Dagur - 11.05.1990, Qupperneq 16
Akureyri, föstudagur 11. maí 1990
Haldið veisluna eða fundinn
í elsta húsi bæjarins
Afmælisveislu ★ Giftingarveislu ★
★ Erfidrykkju ★ Kaffisamsæti ★
Fundi og hvers konar móttökur.
Allar nánari upplýsingar gefa Hallgrímur eða Stefán í síma 21818.
Atvinnumálanefnd
Húsavíkurbæjar:
Boðar tíl
fundar um
kaup á
togskipi
Atvinnumálanefnd Húsavíkur-
bæjar hefur boðað til almenns
fundar um stofnun hlutafélags
til kaupa á togskipi. Auk
umræðu um málið verður á
fundinum kosin undirbúnings-
stjórn til að vinna að stofnun
hlutafélgs er hafi það markmið
að kaupa togskip til Húsavík-
ur.
Bæjarstjórn samþykkti 10.
apríl sl. tiliögu sem Örn Jóhanns-
son, bæjarfulltrúi, lagði fram um
að stofnað yrði almenningshluta-
félag til kaupa á togskipi, til að
reyna að ráða bót á atvinnu-
ástandi í bænum. Málinu var vís-
að til atvinnumálanefndar og
henni falið að vinna að framgangi
þess.
Fundurinn verður haldinn í fé-
lagsheimilinu nk. sunnudag og
hefst kl. 17, hann er öllum opinn
og hvetur nefndin bæjarbúa til að
mæta og sýna þessu nauðsynja-
máli áhuga. IM
Umferð hrossa og manna fer ekki alltaf saman, a.m.k. þótti starfsmönnum
í fyrirtæki einu á Brekkunni á Akureyri nóg um umferðina og hrossaskítinn
fyrir framan fyrirtækið og settu þá upp þessi skondnu tilmæli. Gárungarnir
segja að hestamenn stoppi nú tíðum á reiðtúrum sínum við skiltið og reyni
með mikium tilþrifum að útskýra tilmælin fyrir reiðfákunum. Mynd: kl
Akureyri:
Uppsveifla í bflasölu
Þessa dagana er mikið að gera
hjá bílasölum á Akureyri,
enda er maí venjulega mesti
sölumánuður ársins.
Hjörlejfur Gíslason, bílasali í
söludeild notaðra bifreiða hjá
Höldur sf., segir að eftir að vegir
til allra átta urðu greiðfærir eftir
veturinn hafi margir utanbæjar-
menn látið sjá sig á bílasölunni,
og mikið sé að gera. Framboð af
bílum er þó ekki meira en venju-
lega. Vissar gerðir bíla vantar á
sölurnar, einna helst algenga
fólksbíla á verðinu fjögur hundr-
uð til fimm hundruð þúsund
krónur.
Einar Gunnarsson hjá Bílasölu
Norðurlands segir að útlit sé fyrir
að mikið verði að gera í bílasölu
í sumar. Lítið framboð er af eins
til þriggja ára gömlum fólksbíl-
um, en einna helst vantar bíla á
verðinu frá þrjú til sex eða sjö
hundruð þúsund krónur. Einnig
er allmikil eftirspurn eftir jepp-
um í dýrari verðflokkum.
Mikið er að gera í sölu nýrra
bíla hjá Bifreiðaverkstæði Sig-
urðar Valdimarssonar. Sigurður
segir að nýir bílar stoppi ekki hjá
sér, og eftirspurnin sé meiri en
þeir geti annað hjá Ingvari
Helgasyni, sem hann er með
söluumboð fyrir á Akureyri.
„Það hefur mikið selst af nýjum
bílum, en þyngra með notaða.
Pappírspokaverksmiðjan Serkir hf. á Blönduósi:
Þýðir ekkert að starfrækja Serki
án viðskiptaaöiidar Kísiliðjunnar
- segir Unnur Kristjánsdóttir, iðnráðgjafi á Norðurlandi vestra
Um næstu mánaðamót tekur
stjórn Kísiliðjunnar hf. í
Mývatnssveit fyrir erindi um
aðild verksmiðjunnar að
rekstri pappírspokaverksmiðj-
unnar Serkja hf. á Blönduósi.
Óskað hefur verið eftir að
Kísiliðjan hf. leggi fram hluta-
fé í reksturinn og kaupi pappírs-
poka af Serkjum undir fram-
leiðslu sína.
„Ég leyfi mér að vera vongóð
um að tekið verði jákvætt í
þetta,“ sagði Unnur Kristjáns-
dóttir, iðnráðgjafi á Norðurlandi
vestra, sem gegnt hefur starfi
framkvæmdastjóra Serkja frá
áramótum. Hún sagði að fengist
hafi jákvæð svör um hlutafé og
niðurfellingu skulda að því til-
skildu að Kisiliðjan hf. komi inn í
rekstur fyrirtækisins og kaupi
pappírspoka af því, en sem
stendur flytur hún inn poka frá
Finnlandi.
„Það þýðir ekkert að starf-
rækja Serki áfram nema Kísiliðj-
an verði viðskiptaaðili. Kísiliðjan
myndi kaupa'jafn marga poka og
við seljum í dag. Ef af þessu yrði
myndi framleiðslan hér tvöfald-
ast,“ sagði Unnur.
„Við þurfum í sjálfu sér ekki
mikla peninga. Það er fyrst og
fremst mikilvægt fyrir okkur að
ná stóraukinni sölu á framleiðsl-
unni,“ bætti hún við.
Að sögn Unnar hefur Jón Sig-
urðsson, iðnaðarráðherra, beitt
sér í þessu máli og stutt það að
Kísiliðjan kaupi framleiðslu
Serkja.
Tií þess að framleiða þá poka
sem Kísiliðjan notar þarf að
breyta framleiðsluvélum Serkja
lítilsháttar. Til þess þarf fyrirtæk-
ið fjármagn, sem það hefur ekki
sem stendur. Með auknu hlutafé
inn í fyrirtækið segir Unnur það
hins vegar opna leið.
Sem stendur eru Fóðurblandan
hf., KEA og Mjólkurfélag
Reykjavíkur einna stærstu við-
skiptaaðilar Serkja. óþh
Nágrannar eiga gullbrúðkaup í dag
Hjónin Frímann Guðmunds-
son og Soffía Guðmundsdótt-
ir, Eyrarvegi 27 á Akureyri,
eiga gullbrúðkaup í dag, 11.
maí. Þessum áfanga fagna
einnig í dag nágrannar þeirra
í Norðurgötu 42 á Akureyri,
þau Magnús Stefánsson og
Guðrún Mctúsalemsdóttir.
„Þáð eru ekki mörg ár síðan
við uppgötvuðum að við hefð-
um gift okkur sama daginn,"
sögðu þau Frímann og Guðrún,
þegar Dagur hitti hjónin að
máli á heimili Frímanns og
Soffíu í gær.
Þau Magnús og Guðrún fluttu
í íbúð sína að Norðurgötu 42
síðla árs 1946 en vorið eftir
fluttu Frímann og Soffía í Eyr-
arveg 27, sem er á horni Eyrar-
vegs og Norðurgötu og stendur
skáhallt á móti húsi Magnúsar
og Guðrúnar. Magnús og Guð-
rún hyggjast flytja einhvern
næstu daga eftir öll þessi ár í
eina af íbúðum Dvalarheimilis-
ins Hlíðar, en á Frímanni og
Þau halda upp á gullbrúðkaup í dag. Frá vinstri Magnús Stefánsson,
Guðrún Metúsalemsdóttir, Soffía Guðmundsdóttir og Frímann Guð-
mundsson. Mynd kl
Soffíu er ekkert fararsnið.
Séra Óskar Þorláksson gaf
Frímann og Soffíu saman í
hjónaband á Siglufirði. Frí-
mann segir daginn hafa verið
eftirminnilegan. „Það var söl og
steikjandi hiti á Siglufirði þenn-
an dag. en niikill snjór.“ I þann
mund er þau hjónin gengu til
kirkju sigldi breskt herskip inn
fjörðinn. ísland liafði dregist
inn í ógn síðari heimsstyrjaldar
og Bretar hernumið landið.
Á Akureyri var sama veður-
blíðan þennan dag fyrir fimmtíu
árum. Þar gengu upp að altar-
inu þau Magnús og Guðrún.
Séra Friðrik Rafnar gaf þau
saman. óþh
Annars er farið að lifna mikið
yfir sölu notaðra bíla,“ segir
Sigurður.
„Það er mjög mikið að gera hjá
okkur, eftirspurnin er svo mikil
að af sumum gerðum eru ekki til
nægilega margir bílar á lager,“
segir Eyjólfur Ágústsson, í sölu-
deild nýrra bíla hjá Höldur. Að
sögn Eyjólfs kemur mikið af fólki
til að skoða, eftir að fór að vora.
Bílasýningar hafa komið vel út
og söluhorfurnar eru góðar fram-
undan. EHB
Lambið rýkur út:
Grillpokar í
byrjun júní
Söluátakið „Lambakjöt á lág-
marksverði“ hefur gengið
nokkuð vel að undanförnu og
eru, að sögn Þórhalls Arason-
ar í landbúnaðarráðuneytinu,
miklar vonir bundnar við
góða sölu á „grillvertíðinni“
sem senn fer að hefjast.
Ef áætlanir standast er gert ráð
fyrir því að lambakjötsfjall
landsmanna verði komið niður í
1000-1200 tonn í lok yfirstand-
andi verðlagsárs, sem lýkur um
mánaðamótin ágúst-september.
í mars sl. seldust 750 tonn í
söluátakinu í samanburði við 540
tonn í sama mánuði 1988. Nokk-
ur afturkippur kom í söluna í síð-
asta mánuði en Þórhallur segist
búast við að hún aukist aftur
verulega á næstu vikum. í byrjun
júní verða á boðstólum 6-6lá
kílóa grillpokar af fyrsta flokks
kjöti. Þórhallur segist gera ráð
fyrir að kílóverð á grillkjötinu
verði 417 krónur. „Við gerum
okkur stórar væntingar um sölu á
lambakjötinu í sumar. I fyrra-
sumar seldum við geysilega mikið
og ég býst við að það sama verði
upp á teningnum í ár,“ sagði Þór-
hallur.
Boðið verður upp á tvær teg-
undir grillpoka, annars vegar ein-
tómar sneiðar og hins vegar
sneiðar og heilt læri. óþh
Hrísey:
Fjölgar sumarhúsum?
Hrísey á Eyjafirði færist stöðugt
nær hringiðu ferðamanna-
straumsins og fólk á faraldsfæti
lætur vel af dvöl sinni í eyjunni
að sögn Narfa Björgvinssonar
hjá Eylandi s.f. í Hrísey.
Með tilkomu nýju ferjunnar
Sæfara má búast við auknum
fjölda ferðamanna til Hríseyjar.
Matsölustaðir eru þar góðir og
Eyland s.f. er með eitt sumarhús
þar til útleigu.
„Hugur okkar hjá Eylandi s.f.
stefnir til að reisa fleiri sumarhús
ef fólk sýnir áhuga til dvalar hér í
fríum sínum. Hér er margt við að
vera. Gönguferðir, náttúru- og
fuglaskoðun og hér er sundlaug
og veðursæld. Höfnin er góð og
upplagt að fara á skak þá veður
er gott og ekki sakar að nefna að
aðstaða til siglinga á Eyjafirði er
með ágæturn," sagði Narfi Björg-
vinsson f Hrísey. ój