Dagur - 27.06.1990, Blaðsíða 1

Dagur - 27.06.1990, Blaðsíða 1
 j£\U± fyrir 4 herrana errabudin | HAFNARSTRÆTI 9? 60? AKUREYRI SiMI 96 26708 BOX 397 Það væri synd að segja að sumarlegt veður sé á Norðurlandi þessa dagana. Þessi ágætis grænmetis- og ávaxtasali á Akureyri lét þó norðannepjuna í gær ekkert á sig fá. Hann og aðrir Norðlendingar geta huggað sig við það að spáð er hlýnandi veðri næstu daga. Mynd: kl Batnandi veður á Norðurlandi Framhaldsskólinn að Laugum: Mikill áhugi á námiííþrótta-og ferðamáladeild I haust hefst kennsla í tveimur nýjum deildum hjá Framhalds- skólanum að Laugum í Reykja- dal, en það eru íþrótta- og ferðamáladeild. Sigurður Viðar Sigmundsson áfangastjóri segir að nám í íþrótta- deild taki þrjú ár að loknum grunnskóla, og þeir sem útskrif- ast úr henni fá réttindi til að þjálfa unglinga í þeim íþrótta- greinum sem þeir hafa valið sér sem kjörgreinar. Tilgangurinn með ferðamála- deild er að mennta fólk til að starfa í ferðaþjónustu, og er það einnig þriggja ára nám eftir grunnskóla. Sigurður segir að með þessu námi sé verið að mennta hinn almenna starfsmann til starfa í ferðaþjónustunni, ekki sérstaklega matreiðslumenn, þjóna eða hótelstjóra, heldur verði þarna boðið upp á alhliða menntun í ferðaþjónustu. Þessi menntun væri mjög gagn- leg hinum almenna starfsmanni á hótelum, ferðaskrifstofum og verslunum sem skipta við ferða- fólk, því mikil áhersla verður lögð á tungumálanám. Ferða- þjónusta bænda er mjög vaxandi þáttur í ferðaiðnaðinum, og þeir nemendur sem útskrifast úr ferðamáladeild geta tekið að sér bókhald og skattskil fyrir þá þjónustu og bændur almennt. Skólinn getur tekið 20 nem- endur á hvora þessara nýju brauta, og hafa þegar borist nokkrar umsóknir, aðallega af Norðurlandi og er meirihluti þeirra frá Þingeyingum, en einnig koma umsóknir annars staðar frá, m.a. úr Reykjavík. GG Lögreglan: Vinnuslys í Rækjuverk- smiðjunni í Ólafsfirði Vinnuslys varð í Rækjuverk- smiðjunni í Olafsfirði í gær, er 19 ára gamall piltur klemmdist milli lyftara og fiskikassa. Hann var þegar fluttur með sjúkrabifreið til Akureyrar, en við skoðun reyndist þetta ekki eins alvarlegt og leit út í fyrstu, en þó blæddi talsvert inn á lærið. Pilturinn fékk að fara heim aftur seinnipart dagsins eftir skoðun á Fjórðungssjúkrahúsinu, en þá með flugvél. Rólegt var hjá lögreglunni á Akureyri í gær, en um hálffimm- leytið var þó ekið á kyrrstæða bifreið á bifreiðastæðinu við Hagkaup. Sá sem valdur var að því hvarf af vettvangi, og að sögn varðstjóra er það allt of algengt að ökumenn hverfi af vettvangi eftir að þeir hafa ekið á kyrr- stæða bíla, og baka eigandanum í mörgum tilfellum stórtjón. GG Kuldakastið undanfarna daga hefur komið illa við marga á Norðurlandi og menn hafa spurt hvar sumarið sé. Nú er útlit fyrir batnandi tíð, og mun hlýna smám Lítið þokast í átt að stofnun sameiginlegs lífeyrissjóðs fyrir alla launþega innan vébanda Alþýðusambands Norðurlands. í aprílmánuði var samþykkt á fundi þeirrar nefndar sem vinnur að undirbúningi þessa máls að leita eftir frekari upp- lýsingum frá lífeyrissjóðunum á svæðinu. í nefndinni eiga sæti Kári Arnór Kárason lífeyrissjóðnum Björgu á Húsavík sem er formaður, Jón Karlsson Lífeyrissjóði stéttarfé- laga í Skagafirði, Hafþór Rós- mundsson Lífeyrissjóði verka- lýðsfélaga á Norðurlandi vestra, Jón Helgason frá lífeyrissjóðnum Sameiningu og Heimir Ingimars- son lífeyrissjóði Iðju. Á aprílfundinum var lögð fram samantekt á þeirri könnun sem þegar hafði verið gerð um það hvernig aðild fólks að lífeyris- sjóðum á Norðurlandi skiptist annars vegar að sjóðum stað- bundnum hér, og hins vegar aðild að sjóðum sem staðsettir eru á Reykjavíkursvæðinu. Þar sem ekki fengust nógu mörg svör við áðurnefndri könnun var á ný sendur fyrirspurnalisti til lífeyris- sjóðanna á Norðurlandi varðandi aðild. Næsti fundur nefndarinnar er á næsta leiti, og þar verða niður- stöðurnar kannaðar og tekin ákvörðun um framhaldið. Á síð- asta þingi Alþýðusambands Norðurlands var samþykkt að niðurstöður þessarar könnunar skyldu liggja fyrir sérstöku auka- saman í veðri fram að helgi á öllu Norðurlandi. Spáð er breytilegri átt í dag og á morgun, en hæðin sem var yfir Grænlandi er að þingi Alþýðusambands Norður- lands sem haldið verður í ágúst- eða septembermánuði nk. Það þing tekur ákvörðun um fram- hald málsins, sem væntanlega verður í því fólgið að teknar verða upp samningaviðræður við aðila vinnumarkaðarins um það að aðildarfélög Alþýðusambands Norðurlands stofni sérstakan líf- eyrissjóð eða gangi inn í einhvern sjóð sem nú þegar starfar á fé- Gufuborinn Dofri er kominn í Kröflu, og næstu daga verður byrjað að bora. Ætlunin er að kanna aftur háhitasvæðið þar sem hin fræga hola 4 var tekin á sínum tíma. Hún reyndist geysilega öflug og var ekki hægt að hemja hana, enda hlaut hún nafnið Sjálfskapar- víti. Miklar vonir eru bundnar við aukna gufuöflun úr svæð- inu. Héðinn Stefánsson, stöðvar- stjóri í Laxá og Kröflu, segir að nýja holan sé staðsett um 120 metra norður af holu 4. Hér er um tilraunaborun að ræða, menn eru að kanna hvort þetta svæði, sem miklar vonir voru bundnar við á sínum tíma, sé orðið vinnsluhæft. Reikna má með að holan geti orðið allt að 2000 metra djúp. þynnast út og hefur færst yfir Grænlandshaf. Norðanstrekking- urinn ætti því að vera úr sögunni í bili a.m.k. lagssvæðinu. Tilgangurinn með þessu er að allir launþegar á Norðurlandi greiði í lífeyrissjóð á svæðinu þannig að allar lífeyrissjóðs- greiðslur ávaxtist hér. í dag greiða fjölmennar stéttir eins og verslunarmenn, málmiðnaðar- menn, múrarar, rafvirkjar og sjómenn í lífeyrissjóði á Reykja- víkursvæðinu, en til að sjómenn geti átt aðild að þessum fyrirhug- Ekki er vitað hvort ráðist verð- ur í að bora aðra djúpa holu í sumar. Héðinn segir að sú ákvörðun ráðist af framvindu verksins og fleiri þáttum, en a.m.k. 30 til 40 daga tekur að bora hverja holu. En hvaða þýðingu hefur þessi borun? „Þetta þýðir að menn geta fengið vísbendingu um gufu- öflun fyrir seinni vélasamstæðuna í Kröflu,“ segir Héðinn. „Við erum með fyrri vélasamstæðuna fullnýtta, og höfum gufu á hana, en meiri óvissa er um gufu fyrir seinni samstæðuna. Þetta er svæði sem við vitum að getur ver- ið gjöfult, en spurningin er hvort það er þannig að unnt sé að vinna þar ómengaða gufu. Ekki er auð- velt að finna út úr því nema bora eina eða fleiri holur, en ein hola Sjávarútvegsdeild HA: Neðri hæðin í húsnæði því sem sjávarútvegsdeild Háskól- ans á Akureyri hefur til umráða við Glerárgötu er þessa dagana að verða tilbúin og verður klár fyrir haustið. Að sögn Jóns Þórðarsonar, forstöðumanns deildarinnar, hafa fram- kvæmdir gengið eftir áætlun. Það er Rannsóknastofnun flskiðnaðarins sem flytur fyrst inn í húsnæðið. Efri hæð húss- ins bíður svo betri tíma og meira fjármagns. Á efri hæð hússins verður kennslu- og skrifstofuhúsnæði fyrir sjávarútvegsdeildina og á þeirri neðri aðstaða fyrir rann- sóknir og kennslu sjávarútvegs- fræðum. Alls voru 16 nemendur teknir inn í deildina fyrir næsta haust og sagði Jón að fleiri gætu stundað nám í sjávarútvegsfræð- um við skólann. Fjármagn hefur fengist að hluta til vegna tækjakaupa í rannsóknaaðstöðuna við Gler- árgötu, nóg til þess að hefja þar kennslu, en Jón vonaðist eftir meira fjármagni á næstu fjárlög- um til kaupa á tækjum. -bjb aða sameiginlega norðlenska líf- eyrissjóði þarf lagabreyting að koma til. I lagafrumvarpi sem lagt verð- ur fyrir næsta Alþingi er gert ráð fyrir að enginn lífeyrissjóður sé minni en það að hann telji tíu þúsund félaga. Það táknar það að hér á Norðurlandi mun aðeins starfa einn lífeyrissjóður, en tveir ef aðildartalan yrði lækkuð niður í fimm þúsund félaga. GG getur sagt okkur mikið. í leiðinni getur hún orðið vinnsluhæf, ef vel tekst til,“ segir Héðinn. Auk holu 4 var hola 10 boruð á þessu jarðhitasvæði á sama tíma. Hún reyndist menguð af gasi og óhreinindum sem féllu út og stífl- uðu holuna, og varð hún því ekki vinnsluhæf. Héðinn segir að menn hafi ekki haft nægilega traustan búnað á holu 4, því hún sprengdi ofan af sér sem kallað er. „Menn áttu ekki von á þeim ógnarkrafti sem þarna var, og voru e.t.v. ekki nægilega vel und- ir hann búnir. Núna gerum við meiri kröfur til þrýstiþols á bún- aði sem fer á nýju holuna en hingað til hefur verið gerðar á þær holur sem boraðaí hafa verið í Kröflu,“ segir Héðinn Stefáns- son. EHB Sameiginlegur lífeyrissjóður Norðlendinga: Akvörðunar að vænta á aukaþingi Alþýðusambands Norðurlands í haust Kröfluvirkjun: Gufuborinn Dofri í startholunum

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.