Dagur - 21.06.1990, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 21. júní 1990
Skagaíjörður:
Fyrsta Kvennasmiðjan
á Norðurlandi stofhuð
I Safnahúsinu á Sauðárkróki
var sl. þriðjudagskvöld hald-
inn stofnfundur svokallaðrar
Kvennasmiöju og er það sú
fyrsta á Norðurlandi. Þetta er
menningar- og fræðsluhópur
kvenna á öilum aldri í Skaga-
firði sem hefur það að mark-
miði sínu að skapa konum
aðstöðu til að vinna að sínum
hugöarefnum.
A fundinn mætti mikill fjöldi
skagfirskra kvenna, um 120
talsins, og af þeim skráðu sig
rúmlega 90 sem stofnfélagar
Kvennasmiðjunnar. Var það
miklu betri aðsókn heldur en
upphafskonurnar höfðu gert sér
María Björk Ingvadóttir í ræðustól
ú stofnfundi Kvennasiniöjunnar ú
Sauðárkróki.
vomr um.
Tilgangur félagsins er m.a. að
auka samheldni og sjálfstraust
kvenna og stuðla þannig að
virkri þátttöku þeirra á hinum
ýmsu sviðum þjóðfélagsins.
Einnig er stefnt að því að á veg-
um félagsins verði starfrækt sér-
fræðileg fjölskylduráðgjöf.
Hugmyndir um starfsemi félags-
ins eru margar og m.a. hefur
verið rætt um möguleika
kvenna á að kynna og selja sína
framleiðslu í heimilisiönaði,
skiptimarkaði og leshópum.
Vonast er til að hægt verði að
fjárfesta í húsi undir starfsem-
ina sem fyrst.
í stjórn hinnar skagfirsku
Kvennasmiðju voru kosnar:
Herdís Sæmundardóttir, Sigríð-
ur Pálmadóttir, Sigríður Guð-
jónsdóttir, María Björk Ingva-
dóttir og Anna Puríður Hróð-
marsdóttir. Pær ntunu síðan
skipta með sér verkum á stjórn-
arfundi.
Fyrir stofnun þessarar Kvenna-
sniiðju voru þrjár slíkar á land-
inu, Hús frú Láru á Seyðisíirði,
Hlaðvarpinn í Reykjavík og
Kvennasmiðjan í Vestmanna-
eyjurn. Þetta er því sú fyrsta á
Norðurlandi og er það fagnað-
arefni fyrir norðicnskar konur.
SBG
Girtu garðinn þinn sjálfur með
metpost
Metpost kynning hjá Bygginga-
vörudeild KEA/Lónsbakka föstu-
dag 22. júní kl. 13-18.
Metpost er ódýr og einföld
lausn fyrir alla.
Metpost úreltir vinnuna og erfiö-
iö aö þurfa aö grafa og steypa.
Metpost er fyrir giröingar, skjól-
veggi og sólpalla.
Það hefur sýnt sig viö aö nota
Metpost og staðlaða skjólveggi
aö það er allt aö helmingi ódýr-
ari lausn.
Ath.: Útsölustaður Metpost á
Húsavík er versl. Grímur og Árni.
Byggingavömr
Lónsbakka
Sími 96-30300
fréttir
Sauðárkrókur:
Ný bæjarstjóm fundar í fyrsta sinn
Fyrsti fundur nýrrar bæjar-
stjórnar á Sauðárkróki var
haldinn þriðjudaginn 19. júní.
Þar var málefnasamningur
meirihlutans kynntur og kosn-
ingar í nefndir og annað fóru
fram. Forseti bæjarstjórnar
var kosinn Knútur Aadnegard,
oddviti sjálfstæðismanna og
bæjarstjóri verður áfram
Snorri Björn Sigurðsson og var
það samþykkt samhljóða með
níu atkvæðum.
Meirihlutann skipa fulltrúar
Sjálfstæðisflokks, Alþýðuflokks
og K-listans. Sá málefnasamning-
urinn sem þessir listar komu sér
saman um hljóðar svona:
Samstarfsaðilar telja það brýn-
asta verkefni bæjarstjórnar að
lækka skuldir bæjarsjóðs.
Mikilvægt er að Sauðárkróks-
bær geri það sem í hans valdi
stendur til þess að rekstrarskil-
yrði fyrirtækja séu sem best,
þannig að auðveldara sé að halda
uppi fullri atvinnu og jafnframt
að skjóta nýjum stoðum undir
atvinnulífið.
Unnið verði áfram að upp-
byggingu hafnarinnar samkvæmt
hafnaráætlun.
Náð verði samningi við stjórn-
völd um byggingu Bóknámshúss
FAS þar sem gert verði ráð fyrir
að fyrsta áfanga verði lokið
haustið 1993.
Gerð verði áætlun um heildar-
uppbyggingu grunnskólanna á
Sauðárkróki.
Leitað verði leiða til að bæta
félagsaðstöðu unglinga og efla
heilbrigt tómstundastarf þeirra.
Gerð verði ný könnun á þörf
fyrir dagvistun barna og unnið
samkvæmt niðurstöðum hennar.
Sauðárkróksbær hafi forgöngu
um byggingu þjónustu- og leigu-
íbúða fyrir aldraða.
Gerð verði áætlun um skipulag
og uppbyggingu íþróttasvæða og
íþróttamannvirkja.
Unnið verði að varanlegri
lausn á frárennslismálum, sem
miðist við það að losna við
mengun.
Áfram verði unnið að frágangi
opinna svæða, gangstíga og úti-
vistarsvæða.
Óskað verði breytinga á flug-
málaáætlun, þannig að malbikun
Alexandersflugvallar verði flýtt
og hann jafnframt lengdur.
Viðundandi niðurstaða fáist á
stækkun lögsögu Sauðárkróks-
bæjar.
Á fundinum var síðan kosið í
nefndir og ráð, en þó var þeim
kosningum ekki lokið að fullu,
því að ákveðið var að fresta sum-
um vegna þátttöku í Héraðs-
nefnd Skagfirðinga.
Sú tillaga kom fram á fundin-
um að þar sem í dag væri nú 19.
júní og 75 ára afmæli kosninga-
réttar kvenna, væri best að kjósa
í jafnréttisráð, en slíkt ráð hefur
ekki verið á Sauðárkróki áður.
Ákveðið var að þessi tillaga færi
fyrir bæjarráð.
Fundurinn gekk vel fyrir sig og
í byrjun hans hafði aldursforset-
inn, Hilmir Jóhannesson, það á
orði að bæjarstjórnin hlyti að
vera orðin skipuð ungu fólki þar
sem að hann væri orðinn aldurs-
forseti. SBG
Nýja bæjarstjórnin á Sauðárkróki úsamt bæjarstjóra. Aftari röð frá vinstri:
Snorri Björn Sigurðsson bæjarstjóri, Björn Sigurbjörnsson, Stefán Logi
Haraldsson, Knútur Aadnegard, Viggó Jónsson, Hilmir Jóhannesson og
Björn Björnsson. Fremri röð frá vinstri: Anna Kristín Gunnarsdóttir, Her-
dís Sæmundardóttir og Steinunn Hjartardóttir.
itíííib Garðplöntur frá
Skógræktarfélagí Eyfirðinga 1990
Rósir
Algengt verð
kr. 500,-
Villirósir
Ágræddar rósir
Trjáplöntur
Algengt verð frá
kr. 250-2000
Barrtré
Blágreni
Rauðgreni
Sitkagreni
Lerki
Broddfura
Dvergfura
Stafafura
Lauftré
Birki íslenskt
Birki finnskt
Reyniviður
Koparreynir
Úlfareynir
Elri
Heggur
Gullregn
Alaskaösp
Selja
Limgerðis-
plöntur
Verð frá
kr. 50-200
Víðiplöntur
Tröllavíðir
Alaskavíðir
Brekkuvíðir
Glitvíðir
Gulvíðir
Lappavíðir
Loðvíðir
Myrtuvíðir
Viðja
Toppar
Blátoppur
Dúntoppur
Glæsitoppur
Aðrar tegundir
Birki
Gljámispill
Fjallarifs
Berjarunnar
Rifsber
Sólber
Runnar með
rauðum
og bleikum
blómum
Lágkvistur
Perlukvistur
Rósakvistur
Víðikvistur
Bogsýrena
Draumsýrena
Dúnsýrena
Gljásýrena
Skógarplöntur
Algengt verð
kr. 40-55
Lerki
Birki
Stafafura
Blágreni
Ösp
Hvítgreni
Runnar með
hvítum blómum
Alaskayllir
Birkikvistur
Bjarkeyjarkvistur
Garðakvistur
Stórikvistur
Drekakvistill
Runnamura
Snækóróna
Skrautrunnar
Verð frá
kr. 250-500
Runnar með
gulum blómum
Dúntoppur
Runnamura
Gullrifs
Gullkergi
Vafnings- og
klifurplöntur
Vaftoppur
Ýmsir
skrautrunnar
Myrtuvíðir
Körfuvíðir
Rjúpnavíðir
Loðkvistur
ígulmispill
Bogmispill
Runnamura
Fjallarifs
Þekju- og
skriðular
plöntur
Stöngulber
Hélurifs
Kirtilrifs
Runnamura
Grávíðir
Loðvíðir
Reklavíðir
Netvíðir
★
Aðrar vörur
Kjarnamold
Áburður ýmsar teg.
Gróðursetningar-
áhöld
Af suiiiuni
tegundum
skrautrunna
eru aðeins til
fá eintök.
★ Okkar reynsla er ykkar hagur ★
Opið virka daga kl. 9-18 • Laugardaga kl. 10-17.
Gróðrarstöðin í Kjama
Upplýsingar og pantanir í símum 24047 og 24599.