Dagur - 21.06.1990, Síða 9

Dagur - 21.06.1990, Síða 9
Fimmtudagur 21. júní 1990 - DAGUR - 9 -J leiklist F Sigrún Ástrós - sýning Leikfélags Reykjavíkur Leikfélag Reykjavíkur er í leik- ferð um landið norðaustan- og austanvert þessar vikurnar. Frumsýningin í ferðalaginu var í Samkomuhúsinu á Akureyri 19. júní. Verkefnið, sem ferðast er með, er eintalsverkið Sigrún Ástrós, en það er eftir breska leikritaskáldið Willy Russell og heitir á frummálinu Shirley Val- entine. íslensk þýðing verksins og staðfæring er eftir Þránd Thor- oddsen. Textinn er lipur og smellinn og fellur svo til ætíð vel í eyra. Staðfæringin er snjöll og vekur víða hlátur. Margrét Helga Jóhannsdóttir fer með eina hlutverkið í leikrit- inu, Sigrúnu Ástrósu. Margréti tekst mjög vel að gæða persón- una lífi. Sýningin, sem stendur fullan, hefðbundinn leikritstíma, heldur áhorfandanum vel vák- andi allan tímann. Sérlega vel tekst Margréti að sýna geðhrif persónunnar og túlka líðan henn- ar ýmsum skeiðum eintalsins og atburðarásarinnar. Hún nær vel að sýna breytinguna, sem verður á persónunni í gegnum verkið og láta áhorfendur finna þá baráttu, sem á sér stað innra með henni fyrir því, sem hana dreymdi að vera og vill vera. Það er umtalsvert afrek að flytja eintalsverk svo að vel fari og ekki verði á hnökrar, sem skemma heildina. Margrét Helga stóðst sannarlega þá raun með prýði og þannig að tæplega er unnt að segja að skuggi hafi fallið á. Einungis fáeinum sinnum gætti óverulegs óöryggis í texta og lítils háttar galla í sviðshreyfingum, en í heild var túlkun og fas ákveðið og sannfærandi. Leikstjóri sýningarinnar Hanna María Karlsdóttir, hefur greinilega unnið verk sitt af prýði. Það er ekki síður flókið og vandasamt að hreyfa eina pers- ónu um leiksvið í einn og hálfan klukkutíma þannig, að eðlilegt geti talist og gagnsamlegt því leikverki, sem unnið er með, og erindi þess, en að skipa niður hópatriði. Raunar er um ólíka þraut að ræða, en báðar þarfnast vakandi athygli, mikillar hug- kvæmni og fágaðrar smekkvísi. Þessi atriði eru fyrir hendi nær alls staðar í uppsetningu verksins. í einstaka skipti hefði samt mátt íhuga aðra hreyfingu eða stöðu á sviðinu. Þetta á einkum við eftir hlé, en í þeim hluta bregður einna helst fyrir uppstillingarlegu fasi og hreyfingum. Efni leikritsins Sigrún Ástrós er hugleiðingar húsmóður og eig- inkonu á miðjum aldri. Hún rek- ur ýmsa þætti liðinnar ævi og samtíðar og dregur af þeim niðurstöður, sem gjarnan vekja bergmál í hugskoti áhorfenda. Sigrún Ástrós saknar drauma og dirfsku æsku- og unglingsáranna og finnur fyrir kjarkleysi sínu, sem kemur í veg fyrir það, að hún brjóti af sér þann dróma, sem hún er drepin í. Umfjöllun höfundarins er á margan hátt íhugunarverð. Hún snýst um viðhorf hinnar hömluðu konu til sjálfrar sín og afstöðu hennar til þeirra, sem næst henni standa; eiginmanns, barna, vina, kunningjahóps og nágranna. Þetta viðfangsefni víkkar í fram- rás verksins. Framan af er Sigrún Ástrós kvartsár og kennir öðrum aðstæður sínar, en þegar lengra líður, hefur hún komist að raun um það, að þeir eru harla margir þræðirnir, sem binda og sem þarf að rjúfa, eigi maðurinn, hvort heldur hann er karl eða kona, í raun að teljast frjáls. Yfirleitt er efnismeðferð höf- undarins heildstæð og sannfær- andi. Þó gætir þess nokkuð, að mikið sé dvalist við einstakar og á stundum tískubundnar orsak- ir og skýringaleiðir, svo sem þær, sem lúta að kynlífi og kyn- ferðislegri fullnægingu. Þetta er í samræmi við þá umræðu, sem var um þessa þætti fyrir nokkrum árum og gætir reyndar nokkuð enn, og snerist um það, hve gjörtæk áhrif þessi atriði hefðu á tilfinningalíf og líkamlega og andlega vellíðan manna almennt og gjarnan sér í lagi kvenna. Af þessum sökum fellur textinn á tónlist il- stöku stað, verður langdreginn og leiðist jafnvel út í lélega neð- annaflabrandara, sem spilla hin- um annars ágæta heildarsvip, sem er á verkinu. Þrjár sýningar verða á leikrit- inu Sigrún Ástrós á Akureyri; hin síðasta í kvöld, 21. júní. Sýnt verður á Dalvík 22. júní, á Húsavík þann 23. og í Skjól- brekku í Mývatnssveit 24. júní. Lokasýning á Norðurlandi verð- ur á Raufarhöfn 25. júní. Það er full ástæða til þess að hvetja leikhúsunnendur til þess að sjá þessa sýningu eigi þeir þess kost. Þeir verða ekki sviknir af. Haukur Ágústsson. Þriðjudaginn 19. júní hélt sænski kórinn Braschamba frá Bengts- fors í Vestur-Svíþjóð tónleika í Akureyrarkirkju. Kórinn er á söngferðalagi á íslandi og hafði þegar haldið eina tónleika í Reykjavík 18. júní og mun syngja þar aftur 21. júní í Nor- ræna húsinu. Kórinn er skipaður ellefu söngvurum, sem skiptast þannig í raddir, að þrjár konur eru í sópr- an og aðrar þrjár í alt. Tveir karl- ar eru í tenór og bassar eru þrír, en einn þeirra er stjórnandi og undirleikari kórsins og hverfur úr bassaröddinni, þegar píanóleiks er þörf með söng kórsins. Hér er því í raun um tvöfaldan til þre- faldan kvartett að ræða, sem svipar nokkuð til djasskórsins Norðaustan tólf á Húsavík. Raddir kórfélaga eru greini- lega góðar og falla yfirleitt vel saman. Nokkuð bar samt á því að einstök rödd kæmi fram úr í sópr- an en miklu minna í hinum rödd- unum. Áferð í flutningi var að Braschamba sænskur kór í Akureyrarkirkju Akureyrarprestakall. Fyrirbænaguðsþjónusta verður í dag fimmtudag kl. 17.15. Allir velkomnir. Sóknarprestarnir. Náttúrugripasafnið Hafnarstræti 81 sími 22983. Opið daglega nema laugardaga kl. 13-16. Minjasafnið á Akureyri. Opið frá 1. júní til 15. septemberfrá kl. 13.30-17.00. Nonnahús er opið daglega frá kl. 13.00 til 17.00 frá 4. júní til 1. september. Safnahúsið Hvoll, Dalvík, verður opið í sumar frá 1. júnf til 15. september alla daga vikunnar frá kl. 13.00 til 17.00. Davíðshús Bjarkarstíg 6. Opið daglega milli kl. 15-17. safnvörður. ER AFENG!.VANDAMAL I ÞINNI FJOLSKYLDU? AL’ANON FYRIR ÆTTINGJA OG VINIALKÓHÚUSTA _ A Oóiast vor. i stað l pessum samtokum getur Þu ▼ orvænt,ngar ^ H,tt aðra sem ghma v,ð ^ Bætt astandið mnan samskonar vandamél Ijolskvldunnar ▲ Fraeðst um alkoholisma ^ Byggt upp siatlstraust sem siukdom pitt FUNDA RSTA DUR: AA hutið a Strandgr.ta 21, Akureyri. simi 22373 Manudagar kl 2100 AmA Miðvikudagar kl 21 00 laugardagar kl 14 00 Minningarkort Landssanitaka hjartasjúklinga fást í öllum bóka- búðum á Akureyri. Minningarkort Heilaverndar fást í Blómahúsinu Glerárgötu 28. Minningakort Hjarta- og æða- verndarfélags Akureyrar og ná- grennis, fást í Bókabúð Jónasar, Bókvali og Möppudýrinu Sunnuhlíð. Minningarspjöld Minningarsjóðs Jakobs Jakobssonar fást í Bókabúð Jónasar og í Bókvali. Minningarspjöld Náttúrulækninga- félagsins á Akureyri, fást í Bókvali, Amaró og Blómabúðinni Akri í Kaupvangi. Minningarspjöld Minningarsjóðs Kvenfélagsins Hlífar fást í Bókabúð Jónusar, Möppudýrinu Sunnuhlíð, Blómabúðinni Akri og símaafgreiðslu " S.A. Minningarspjöld Sambands íslenskra kristniboðsfélaga fást hjá: Pedromyndum Hafnarstræti 98. Sig- ríði Freysteinsdóttur Þingvallastræti 28, Hönnu Stefánsdóttur Víðilundi 24 og Guðrúnu Hörgdal Skarðshlíð 17. Minningarspjöld Styrktarsjóðs Kristnesspítala fást í Bókvali og á skrifstofu Kristnesspítala. Minningarkort Aknreyrarkirkju fást í Bókvali og Blóntabúðinni Akri í Kaupangi. Minningarkort Rauða krossins eru til sölu í Bókvali. Minningarspjöld Minningarsjóðs Guðmundar Dagssonar, Kristncs- hæli, fást í Kristneshæli, Bókavcrsl- uninni Eddu Akurcyri og hjá Jór- unni Ólafsdóttur Brekkugötu 21 Akureyri. Athugið Vinarhöndin, Styrktarsjóður Sól- borgar, selur minningarspjöld til stuðnings málefna þroskaheftra. Spjöldin fást í: Bókvali, Bókabúð Jónasar, Möppudýrinu í Sunnuhlíð og Blómahúsinu við Glerárgötu. Grýtubakkahrcppur - Grenivík. Munið eftir minningarspjöldum Steinunnar Sigursteinsdóttur. Til sölu hjá Eydísi í Litluhlíð 2g. sími 21194.' Minningarkort Sjálfsbjargar Akur- eyri fást hjá eftirtöldum aðilum: Bókabúð Jónasar, Bókval, Akri Kaupangi, Blómahúsinu Glerárgötu 28 og Sjálfsbjörgu Bugðusíðu 1. Minningarspjöld Slysuvarnafélags Islands fást á cftirtölduin stöðum: Bókabúö Jónasar, Bókvali og Blóma- búðinni Akri. Styrkið Slysavarnafélagið í starfi. Minningarkort Glerárkirkju fást á eftirtöldum stöðum: Hjá Ásrúnu Pálsdóttur Skarðshlíð 16 a, Guðrúnu Sigurðardóttur Langholti 13 (Rammagerðinni). Judith Sveinsdóttur Langholti 14, í Skóbúð M.H. Lyngdal Sunnuhlíð, versluninni Bókval, í Glerárkirkju hjá húsverði, Blómahúsinu Glerár- götu, Bókabúð Jónasar og Blóma- búðinni Akri Kaupangi. iVíinningarspjöld Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrcnnis fást á eftir- töldum stöðum: Akureyri: Blóma- búðinni Akur, Bókabúö Jónasar, Bókvali, Möppudýrinu í Sunnuhlfð og á skrifstofunni Hafnarstræti 95, 4. hæð; Dalvík: Heilsugæslustöð- inni, Elínu Sigurðardöttur Stór- holtsvegi 7 og Ásu Marinósdóttur' Kálfsskinni; Ólafsfirði: Apótekinu; Grenivík: Margrcti S. Jóhannsdótt- ur Hagamel. Síminn á skrifstofunni er 27077. jafnaði góð, innkomur öruggar og túlkun í flestum tilfellum í mjög góðu lagi. Sérstaklega eftirtektarvert var, hve vel kórinn náði viðhlítandi meðferð negrasálma og nokkurra afrískra sönglaga, sem kröfðust næmrar tilfinningar fyrir takti og misgengi í hrynjandi (synkópum). Það er ekki algengt, að kórar skipaðir hvítu fólki hafi þessi atriði svo á valdi sínu, að í lagi sé, og er sannast sagna á stundum heldur leiðinlegt að hlusta á til- raunir þeirra til þess að túlka til dæmis negrasálma. Meðferðin verður oftast í ætt við evrópska kóratónlistarhefð, hún lituð djass- ískum hljómagangi en að mestu án þeirrar sveiflu, sem til heyrir. Sænsk sönglög voru mörg á söngskrá kórsins, eins og við var að búast. Víða var greinilega um að ræða útsetningar, sem gerðar höfðu verið með hinn fámenna kór í huga eða sem valdar höfðu verið sérstaklega til þess að hann fengi notið sín sem best. Sérlega ljúflegur var flutningur kórsins á laginu Nocturne og á hinu al- þekkta sænska lagi Vem kan segla forutan vind. Þá var for- vitnilegt að hlýða á þrjú síðustu lögin á söngskránni, sem báru heitin Mánniskan ár fridlyst, Jubla og Hoppets sáng. Þessi lög eru öll nútímaverk og talsvert flókin í hrynjandi og hljóma- gangi. Tónleikar Braschamba í Akur- eyrarkirkju voru ekki fjölsóttir en hefðu gjarnan mátt vera það. Þeir voru ánægjulegt sýnishorn þess, sem sænskir áhugamenn um samsöng eru að gera og því fróð- legir auk þess sem þeir voru fjöl- breytt og góð skemmtun. Haukur Ágústsson. Háskólakórimi heldur tónleika í Akureyrarkirkju í kvöld 21. júní kl. 20.30. Ýdölum föstudagskvöld 22. júní kl. 20.30. Á efnisskránni eru m.a. íslensk þjóðlög í útsetningu Árna Harðarsonar og Hjálmars H. Ragnarssonar. Stjórnandi Guðmundur Óli Gunnarsson. Tiikynning til viðskiptavina Myndbandaleigu kvikmyndahúsanna Leigan er flutt að Strandgötu 6 Verið velkomin. Ath! Seljum sælgæti eftir vigt. Myndbandaleiga Video- kvikmyndahúsanna höllin Arlegur fj ölsky ldudagur Skógræktarfélags Eyfírðinga verður 21. júní n.k. Útplöntun verður við Melgerðismela frá kl. 18 á veg- um Átaks 1990. Mætum sem flest, tökum með okkur nesti og komum klædd eftir veðri. Þeir sem óska eftir bílfari hafi sam- band við Skógræktarfélag Eyfirðinga í síma 24047 fyrir kl. 18 sama dag. Skógræktarfélag Eyfíröinga.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.