Dagur - 13.06.1990, Side 1
73. árgangur
Akureyri, miövikudagur 13. júní 1990
110. tölublaö
Altt ■fyrir’
errabudin
HAFNARSTRÆTI 92 602 AKUREYRI SlMI 96 26708 BOX 397
Menntaskólanum á Ak-
ureyri slitið í 110. skipti:
Hundrað og
þrettán
setja upp
hvíta kollinn
Nú styttist óðum í skólaslit
Menntaskólans á Akureyri.
Skólanum verður að venju slit-
ið á þjóðhátíðardaginn og
það í 110. skiptið. Skólaslitin
fara fram í Höllinni og hefjast
kl. 10. Gert er ráð fyrir að
skólameistari MA, Jóhann
Sigurjónsson, útskrifi 113 stúd-
enta, sem yrði svipaður fjöldi
og undanfarin ár.
Stúdentsprófum lauk sl. laug-
ardag og reiknað er með að ljúka
endurtekningar- og sjúkrapróf-
um á morgun, fimmtudag. Alls
þreyttu 556 nemendur próf við
MA í vor og að sögn Gunnars
Frímannssonar, aðtoðarskóla-
meistara, hefur árangur úr
þeim prófum, sem þegar eru
Ijós, verið í meðallagi góður.
Það er ljóst að mikið verður
um dýrðir á Akureyri um næstu
helgi í kringum útskrift MA. 25
ára stúdentar frá skólanum hafa
að undanförnu undirbúið heljar-
mikla MA-hátíð sem hefst í Höll-
inni á laugardagskvöld og þar
búast menn við yfir 700 manns í
mat og húllumhæ. -bjb
Mikil hlýindi á
, Norðurlandi:
Afram sunnanátt
Veður var með eindæmum
gott á Norðurlandi í gær og
steig kviksilfur hitamælanna
víða yfir 20 gráðu mörkin.
Samkvæmt upplýsingum
Veðurstofunnar var 20 stiga
hiti á Akureyri kl. 15 og 19
stig á Nautabúi í Skagafiröi
og Grímsstöðum á FjöIIum.
Að sögn Unnar Ólafsdótt-
ur, veðurfræðings, ráða suð-
lægar áttir, með tilheyrandi
hlýindum, ríkjum í dag og að
minnsta kosti fram á föstudag.
Þó má búast við eitthvað skýj-
aðra veðri á morgun og föstu-
dag en í gær. Unnur vildi á
þessu stigi ekki tjá sig mikið
um þjóðhátíðarveðrið á
Norðurlandi að öðru leyti en
því að sfður en svo væri von á
norðanhreti um helgina! óþh
Bæjarstjórn Akureyrar eftir fyrsta fund kjörtímabilsins ■ gær. Fyrir miðri mynd er Halldór Jónsson nýkjörinn
bæjarstjóri. Myncl: KL
Akureyri:
Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjómar
Nýkjörin bæjarstjórn Akureyr-
ar kom í gær saman til fyrsta
fundar eftir kosningar. í upp-
hafi urðu umræður um nýgerð-
an málefnasamning meirihluta-
flokkanna en að þeim loknum
var gengið til kjörs í embætti og
nefndir. Halldór Jónsson var
kjörinn bæjarstjóri með
atkvæðum meirihlutaflokkanna
en Úlfhildur Rögnvaldsdóttir
gerði grein fyrir atkvæðum
minnihlutaflokkanna og sagði
að þeir skiluðu auðu þar sem
meirihlutaflokkarnir hafi tekið
ákvörðun um ráðningu Hall-
dórs án þess að bæjarfulltrúum
Framsóknarflokks og Alþýðu-
flokks hafi verið gefinn kostur á
að fjalla um eða taka þátt í
ráðningu hans. Á engan hátt sé
um ræða vantraust á Halldór í
starfið heldur óski minnihlutinn
honum velfarnaðar í starfi og
vænti góðs samstarfs.
Sigríður Stefánsdóttir var
kjörin forseti bæjarstjórnar út
þetta ár en samkomulag er milli
meirihlutaflokkanna um að
skiptast á um embætti forseta
bæjarstjórnar svo og for-
mennsku í bæjarráði. Björn
Jósef Arnviðarson var kosinn 1.
varaforseti bæjarstjórnar
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir
kosin 2. varaforseti.
Málefnasamningur meirihlut-
ans verður birtur í blaðinu á
morgun, sem og nefndarskipan
bæjarins og úrslit annarra kosn-
inga á fundinum í gær. JÓH
en
var
Kolbeinsey:
Jarðvegssýni tekin í sumar
Engin mælitæki verða sett upp
í Kolbeinsey í sumar af hálfu
Raunvísindastofnunar Háskól-
ans eða Veðurstofu Isiands, en
í þyrlupalli sem steyptur var í
fyrrasumar voru steyptir sér-
stakir skápar sem hýst geta
mælitæki. Einnig nýtist pallur-
inn að sjálfsögðu sem vörn
gegn eyðingu klettsins.
Hermann Guðjónsson vita- og
hafnamálastjóri segir að í júlí
verði farið í Kolbeinsey á varð-
skipi, og gerðar rannsóknir á
dýpi kringum eyjuna, reynt verði
að bora og jafnvel kafa og taka
jarðvegssýni, en uppi eru hug-
myndir um að ástæðan fyrir eyð-
ingu Kolbeinseyjar sé að eitt
jarðvegslagið undir eyjunni veðr-
ist fyrr en önnur.
Páll Einarsson jarðfræðingur
hjá Raunvísindastofnun Háskól-
ans segir að ekkert fjármagn sé til
að stunda rannsóknir í Kolbeins-
ey, en æskilegt væri að staðsetja
þar sjávarhæðarmæli, staðsetning-
armæli og jarðskjálftamæli, en
Kolbeinsey er á svipuðu gosbelti
og Mývatnssveit.
Páll Bergþórsson veðurstofu-
Blönduhlíðin:
Hólkur í stað brotnu brúarinnar
- gamli vegurinn opnaður aftur
Sá kafli vegarins í Blönduhlíð-
inni sem lokað var í vor eftir að
í Ijós kom að brúin á Helluá
var brotin, verður opnaður aft-
ur í vikunni. Vegfarendur
þurfa því ekki lengur að hrist-
ast eftir grófri undirbyggingu
nýja vegarins framhjá þessum
litla kafla.
Undanfarið hefur borið á því
að vegfarendur um Blönduhlíð-
ina væru ekki par ánægðir með
að þurfa að keyra eftir nýja veg-
inum, enda er hann grófur og
leiðinlegur yfirferðar. Vegagerð-
in tók því þá ákvörðun að brjóta
niður brotnu brúna og setja hólk
í hennar stað. Að sögn Einars
Gíslasonar, umdæmistæknifræð-
ings vegagerðinnar á Sauðár-
króki, verður þessi hólkur síðan
rifinn upp aftur þegar nýi kaflinn
kemst í notkun, sem gert er ráð
fyrir að verði seinni partinn í júlí.
Reiknað var með að hleypa um-
ferð á hann fljótlega upp úr
næstu mánaðamótum, en lagn-
ing klæðingar dregst á langinn
svo ákveðið var að opna gamla
vegarkaflann yfir Helluána
aftur. Byrjað var að brjóta niður
brúna í gær svo þeir sem um
Blönduhlíðina fara geta sloppið
við hristinginn sem verið hefur,
áður en vikan er úti. SBG
stjóri segir það nokkurum efið-
leikum háð að koma upp athug-
unartækjum í Kolbeinsey ogþað
yrði að vera sjáífvirk stöð sem
pyldi álag langt umfram meðal-
tal, en áhugi væri á því að mæla
þarna t.d. loftþrýsting, hita og
vindstyrk. GG
Samstarfsnefnd á
N.vestra um atvinnumál
eftir Blönduvirkjunarlok:
Bíður enn
eftir fimdi með
Steingrími
„Við bíðum enn eftir fundi.
Það er svolítið annasamt hjá
honum þessa dagana,“ sagði
Ófeigur Gestsson, bæjarstjóri
á Blönduósi, í samtali við Dag,
og þessi „hann“ er forsætiráð-
herra, Steingrímur Hermanns-
son. Ófeigur er formaður sam-
starfsnefndar heimaaðila á
Norðurlandi vestra um fram-
gang samþykktar ríkisstjórnar
frá 1982 um að treysta atvinnu-
líf í kjördæminu til að koma í
veg fyrir samdrátt á vinnu-
markaði þegar virkjunarfram-
kvæmdum við Blöndu lýkur
1992. Samstarfsnefndin bíður
eftir fundi með Steingrími og
hefur gert um mánaðartíma.
Á meðan beðið er eftir fundi er
verið að safna gögnum hingað og
þangað. í áðurncfndri samstarfs-
nefnd eiga sæti fulltrúar héraðs-
nefnda V.- og A.-Húnvetninga og
Skagfirðinga, Siglufjarðarkaup-
staðar og Iðnþróunarfélags N.-
vestra. Nefndin mun vinna í sam-
vinnu við Byggðastofnun á Akur-
eyri og hefur sent forsætisráð-
herra bréf þar sem fram koma
hugmyndir um framgang málsins.
í bréfinu er m.a. óskað eftir að
fá Áburðarverksmiðjuna í kjör-
dæmið, ef hún verður flutt frá
Gufunesi. „Það er lítið vitað um
hvað verður með verksmiðjuna.
Ný áburðarverksmiðja verður
tæpast gerð án þess að fyrir þá
gömlu komi einhver greiðsla frá
Reykjavíkurborg. Annars hefur
lítið gerst frá því fyrir kosningar
og farið hljótt um verksmiðj-
una,“ sagði Ófeigur.
Ófeigur sagðist vona að fund-
urinn yrði haldinn með Stein-
grími ekki innan of langs tíma.
„Við bíðum ekki endalaust.
Þetta mál verður ekki lagt upp í
hillu og látið rykfalla þar,“ sagði
Ófeigur að lokum. -bjb
Þjónustumiðstöð í Mývatnssveit:
Ný sveitarstjóm í málið
„í þessu máli hefur ekkert
gerst síöan í vetur en Ijóst er að
nokkrir aöilar eru tilbúnir til
samstarfs um þessa byggingu.
Ahugi hjá verslunarmönnum
er þó lítill og því verður að
breyta upphaflegu hugmynd-
inni sem gekk út á að í þessu
húsi yrðu verslanir,“ segir Jón
Pétur Líndal, sveitarstjóri í
Mývatnssveit, um hugmyndir
um byggingu þjónustumið-
stöðvar fyrir ferðamenn í
Reykjahlíð.
Hugmyndir hafa verið uppi um
að í þessari þjónustumiðstöð
verði bankaafgreiðsla, póstaf-
greiðsla, veitinga- og bensínsala,
upplýsingamiðstöð fyrir ferða-
menn og væntanlega aðstaða fyr-
ir Skútustaðahrepp. Undirtektir
frá verslunareigendum voru litlar
en Póstur- og sími, olíufélag og
bankastofnanir sýndu því áhuga
að koma til samstarfs við sveitar-
félagið í þessu máli.
Jón Pétur segir að málið hafi
iegið niðri að undanförnu. Sveit-
arstjórn og Náttúruverndarráð
leggja áherslu á að upplýsinga-
miðstöð fyrir ferðamenn verði í
þessari byggingu, verði hún reist.
Jón Pétur segist eiga von á að
fljótlega verði aftur hafin vinna
að þessu máli og endurskoðun á
formi þessarar miðstöðvar í ljósi
þess áhuga sem aðilar hafa sýnt
málinu. Ný sveitarstjórn muni
væntanlega móta stefnuna í mál-
inu og hennar verði að ákveða
hvernig að framhaldinu verður
staðið. JÓH