Dagur - 15.06.1990, Page 6
6 - DAGUR - Föstudagur 15. júní 1990
< <x:u:\ ...
3 nesfín
17. jum
Glens og
iuui uI
Flögg.
Hattar.
Rellur.
Veifur.
Lúörar.
Stafir.
er ódýrast hjá okkur
Stórmarkaðsverö í stórum
pakkningum vi5 bensíntankana
3 nestin
Aðalfundur
Leikfélags Öngulsstaðahrepps
veröur haldinn í Freyvangi mánudaginn 18. júní kl.
21.00.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Veiðileyfi
Sala veiðileyfa í Eyjafjarðará og Hörgá hefst í verslun-
inni Eyfjörð þriðjudaginn 19. júní kl. 9.00 árdegis.
Sala á þriðja svæði í Eyjafjarðará er í höndum ferða-
þjónustu bænda á Hrísum og Öldu hf. í Melgerði.
Veiðifélög Eyjafjarðarár og Hörgár.
Norskur maður, Eyvind Fröen
að nafni, hélt námskeið á
Akureyri fyrir nokkrum dög-
um um hjónabandið og vanda-
mál þess. Hann kom uppruna-
lega til landsins á vegum
„Ungs fólks með hlutverk“ en
til Eyjafjarðar kemur hann á
vegum prófastsdæmisins og
sóknanna á Akureyri. Blaða-
maður hitti Eyvind Fröen að
máli, og bað hann um að lýsa
efni þessara námskeiða.
Eyvind Fröen byrjaði mál sitt á
að segja frá því að hann væri gift-
ur maður, og hefði verið það í
tuttugu og fimm ár. í upphafi
hefði ríkt mikill kærleikur milli
þeirra hjóna, en smám saman
hefði ástandið farið versnandi.
Eftir nokkurra ára hjónaband
voru þau farin að særa hvort ann-
að og rifrildi urðu algeng. Eyvind
segir að þau hjónin hafi verið á
barmi skilnaðar um tíma, en þá
hafi hann áttað sig á að eitthvað
þurfti að gera. Þau héldu bæði að
skilnaður væri eina leiðin, en
vildu samt innst inni ekki skilja.
Það væri kjarni málsins, mörg
hjón sæju enga aðra leið en skiln-
að út úr erfiðleikum hjónabands-
ins. Þó væru til aðrar og betri
leiðir, en til að fara þær þurfi
ákveðna þekkingu. Hlutverk sitt
í dag segir hann vera að miðla
þessari þekkingu til hjóna sem
hafa þörf fyrir hana - og það eru
reyndar flest hjón.
Vegna þess að hjónabandið og
tilfinningamál eru flókin atriði í
mannlegum samskiptum er tæp-
lega hægt að ætlast til að hægt sé
að gera grein fyrir þeim hlutum í
stuttu máli. Þó segir Eyvind Frö-
en að grundvallaratriðið sé að
fólk reyni að skilja sjálft sig, til-
finningar sínar og þarfir. A því
grundvallast hjónabandið að sá
skilningur sé fyrir hendi.
En hvað eru tilfinningar og
þarfir? Eyvind Fröen segir að
flest fólk, einkum karlmenn, eigi
mjög erfitt með að gera sér grein
fyrir tilfinningum sínum á vitræn-
an hátt. Karlmenn finni t.d. oft
fyrir mikilli spennu eða þvingun,
en þeir geti ekki komið orðum að
þvf hvað ami að. Oft gerir fólk
sér alls ekki grein fyrir orsökum
tilfinninga sinna, en lætur líf sitt
samt stjórnast af tilfinningalegum
þáttum. Ákvarðanir um skilnað
eru oft teknar á grundvelli tilfinn-
inga einna saman, og þá er vit-
ræni þátturinn, rökhugsunin,
ekki með í spilinu.
í viðtölum við fólk leggur
Eyvind Fröen áherslu á að ein-
staklingarnir læri að þekkja til-
finningar sfnar, og geti aðskilið
Kjörbúð KEA, Sunnuhlíð 12
RC cola IV2 97
Sinalco IV2 97
Egils að sjálfsögðu
Sanitas
pilsner
6 í pakka 350
Úr kjötborðinu
beint á grillið:
Svínakjöt,
lambakjöt,
folaldakjöt,
nautakjöt.
Opið
frá kl. 9-20
frá mánudagi til föstudags.
Laugardag
kl. 10-20.
Beint 1ir ofninum:
Grillaðir kjúklingar
.597 kr. stk.
íslensk grillkol 188 kr.
Við Glerárkirkju. F.v. Þorsteinn Kristiansen, Eyvind Fröen og sr. Pétur
Þórarinsson, sóknarprestur. Mynd: ei
Skilnaður er ekki
besta lausnin
- spjallað við Eyvind Fröen
um vandamál hjónabandsins
þær frá vilja og rökhugsun. Hann
tekur dæmi af manni/konu sem er
ákveðin í að skilja við maka sinn.
Orsökin er að viðkomandi álítur
sig ekki lengur vera ástfanginn af
maka sínum. „Maður í þessar
aðstöðu segir við sjálfan sig: Ég
er ekki lengur hrifinn af konunni
minni, hún vekur ekki hjá mér
neinar tilfinningar lengur. Það
var bara fyrstu árin, svo var allt
búið. Hjónaband mitt er aðeins
gamall vani. Ég ætla að losa mig
úr þessu sambandi við konu
mína, ég er hrifinn af annarri
konu. Hún vekur með mér þær
tilfinningar sem kallast ást. Ég
ætla því að skilja við eiginkonuna
en taka saman við þessa nýju.“
Þetta dæmi segir Eyvind Fröen
vera algengt fyrirbæri, en við
nánari skoðun sé skilnaður í
þessu tilviki oft aðeins skamm-
tímalausn. Hvaða tryggingu hef-
ur maðurinn fyrir því að tilfinn-
ingar hans til nýju konunnar eigi
ekki eftir að breytast og kólna?
Mun þetta nýja samband ekki
líka enda með skilnaði? Á því
eru miklar líkur, enda hefur
margt fólk leitað til hans einmitt í
þessum sporum. Fólk, sem hefur
skilið og gifst nýjum maka, en
síðan hefur allt siglt í strand á
nýjan leik.
Eyvind Fröen kennir að þrír
þættir mannlegs eðlis séu mikil-
vægastir í þessu sambandi:
Viljinn, tilfinningar og rökhugs-
un. Maðurinn sem skilur við
konu sína af þeirri ástæðu einni
að hann er hrifinn af annarri
byggir þá ákvörðun á tilfinning-
um einum saman, viljinn þjónar
valdi tilfinninganna. Rökhugsun
kemst ekki að. Hin kalda rök-
hugsun segir manninum e.t.v. að
ákvörðun hans sé röng, en hann
þaggar rödd hennar niður.
„Þessi maður byggir líf sitt á
afar ótraustum grunni, þar sem
tilfinningar eru annars vegar. Ég
velti þessum málum mikið fyrir
mér ásamt konu minni, og við
komumst að þeirri niðurstöðu að
við hefðum betri grundvöll að
byggja á, nefnilega kristna trú.
Fyrir hjálp trúarinnar tókst okk-
ur að sigrast á mörgum vanda-
málum, og það geta fleiri gert,“
segir hann.
En hvað myndi Eyvind Fröen
segja við hjón sem kæmu til hans,
ákveðin í að skilja því þau elsk-
uðu hvort annað ekki lengur, og
segðu reyndar að ást milli þeirra
væri útilokuð? „Þá myndi ég
byrja á því að skilgreina með
fólkinu hvað þau ættu við með
hugtakinu ást,“ segir Eyvind.
„Þótt mörg tilfelli sýnist vonlaus
þá er ástandið aldrei svo slæmt að
ekki megi úr því bæta. En þá er
líka grundvallaratriði að fólkið/
leggi sig fram um að skilja tilfinn-
ingar sínar og maka síns. „Það er
foreldrum náttúrulegt að elska
börn sín og að vilja uppfylla þarf-
ir þeirra. Þegar ég uppfylli þarfir
barns míns vegna þess að ég
elska það, þá elskar barnið mig.
Maður elskar konuna sína þegar
hún uppfyllir þarfir hans. Konan
elskar mann sinn því hann upp-
fyllir þarfir hennar. Af þessum
ástæðum er greinilegt að við
verðum að skilja þarfir hvors
annars og okkar sjálfra, við meg-
um ekki vera hrædd við að ræða
málin. Ástin grundvallast á því
að uppfylla þarfir, sýna skilning.
En því miður eru margir þannig
staddir að þeir geta ekki skilið
þarfir sfnar og tilfinningar án
hjálpar. Ég segi hiklaust við fólk
sem er að hugleiða skilnað: Setj-
ist niður, talið saman, reynið að
skilja ykkur sjálf og hvað þið
eruð að gera. Skilnaður er venju-
lega versta lausnin á vandamál-
um ykkar, hann leysir engan
vanda heldur ýtið þið vandanum
á undan ykkur.“
í samtalinu við Eyvind Fröen
kom fram að hann hefur ferðast
víða um lönd til að kenna og
halda námskeið. Hann segir að
vandamálið sé alls staðar líkt,
skilning skorti á mannlegum sam-
skiptum og þörfum. Fólk sem
lendir í tilfinningalegum blind-
götum byrjar að særa hvort
annað, þótt innst inni þyki því
vænt um makann. Nái slíkt
ástand að þróast endar hjóna-
bandið með skilnaði. Því er
stundum haldið fram að betra sé
fyrir börnin að foreldrar skilji en
að þau búi saman ósátt. Eyvind
Fröen bendir á þriðja möguleik-
ann, valkost sem því miður alltof
fáir ná að nýta sér því þeir þekkja
hann ekki. EHB