Dagur - 23.05.1990, Síða 3

Dagur - 23.05.1990, Síða 3
Miðvikudagur 23. maí 1990 - DAGUR - 3 fréftir Kim Larsen í íþDrc>ttcal*TC>llinni föstudaginn 25. maí kl. 20.30 Forsala miða-. Akureyri: Tónabúðin Sunnuhlíð og Tölvutœki Bókval Sauðórkróki: Verslunin Ábœr Siglufirði: Verslunin Torgið Húsavík: Ferðaskrifstofa Húsavíkur Sœtaferðir verða frá: Húsavík, Ólafsfirði, Sauðórkróki, Dalvík og Siglufirði Miðaverð kr. 1800 íþróttafélagið Þór í forsölu við innganginn Dagur og Dagsprent: Afkoman 1989 réttum megm við núUið Mikil umskipti urðu til hins betra í afkomu Dags og Dags- prents á síðasta ári, miðað við afkomu fyrirtækjanna árið 1988. Það ár var um 20 millj- óna króna tap á rekstrinum. Ljóst er að reksturinn skilaði hagnaði í fyrra, eftir afskriftir og fjármagnsgjöld. Lokið er uppgjöri vegna rekst- urs Dags og Dagsprents fyrir síð- astliðið ár. Aðalfundur hefur ver- ið boðaður 31. maí n.k. Sigurður Jóhannesson, formaður stjórnar Dags og Dagsprents, sagði í við- tali við blaðið að afkoman hefði batnað verulega frá árinu á undan, og að sameiginlegur rekstur Dags og Dagsprents væri jákvæður. „Mikið var unnið að hagræð- ingu í rekstri á árinu 1989 og átti starfsfólk fyrirtækjanna góðan hlut að þeim málum. í samstarfi við starfsfólk tókst að bæta rekst- urinn verulega. Þó eru fjárskuld- bindingar fyrirtækjanna óneitan- lega miklar, og verður áfram unnið að því að létta þær með einhverri eignasölu og með aukn- ingu hlutafjár. Ef málin þróast áfram á þann hátt sem ársreikn- ingurinn 1989 sýnir og reksturinn í ár ber með sér, getum við horft af bjartsýni til framtíðar,“ segir Sigurður Jóhannesson. ehb um vinnslu málma úrjörðu: Hér afhendir Finn Jansen, sölustjóri Toyota, (t.v.) Einari Thorlacius, umsjónarmanni Bílaleigu Flugleiða, plögg til staðfestingar um kaup hennar á 17 Toyota-bifreiðum. Mynd: kl Bílaleiga Flugleiða Akureyri: Fékk sautján Toyota-bifreiðar í gær Bflaleiga Flugleiða í gamla Shell-nesti gegnt Akureyrar- flugvelli fékk í gær afhentar 17 nýjar Toyota-bifreiðar, sem hún hefur m.a. til umráða í sumar. Um er að ræða bæði Toyota Corolla og fjórhjóla- drifsbfla. Næsta vetur verður bflaleigan einnig með á boð- stólum jeppa af gerðinni Suz- uki Itara. Bílaleiga Flugleiða verður, að sögn Einars Thorlacius, umsjón- armanns, opin alla daga frá kl. 8 til 19, eða á meðan flogið er til og frá Akureyri. „Við erum bjartsýnir á sumar- ið og vonum það besta,“ sagði Einar. óþh Slysavarnafélag Islands: Sæbjörg stödd á Sauðárkróki - námskeið fyrir togara- og trillusjómenn Sæbjörg, skip Slysavarnafélags íslands, er nú stödd í Sauðár- krókshöfn á hringferð sinni um landið. Það er Slysavarnaskóli sjómanna sem starfar um borð í skipinu og heldur námskeið fyrir áhafnir stærri báta sem og smábátaeigendur. Skipið kom til Sauðárkróks að kvöldi þess átjánda og mpn halda þaðan laugardaginn 26. maí. Sæbjörgin kom til Sauðárkróks síðastliðið föstudagskvöld eftir að hafa verið á Rifi á Snæfellsnesi með námskeiðahald. Tvö fjög- urra daga námskeið verða haldin fyrir áhafnir stærri báta og hófst það fyrra í gær. Einnig er boðið upp á tveggja kvölda námskeið fyrir smábátaeigendur. Námskeiðin ná til ýmissa þátta slysavarna og björgunaraðgerða. Þar má nefna; endurlífgun, við- brögð við ofkælingu, slökkvistörf og reýkköfun. Meðferð gúmmí- báta og flotbúninga er einnig kennd. Björgun með aðstoð þyrlu verður einnig æfð. Þyrla land- helgisgæslunnar kemur í því skyni til Sauðárkróks á miðvikudag. Síðan munu sprengjusérfræðing- ar kenna sjómönnum meðhöndl- un á tundurduflum sem kunna að koma í veiðarfæri. í gærkveldi gafst bæjarbúum kostur á að skoða Sæbjörgu og kynna sér þá starfsemi sem Slysa- varnaskóli sjómanna rekur. Að sögn Þóris Gunnarssonar skólastjóra Slysavarnaskóla sjómanna er þátttaka sjómanna mjög góð. „Ég tel að góð þátt- taka sjómanna sanni að þörfin er fyrir hendi. Slysavarnaskólinn á fimm ára afmæli þann 29.maí og síðan hann hóf starfsemi hefur aðsókn að æfingum verið mjög góð,“ sagði Þórir. kg/SBG Rannsóknarverkefni SigluQörður: BæjarmáJa- punktar ■ Bæjarráð samþykkti á dögunum að ráða Guðfinnu Ingimarsdóttur starfsmann Sundhallarinnar. íþróttaráð hafði áður mælt með Guð- finnu í starfið. í kosningu í bæjarráði fékk Guðfinna tvö atkvæði en Helen Meyers eitt atkvæði. ■ Hestamannafélagið Glæsir hefur fengið úthlutað beitar- landi fyrir hross í landi Ráeyr- ar samkvæmt tillögu bæjar- tæknifræðings. Bæjarráð hefur falið honum að ganga frá samningum við félagið varð- andi landamörk, girðingar o.fl. ■ Leikskólinn verður lokaður vegna sumarleyfa 16. júlí til 20. ágúst en gæsluvöllur verður hins vegar opinn frá 9. júlí til 20. ágúst. ■ Skólanefnd hefur sam- þykkt að ráða Viðar Jónsson, starfandi kennara við Grunn- skóla Siglufjarðar, í stöðu yfir- kennara fyrir næsta skólaár. ■ Stjórn Verkamannabú- staða hefur samþykkt að út- hluta íbúðum að Laugarvegi 39 til Lindu Sigurbjargar Hall- dórsdóttur og Reynis Árna- sonar. „Algjörar fnunrannsóknir í byq‘un“ „Þetta er algjörar frumrann- sóknir, fyrsti metrinn af hundrað,“ sagði Róbert Agn- arsson, framkvæmdastjóri Kís- iliðjunnar hf. í Mývatnssveit um fyrirhugað samstarfsverk- efni um rannsóknir á vinnslu málma úr jörðu. Ráð er fyrir því gert að Kísil- iðjan verði í þessu verkefni í samstarfi við Iðntæknistofnun og Orkustofnun en Róbert sagði þessa aðila þó ekki standa jafnt að verkefninu. Hann segist vænta þess að hægt verði að byrja á sýnatöku og rannsóknum þeirra í sumar. Sýni verða tekin á útkuln- úðum jarðhitasvæðum víðs vegar um landið en of snemmt er að segja um hvort um einhverja vinnslu kanna að vera að ræða í framtíðinni. JÓH Leiðrétting í gær birtist í Degi frétt áf starfs- launum Kristjönu F. Arndal, myndlistarmanns, en hún var val- in fyrsti bæjarlistamaður Akur- eyrar. Þar er missagt að Kristjana hafi stundað nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands. Hið rétta er að hún stundaði nám við Myndlistaskóla Reykjavíkur. EHB

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.