Dagur - 13.06.1990, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 13. júní 1990
fréttir
Hótel Blönduós:
Ekki of gott hljóð í okkur“
„Vertíðin er svona að byrja,
það sem af er höfum við aðeins
orðið vör við erlenda ferða-
menn,“ sagði Hlíf Heiðars-
dóttir, hótelstýra á Hótel
Blönduósi, í samtali við
blaðið, aðspurð um upphaf
ferðamannatímans. Að sögn
Hlífar eru sæmilegar horfur
með bókanir í sumar. „Það er
kannski ekki of gott hljóð í
okkur, enda er það sjálfsagt
aldrei. Auðvitað vill maður
alltaf meira,“ sagði Hlíf, sem
tók við Hótel Blönduósi um
iniðjan apríl sl.
Síðasta sumar kom ekki of vel
út hjá Hótel Blönduósi og spilaði
þar m.a. inn í ófærð á hálendinu
lengi fram eftir sumri. Sökum
ófærðarinnar var ekki hægt að
fara með nokkra hópa erlendra
ferðamanna sem voru skráðir á
hótelið fyrri part og mitt síðasta
sumar. Hlíf sagðist vonast eftir
betri tíð á hálendinu í sumar, þar
sem Hótel Blönduós hefur reitt
sig á erlenda ferðamcnn undan-
segir Hlíf Heiðarsdóttir, nýráðin hótelstýra
farin ár. Aðspurð sagði Hlíf að
eitthvað hafi verið um innlenda
ferðamenn í sumar, en lítið sé
vitað fyrirfram um komur þeirra.
Helstu breytingar fyrir þetta
sumar á Hótel Blönduósi er að
eldhúsið hefur verið tekið í gegn
og byggt upp á nýtt. „Aðal kraft-
urinn hefur farið í eldhúsið frá
því ég byrjaði. Það er ætlunin að
koma út kynningarbæklingi um
hóteliö, sem ekki hefur tekist síð-
ustu ár, og þá jafnvel í samvinnu
við kaupfélagið og bæjaryfirvöld
þar sem fram komi hvað í boði er
fyrir þá sem heimsækja Blöndu-
ós,“ sagði Hlíf að lokum. -bjb
Landgræðsluskógar 1990:
Ólafsfirðingar gróðursetja 12 þúsund plöntur
Um 12.000 trjáplöntur verða
gróðursettar í landi Olafsfjarð-
arkaupstaðar í þessari viku, en
það er hluti af skógræktarátak-
inu „Landgræðsluskógar 1990“,
Sérleyfisbflar Akureyrar:
Óvenju mikið bókað
„Hljóðið í mönnum er mjög
gott varðandi sumarið. Það
er mikið bókað,“ sagði
Gunnar M. Guömundsson,
framkvæmdastjóri Sérleyfis-
bíla Akureyrar.
„Það er mjög mikið bókað í
auglýstar skipulagðar hópferð-
ir. Nú er búið að skrá niður
fleiri en komu í þessar ferðir í
allt fyrrasumar,“ sagði Gunnar.
Erlendir ferðamenn eru í
miklum meirihluta þeirra sem
bókað hafa í þessar hópferðir.
Gunnar sagði að ferðirnar væru
fjölbreyttar. Um væri að ræða
hálendisferðir, hringferðir og
styttri ferðir á láglendi.
Áætlun Sérleyfisbíla Akur-
eyrar er með sama sniði og í
fyrra. Daglegar áætlunarferðir
eru austur í Mývatnssveit og
áfram austur á Egilsstaði og í
júlí og ágúst bætast við sérstakar
ferðir í Mývatnssveit. Þá er far-
ið að morgni bæði frá Mývatns-
sveit og Akureyri. Einnig er yfir
hásumarið boðið upp á hring-
ferð um Mývatnssveit með leið-
sögumanni óþh
Akureyri - Dalvík - Ólafsfjörður
Sérleyfishafi Ævar Klemenzson Dalvík
SUMARÁÆTLUIM
1. júnl - 30. júní:
M
M
Frá Ólafsfirði til Akureyrar Frá Akureyri tii Ólafsfjarðar Frá Akureyri til Ólafsfjarðar 11.00 08 00 15.30 08.30 12.30 08.30 12.30 11.00 08.00 15.30
1. júní - 30. júní:
Frá Dalvík til Akureyrar 11.30 09.00 09.00 09.00 11.30
Frá Akureyri til Dalvíkur 08.00 12.30 12.30 12.30 08.00
Frá Akureyri til Dalvíkur 15.30 15.30
1. júní - 30. júní:
Frá Litla-Árskógssandi til Akureyrar 11.45 09.00 11.45
Frá Akureyri til Litla-Árskógssands 15.30 12.30 12.30 12 30 15.30
1. júlí - 31. ágúst:
Frá Ólafsfirði 11.00 08.30 08.30 08.30 11.00
Frá Ólafsfirði 15.30
Frá Dalvík 11.30 09.00 09.00 09.00 11.30
Frá Dalvík 20.00 16.00 20.00
Frá Litla- Árskógssandi 11.45 09.15 11.45
Frá Akureyri 0800 12 30 12.30 12.30 08 00
Frá Akureyri 15 30 17.45 15.30
Breytingar geta orðið et terðir til Grímseyjar breytast
Vörumóttaka til Grímseyjar, Hríseyjar, Dalvíkur og Ólafsfjarðar
í Umferðarmiðstöðinni Akureyri alla virka daga kl. 9.00 -17.00
Afgreiðsla Akureyri:
Umferðamiöstöðin
Hafnarstræti 82
Sími: 24442
Afgreiðsla Dalvik:
Ævar og Bóas sf.
Símar: 61124,61654
og 61597
en alls verða um 30.000 trjá-
plöntur gróðursettar þar í
sumar.
Að sögn Þorsteins Björnssonar
bæjartæknifræðings hjá Ólafs-
fjarðarbæ fóru flokkstjórar hjá
Vinnuskólanum í nám hjá Skóg-
ræktarfélagi Eyfirðinga í síðustu
viku til að læra réttu handtökin
við gróðursetninguria. í sumar
verðpr bæjarlandið, girt af með
rafmagnsgirðingu til að verjast
ágangi búfjár og vernda m.a.
trjágróður, og einnig verður
svæði Hitaveitu Ólafsfjarðar sem
er skammt neðan golfvallarins
norðan við Ólafsfjarðarvatn girt.
Á svæði hitaveitunnar er fyrir-
hugað að hluti af trjáplöntunum
verði settur niður.
Vinnuskólinn hefur starfsem-
ina í vikunni með hefðbundnum
vorverkum, þ.e. garðsnyrtingu,
slætti og hreinsun og fegrun á
umhverfinu, en allir þeir ungling-
ar sem sótt hafa um vinnu þar fá
hana a.m.k. mestan hluta sum-
arsins. Hjá Hraðfrystihúsi Ólafs-
fjarðar verða 25 unglingar sem ná
16 ára aldri á þessu ári ráðnir til
vinnu í sumar, en húsinu verður
íokað í júlímánuði vegna sumar-
leyfa.
í júlímánuði verður hins vegar'
unnið á vöktum í rækjuverk-
smiðjunni og fá unglingarnir
vinnu þar, svo sumarvinnan hjá
þeim ætti að verða nokkuð sam-
felld. GG
Norðurland vestra:
Gróður um viku á undan
- byrjað að slá um 20. júní
Sumarið hefur byrjað vel á
Norðurlandi vestra í ár. Gróð-
ur er að mati bænda um viku á
undan miðað við síðastliðin ár.
Bæði í Skagafirði og Húna-
vatnssýslum eru menn að verða
búnir að bera á tún sín og reikna
sumir með því að geta hafið slátt
upp úr 20. þessa mánaðar.
Gróðrartíð hefur verið með ólík-
indum það sem af er og grasið
vaðið upp. Úthagi er víðast hvar
orðinn grænn og eru menn farnir
að sleppa fénu í hann.
Sauðburður hefur gengið vel,
enda tíðarfarið verið eins og best
verður á kosið. Þeir bændur sem
Dagur hafði samband við töldu
að frjósemi hefði verið á svipuð-
um nótum og vanalega, þó sagði
Örn Þórarinsson á Ökrum í
Fljótum að þar í sveit hefði hún
verið með allra rnesta móti. Örn
tjáði Degi einnig að snjór væri
þar að mestu leyti horfinn, all-
tjent af túnum og myndu Fljóta-
menn geta farið að bera á bráð-
lega. En eins og alþjóð veit þá
var snjór mikill í Fljótunum á
liðnum vetri og þar sem ekki hef-
ur komið veruleg hláka, er hann
bara að hverfa núna.
Um ástand á afrétt sögðu
bændur að snjór væri þar óðum
að hverfa, en ekki myndi vera
farið að sleppa á fjall fyrr en í
fyrsta lagi um mánaðamót. SBG
Innlendar kartöflur búnar á Norðurlandi:
Lítill verömunur á
innfluttum kartöflum
- kílóverð 85-90 krónur
Mikil eftirspurn er eftir inn-
fluttum kartöflum um þessar
mundir, því innlendar birgðir
eru á þrotum á Norðurlandi.
Þó á Kjörland hf. eftir góðar
rauðar kartöflur.
Heildsöluverð á innfluttu kart-
öflunum er svipað hjá tveimur
aðilum sem Dagur ræddi við.
Kjörland hf. býður þýskar kart-
öflur á um 90 kr. hvert kg, en
Öngull hf. portúgalskar á 85 kr.
kílóið.
„Við erum með mjög góðar
nýuppteknar portúgalskar kart-
öflur, fluttar inn gegnum Hol-
land,“ segir Valdimar Sigurgeirs-
son hjá Óngli hf.
Helgi Sigfússon hjá Kjörlandi
hf. segir að þeir bjóði nýjar þýsk-
ar kartöflur. „Við leitum eftir því
nýjasta á hverjum tíma, og það
endurspeglast í verðinu. Nú eru
nýjustu kartöflurnar á markaðin-
um frá Þýskalandi,“ segir Helgi.
EHB
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
■ Bygginganefnd hefur sam-
þykkt erindi frá Vilhelm
Ágústssyni, f.h. Hölds sf.
Tryggvabraut 12 á Akureyri,
um að reisa yfirbyggða vöru-
fiýningarpalla við Essö-nestin
á sumrin.
■ Á fundi hafnarstjórnar 16.
maí sl. var samþykkt erindi frá
Sjósporti hf. um starfrækslu
sjósleðaleigu á Pollinum. Hins
vegar hafnaði hafnarstjórn
erindi frá Friðbirni Níelssyni
um leyfi til reksturs vatna-
þotuleigu í Akureyrarhöfn í
sumar á þeim forsendum að
hafnarsvæðið leyfi ekki meiri
umferð sjósleða en verið
hefur.
■ Skólanefnd hefur sam-
þykkt að endursetja Úlfar
Björnsson í stöðu yfirkennára
víð Glerárskóla næsta skólaár.
Þá samþvkkti skólaneiud aö
endursetja Birgittu Guðjóris-"'
dóttur og Róshildi Sigtryggs-
dóttur í stöður kennara við
Barnaskóla Akureyrar. Enn-
fremur samþykkti skólanefnd
urnsókn Maríu Steingríms-
dóttur um skipun í kennara-
stöðu við Barnaskóla Akur-
eyrar og umsókn Mörtu Aðal-
heiðar Hinriksdóttur unt skip-
un í kennarastöðu við Síðu-
skóla.
■ Skólanefnd hefur sam-
þykkt að veita Ólafi B. Thor-
oddsen fulla stöðu við Síðu-
skóla og Svanhildi Skúladóttur
hálfa stöðu við Barnaskóla
Akureyrar.
■ Roar Kvam hefur verið
ráðinn skólastjóri Tónlistar-
skóla Akureyrar næsta skólaár
og Margrét Bóasdóttir yfir-
kennari við skólann.
■ Guðný E. Guðmundsson,
píanókennari, qg Sveinn Sig-
urbjörnsson, trompetkennari,
hafa verið ráðin í fullar stöður
við Tónlistarskólann frá og
með 1. ágúst nk. Þá hefur Jón
Rafnsson verið ráðinn í hálfa
stöðu við forskóla- og píanó-
kennslu.
■ Sigurlína Jónsdóttir og
Michael J. Clarke verða í
launalausu leyfi frá Tónlistar-
skóla Akureyrar næsta skóla-
ár.
■ Þrír lausráðnir kennarar
hafa verið endurráðnir við
Tónlistarskólann næsta skóla-
ár, Björn Steinar Sólbergsson
í 40% stöðu, Karl Petersen í
100% stöðu og_ Christopher
Thornton í 100% stöðu. Hins
vegar munu fjórir kennarar
láta af störfum við skólann
næsta skólaár, Atli Guðlaugs-
son, Nigel Liilicrap, Norman
H. Dennis og Robert Thomas.
■ Bæjarráð hefur samþykkt
11 milljóna króna fjárveitingu
til byggingaframkvæmda við
VMA. I ljósi þessarar fjárveit-
ingar hefur bygginganefnd
VMA samþykkt að Ijrika við
6. áfanga skólans og þar verði
gert ráð fyrir félagsaðstöðu
nemenda á meðan austurhluti
5. áfanga er ekki nothæfur.