Dagur - 11.05.1990, Page 11

Dagur - 11.05.1990, Page 11
Föstudagur 11. maí 1990 - DAGUR - 11 Súrmjólk Óttimi fyrst - Uppgjöfin bíður færis Méb kiwi MjólkursamlagJ& Sauðárkróki • Sími 95-35200 Árið 1942 kom út mikil bók sem bar nafnið íslensk menning og var send vítt um landið til áskrif- enda sinna. Útgefandinn var hið ekki garnla en mjög fagnaðarríka fyrirtæki, Mál og menning, sem vaxið hafði upp af miklum hraða þetta ár. Petta menningarfyrirbæri og mikla útgáfufélag þróaðist hratt og sterklega til sósíalskra áhrifa og áróðurs með Tímariti sínu, sem fljótlega varð drjúgur hluti útgáfunnar að magni til. Manni verður margt ljósara þar um eftir að hafa lesið langa ritgerð í bók og merkilega, sem Sigurður Hróarsson ritaði: „Eina jörð veit ég eystra. Halldór Laxness og Sovétríkin.“ Verður ekki rætt meira um að sinni en rumskar með vissum hætti við manni, ef þess hefði þá þurft til. Sigurður Nordal ritaði þessa miklu bók, íslensk menning, sem var í stóru broti, nærri eins og tímaritið „Heima er best“, nærri þrjú hundruð og sextíu blaðsíð- ur. Heitið var þremur bókum af líkri stærð undir þessu nafni, en hafa aldrei séð dagsins ljós nema þetta eina rit, að minnsta kosti ekki til áskrifenda. Á annarri prentsíðu bókarinn- ar stóð: „Spakmælið segir, að sá er enginn allheimskur, sem þegja kann. Og satt er það, að rithöf- undi er engu ónauðsynlegra að kunna að þegja en segja, þó að hann yrði ekki rithöfundur, ef hann byndist allra orða.“ Mættu margir til sín taka. En þó kemur stundum nytjagróður á endanum upp úr arfatúni. Mér er tjáð að önnur bók, eins konar afmælisrit, að líku umfangi og íslensk menning, skuli útgefin á komandi vordögum og geti ein- takafjöldi hennar numið eftir atfylgi meiri hluta máski íbúatölu þessarar þjóðar og ekki þó fyrir- heit um framhald. Hér er um að ræða það tvennt sem hverjum mætti verða og þykja vænst um með minnstum fyrirgangi en um leið sársauka- mest ef í nokkru yrði misgert: Hinn óvenjulegi og ástsæli forseti vor, Vigdís Finnbogadótlir, og æskufólk íslands og lífsproti þjóðarinnar. Skal hér ekki frekar um rætt, enda kotbóndi einn meðal stórbænda í menningar- búskap víðáttunnar þar sem allt kemur þó til álita sem gert er eða hvernig gert er. Menntamenn verða að búa við slíkt, hvað þá gamalt fólk, enn orðið áskrifend- ur að bók sem fer vel í hillu við hlið íslenskrar menningar Sigurðar Nordals og kann að valda nýjum gróðurblettum um auðnir Islands og máski mest um vert ef glæddi þann neista sem mest er nú óttast um í hraða óvissunnar, þjóðrækniskenndina sjálfa. Færi ekki ólíklega að frú Vigdís, með öll sín íslands börn, kæmi þar við sögu ef frið fengi til þar sem er kvika lífs og lands. Kulda slær að manni við að hlýða á umræðuna um fólk eða ekki fólk. Menn ræða léttir í máli um jafnræði flutninga fólks úr landi sínu ef nýjar fæðingar barna að tölu til fylla í skörð heimalandsins og margir láta sig litlu varða hvar menn velja sér staðfestu í byggð, heima eða erlendis. Pá þykir mörgum víst það litlu skipta, séu nægar þjón- ustustöðvar til að annast um ferðafólk og þess þarfir. Heyrst hefir að íslendingar eyði gjald- eyri í sínum útlandaferðum helmingi meiri en erlendir koma með til sinnar dvalar á íslandi. Þeir kalla það Húsgull, ná- grannar mínir á Húsavík, þau menningarsamtök sem stofnað hafa til umhverfisverndar og gróðurs og lofsvert nú á þeim tíma sérhyggju sem varla má við bæta. Þessi samtök munu hafa staðið fyrir ráðstefnu þar hinn 17. mars nýliðinn og hefir frést þrátt fyrir snjófargið sem ýmsir sjá naumast upp úr en eiga samt von á vori. Orð eru gjarnan til afreka ef vel tekst til og þó orð hafi síst skort á tímum forsjármanna og þarna væru flutt tólf ávörp eða erindi og umræður sem á eftir fóru séu af blaðamanni kallaðar „panelumræður", ef ekki er þá ein prentvillan enn, hafa farið fram miklar viðræður utan sam- komuhússins um hlutafjársöfnun til að reka verslun. Fundist hefur, ekki tugur heldur tugir milljóna, af lausu fé sem menn vilja leggja í samkeppnisverslun á meðan þó er verið að endurgera gamla Kaupfélagið hinurn megin við götuna. Svo óendanlega margar leiðir finnast nú til verndar hags- munurn sínum svo lengi sem þau töluðu orð streyma fram og það eilíffagra orð berst í eyra, Húsgull, sem ég ekki finn þó í orðabókinni en sé þar aftur á móti „húsguð, guð sem er yernd- ari ákveðins húss“. I vitund minni var húsgullið alltaf barnið í bænum þar sem er grunnurinn að öllu hinu, líka þeim tólf ráðstefnuræðum sem einhvern tfmann og einhvers staðar verða máski haldnar. Það var það húsgull sem ritstjóri Vík- urblaðsins var að ræða um á dögunum og hann óttaðist um. Ef til vill verður einn kafli um það í stóru afmælisbókinni þar sem fræðin og listin munu ekki gleymast. Það leitar á hugann, þar sem hin prúða Húsavík býður til samkvæmis og hótelið brosir við skíðabrekkunni og veislugest- unum, eftir því sem þrátuggðar skýrslur herma um aftökur ófæddra barna á þessu kalda landi, með nokkrum hætti á veg- um hinnar opinberu þjónustu eins og reyndar gamalt fólk deyr líka og máski raulandi: „Annað- hvort. fæddist ég allt of snemma ellegar dey of seint.“ Það er ekki fjarri að fólkstala hinnar fögru Húsavíkur nemi tölu þeirra barna sem óvelkomin hverfa þjóðinni á fimm ára tíma- bili hverju, án þess að verða fólk. - Hvenær ætli þessum útafkeyrsl- um linni? Og enn á að kjósa for- ustumenn í vor fyrir sveitir og kauptún og hið raunsanna „lista- verk“ vordaganna sem menn afreka. Aldrei að segja aldrei segja íþróttamennirnir eftir hrinuna miklu. íþróttamennirnir sem eru niættir á vellinum en komu í við- töl til að spá: „Við erum áhlaupa- menn, íslendingar. Okkur hentar þessi tegund leiks.“ Þrír kaup- staðir og ein höfuðborg vilja byggja jafnmargar hallir til bolta- leikja á íslandi en þó allar sama heimsleikahúsið eins og væri í jólakrossgátu. Þetta er nokkurs konar minningahús um afreks- menn sem voru og vel geta verið lengi enn þó þeir fengju enga blómvendi við komuna heim í Keflavíkina, - þar sem móttöku- nefnd tekur ekki með viðhöfn á móti mönnum sem hafa tapað orrustu en þó máski ekki stríðinu en viðmælendurnir tapað bæði oflátungshættinum og snobbinu en ekki þó brosinu til langframa. Sex ára snáðar sem ekki liafa fæðst beint inn í keppnisliðið - sem þó gerðist á dögununt í þrí- gang fyrir sunnan - þeir taka æfingar í að skalla fólk í magann og grípa það hálstaki, sem þeir fá tilsögn í nærri því frítt í sjónvarp- inu. Svo ríður mesta hviðan yfir og Framhjóladrifinn 5 manna fjölskyldubíll, fallegt útlit, frábærir aksturseiginleikar, spameytinn og á einstöku verði. Rúmgóður fjölskyldubíll með 1289 cc 63 hö vél, 5 gíra, 5 dyra. Verð kr. 469.900 C^&JŒ)ŒíQXj‘LS Hér er hugsað fyrir öllu til ferðalaga og flutninga, tvískipt niðurfellanlegt aftursæti 60/40 og framsætið er einnig hægt að leggja alveg niður að aftursætum. Lúxus innrétting, þurrka á afturrúðu, þokuljós ofl. Verð kr. 510.400 Jón Jónsson. af því ekki er hægt að byggja álver uppi á Tröllaskaga en fjær ástarstjörnunni og varla á Gunn- ólfsvíkurfjalli verður þriðji lík- legi staðurinn góðbýli með mik- inn framleiðslukvóta sem auðvelt væri að flytja á milli sýsina. Tilberi hét hann í þjóðtrúnni, staðfestur og vottfestur vitnis- burður frá galdra- og gerninga- tíma, sárri niðurlægingu dóms- valds og kennivalds, að varla er segjandi frá brennuvörgum; og þetta líka Snorra þjóð. Tilberinn var gerður af mannsrifi úr kumbli, vöfðu ullarflóka, og fór óséður frá fóstri sínu um byggðir og saug búpeningsafurðir klof- vega yfir kýrhrygginn, hvarf síð- an heim og spýtti afrakstri sínum í strokkinn ellegar bakkann og saug sig á lærspena fóstrunnar, eltur af prestinum siðvanda og kostaði sár og bana. Huggulegar trúarhugmyndir við að búa í ljós- lausum bæ og vonleysið gagnvart eilífðar eldinum. Og þjóðsagan endurfæðist eins og stendur tii með slíkt. Enn er tilberinn á ferð en hefir breytt um form og fatnað en sýgur engu síð- ur fast og skilar í ámuma miklu, þaðan sem hin nýfrjálsa eyðslu- þjóð deilir sælu og sút, og lottóin ekki einu sinni tæk í orðabók, en sukkið svellur yfir allar brautir þar sem þjóðlífsleiðir eru þó lög- bókum bundnar, hvar fáum end- ist löng ævi til að brjóta þau boð- in öll. En vorið bíður lengst niðri í snjónum og gleymir síst ætlunar- verki jarðarinnar sem sólin vakir yfir þrátt fyrir allt. 20. mars 1990, Jón Jónsson Fremstafelli. Skálafell sf. Draupnisgötu 4 • Sími 96-22255 • Akureyri Opið frá kl 13-17 laugardag og sunnudag í sýningarsal okkar

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.