Dagur - 13.06.1990, Síða 5

Dagur - 13.06.1990, Síða 5
Miðvikudagur 13. júní 1990 - DAGUR - 5 Alice J. Sigurðsson: Er um líf eða dauða að tefla? Um þessar mundir hafa íslend- ingar þungar áhyggjur af mengun sjávar og ekki að ófyrirsynju: Hafið er lífgjafi þjóðarinnar. En hvað um mengun lands og lofts? Getum við treyst því, að 200 þús- und tonna álver í Eyjafirði hafi enga mengun í för með sér? Ef illa færi, væri það þá í stakasta lagi, bara af því að margir vilja trúa því, að stóriðja leysi vand- ann í efnahagsmálum Eyfirðinga til langframa, - að um líf eða dauða sé að tefla hvað varðar lífsafkomu fólksins í þessu búsældarlega héraði. Mér er það enn í fersku minni, þegar um það var rætt fyrir fáein- um árum, að kanadíska álfélagið ALCAN reisti verksmiðju við Eyjafjörð. Ýmsum hraus þó hug- ur við þeirri hugmynd. ALCAN bauð þá allmörgum framámönn- um Akureyrar og nágrennis vest- ur um haf til þess að skoða eitt af álverum sínum Quebec-fylki, - að þeir gætu séð með eigin aug- um, hversu vel væri þar á öllum mengunarvörnum haldið. Ferðin þótti takast vel. Flestum ferða- langanna leist ágætlega á það, sem fyrir augu þeirra bar: Álver í blómlegum byggðum, búpening- ur á beit á næstu grösum við stór- iðjuna. Ég man ekki betur en sumum þeirra, sem verið höfðu tortryggnir gagnvart álvershug- myndinni, hafi hreinlega snúist hugur í ferðinni og fengið trú á því, að öllu væri óhætt, þótt í stóriðjuframkvæmdir yrði ráðist hér í firðinum. En öflugar mengunarvarnir kosta mikla peninga og reynast því miður sjaldan pottþéttar. Þrátt fyrir fögur fyrirheit um hreina og ómengaða starfsemi, virðast stóriðjuverin, hverju nafni sem þau nefnast, halda áfram að eitra út frá sér. Um það má lesa umhugsunarverðan vitn- isburð í nýjasta hefti af Internat- ional Wildlife, sem gefið er út af National Wildlife Federation í Bandaríkjunum. Það er eitthvert virtasta og vandaðasta tímarit um náttúruvernd og umhverfismál í heiminum. Frásögn mína hér á eftir byggi ég á grein í þessu tímariti. Fyrir um það bil einum áratug fór að bera á því, að dauða hvali, einkum miðaldra, ræki á land við ósa St. Lawrence-fljótsins í Kan- ada. Voru brátt mikil brögð að þessu og málíð sannkölluð ráð- gáta. Árið 1982 hóf National Insti- tute of Ecotoxicology (eins konar Hollustuvernd ríkisins þar vestra) rannsókn á hræjum hval- anna. Komust vísindamennirnir brátt að raun um, að hvalirnir höfðu þjáðst og líklega drepist af völdum margvíslegra mein- semda. Nefna þeir lifrarbólgu, krabbamein í nýrum, lungna- bólgu, illkynjuð kýli og æxli í lungum, banvæn magasár og alvarlegar heilaskemmdir. Allt sjúkdómar, sem eins vel gætu hrjáð mannfólk sem hvali. Einn hvalanna var meira að segja með krabbamein í þvagblöðru, sjúk- lega á það sem fyrir augu þeirra bar: Álver í blómlegum byggðum, bú- peningur á beit á næstu grösum við StÓriðjuna.“ Teikning: Alice dómur, sem aldrei áður hafði fundist í hvölum en er ekki óal- gengur hjá verkamönnum í ALCAN-álbræðslu um 100 km ofar við fljótið. í hvölunum fundu vísinda- mennirnir mikið af eitruðum efnasamböndum, m.a. ósköpin öll af svokölluðum fjölhringa arómatískum kolvetnissambönd- um, oft nefndum PAH, (skamm- stöfun á enska heitinu: polycyclic aromatic hydrocarbon). Um 600 tonn af þessum baneitruðu efna- samböndum berast til lofts úr reykháfum ALCAN-álversins í Arvidahéraðinu við St. Lawr- encefljótið. Vísindamönnunum datt nú í hug að rannsaka heilsu- far verkafólksins, sem vann í nábýli við þessi efni. Niðurstaða rannsóknanna reyndist uggvæn- leg. Rúmlega 100 fyrrverandi og núverandi starfsmenn ALCAN- álversins í Arvida þjáðust af krabbameini í þvagblöðru. Þótti líklegast, að um atvinnusjúkdóm væri að ræða af völdum PAH- efnasambandanna í umhverfi verkamannanna, enda kom í ljós við víðtækari athugun, að slíkt krabbamein er unt 60% algeng- Útgáfufyrirtækið Forskot: The Icelanders komin út Hjá útgáfufyrirtækinu For- skoti er komin út bókin The Icelanders eftir Sigurð A. Magnússon, rithöfund. For- mála ritar forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir. í bók sinni Icelanders eða íslendingar dregur Sigurður upp skemmtilega mynd af landi og þjóð. Sein dænti skrifar Sigurður um hestamennsku, ásatrú, kvennahreyfingar, yfirnáttúruleg efni, ntenninguna, matinn, lífið í Grímsey, arfleifð víkinganna, skák, sérkenni íslenskrar tungu og fjölda margt annað á 400 blað- síðum í 23 köflum. Bókin er í alla staði vönduð. Auk textans prýðir bókina fjöldi Ijóstnynda sem flestar eru teknar af Einari Ólasyni, núverandi ljósmyndara á Pressunni og áður ljósmyndara á Þjóðviljanum og DV. ara í Arvidahéraðinu heldur en í nokkru öðru byggðarlagi í Que- bec-fylki. ALCAN-fyrirtækið véfengir þessar niðurstöður, telur, að eng- ar sönnur hafi verið færðar á það, að PAH-útblásturinn úr verk- smiðjum þeirra hafi komist inn í vistkerfið á St. Lawrence-svæð- inu og valið mönnum og hvölum heilsutjóni. Það segir þó sína sögu, að ALCAN hefur gengist undir að kosta rannsóknirnar á hvölunum að einum þriðja, jafn- framt því sem samsteypan hefur heitið að draga smám saman úr útblæstri eiturefnasambandanna og að hafa útilokað þá mengun til fullnustu árið 2015. Fyrir tveimur árum setti Kan- adaþing stranga löggjöf um með- ferð PAH-efnasambanda til þess að koma í veg fyrir mengun af þeirra völdum. Þrátt fyrir þung viðurlög, ef út af er brugðið, líð- ur áreiðanlega langur tími, uns jákvæðum árangri er náð. Eigi að síður mun Kanada vera fyrsta ríkið í heiminum, sem setur strangar reglur um meðferð þess- ara varasöntu PAH-efnasam- banda. Spor í rétta átt, en skyldi þá nokkuð vera að gerast í þess- um efnum í öðrum löndum? Stóriðja getur verið dýru verði keypt og stundum hreinlega verið um líf eða dauða að tefla. Alice J. Sigurðsson. Höfundur er húsmóöir á Akureyri. Hcimild: Wendy Penneld: Message from the Belugas. International Wildlifc, maí-júní 1990. A VERÐBRÉFA- MARKAÐNUM 13. JÚNÍ '90 HUSBRÉF Kaupum og seljum húsbréf og veitum hverskonar ráðgjöf varðandi viðskipti með húsbréf. Sölugengi verðbréfa þann 1 3. júní. Einingabréf 1 4.914,- Einingabréf 2 2.682,- Einingabréf 3 3.238,- Skammtímabréf 1 ,664 ; NORÐURLANDS HF Ráðhústorgi 1 • Akureyri Sími 96-24700 ___________________ LAUNAGREIÐENDUR \ EINDAGI STAÐGREIÐSLUFJÁR ER 15. HVERS MÁNAÐAR Launagreiðendum ber að skila afdreginni staðgreiðslu af launum og reiknuðu endurgjaldi í hverjum mánuði. Með gírókerfi staðgreiðslu er unnt að greiða í öllum bönkum, sparisjóðum og pósthúsum. Eindagi staðgreiðslufjár er 15. hvers mánaðar. Munið að gera skil tímanlega! RSK RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.