Dagur - 15.06.1990, Page 4

Dagur - 15.06.1990, Page 4
4 - DAGUR - Föstudagur 15. júní 1990 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 90 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir), SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: INGVELDUR JÓNSDÓTTIR, HEIMASlMI 22791 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Óheppilegt fordæmi í verðlagsmálum Verðlag hér á landi undanfarna mánuði hefur verið stöðugra en um langt árabil. Þennan stöðugleika má fyrst og fremst þakka ákvæð- um kjarasamninganna frá því í febrúar síðast- liðnum, sem oft hafa verið nefndir „þjóðarsátt um kjaramál“. í þeim var lögð mikil áhersla á að verðlag héldist sem stöðugast á samn- ingstímabilinu, sem nær fram á síðari hluta næsta árs. Reyndar má fullyrða að stöðugt verðlag hafi verið forsenda þess að samið var um svo hóflegar launahækkanir sem raun ber vitni. Frá því febrúarsamningarnir voru undir- ritaðir hefur tekist þokkaléga að tryggja þá verðlagsþróun sem þar var gengið út frá. Tíð- ar verðhækkanir að undanförnu eru þó viss ógnun við samkomulagið og geta hæglega leitt til þess að verðbólgan fari yfir hið svo- nefnda „rauða strik“ kjarasamninganna í september næstkomandi. Ef sú verður raunin munu laun almennt hækka í kjölfarið. Þá er hætt við að verðbólguhjólið komist á skrið á nýjan leik, knúið áfram af gamalkunnri víxl- verkun verðlags, kaupgjalds og vaxta. Breið samfylking mismunandi hagsmuna- hópa í þjóðfélaginu stóð að gerð febrúarsam- komulagsins. Öllum, sem mynduðu þá fylk- ingu, ber auðvitað skylda til að leggja sitt af mörkum til að tryggja viðráðanlega verðlags- þróun á samningstimanum. Þar fara aðilar vinnumarkaðarins fremstir í flokki en ríkis- valdið hefur ekki síður mikilvægu hlutverki að gegna. Þess vegna kom það flestum í opna skjöldu er fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkis- sjóðs, ákvað að hækka verð á áfengi og tóbaki nú í vikunni. Það hefur reyndar komið fram í fréttum að við gerð kjarasamninganna áskildi fjármálaráðuneytið sér rétt til að hækka verð á áfengi og tóbaki „1 takt við almenna kostn- aðarþróun á þriggja mánaða fresti,“ eins og það var orðað og er því eflaust ekki beinlínis að brjóta gegn ákvæðum samkomulagsins. Á hinn bóginn er það fordæmi afar óheppilegt, sem ríkisvaldið sýnir með þessum hækkunum nú. Baráttan gegn verðbólgunni hefur ekki hvað síst snúist um það að fá alla hagsmuna- hópa í þjóðfélaginu til að hætta svonefndum „sjálfkrafa“ verðhækkunum en meta þess í stað hverju sinni hvort raunverulegt tilefni til verðhækkunar er fyrir hendi. Slíkt mat var ekki framkvæmt í þessu tilviki heldur er hér um reglubundna hækkun að ræða. Ef aðrir fylgja þessu fordæmi ríkisvaldsins, heyrir stöðugt verðlag sögunni til fyrr en varir. BB. Það var létt yfir þeim Oktavíu, Sigrúnu og Úlfhildi þegar þær komu í heimsókn á ritstjórn Dags. Þær vilja hvetja allar konur til að grilla og skemmta sér í kvennareitnum 19. júní. Mynd: ehb 75 ára afmæli kosningaréttar kvenna: Konur efiia til grifiveislu í Naustaborgum 19. júní Árið 1915 fengu íslenskar kon- ur kosningarétt til Alþingis, að vísu með ákveðnum skilyrðum en þetta var upphafið að full- um kosningarétti 1918. Konur á Akureyri og í nærsveitum ætla að minnast 75 ára afmælis kosningaréttar og kjörgengis kvenna á Islandi með grill- veislu í Naustaborgum þriðju- daginn 19. júní, á sjálfan kvennadaginn. Það eru konur úr öllum flokk- um og félögum, af öllum stærð- um og árgerðum, sem ætla að safnast saman og minnast þessara merku tímamóta. Ekki verða þó ræðuhöld og hátíðleiki í fyrir- rúmi; konurnar ætla einfaldlega að skemmta sér. Þær Oktavía Jóhannesdóttir, Sigrún Sveinbjörnsdóttir og Úlf- hildur Rögnvaldsdóttir komu við á ritstjórn Dags til að kynna fyrir- hugaða kvennaskemmtun í Naustaborgum 19. júní. Þær rifj- uðu upp að konur hefðu komið saman árið 1985, þegar kvenna- áratugnum lauk, og plantað trjám í reitinn í Naustaborgum sem hefur gengið undir nafninu kvennareitur. Óskað eftir nafni á kvennareitinn „Við gróðursettum þúsundir plantna í reitnum fyrir fimm árum og nú ætlum við að efna til hugmyndasamkeppni um nafn á þetta svæði sem kallað er kvennareiturinn,“ sagði Úlfhild- ur. „Við viljum því skora á kon- urnar sem ætla að koma þetta kvöld að hugsa dálítið um nafn á reitnum og skila inn hugmyndum sínum,“ sagði Sigrún. - Ætlið þið að gróðursetja fleiri plöntur núna? „Aðeins 75 plöntum, sem er táknrænt fyrir afmælið. Við ætl- um aðallega að skemmta okkur,“ sagði Úlfliildur. „Meginþunginn verður lagður á samveru og skemmtun," bætti Sigrún við. Grill og kol verða til staðar í kvennareitnum en Oktavía sagði að konurnar þyrftu að koma með mat, drykkjarföng og nauðsyn- legustu áhöld. Þær sem vilja aðra sessu en guðsgræna náttúruna verða að koma með tjaldstóla eða teppi með sér. Plönturnar 75 verða seldar á hóflegu verði eða efnt til sam- skota á annan hátt til að fjár- magna plöntukaupin. Hver er spaugfugl? Upphafið að kvennagrillinu í Naustaborgum 19. júní nk. má rekja til þess að kvennalistakon- ur höfðu samband við konur í öðrum stjórnmálaflokkum á Akureyri og buðu þeim til við- ræðu. Síðan var rætt við ýmis fé- lagasamtök kvenna og konur skiptu með sér verkum í undir- búningsvinnu. Oktavía, Sigrún og Úlfhildur voru sammála um að þetta sam- starf hefði gengið vel. Hér er pólitík lögð til hliðar og hvers kyns hagsmunaárekstrum gleymt og konur ætla að sameinast 19. júní, enda dagurinn helgaður þeim. „Fyrir utan það að við borðum saman þá munum við skemmta okkur saman. Sum atriði verða undirbúin en hins vegar er það mjög vel þegið ef einhverjar luma á góðum atriðum. Það eru engar hömlur í því sambandi,“ sagði Sigrún og konurnar óskuðu þar með eftir skemmtikröftum: Hver er spaugfugl, spilar á greiðu, sprellar afkrafti svo við hrífumst með ? Hver er með nikku á bakinu breiðu? Búið til sögur sem kæta vort geð! Stöllurnar lögðu áherslu’á að allar konur væru velkomnar, burtséð frá búsetu eða öðrum aðstæðum, enda er 19. júní dagur allra kvenna. Haft var samband við flest félagasamtök kvenna á Akureyri til að minna á skemmt- unina og nú bíða konurnar bara eftir góðu veðri og góðri þátt- töku. SS Veiðimál Eitt af því sem hæst rís hjá mörgum yfír sumarið er það hvar hægt er að renna fyrir lax og silung. Hér á Eyjafjarðar- svæðinu eru margar ár sem helst er von á silungi en alltaf slæðist einn og einn lax með. Mörgum fínnst lítið sport í því ef ekki er laxavon. í fyrrasumar var gerð tilraun til þess að sleppa hafbeitarlaxi í Þorvaldsdalsá og tókst sú tilraun það vel að hún verður endurtekin og meira en það, því nú hefur verið ákveðið að gera slíka til- raun í Eyjafjarðará um leið og hafbeitarlaxinn fer að ganga. Einnig er ráðgert að sleppa laxi í Öxnadalsá á svæði 5B sem er Öxnadalsá framan Auðna. Er vonast eftir að þessu framtaki fylgi aukin eftirspurn á veiðileyf- um og fleiri geti átt von á laxi á borðum sínum. Sala veiðileyfa hefst í versluninni Eyfjörð þriðjudaginn 19. júní í Eyjafjarð- ará og Hörgá. Helstu breytingar á sölufyrirkomulagi eru þær að forsala til bænda er aflögð og eins það að staðgreiða skal veiðileyfi við pöntun. Vonum við að þess- um breytingum verði vel tekið og að sem flestir verði ánægðir með sinn hlut. í versluninni Eyfjörð fást veiðileyfi í eftirtaldar ár: Eyjafjarðará, Hörgá, Fnjóská, Þorvaldsdalsá, Mýrarkvísl og Staðartorfu og Múlatorfu í Laxá. Eitt er nýnæmi í sölu veiðileyfa í Eyjafjarðará, en það er að sala á þriðja svæði verður í höndum ferðaþjónustu á Hrísum og hjá Öldu hf. í Melgerði. Vonumst við eftir góðri samvinnu veiði- manna, veiðiréttarhafa og veiði- leyfasala. Óska ég veiðimönnum svo og öðrum fengsæls sumars og ánægjustunda á bakkanum. Virðingarfyllst fyrir hönd veiðiréttarhafa og veiðileyfasala. Einar Long.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.