Dagur - 23.05.1990, Síða 6

Dagur - 23.05.1990, Síða 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 23. maí 1990 Einbýlishús gegnt Akureyii Nýlegt einbýlishús á einni hæð, (timburhús) ca. 142 fm til sölu. Húsið er staðsett austan Akureyrar og er ekki alveg fullbúið. Glæsilegt útsýni. Gott verð ef samið er strax. Lán Byggingasjóðs ríkisins ca. 3 milljónir. Til afhendingar mjög fljótlega. Fasteignasalan == Brekkugötu 4 • Sími 21744 Gunnar Sólnes hrl., Jón Kr. Sólnes hrl. og Árni Pálsson hdl. Sölust. Sævar Jonatansson Einstakt tækifæri! Glæsileg einkabifreið „Peugeot 405", árgerð 1988, er til sölu. Ekin 18.000 km, aðeins að sumri til. Ljósblá, metallakk, útlit sem ný. Verð kr. 850.000,- EYSTEINN ÁRNASON, Suðurbyggð 11, Akureyri, símar 21111 og 21311. Starfslaun Ríkisútvarpsins til höfunda útvarps- og sjónvarpsefnis Ríkisútvarpið auglýsir starfslaun' til höfundar eða höfunda til að vinna að verkum til frumflutnings í Ríkisútvarpinu, hljóðvarpi eða sjónvarpi. Starfslaun- um geta fylgt ókeypis afnot af íbúð Ríkísútvarpsins í Skjaldarvík í Eyjafirði. Starfslaun eru veitt til 6 mánaða hið lengsta og fylgja þau mánaðarlaunum skv. 5 þrepi 143. Ifl. í kjara- samningum Bandalags háskólamanna og fjármála- ráðherra fyrir hönd ríkissjóðs. Umsóknum ásamt greinargerð um fyrirhuguð við- fangsefni skal skilað til skrifstofu útvarpsstjóra, Efstaieiti 1, Reykjavík, fyrir 1. júní nk. Þar eru enn- fremur veittar nánari upplýsingar um starfslaunin. RÍKISÚTVARPIÐ íþróttamálin á Akureyri - athugasemd við skrif Pórarins E. Sveinssonar í Degi þann 18. maí s.l. ryðst Þórarinn E. Sveinsson fram á rit- völlinn og fjallar um íþróttamál á Akureyri af slíkri vanþekkingu að undirrituðum þykir ófært ann- að en að verðandi bæjarfulltrúi fái nánari upplýsingar um þau efni. Áður en Þórarinn ritaði greininga hefði honum þó átt að vera í lófa lagt að leita upplýs- inga, annaðhvort hjá fulltrúa Framsóknarflokks í íþróttaráði, eða hjá undirrituðum. Vera kann þó að Þórarinn hafi talið betra, slæmum málstað til fram- dráttar, að slá fram lítt hugsuð- um og órökstuddum þenkingum en kynna sér málin. Slík vinnu- brögð sætti ég mig ekki við hjá verðandi bæjarfulltúa, hvað sem aðrir bæjarbúar kunna að gera. Fagleg vinnubrögð Þórarni verður tíðrætt í grein sinni um skort á faglegum vinnu- brögðum. Að á skorti að ná utan um verkefnin og vinna markvisst að lausn mála. Ég er sammála Þórarni að ávallt beri að vinna faglega og markvisst. Það hefir það Iþróttaráð gert sem senn lýk- ur sínu kjörtímabili. Þá þegar nýtt Iþróttaráð var myndað síð- sumars 1986 var það eitt af fyrstu verkum ráðsins að setjast niður og setja sér framkvæmdaáætlun á kjörtímabilinu. Um þá áætlun var alger samstaða í ráðinu, eins og raunar hefir verið um nánast öll þau mál sem til kasta íþrótta- ráðs hafa komið. Eftir þessari áætlun hefir verið unnið. Meðal markmiða sem þar voru sett var að ljúka byggingu Hallarinnar. Með þeirri fjárhagsáætlun sem unnið er eftir nú í ár. (1990) verður því verki nánast lokið. Annað markmið sem sett var í fyrrnefnda framkvæmdaáætlun var að hefja í ár (1990) skipulag og framkvæmdir við Súndlaug Akureyrar. Nú þegar liggja fyrstu tillögur að nýjum mann- virkjum við Sundlaugina, busl- laugum, barnalaugum, vatns- rennibrautum, heitum pottum, dýfingarlaug o.sv.frv. Þessar teikningar hanga uppi almenn- ingi til sýnis í afgreiðslu sund- laugar frá 23. þessa mánaðar. Þar er um að ræða verkefni til næstu 6 til 10 ára, allt eftir fjárveiting- um bæjaryfirvalda. Þá hefir íþróttaráð ásamt skipulagsyfir- völdum hugað að staðsetningu fyrir nýtt íþróttasvæði, ef svo kynni að fara að nauðsynlegt reyndist að leggja völlinn niður þar sem hann stendur nú. Ef þetta eru ekki dæmi um að litið Aukabkð um úrslit sveitarstjómaknsnmgannjn Mánudagiim 28. maí mun Dagur gefa út aukablað þar sem birt verða helstu úrslit úr bæjar- og sveitarstjóma kosningunum 26. maí nk. Blaðinu verður dreift um hádegið mánudaginn 28. maí og verður því fyrst blaða til að flytja Norðlendingum fréttir af kosningunum. Augtýsendur athugið! Þeir sem hyggjast auglýsa í þessu blaði eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við auglýsingadeM Dags hið fyrsta en eigi síðar en fyrir kl. 12.00 föstudaginn 25. maí fyrir 2jadálka og smærri auglýsingar. auglýsingadeild sé til framtíðar þar sem reynt er að sjá og spá til næstu 20 til 50 ára þá veit ég ekki hvað. Aðstoð við íþróttafélögin Megintakmark greinar Þórarins fjallar um aðstoð við íþróttafélög bæjarins. Af skrifum Þórarins má ráð að þar hafi íþróttaráð og bæjaryfirvöld tekið slælega á málum á þessu kjörtímabili. Ein- faldast iil samanburðar hvað það varðar ier að birta fjárframlög Akureyrarbæjar til KA og Þórs á þessu kjörtímabili, og framlög bæjarins tvö árin þar á undan, þegar 'meirihluti . Framsóknar, Alþýðubandalags og Kvenna- framboðs hélt um stjórnartaum- ana. í töflunni hér að neðan eru ekki taldir styrkir vegna húsa- leigu í íþróttamannvirkjum bæjarins, en félögin hljóta styrk, sem fer um hendur ÍBA sem á að mæta húsaleigu þeirra. Af framantöldu má sjá að í tíð núverandi íþróttaráðs hafa beinir styrkir við KA og Þór, sem og önnur íþróttafélög þó ekki sé tíundað hér, aukist frá því að vera 4.527.000,- 1985 fil þess að vera 7.387.000,- 1989 (verðlag í jan. 1990) eða um 63%. Ef þessi aukna liðveisla bæjaryfirvalda er ekki viðurkenning á öflugri starf- semi íþróttafélaganna í bænum þá veit ég ekki hvað. Setjum markiö hátt Það er rétt hjá Þórarni að við eig- um að setja markið hátt og það hefir verið gert. Með gerð rammasamninga við íþróttafélög- in er mörkuð stefna sem íþrótta- félögin hafa að leiðarljósi á kom- andi árum. Nú þegar hafa verið gerðir samningar við Golfklúbb- inn, Skautafélagið og Þór. Þá hafa verið samþykkt í bæjar- stjórn drög að samkomulagi við KA um byggingu íþróttahúss. Með þessum samningum er stefnt hátt og Akureyrarbær og íþróttafélögin í bænum taka höndum saman. Þar sem grein Þórarins fjallaði að miklum hluta um samskipti íþróttafélaganna og bæjarins hef- ir mér orðið tíðrætt um þau sam- skipti. Allt of oft brennur við þegar íþróttamál eru til umræðu að ekki er litið á málaflokkinn í heild heldur út frá þröngum sjón- arhóli. Þannig finnst knattspyrnu- unnandanum ekkert gert í íþrótta- málum ef framkvæmdir hafa lítt snert þá grein íþrótta. Skíðaunn- endum finnst allt fara í bolta- skakið ef lítið hefir verið aðhafst í fjallinú o.sv.frv. Við slíkri umræðu vil ég vara. Að sjálfsögðu hefði ég viljað að íþróttaráð hefði haft úr meira fé að spila á því kjörtímabili sem nú er að ljúka. Mér er jafnljóst að öll ráð og nefndir bæjarfélags- ins hefðu óskað þess hins sama. íþróttaráð það sem nú lýkur senn störfum fer nú frá nokkuð sátt við sín verk, hefir markað nýja braut, gerbreytt vinnubrögðum að íþróttamálum frá því áður var. NÚ ER LITIÐ TIL FRAM- TÍÐAR OG MARKMIÐ SETT HÁTT. Sigbjörn Gunnarsson. Höfundur er formaður íþróttaráðs Akur- eyrar. (Allar tölur eru færðar til verðlags í jan. 1990 miðað við lánskjara- vísitölu) 1985 (Meirihluti Framsókn, Alþýðubandalag, Kvennaframboð) Þór KA Rekstur íþróttasvæðis 344.000,- 344.000,- Leikja og íþróttanámsk. 143.000,- 143.000,- Byggingastyrkur 689.000,- 1.100.000,- Aðrir styrkir til félaganna* 652.000,- 1.112.000,- Samtals 1.828.000,- 2.699.000,- 1986 (Fjárhagsáætlun meirihl. Framsóknar, Alþbl. Kvennafran Þór KA Rekstur íþróttasvæðis 386.000,- 386.000,- Leikja og íþróttanámsk. 126.000,- 126.000,- Byggingastyrkur 691.000,- 691.000,- Aðrir styrkir til félaganna* 497.000,- 1.379.000,- Samtals 1.700.000,- 2.582.000,- 1987 (Meirihluti Alþýðuílokks, Sjálfstæðisfl.) Þór KA Rekstur íþróttasvæðis 443.000,- 443.000,- Leikja og íþróttanámsk. 133.000,- 133.000,- Byggingastyrkur 744.000,- 744.000,- v/Æskulýðsstarfsemi 637.000,- 637.000,- Aðrir styrkir til félaganna* 1.958.000,- 1.010.000,- Samtals 3.915.000,- 2.967.000,- 1988 (Meirihluti Aiþýðuflokks og Sjálfstæðisfl.) Þór KA Rekstur íþróttasvæðis 471.000,- 467.000,- Leikja og íþróttanámsk. 138.000,- 138.000,- Bvggingastyrkur 760.000,- 760.000,- v/Æskulýðsstarfsemi 652.000,- 652.000,- Aðrir styrkir til félaganna* 2.696.000,- 1.353.000,- Samtals 4.717.000,- 3.369.000,- 1989 (Meirihluti Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks) Þór KA Rekstur íþróttasvæðis 471.000,- 474.000,- Leikja og íþróttanámskeið 140.000,- 140.000,- Byggingastyrkur 766.000,- 766.000,- v/Æskulýðsstarfsemi 656.000,- 656.000,- Aðrir styrkir til félaganna* 1.074.000,- 2.241.000,- Samtals 3.110.000,- 4.277.000,- *Aðrir styrkir til félaganna: Þarna eru taldir saman styrkir vegna vélaleigu, byggingagjalda, viðurkenningar fyrir unnin íþróttaafrek, styrkur til KA vegna jöfnunar baðaðstöðu, þar sem Þór hefir aðgang að böðum íþróttahúss Glerárskóla án endurgjalds o.fl.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.