Dagur - 15.06.1990, Side 5
Föstudagur 15. júní 1990 - DAGUR - 5
-t-
Veiðitímabilið að komast á fullt:
Byrjimin lofar góðu
- 65 laxar komnir í Aðaldalnum
Veiðiklær landsins eru nú sem
óðast að tínast að bökkum áa
og vatna landsins enda veiði
víða að byrja og í nokkrum ám
komin vel af stað. Líkt og síð-
ustu sumur verður Veiðikló
Dags á sínum stað í föstu-
dagsblaði þar sem tekinn verð-
ur púlsinn á sportveiðinni á
Norðurlandi. Vel væri þegið
að veiðimenn létu fréttir berast
til blaðsins af veiðiferðum og
gaman væri einnig að fá mynd-
ir af veiðimönnum til birtingar
í veiðiþættinum.
Hljóðið í veiðimönnum er
heldur gott þessa dagana enda
ástæða til þar sem ágætlega veið-
ist og flestar ár eru tærar og veiði-
legar. í dag hefst veiði í Vatns-
dals- og Víðidalsá í Húnavatns-
sýslu og um miðja næstu viku
byrjar veiði í Svartá. Gylfi Inga-
son í Veiðihúsinu Flóðvangi við
Vatnsdalsá sagði í samtali við
Veiðiklóna í gær að útlitið sé
gott.
„Núna er talsvert vatn í ánni
en það ætti ekki að hindra veiði.
Eg var að koma neðan frá ánni
áðan og við sáum stökkvandi lax
þannig að þetta er álitlegt. Þeir
eru þarna blessaðir," sagði Gylfi.
Fyrsta hollið
í Miðfírðinum
„Eg segi allt nokkuð gott. Fyrsta
hollið var að fara héðan með 44
laxa þannig að byrjunin lofar
góðu,“ sagði Böðvar Sigvaldason
í veiðihúsinu Laxahvammi í Mið-
firði. Þrír dagar eru liðnir frá því
veiðitíminn hófst í Miðfirðinum
og segir Böðvar kominn lax um
alla á. „Já, það er töluverður
fiskur sem dreifist um árnar.
Hann hefur veiðst bæði upp við
Kambsfoss í Austurá, í Núpsá og
fremst í Hlíðarfossi í Vesturá.
Þessu til viðbótar hafa þeir fengið
í Miðfjarðará. Fiskurinn er fall-
egur og sá stærsti er 15 pund.
Minnsti fiskurinn er 7 pund og
hann veiddist í morgun,“ sagði
Böðvar í gær.
Dr. Krókur í Laxána
„Við byrjum í fyrramálið og
verðum í þrjá daga,“ sagði Frið-
rik Friðriksson, sparisjóðsstjóri á
Dalvík sem hyggur á veiði í Laxá
í Aðaldal um helgina ásamt
félögum sínum í veiðiklúbbnum
Dr. Krók. Veiðifélagarnir eru
ekki af lakari endanum og nægir
þar að nefna Vopnfirðingana
Pálma stórsöngvara Gunnarsson
og Hafþór Róbertsson skóla-
stjóra. Þessi 12 manna veiði-
klúbbur fer á hverju ári í túr í land
Árnes við Laxá. „Okkur hefur
gengið svona upp og ofan en við
erum spenntir núna enda lítur
þetta vel út. Þetta er bæði gaman
og alvara hjá okkur enda er þetta
tími sem alla jafna er ekki mjög
gjöfullsagði Friðrik.
Silungurinn tregur að taka
„Hér er engin rosaveiði," sagði
Hólmfríður á Arnarvatni þegar
grennslast var eftir silungsveið-
inni í Laxá í Þingeyjarsýslu.
Veiðin hófst 1. júní og segir
Hólmfríður að veiðin hafi verið
keimlík frá byrjun. „Menn sáu
strax mikinn silung en hann hefur
tekið mjög naumt. Fiskurinn hef-
ur mikla lirfu í ánni og því er
hann ekki mjög gráðugur.
Aðstæðurnar eru allt aðrar en í
fyrra. núna er komið talsvert
rykmý og vargur sem ekki sást í
fyrra,“ sagði Hólmfríður.
Húsvíkingar í Aðaldalnum
Húsavíkurholl var í gær við veið-
ar í Laxá í Aðaldal en þar hefur
byrjunin líkt og annars staðar
verið góð. Fyrir hádegi í gær
komu 6 laxar á land, þrír á neðra
svæðinu og þrír á því efra. í heild
eru kornnir 65 laxar á land en enn
hefur 19 punda laxirin frá því á
mánudagsmorguninn ekki verið
sleginn út. Fiskarnir eru allir af
stærðinni 10-15 pund. JÓH
NÚ ER HANN ÞREFALDUR