Dagur - 15.06.1990, Page 3
Föstudagur 15. júní 1990 - DAGUR - 3
fréffir
Hólmavík:
Mikil afmælishátíð í lokjúlí
- 100 ára verslunarafmæli Hólmavíkur
fagnað með „Landsmóti gleðimanna“
3. janúar sl. voru liðin 100 ár
frá því að Hólmavík öðlaðist
verslunarréttindi. Til að minn-
ast þessara tímamóta ákvað
sveitarstjórnin að fagna þess-
um tímamótum með mikilli
hátíð sem fram fer dagana 28.
og 29. júlí nk.
A miðvikudaginn kom formað-
ur afmælisnefndar ásamt sveitar-
stjóra og hluta sveitarstjórnar til
Akureyrar í þeim tilgangi að
velja sérstakan afmælismjöð sem
Sana hf. mun brugga fyrir hátíð-
ina, og smakka á rækjupylsum og
rúsínupylsum sem Kjötiðnaðar-
stöð KEA mun framleiða sér-
staklega fyrir hátíðina. Má því
með sanni segja að þar sé m.a. á
ferðinni rúsínan í pylsuendanum.
Afmælismjöðurinn var valinn
mjög lýðræðislega, en um þrjár
tegundir var að ræða og greiddu
smakkararnir þeim atkvæði í
leynilegri kosningu. í þeirri
atkvæðagreiðslu tóku einnig þátt
fulltrúar frá Raufarhöfn, en hluti
af hátíðarhöldunum er að
Hólmavík og Raufarhöfn tengj-
ast vinabæjaböndum.
Örn Ingi myndlistarmaður er
hugmyndasmiður hátíðarinnar,
og hann kallar afmælishátíðina
landsmót gleðimanna, og hvetur
alla sem ánægju hafa af mannleg-
um samskiptum og hæfilegu
gamni að fjölmenna, enda ætti
náttúrufegurð Stranda ekki að
skemma fyrir. T.d. verður boðið
upp á þá þjónustu, að þeir sem
verða í giftingarhugleiðingum
mæta á svið og ganga í það
heilaga frammi fyrir áhorfenda-
skaranum, brúðhjónin verða síð-
an leyst út með brúðargjöfum.
Fimm listmálarar munu ganga
um svæðið í hálfan mánuð fyrir
hátíðina og túlka náttúru og
mannlíf, og síðan verður sölusýn-
ing á verkum þeirra. Listmálar-
arnir eru Hörður Jörundsson,
Rut Rebekka Sigurjónsdóttir,
Ingvar Þorvaldsson, Hringur
Jóhannesson og Erla B. Axels-
dóttir.
Unglingar frá Hólmavík og
Raufarhöfn munu hlaupa með
fjörugrjót frá sínum heimabyggð-
um og mætast í Jónasarlundi í
Öxnadal og skella þeim þar tákn-
rænt saman, en síðan fara gest-
irnir áfram vestur og á fimmtu-
dagskvöldið verður móttaka fyrir
þá sem hefst með kvöldvöku og
varðeldi. Svarist verður í fóst-
bræðralag, gestirnir sjá um kynn-
ingu á Raufarhöfn í staðarút-
varpinu og haldinn verður sam-
eiginlegur hreppsnefndarfundur,
en niðurstöður hans verða kynnt-
ar í útvarpinu.
I tengslum við hátíðina keinur
út bók um verslunarstaðinn
Hólmavík sem Óli E. Björnsson
hefur skrifað í tómstundum, og
afhjúpaður verður minnisvarði
um Stefán frá Hvítadal. Hann er
settur saman úr bergdröngum, og
í honum lágmynd af Stefáni gerð
af Tryggva Magnússyni. Minn-
isvarðinn verður afhjúpaður af
börnum Stefáns frá Hvítadal.
Formaður afmælisnefndar er
Björk Jóhannsdóttir, og segir
hún að allir gestir muni finna
eitthvað við sitt hæfi þessa
afmælisdaga á Hólmavík.
Grásleppuveiði:
Samningar gerðir um sölu
3500 tunna til Þýskalands
Gerður hefur verið samningur
um sölu á 3500 tunnum af
grásleppuhrognum til V.-
Þýskalands, og er lágmarks-
viðmiðunarverð 900 v.-þýsk
mörk eða um 31.500 krónur,
en var í fyrra 1100 v.-þýsk
mörk eða um 38.500 krónur.
Verðlag innanlands hefur hins
vegar verið gefið frjálst af
Verðlagsráði, en íslenskar
verksmiðjur munu greiða tæp-
ar 25.000 krónur fyrir hverja
tunnu.
Helstu kaupendur hér innan-
lands eru Niðursuðuverksmiðja
K. Jónssonar & Co hf. á Akur-
eyri, Ora hf. í Kópavogi og Björg
hf. í Stykkishólmi. Hrognin eru
söltuð og lituð og lögð í krukkur
sem kavíar sem fer síðan á mark-
að í Þýskalandi og Frakklandi.
Veiðin nú í vor er aðeins um
helmingur þess sem hún var í
fyrra, enda stunda færri þessar
veiðar nú vegna lækkandi verð-
lags og þokkalegs verðs á þorski.
Hér norðanlands eru grásleppu-
veiðar aðallega stundaðar frá
Siglufirði, Ólafsfirði, Hrísey og
Grenivík en veiðisvæðirt eru
annars vegar frá Skagatá að Hvít-
ingum, en þar lýkur veiðitíman-
um 20. júní, og hins vegar frá
Skagatá að Horni en þar lýkur
veiðitímanum 1. júlí. Á veiði-
svæði frá Horni og suður úr lýkur
veiðitímanum hins vegar ekki
fyrr en 20. júlí. Flestir þeirra sem
hófu veiðar í vor hér norðanlands
hafa tekið upp netin.
Örn Pálsson framkvæmdastjóri
Landssambands smábátaeigenda
segir sterkar líkur á því að grá-
sleppuveiðin dragist enn meira
saman á næsta ári, og svo hafa
sjómenn alfarið farið eftir þeim
tilmælum Landssambandsins að
hefja ekki veiðar nenia fyrir liggi
samningur um sölu á hrognun-
um, en í fyrra fór veiðin talsvert
fram yfir það magn sem búið var
að gera sölusamninga um, en tek-
ist hefur að selja þær birgðir að
mestu. GG
Bragi Árnason, prófessor:
Vetnisframleiðsla raunhæfur kostur
til að draga úr koltvísýringsmengun
Húsavík:
Bæjarmála-
punktar
■ Bæjarráð hefur samþykkt
að ráða Gerði Gísladóttur og
Elínu Hildi Jónsdóttur fóstrur
í fullt starf við Bestabæ frá 1.
júní sl..
■ Bæjarráð samþykkti nýver-
ið 70 þúsund króna styrk til
dagvistarstjóra vegna ferðar á
ráðstefnu í Finnlandi.
■ Bæjarráð hefur fallist á að
veita Léttsveit Húsavíkur og
söngsveitinni NA 12 200.000
króna styrk vegna Englands-
farar.
■ Fram kom í bókun bæjar-
ráðs 25. maí sl. að sjö milljóna
króna halli varð á rekstri
Sjúkrahúss Húsavíkur sf. á sl.
ári.
■ Bæjarráð samþykkti á
fundi sínum 5. júní sl. að taka
tilboði Borgar hf. í fram-
kvæmdir við gerð barnalaug-
ar. Tvö tilboð bárust í verkið,
frá Borg hf. kr. 736.500 og frá
Fjalari hf. kr. 965.066.
■ Birkir Þorkelsson, skóla-
meistari Framhaldsskólans á
Húsavík, sagði á fundi skóla-
nefndar nýverið að mikil þörf
væri á að koma upp embættis-
bústað fyrir skólameistara.
Hann lagði til að bæjaryfirvöld
gerðu samning við ríkisvaldið
um að Tún verði gert að em-
bættisbústað.
■ Joe Cleyton, sem kennt
hefur ensku í tvö ár við Fram-
haldsskólann, hefur fengið
launalaust leyfi í átta vikur frá
1. mars 1991 til að fara á
námskeið í Bretlandi.
■ A fundi skólanefndar 25.
maí sl. lagði Birkir Þorkels-
son, skólameistari, fram til-
lögu þess efnis að bæjarstjórn
réði félagsmálastjóra/fulltrúa í
hálft starf frá 1. ágúst 1990 til
þess að aðstoða 13-15 ára ung-
linga við félagsstörf. Lagt var
til að starfið verði tengt Frant-
haldsskólanum og hugsað sem
tilraun í eitt ár og þá verði
rrrctið hvernig til hafi tekist. í
tillögu Birkis var gert ráð fyrir
að Sveinn Birgir Hreinsson
yrði ráðinn í þessa stöðu.
Skólanefnd vísaði málinu til
bæjarstjórnar Húsavfkur.
■ Valgerður Mikkelsen hefur
sagt upp starfi sínu við Barna-
skólann.
■ Skólanefnd hefur sam-
þykkt eftirtaldar umsóknir um
stöður: Guðrún H. Björns-
dóttir í 1/2 stöðu við Barna-
skólann, Ásdís Hrefna Har-
aldsdóttir í 2/3 stöðu við
Barnaskólann, Hólmfríður
Garðarsdóttir í 2/3 stöðu,
Sigrún Snædal í fulla stöðu og
Norman Hanson Dennis í allt
að 1/2 stöðu í tónmennta-
kennslu.
■ Skólancfnd hefur sam-
þykkt að ráða eftirtalda í
kennslustörf við grunnskóla-
deild og við Framhaidsskól-
ann: Guðjón Sigbjörnsson
(stærðfræði-líffræði), Guð-
mund Stefán Gíslason (sam-
félagsfræði-enska), Huldu
Egilsdóttur (fslenska-danska),
Brynju Waage (þýska-
íslenska), Daisy Neijmann
(enska-franska), Janice Denn-
is (stærðfræði) og Svein
Hreinsson (samfélagsgreinar
1/2 starf).
Á vegum Samtaka jafnréttis og
félagshyggju var haldinn fund-
ur á Hótel KEA 6. júní sl.
Fundarstjóri var Ari Friðfinns-
son. Frummælendur voru
Bragi Árnason, prófessor við
Raunvísindadeild Háskóla ís-
lands og Stefán Valgeirsson,
alþingismaður.
Bragi nefndi fyrirlestur sinn
„Nýir möguleikar í orkufrekum
iðnaði á fslandi." Hann fjallaði
fyrst og fremst um framleiðslu á
vetni, en til þeirrar framleiðslu
þarf aðeins vatn og raforku.
Fram kom að tæknileg vandamál
við vetnisframleiðslu hafa þegar
verið leyst og að engin loftmeng-
un hlýst við bruna vetnis og þess
vegna raunhæfasti kosturinn sem
nú er í sjónmáli til að draga úr
koltvísýringsmengun, þrátt fyrir
ört vaxandi orkunotkun í 'héimin-
um á næstu áratugum. Háskólar í
Þýskalandi og Sviss, studdir af
mörgum stærstu iðnfyrirtækjum
Þýskalands og í nánu sambandi
við EBE hafa unnið undanfarin
ár að rannsóknum á hagkvæmni
vetnisframleiðslu í stórum stíl.
Stefnt er að því um næstu áramót
að taka ákvörðun um hvort hafist
verður handa að byggja tilrauna-
verksmiðju sem mun þurfa 100
nregavött af raforku sem notuð
verður til framleiðslu vetnis með
rafgreiningu.
Fram kom í máli Braga að
Kanadamenn hafa boðið raforku
er þeir telja ódýra á 18 US mills/
kwh til ársins 1995, en 36 US
mills/kwh eftir það. Þá kom fram
að í skýrslu frá Þjóðverjum er
íslands ekki getið í yfirliti yfir
þau lönd sem hafa mikla mögu-
leika á raforkuframleiðslu. Þó
kom fram í skýrslunni að ef unnt
væri að fá keypta raforku nær
Evrópu, þannig að ekki þyrfti að
flytja vetnið um jafn langan veg
og þeir hafa gert ráð fyrir, myndi
flutnings- og geymslukostnaður
vetnisins lækka umtalsvert og þá
jafnframt heildarkostnaðurinn
við öflun eldsneytisins.
Stefán Valgeirsson sagði að
fráleitt væri að gera orkusamn-
inga sem ekki stæðu undir raun-
verulegum heildarkostnaði orku-
öflunar eins og íjölmiðlar segja
að stefni nú í með samningum við
Atlantalhópinn. Hann sagði að ef
tekið væri meðaltal af kostnaðar-
áætlun 15 virkjunarkosta, sem
hann hefði frá Landsvirkjun, að
meðtöldum háspennulínum og
Kristján Kristjánson.
Varði doktors-
ritgerð í heim-
speki við háskóla
í Skotlandi
Þrítugur Akureyringur,
Kristján Kristjánsson, varði
áttunda þessa mánaðar
doktorsritgerð sína í heim-
speki við St. Andrews
háskólann í Skotlandi.
Islenskur titill ritgerðarinn-
ar er „Frelsi og vald*‘.
Kristján ntun formlega Ijúka
námi við skólann 1. júlí nk.,
en þá fær hann afhent próf-
skírteini.
Kristján er fæddur 25. júlí
1959 og verður því þrjátíu og
eins árs í næsta mánuði. Hann
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum á Akureyri árið
1979 og kenndi að því búnu i
eitt ár við Gagnfræðaskóla
Akureyrar. BA-prófi í heim-
speki frá Háskóla íslands lauk
Kristján árið 1983 og kenndi
síöan í þrjú úr við Mennta-
skólann á Akureyri. Síðustu
þrjú ár hefur Kristján stundað
framhaldsnám í heimspeki viö
St. Andrews háskólann í Skot-
landi, Mfil prófi lauk hann
árið 1988 og nú doktorsprófi.
Foreldrar Kristjáns eru
Kristján Einarsson frá Djúpa-
læk og Unnur Friðbjarnar-
dóttir. óþh
spennuvirkjum, myndi heildar-
kostnaður til að fullnægja orku-
þörf álbræðslu sem framleiddi
200 þúsund tonn á ári fara yfir 55
milljarða og þyrfti því orkuverð-
ið að vera yfir 30 US mills.
(Úr frcttatilkynningu frá Samtökum jufnrcttis
og fclagshyggju.)
Hestamannafélagið Funi
AFMÆLIS-
HÁTÍÐ
I tilefni af 30 ára afmæli Funa verður afmælishátíð
haldin í Laugaborg, laugardaginn 23. júní nk. og
hefst kl. 21.00.
Létt skemmtiatriði, veitingar og dansleikur.
Félagsmenn og velunnarar félagsins
eru hvattir til aö mæta.
Miðapantanir í símum 24933 og 31126 í seinasta lagi mið-
vikudaginn 20. júní.
Allir velkomnir. Stjórnin.