Dagur - 21.06.1990, Blaðsíða 12
Akureyri, fimmtudagur 21. júní 1990
Skógræktarfélag Eyfiirðinga ★ Gróðrarstöðin í Kjama
Opið virka daga kl. 9-18. Laugardaga kl. 10-17.
Leitið upplýsinga
í símum
24047 og 24599.
★ Póstsendum
um allt land.
Með lífið í lúkunum.
Mynd: KL
Umhverfisdeild Akureyrarbæjar:
Landgræðsluátak 1990
við Miðhúsaklappir
- mikið um dýrðir í Kjarnaskógi
á Jónsmessunótt
Umhverfísdeild Akureyrar-
bæjar stendur fyrir Land-
græðsluátaki 1990 í Miðhúsa-
klöppum við Eikarlund nk.
laugardag. Bæjarbúum gefst
þá kostur á að kaupa plöntur
og planta þeim í rólegheitum á
laugardaginn með aðstoð
fróðra manna. Að plöntun lok-
inni verður efnt til grillveislu
og kvöldvöku í Kjarnaskógi
fram á Jónsmessunótt.
Verkstjórar umhverfisdeildar
verða við Miðhúsaklappir á laug-
ardag frá kl. 10-18 og þar getur
fólk keypt plöntu á 50 kr.
stykkið. A sama tíma er gert ráð
fyrir að plöntun fari fram og
Sigurfmnur Siguijónsson á Sauðárkróki í kærumáli gegn franska ríkinu:
Hrottaleg meðferð öryggisvarða kærð
- „fylgist vel með málinu,“ segir Albert sendiherra í £arís
Sigurfinnur Sigurjónsson,
smiður og knattspyrnumaður á
Sauðárkróki, stendur í mála-
ferlum við franska ríkið um
þessar mundir og hefur gert
síðan í febrúar ’89. Þá lagði
hann fram kæru vegna hrotta-
legrar meðferðar franskra
öryggisvarða á úrslitaleiknum
Ísland-Pólland á HM í hand-
bolta. Sigurfinnur nefbrotnaði
og hlaut slæma áverka eftir
barsmíðar öryggisvarðanna,
svo og annar Islendingur sem
einnig kærði verðina til
franska ríkisins.
Sigurfinnur sagði í samtali við
Dag að kerfið væri þunglamalegt
í Frakklandi og Iítið gengi í kæru-
málinu. Sigurfinnur fékk sér
íslenskan lögfræðing til að vinna í
málinu og einnig hefur íslenska
sendiráðið í París verið innan
handar, með Albert Guðmunds-
son sendiherra og hans starfsfólk
fremst í flokki.
Dagur hafði samband við
Albert Guðmundsson í París og
sagðist hann ekki vita betur en að
verið væri að vinna í málinu og
fylgst væri vel með því. „Annars
er franska kerfið þungt hvað
varðar mál á borð við þetta. Það
eru fleiri tugir þúsunda mála í
gangi í stórum borgum eins og
París,“ sagði Albert í samtali við
Dag í gær.
Sigurfinnur sagði að sá maður
sem ynni í kærumálum frá
útlendingum, hefði stóran bunka
af málum til að vinna úr. „Hann
hefur sagt að ég standi vel að
vígi, en ríkið neitar að bera
ábyrgð á gjörðum öryggisvarð-
anna, segir að þeir séu sjálfir
ábyrgir. En ég hef fjölda vitna að
þessu atviki, það voru 18 þúsund
áhorfendur á leiknum. Eg hef
ekki gefið upp alla von,“ sagði
Sigurfinnur.
Sigurfinnur var sendur á
sjúkrahús í París, sem honum
leist ekki betur á en svo að hann
fór ekki í aðgerðir fyrr en hann
kom heim til íslands nokkrum
dögum síðar. Það sama gerði
danski landsliðsmaðurinn Erik
Veje Rasmussen, sem var sam-
ferða Sigurfinni í sjúkrabíl á
„sjúkrahúsið“. Erik meiddist í
leik með Dönum á mótinu, en lét
gera að meiðslum sínum þegar
hann kom til Danmerkur. Sigur-
finnur segist eftir þessa reynslu
aldrei blóta þjónustu slysavarð-
stofa í Reykjavík, þær séu eins
og fínustu hótel á borð við þessa
í París.
-bjb
Fiskiðjusamlag Húsavíkur:
Unuið dag og
nótt í rækjunni
Fjárhag Austra frá Raufarhöfn borgið:
Fengu 160 þúsund krónur
fyrir að sigra
- Hríseyinga 4:2
Á meðan leikmenn Samein-
uðu arabísku furstadæmanna
á HM fá Rolls Royce fyrir að
skora mark á Italíu fékk 4.
deildariiðið Austri frá Rauf-
arhöfn 160 þúsund krónur
fyrir að sigra Hríseyinga 4:2
um siðustu helgi. Þar með er
fjárhag Austra borgið í sumar
og félagið þarf ekki lengur að
hafa áhyggjur af ferðakostn-
aði.
Forsaga málsins er sú að í síð-
ustu viku gengu Austramenn í
hús á Raufarhöfn og söfnuðu
áheitum á hvert skorað mark
gegn Hríseyingum. Að sögn
Haraldar Jónssonar, formanns
Austra, voru viðbrögð þorps-
búa mjög góð og algengast að
fólk hét 1000 krónum á hvert
mark.
Upphæðin hefði getað orðið
hærri því eitt mark var dæmt af
Austra gegn Narfa frá Hrísey.
Haraldur sagði að það hefði
verið súrt í broti og vildi meina
að um mistök dómara hafi verið
að ræða.
Haraldur sagði að það væri
alveg viðbúið að Austri færi út í
frekari söfnun því eftir væri að
greiða þjálfarakostnað og fleira
slíkt. „Þetta var ekki bara
hvatning fyrir sóknarmennina,
heldur líka fyrir allt liðið. Þetta
sannar að íþróttamenn fá stuðn-
ing ef þeir eru tilbúnir að leggja
eitthvað á sig í staðinn," sagði
Haraldur að lokum í samtali við
blaðið. -bjb
Það er ekki slegið slöku við
þessa dagana hjá rækjuvinnslu
Fiskiðjusamlags Húsavíkur.
Unnið er á þremur vöktum frá
kl. 6 að morgni til kl. 2 að
nóttu. Þetta vaktafyrirkomu-
lag hófst 7. júní sl. að sögn
Gunnars Bergsteinssonar, hjá
rækjuvinnslu Fiskiðjusamlags-
ins.
„Það hefur borist mikið hrá-
efni á land að undanförnu og því
höfum við orðið að vinna stíft á
vöktum," sagði Gunnar. Bæði
heima- og aðkomubátar leggja
upp rækju hjá Fiskiðjusamlag-
inu og þá hefur verið keypt frosin
„Rússarækja“ til vinnslu.
„Þessa viku erum við búnir að
taka á móti dálítið yfir 70 tonnum
og við eigum von á meiru,“ sagði
Gunnar.
En það er ekki bara í rækju-
vinnslu Fiskiðjusamlagsins sem
hefur verið mikið að gera síðustu
daga. Mikill og góður botnfiskafli
hefur borist á land og sem dæmi
kom Kolbeinsey inn til löndunar
með á annað hundrað tonn. „Það
hefur verið dauft í botnfisk-
vinnslunni að undanförnu, en nú
er talsvert bjartara yfir,“ sagði
Gunnar. óþh
íslandsbanki á Akureyri:
Þrjú útibú í eina
sæng 24. sept. nk.
Akveðið hefur verið að þann
24. september nk. verði þrír
núverandi afgreiðslustaðir
Islandsbanka á Akureyri sam-
einaðir að Skipagötu 14 á
Akureyri, en þar er nú eitt úti-
búa bankans á Akureyri.
íslandsbanki mun auk þess
starfrækja útibú að Hrísalundi
la.
Ætlunin er að stækka húsnæði
íslandsbanka við Skipagötu, en
engar breytingar verða innan
raða starfsfólks.
Frá síðustu áramótum hefur
íslandsbanki verið með útibú á
Akureyri þar sem Iðnaðarbanki,
Útvegsbanki og Alþýðubanki
voru áður til húsa. óþh
munu verkstjórarnir einnig
leiðbeina fólki hvar plönturnar
eiga að fara niður.
Að sögn Árna Steinars Jó-
hannssonar, garðyrkjustjóra' er
þetta hugsað sem aukaframlag
Akureyringa til landgræðslu-
átaksins og til að ná betri og
meiri árangri í útplöntun á úti-
vistarsvæðum bæjarins.
Það var umhverfisnefnd Akur-
eyrar sem ákvað um síðustu ára-
mót að Akureyringar tækju þátt í
landgræðsluátakinu með þessum
hætti, þ.e. að kaupa og planta
sjálfir plöntum í nánasta
umhverfi sínu. Árangur hins
almenna landgræðsluátaks, með
beinum fjárframlögum til plöntu-
kaupa, geta Akureyringar séð á
næstunni í Ólafsfirði, Hrísey og á
Melgerðismelum, þar sem plönt-
um úr þeirri leið átaksins verður
plantað.
Reiknað er með góðri þátttöku
á laugardag, m.a. hafa nokkur
starfsmannafélög tilkynnt komu
sína. Eftir að plöntun lýkur verð-
ur grillveisla í Kjarnaskógi og
kvöldvaka í umsjón skáta á
Akureyri fyrir þá sem tóku þátt í
plöntuninni. Fólk þarf sjálft að
koma með mat á grillin, sem
verða tilbúin logandi heit. Á
miðnætti, þegar Jónsmessunótt
gengur í garð, verður flugeldum
skotið á loft og skátar efna til
miðnæturgöngu um skóginn.
-bjb
Víking-Brugg hf.:
Helgi magri
á markaðiim
Helgi magri er nú kominn á
markað í formi nýrrar bjór-
tegundar frá Víking-Brugg
hf. (Sana). Þessi nýi bjór
sem ber nafn landnáms-
manns Eyjafjarðar er 4% að
styrkleika og einstakur á
íslcnskum markaði fyrir þá
sök að hann er kaloríuskert-
ur og inniheldur helmingi
færri hitaeiningar en venju-
legur bjór.
I fréttatilkynningu frá fram-
leiðanda kernur fram að svo
fáum hitaeiningum sé náð rneð
sérstökum aðferðunt við
bruggun og gerjun bjórsins
sem gerir hann þurran (dry).
Helgi magri hefur undirtitil-
inn Viking Light Extra Dry, til
aðgreiningar fyrir erlenda
feröamcnn. Kippan með sex
bjórum kostar 600 kr. og er
fáanleg í öllum útsölum
ÁTVR, að sögn Magnúsar
Þorsteinssonar, framkvæmda-
stjóra Sana.
Heiðurinn af Helga magra á
Alfred Teufel, bruggmeistari
frá Þýskalandi sem hefur starf-
að hjá Víking-Brugg í eitt ár.
Hann hefur mikla reynslu í
bruggun á bjór og hefur starf-
að víða um heint á yfir 30 ára
ferli sínum sent bruggmeistari.
SS