Dagur - 11.05.1990, Qupperneq 14
14 - DAGUR - Föstudagur 11. maí 1990
Skólaslit
verða í gamla Barnaskólanum á Grenivík
laugardaginn 12. maí kl. 17.00.
Skólastjóri.
LSJ" Hestamenn
Akureyri - Eyjafiroi
Hinn kunni reiðkennari Eyjólfur ísólfsson mun
halda reiðnámskeið á Akureyri dagana frá 16.-
24. ma«.
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í námskeiðinu
mæti til skráningar í Skeifuna miðvikud. 16. maí kl.
20.00.
íþróttadeild Léttis.
HOTEL KEA
Laugardagskvöldið 12. maí
HLjÓMSVEITIN
GAUTAR
frá Siglufirði leika fyrir dansi.
★
SUNNUDAGSVEISLA
Á SÚLNABERGI
SpergiIkálsúpa, reyktur grísakambur
og/eða ofnsteikt lambalæri.
Þú velur meðlætið, salatið og sósurnar
og endar þetta á glæsilegu desserthlaðborði.
Frítt fyrir börn 0-6 ára, V2 gjald fyrir 7-12 ára.
Verð kr. 890.-
Hótel KEA
fyrir ve/ heppnaöa veislu
tMinning
Hartmann Hermaimsson
Fæddur 21. júlí 1982 - Dáinn 2. maí 1990
Vísindastyrkir
Atlantshafsbandalagsins 1990
Atlantshafsbandalagið leggur árlega fé af mörkum til
að styrkja unga vísindamenn til rannsókna eða
námsdvalar við erlendar vísindastofnanir í aðildar-
ríkjum Atlantshafsbandalagsins á einhverjum eftir-
talinna sviða: Náttúruvísindum, líf- og læknisfræði,
hug- og félagsvísindum og verkfræði.
Umsóknum um styrki af fé þessu - “Nato Science
Fellowships“ - skal komið til Vísindaráðs, Bárugötu
3, 101 Reykjavík fyrir 10. júní n.k. Þeim skulu fylgja
staðfest afrit prófskírteina og meðmæla, svo og upp-
lýsingar um starfsferil og ritverkaskrá.
Umsóknareyðublöð fást hjá Vísindaráði, Bárugötu
3. Afgreiðslutími þar er kl. 10-12 og kl. 14-16 dag-
lega.
Þetta varð stutt vor.
Hann kom til okkar í skólann
s.l. haust, dálítill hnokki, með
gáskafullt blik í augum og kank-
víst bros. Við ætluðum að læra
saman að vera til í dálítið
óskiljanlegum heimi. Fyrst þurft-
um við að læra hvor á hinn. Hann
á gamla karlinn en ég á fjörkálf-
inn. Þetta þótti okkur ekki
óskemmtileg atvinna og fyrr en
varði fannst okkur við búnir að
slípa hvorn annan þannig að við
gætum við unað.
Þá fórum við að ástunda þau
vísindi sem lög bjóða í skólum.
Við skrifuðum, lásum og reikn-
uðum og ekki síst reyndum við
að vanda okkur að lifa svoleiðis
að hentaði umhverfi okkar og
viðteknum venjum. Honum
fannst ég ekki sérlega námfús á
þeim sviðum enda fannst honum
eins og ég tæki litlum framförum
og hann yrði sennilega að sætta
sig við að hafa mig bara svona og
fyrirgaf mér sérviskuna. Hann
hins vegar efldist dag frá degi í
leikreglunum sem einhverjir
settu og eru ekki alltaf auðskildar
ungum ákafamönnum. Sýndi
hvernig hann gat sett eðlislægri
glaðværð sinni og fjöri þau mörk
sem hæfðu. Varð ljós í húsi.
Fyrir gamla kennara er fátt
meiri uppörvun en að sjá fram-
farir nemenda sinna. Geta fylgst
með hvernig árangurinn birtist,
framfarirnar koma í ljós. Það er
of sjaldgæfur munaður. Hart-
mann var svoleiðis gleðigjafi í
starfi mínu. Okkur fannst öllum
Rafgeymar
og
hjólbarðar
tiott 1rerð.
10% afsláttur
næsta mánuð á rafgeymum.
Verð:
107 a.h. kr. 8.662,50
133 a.h. kr. 10.296,-
70 a.h. kr. 4.940,10
Gúmmívinnslan hf.
Rettarhvammi 1 Akureyri Simi 96-26776
sem með honum störfuðum að
gott væri að hafa svona nemanda
sem sýndi okkur að við værum til
einhvers nýt.
Þannig gat þessi blessaði vinur
minn gert mér auðveldara að
vera til og var óspar á að láta mig
finna það að ég gæti nú talsvert
lfka ef ég legði mig fram.
Nú er mér í sjálfu sér ekki gef-
ið né kann ég að skrifa um
söknuð, trega, hryggð eða eftir-
sjá. Það sem snertir mig sárast.
En þegar vorið verður svona
stutt, hlýja vináttunnar svo
skammæ, elskulegum dreng svo
fárra daga auðið get ég ekki orða
bundist á minn klaufalega hátt.
Lengi enn mun fylgja mér í
minningunni glettið augnaráð og
bros vinar míns sem hjálpaði
okkur að afbera veturinn og bar
hlýju og glaðværð í skólann okk-
ar og hjálpaði okkur að finna að
til nokkurs er að vinna.
Hann er nú á Guðs vegum.
Blessuð sé minning hans. Við í
Bröttuhlíðarskóla sendum öllum
ástvinum Hartmanns Hermanns-
sonar innilegar samúðarkveðjur
og biðjum þeim blessunar Guðs.
Kristinn G. Jóhannsson.
tc
Minning:
uttonnur Berg
Fæddur 6. mars 1918 - Dáinn 30. mars 1990
Ég ætla að skrifa nokkur kveðju-
orð um Gutta eins og hann var
alltaf kallaður. Kynni mín af
Gutta eru þannig að hann var
giftur ömmu minni Þórlaugu
Baldvinsdóttur þar til yfir lauk.
Gutti og amma bjuggu í Strand-
götu 27. Gutti átti eina dóttur
Elínu Berg Guttormsdóttur.
Amma og Gutti höfðu mjög gam-
an af að ferðast. Ferðalög voru líf
og yndi Gutta. í hittiðfyrra fór ég
og fjölskylda mín með ömmu og
Gutta til Þýskalands. Sú ferð er
ógleymanleg. Gutti er fæddur á
Akureyri. Foreldrar Gutta voru
Friðgeir H. Berg og Valgerður
Guttormsdóttir. Gutti vann við
ýmislegt. Síðustu árin sem hann
vann starfaði hann í Atlabúðinni.
Gutti hafði alla tíð gaman af
knattspyrnu og er hann var yngri
keppti hann með Knattspyrnufé-
lagi Akureyrar og Þór.
Guð geymir góðan mann.
Friörik Kjartansson.
Fjölbreytt útgáfustarfsemi á vegum
Útflutningsráðs íslands:
Tvö upplýsingarit um
ísland skila árangrí
Bæklingurinn Iceland - A
Source of Quality sem gefinn
er út af Útflutningsráði íslands
í samvinnu við Iceland Revi-
ew-útgáfuna er nú kominn út í
annað sinn. Er hann sendur
áskrifendum Iceland Review
sem fylgirit tímaritsins en þar
að auki dreifir Útflutningsráð
20 þúsund eintökum á sýning-
um, við móttökur og íslands-
kynningar erlendis. Þá er
nýkomin út þriðja útgáfa
bæklingsins Iceland - The
Cutting Edge of Fisheries
Technology. Bæklingum þess-
um hefur verið dreift í öllum
heimsálfum bæði af Útflutn-
ingsráði og fyrirtækjunum
sjálfum.
Iceland - A Source of Quality
hefur að geyma ýmsar almennar
upplýsingar um Island og helstu
atvinnugreinar landsmanna. Birt-
ar eru helstu tölur um land og
þjóð svo og um efnahags- og
atvinnulíf. I kaflanum um
atvinnulíf er greint frá fiskveið-
um og fiskiðnaði, fiskirækt, land-
búnaði, orkubúskap, iðnaði og
íslandi sem ferðamannastað. Þá
er greint frá framleiðsluvörum
landsmanna í sérstökufn kafla og
starfsemi Útflutningsráðs.
Útgáfa bæklingsins er fjármögn-
uð að mestu með auglýsingum frá
fyrirtækjum ogstofnunum. Bækl-
ingurinn er í stóru broti, 32 blað-
síður og litprentaður.
Iceland - The Cutting Edge of
Fisheries Technology hefur kom-
ið þrisvar út. Iðnlánasjóður
styrkir útgáfuna en að öðru leyti
standa auglýsingar undir fram-
leiðslukostnaði. Bæklingurinn
hefur að geyma upplýsingar um
margs konar tæki og rekstrarvör-
ur fyrir sjávarútveg og fiskiðnað.
íslensk fyrirtæki í þessum grein-
um kynna starfsemi sína. Birt er
skrá yfir þann búnað sem tekinn
er til meðferðar og skrá yfir fyrir-
tækin sem framleiða hann. Bækl-
ingurinn er 44 blaðsíður, litprent-
aður og er gefinn út í 17 þúsund
eintökum.