Dagur - 15.06.1990, Page 1

Dagur - 15.06.1990, Page 1
73. árgangur Akureyri, föstudagur 15. júní 1990 112. tölublað Stúdentastjörnur 14 kt. gull Einnig stúdentarammar og fjölbreytt úrval annarra stúdentagjafa GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI Siglufjörður: Slysavarnarskóli sjómanna hefur hald- ið fjölmörg námskeið fyrir sjómenn á Akureyri að undanförnu og hefur skólaskipið Sæbjörg komið í góðar þarfii'. I gær var m.a. verið að æfa björgun úr sjó með þyrlu. Myndir: ehb Þjóðhátíðarsjóður styrkir væntanlegt sfldarminjasafn u iM Þjóðhátíðarsjóður veitti Félagi áhugamanna um minjasafn á Siglufírði nýlega styrk að upp- hæð 245 þúsund kr. til að koma upp minjasafni um síld- arævintýrið. Þetta var þriðji hæsti styrkurinn sem sjóðurinn veitti í ár. Félag áhugamanna um minja- safn var stofnað sl. haust og eru félagar um 60 á Siglufirði, en einnig er Siglfirðingafélagið í Reykjavík að safna félögum. Félagið sótti um fimmtánhundr- uð þúsund króna styrk til Þjóð- hátíðarsjóðs til endurbóta á Róaldsbragga sem er norskt hús eða síldarbraggi sem fluttur var inn og reistur á Siglufirði árið 1906 af Eliasi Roald og var sérstaklega notaður sem íbúðarhús fyrir verkafólk á síldarvertíðinni. Sjálfsbjörg hefur búið við „rugl“ og rangar prfestingar: Ætla að stokka reksturinn upp og það er ekkert heflagt fyrir mér“ - segir Ásgeir Pétur Ásgeirsson, nýr formaður félagsins Fjárhagsstaða Sjálfsbjargar, félags fatlaðra á Akureyri og nágrenni, hefur verið afar slæm en nýkjörinn formaður félagsins, Ásgeir Pétur Ásgeirsson, hyggst grípa til róttækra aðgerða og freista þess að leysa þetta vandamál. Hann segir að Sjálfsbjörg verði að setja í bakkgír og mikilvæg- asta verkefnið sé að bregða réttskeið á fjárhagshallann. „Sjálfsbjörg hefur rekið vernd- aðan vinnustað en ekki í sam- ræmi við lög þar að lútandi og félagið hefur borið tapið af þess- um rekstri. Ríkið hefur tekið þátt í tapinu að hluta en félagið hefur þurft að axla það með aukinni skuldsetningu. Þetta þarf að stokka upp,“ sagði Ásgeir Pétur. Með uppstokkun sagðist hann m.a. eiga við að nauðsynlegt væri að reka fyrirtæki Sjálfsbjargar eins og hvert annað fyrirtæki og að ekkert væri heilagt í þeim efnum. Hann talaði um offjárfestingar síðustu ára, rangar fjárfestingar og minntist á „rugl“ í því sam- bandi. Þetta þyrfti núverandi stjórn Sjálfsbjargar að horfast í augu við og það væri Ijóst að frekari uppbygging kæmi ekki til greina heldur yrðu menn að setja í bakkgír. Veggboltinn er nú endanlega liðinn undir lok á Bjargi. Gengið hefur verið frá samningi við Akureyrarbæ um leigu á húsinu sem íþróttahúsi og Asgeir Pétur sagði að ætlunin væri að leigja það sem almennt íþróttahús fyrir félög og einstaklinga þann tíma sem það væri ekki í notkun á veg- um bæjarins. „Við höfum lent í röð af mistökum. Ein mistökin voru kannski þau að byggja ekki sund- laug við Bjarg á sínum tíma og nota hana sem kennslulaug. En ég ætla að beita mér fyrir því að stokka reksturinn upp og það er ekkert heilagt fyrir mér í þeim efnum, engar heilagar kýr. Það verður ekki hjá því komist að líta kalt á stöðuna eins og hún er og taka á málunum," sagði Ásgeir Pétur. SS Húsið var reist á bryggju, en er nú orðið fyrir skipulaginu og því nauðsynlegt að færa það um set um 20 til 30 metra og endur- byggja það. Hugmyndin er að nýta húsið sem safn auk þess sem luisið sjálft verður hluti af safn- inu, en fyrir um 15 árum fór fram mikil söfnun á síldarminjum og uppi voru háleit markmið um síldarminjasafn, en því verki 'stjórnaði Frosti Jóhannsson þjóðháttafræðingur. Mununum var komið fyrir í Róaldsbragga og skemrnu þar skammt frá og hafa verið þar, en sl. 10 ár hefur lítið sem ekkert verið aðhafst í málinu og munirn- ir legið undir skemmdum, auk þess sem ferðamenn hafa stund- um tekið með sér muni í leyfis- leýsi. Síldarútvegsnefnd hefur lánað gamalt íbúðarhúsnæði endurgjaldslaust til geymslu á munum a.m.k. á meðan á flutn- ingi Róaldsbragga stendur. Sótt hefur verið um styrk úr Húsfriðunarsjóði og verður umsóknin væntanlega afgreidd í haust, en einnig hefur Siglfirð- ingafélagið í Reykjavík gefið félaginu 200 þúsund krónur og gefin hafa verið út jólakort í ágóðaskyni, en til ráðstöfunar í dag er um ein milljón króna. Orlygur Kristfinnsson formað- ur félagsins segist gera ráð fyrir því að það taki a.m.k. 10 ár að koma síldarminjasafninu í það horf sem stefnt sé að, en styrkur Þjóðhátíðarsjóðs sé mjög mikils virði, ekki síst sá stuðningur og skilningur á mikilvægi málsins sem forráðamenn Þjóðhátíðar- sjóðs sýni, en þetta er þriðja hæsta styrkveiting sjóðsins í ár. GG HöfsÓS: Heitið á Harald í rúminu - nýstárleg áheitasöfnun ungmennafélagsins Neista Norræna tónlistarhátíðin í Ríga: 1800 manns á einleiks- tónleikum Bjöms Steinars Óhætt er aö fullyrða að Björn Steinar Sólbergsson, organisti Akureyrarkirkju og stjórnandi Kórs Akureyrarkirkju, hafí slegið eftirni innilega í gegn á norrænni tónlistarhátíð í Ríga í Lettlandi í vikunni. Hvorki fleiri né færri en 1800 manns komu á einleikstónieika hans si. þriðjudag og fékk hann mjög góðar viðtökur áheyr- enda. Norræna tónlistarhátíðin cr nú haldin í þriðja skipti og er Björn Steinar eini fulltrúi Islands að þessu sinni. Ásamt honurn spil- uðu á hátíðinni organistar frá hinum Norðurlöndunum. Á tónleikunum í dómkirkjunni í Ríga sl. þriðjudag, sem stóðu í tvær klukkustundir, spilaði Björn Steinar tónlist eftir gamla snill- inga eins og Bach svo og íslenska tónlist. Flutningnum var afar vel tekið. Síðastliðinn miðvikudag voru síðan aðrir tónleikar í Ríga þar sem organistarnir spiluðu allir. Á þeim tónleikum spilaði Björn Steinar eingöngu íslenska tónlist, m.a. eftir Pál ísólfsson og Jón Hlöðver Áskelsson. Björn Steinar er væntanlegur til landsins í dag frá Lettlandi. óþh Farnar hafa verið ýmsar leiðir til áheitasöfnunar og flest búið að gera til að afla fjár með því móti. Ungmennafélagið Neisti á Hofsósi fann þó upp nýja aðferð. Á 17. júní ætla þeir að halda á rúmi um 22ja km leið og í rúminu verður Haraldur Þór Jóhannesson bóndi í Enni í Viðvíkursveit og réttarstjóri Laufskálaréttar. Hugmyndin að þessari göngu kom upp í vetur þegar Neista- menn fóru að velta fyrir sér hvað hægt væri að gera til fjáröflunar. Ekki þótti frumlegt að sparka á milli sín bolta langar leiðir svo úr varð að fá einn af dyggustu stuðningsmönnum félagsins, hann Harald, til að ferðast með þeim í rúmi frá heimili sínu. Gamall og traustur járnbeddi var valinn sem burðarrúm og mun Haraldur geta setið uppréttur í honum með alls kyns þægindi. Að „Ég lét undan miklum þrýstingi frá þcim í ungmennafclaginu,“ segir Haraldur réttarstjóri Jóhannesson. sjálfsögðu verður farsími með í förinni svo Haraldur geti tekið á móti áheitum meðan á torinni stendur og er númerið 985-21744. Áætlað er að leggja af stað frá Enni klukkan 8.00 og hefja síðan hátíðardagskrána á Hofsósi á því að marséra með þessa hálfgerðu skrúðgöngu inn í bæinn á milli klukkan 13 og 14. Dagur hafði samband við Har- ald og spurði hann hvernig þetta legðist í hann og hvort hann hefði ekki verið tregur til þessarar farar. „Ég lét undan miklum þrýst- ingi frá þeim í ungmennafélaginu og ákvað að taka þátt í þessu og það leggst bara ágætlega í mig. Þeir bjóða mér alls konar þægindi og hafa meira að segja boðist til að koma með farkostinn hingað á laugardagskvöldið svo ég þurfi ekki að skipta um rúm svona snemma á sunnudeginum." SBG

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.