð í fyrsta skipti árið 1947. Þetta var frumstætt til að byrja með en við þessar aðstæður tókst hins vegar að framleiða mikið af plöntum. Eftir að ég tók við framkvæmdastjórn árið 1976 hófum við uppbyggingu í uppeld- isstöðinni í Kjarnaskógi og sú uppbygging hefur miðað að því að gera uppeldið öruggara en áður þannig að nú stjórnum við vaxtarþáttum plantna í uppeld- inu meira sjáíf. Árangurinn af þessari tækniframför sést best á því að nú tekur það okkur eitt ár að framleiða plöntu sem áður tók 4-5 ár,“ segir Hallgrímur um uppeldisstöð Skógræktarfélags Eyfirðinga í Kjarnaskógi við Akureyri sem segja má að sé miðpunkturinn í starfi félagsins. Óhætt er að segja að Skóg- ræktarfélag Eyfirðinga sé orðið að stóru fyrirtæki. Fastráðnir starfsmenn eru þrír en á álags- tímum yfir sumarið hefur félagið um 50 manns í vinnu. Gróður- setningar hjá félaginu eru á bilinu 100-200.000 plöntur á ári en helstu skógræktarsvæði félagsins eru nú, að sögn Hallgríms, Laugaland á Þelamörk, útvistar- svæðin í nágrenni Akureyrar, Leyningshólar, Miðhálsstaðir og Vaðlareitur. „Segja má að kaflaskipti hafi orðið í starfseminni þegar Akur- eyrarbær og Skógræktarfélagið gengu til samstarfs um rekstur Runnakynning fyrir almenning í Kjarnaskógi vorið 1984. Gppeldisstöðin í Kjarnaskógi. Þar eru nú framleiddar 500.000 plöntur árlega. Tekjur félagsins eru að megin-' hluta til sala á plöntum úr upp- eldisstöðinni í Kjarnaskógi. Þess- ar plöntur eru seldar til almenn- ings, sveitarfélaga og ríkis. Hall- grímur segir að plöntusalan skili félaginu um 10 milljónum króna á ári í tekjur og þær skiptast jafnt af sölu skógar- og garðplantna. Sala á jólatrjám skilar félaginu líka verulegum tekjum en þessi tré eru að hluta til grisjun í trjá- reitum félagsins í héraðinu en í heild hefur félagið umsjón með 13 skógræktarsvæðum í sýslunni. Þriðji þátturinn í tekjum Skóg- ræktarfélagsins eru ýmis framlög frá sjóðum og sveitarfélögum en í stað styrkja hefur félagið lagt fram vinnu við útplantanir í sveit- arfélögunum. Grisjun í Kjarna 1982. árin, svo hratt að engan veginn hefur tekist að anna eftirspurn. Þetta atriði segir sína sögu um vaxandi áhuga landsmanna á skógrækt og vegna þessa áhuga verður áfram haldið á sömu braut í uppbyggingunni í Kjarnaskógi. „Við byggjum upp til að auka frantleiðsluna og bæta hana jafnframt. Ég sé því ekki fyrir mér að við stöðvum uppbygging- una í bráð. Eftirspurnin er næg, ekki síst vegna þess skógrækt- arátaks sent stendur fyrir dyrunt og þeirrar umræðu sem í gangi er í kringunt það og ekki síöur vegna þess að verk frumkvöðl- anna í skógræktarmálum hér á svæðinu eru orðin að fallegunt og eftirsóttum útivistarsvæðum í héraðinu, t.d. Vaðlareitur. Þess- ara afreka frumkvöðlanna er fólk farið að njóta í vaxandi mæli.“ Drautnar skógræktarmanna í Eyjafirði eru margir. Hallgrímur segir meginmarkmiðið að ná stórum samfelldum svæðum und- ir skógrækt og ekki síður að hirða vel um þau 13 svæði sent félagið hefur þegar umsjón nteð. „Þegar við tölum unt að ná stórum landsvæðum undir skóg- rækt þá horfunt við sérstaklega til inndala Eyjafjarðar, aðallegá svæðisins kringum Melgerðis- mela. Laugaland á Þelamörk erum við líka nteð og það svæði hentar vel til skógræktar. Því sjáum við þar fyrir okkur mjög ræktarlegan skóg í framtíðinni," segir Hallgrímur. JÓH Framleiðsla á plöntum í stöð- inni í Kjarnaskógi er um 500.000 plöntur á ári en röskur helmingur af þessum plöntum eru skógrækt- Hallgrímur Indriöason, núverandi framkvæmdastjóri Skógræktarfélagins, í Kjarna áriö 1970. Hallgrímur Indriðason í uppeldisstöðinni í Kjarnaskógi. útivistarsvæðis í Kjarnaskógi árið 1972. Þá hafði Skógræktarfélag Akureyrar plantað nálægt einni milljón plantna á svæðið á undangengnum 20 árum og bæjar- búar sóttu mjög á þetta svæði. Með þessunt samningi kom bær- inn sem virkari aðili inn í mótun útivistarsvæðisins og í skógrækt- arstarfið en tvisvar sinnunt frá gerð þessa samnings hefur þetta svæði verið stækkað. í dag er ver- ið að vinna að umfangsmikilli stækkun, þ.e. girðingu úr suð- vesturhluta Kjarna og vestur í Glerá þannig að frá og með næsta hausti verði allur Súluhálsinn friðaður. Þetta er um 1000 ha. land sem skapar félaginu mikil verkefni á komandi árunt og ára- tugum,“ segir Hallgrímur. arplöntur en um 100.000 eru skjólbeltaplöntur og afgangurinn garðplöntur. Félagið selur plönt- ur vítt um landið og hefur plöntu- salan vaxið mjög hratt síðustu „Hvergi svo rýrt á Ejjafjarðarsvæðinu að ekki megi bæta umhverfið með skógrækt"

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.