Dagur - 27.06.1990, Side 3
frétfir
Miðvikudágur 27. júní 1990 - DAGUR - 3
r
1
Land fyrir 44 sumarbústaði skipulagt í Hörgárdal:
Ekkert því til fyrirstöðu að byrja
- segir Guðmann Gunnarsson bóndi í Staðartungu
„Eg er búinn að fá öll tilskilin
leyfi og samþykktir og því er
ekkert því til fyrirstöðu að
byrja strax í dag,“ segir Guð-
mann Gunnarsson, bóndi í
Staðartungu í Hörgárdal en
hann hefur í vetur látið skipu-
leggja land fyrir 44 sumarbú-
staði á jörð sinni. Hér er um að
ræða eitt stærsta skipulagða
sumarbústaðaland á Norður-
landi.
strax
Guðmann segist vera einn
þeirra bænda sem illa hafi farið út
úr loðdýrabúskapnum og því hafi
hann ákveðið að reyna að nýta
land fyrir sumarbústaði. Allir
staðhættir séu góðir og landrými
fyrir hendi.
„Pað er aðeins um 20 km leið
frá Akureyri á vegi með bundnu
slitlagi þannig að þægilegra getur
það vart verið fyrir bæjarbúa.
Staðurinn býður líka upp á
nokkra möguleika til útivistar,
bæði gönguleiðir, möguleika á
Skipulagsuppdráttur af sumarbústaðahverfi í landi Staðartungu í Hörgárdal.
veiði í Hörgá, berjaland og þess
háttar,“ segir Guðmann.
Hann áætlar að standa sjálfur
straum af kostnaði við vatnslagn-
ir og veglagnir en bústaðaeigend-
ur greiði ákveðið gjald í byrjun
og eftir það ársleigu. Eftirspurnin
muni ráða því hve hratt þetta
byggist upp en þessu hafi strax
verið sýndur áhugi. Ekki fylgi
heldur neinir skilmálar um hve-
nær ráðist verði í bústaðabygg-
ingar og því geti vel verið að ein-
hverjir tryggi sér lóðir fyrst um
sinn fyrir tjald, tjaldvagna eða
hjólhýsi og byggi síðar.
„Þetta verður því mjög sveigj-
anlegt og ræðst af vilja viðskipta-
vinanna," segir Guðmann. ,
6 JÓH .
Búnaðarbanki íslands:
Fagnar 60 ára afinæli 4. júlí nk.
- afmælisfagnaður fyrir viðskiptavini 29. júní
Alþingiskosningar 1991:
Sjálfstæðismenn á N.-eystra
huga að framboðsmáiunum
„Við vorum á þessum fundi
að ræða um framboðsmál al-
mennt og hvernig hugmyndin
yæri að standa að framboði.
Ég vildi vera tímanlega með
þennan fund til að ýta
umræöunni úr vör,“ segir
Sigurður Björnsson, formað-
ur kjördæmisráðs Sjálfstæðis-
flokksins á Norðurlandi
cystra um fund ráðsins á
Húsavik um lielgina.
„Já. okkur fannst þess þurfa
að umræðunni væri komið af
stað enda doði í mönnum eftir
bæjarstjórnarkosningarnar og
menn hvíldinni fegnir. Ætlunin
er að boða til kjördæmisfundar
í ágúst cða byrjun septeniber og
taka þá ákvörðun um hvort efnt
verður til prófkjörs eða ekki,"
sagði Sigurður.
Hann segir að menn vilji vera
tímanlega í þessurn málum,
ckki si'st ef til haustkosninga
skyldi koma. „Við ætlum okkur
að undirbúa þetta mál vel í
sumar með starfi í félögunum.
Vinnan fyrir kosningarnar er
hafin og við ætlum okkur auð-
vitað stóran hlut í kjördæm-
inu," sagöi Sigurður. JÓH
, -
v :
.
Magnus Torsell, sænskumælandi blaðamaður frá Finnlandi, ætlar að skrifa
grein um Dag í staðarblaðið Hangötidningen. Mynd: kl
Finnskur blaðamaður
í heimsókn á Degi
Búnaðarbanki íslands verður
60 ára 1. júlí nk., og mun
bankinn minnast þessara tíma-
móta með ýmsum hætti föstu-
daginn 29. júní. Útibú bankans
á Akureyri, sem jafnframt er
fyrsta útibúið hans, verður 60
ára í deseinbermánuði á þessu
ári.
Á föstudeginum 29. júní verð-
ur viðskiptavinum bankans boðið
upp á kaffi og meðlæti og börn-
um sem í bankann koma verður
færður límmiði, bók um Padding-
ton og veggspjald með mynd af
íslenska landsliðinu í knatt-
spyrnu. Lúðrasveit Akureyrar
mun leika fyrir utan bankann frá
kl. 10 til 11 og 2 til 3 og væntan-
lega einnig við afgreiðslu bank-
ans í Sunnuhlíð.
Öllum börnum á íslandi á aldr-
inum 1 til 12 ára og fædd eru 1.
júlí verður gefin Paddington-
metbók með eittþúsund króna
innistæðu auk þess sparibaukur
að eigin vali. Auk þessa verður
öllum þeim sem í afgreiðslur
Akureyri:
Gudmundur með
fimd í dag
Guðmundur Bjarnason, heil-
brigðis- og tryggingamálaráð-
herra, verður með fund á
Heilsugæslustöðinni á Akur-
eyri í dag, miðvikudaginn 27.
júní kl. 12-13.
Á fundinum mun heilbrigðis-
ráðherra ræða um manneldis- og
neyslustefnu.
bankans koma þessan dag færður
Landgræðslupoki Búnaðarbank-
ans, en pokinn inniheldur áburð,
grasfræ og birkifræ.
Fyrr á þessu ári hefur bankinn
minnst afmælisins með ýmsum
hætti; Búnaðarbankaskákmótið
var haldið í marsmánuði með
Kvennalistinn mun halda
landsfund í nóvember nk. og
verður hann í Eyjafirði. Fram
að landsfundi verður megin-
verkefni Kvennalistans að
endurskoða stefnuskrá flokks-
ins og leggja tillögur að henni
fyrir fundinn.
Á vorþingi Kvennalistans seni
haldinn var í Garðabæ um síð-
ustu helgi var farið í saumana á
síðustu sveitarstjórnarkosningum
og reynt að leita skýringa á dapri
útkomu Kvennalistans í þeim.
Fram kom það álit á fundinum að
í hugum margra væri nýjabrumið
farið af Kvennalistanum, einkum
þar sem önnur stjórnmálaöfl í
landinu hafi tileinkað sér ýmis-
legt úr málflutningi kvennalista-
kvenna. Því sé nauðsynlegt að
koma sérstöðu Kvennalistans
betur til skila, skerpa línurnar og
Ástand túna í N.-Þingeyjar-
sýslu er í meðallagi gott og
sagði Benedikt Björgvinsson,
ráðunautur, að heyskapur gæti
hafist nokkuð fyrr en í fyrra á
mörgum bæjum, eða í byrjun
júlí. Gróður í sýslunni hefur
tekið mikinn kipp síðustu daga
og ástand hans víða gott.
þátttöku ýmissa stórmeistara í
skák, og frá 26. apríl til 6. maí
var haldin sýning á Kjarvalsstöð-
um á 120 málverkum sem eru í
eigu bankans. Á afmælisdeginum
sjálfum munu svo ýmis lands-
samtök eða félagasamtök verða
{ styrkt fjárhagslega. GG
efla tengslin út á við.
Prátt fyrir að hafa fengið lélega
kosningu í sveitarstjórnarkosn-
ingunum töldu kvennalistakonur
að Kvennalistans væri enn þörf
og ótvíræður árangur af starfi
hans væri aukin þátttaka kvenna
á flestum sviðum þjóðlífsins. Til
marks um að Kvennalistinn hafi
síður en svo lagt upp laupana er,
að sögn kvennalistakvenna,
reiknað með framboði Kvenna-
listans í öllum kjördæmum lands-
ins í næstu alþingiskosningum.
Á vorþinginu voru myndaðir
málefnahópar um launamál,
atvinnustefnu, umhverfismál og
EB með sérstöku tilliti til þess,
hvaða áhrif þróunin í Evrópu
hefur á hagi kvenna. Að sögn
kvennalistakvenna verða þessir
málaflokkar forgangsverkefni í
endurskoðun stefnuskrár Kvenna-
listans. óþh
Benedikt sagði að nokkrir
bændur hefðu orðið fyrir miklu
tjóni í fyrra sökum kals á túnum,
en ástandið núna væri mun betra.
Helst væri það austan Öxafjarð-
arheiðar sem kal sæist á túnum,
en að öðru leyti kæmu tún nokk-
uð vel undan vetri. -bjb
Þótt Dagur hafi ágæta út-
breiöslu á Noröurlandi vissum
við ekki að hróður blaðsins
hefði borist til Finnlands. Þess
vegna brá okkur í brún þegar
finnskur blaðamaður birtist á
skrifstofu ritstjórnar og sagði
„hej“ og vildi fá að vita allt um
dagblaðið á landsbyggðinni.
Hér var á ferðinni Magnus
Torsell, blaðamaður á Hangötidn-
ingen (Hangonlehti). Þetta er
staðarblað í Hangö, sem er
12.000 manna bær um 135 km
suðvestur af Helsinki. Blaðið
er gefið út í 3.500 eintökum og
kemur út þrjá daga vikunnar.
Magnús sagði að í Hangö væri
bæði sænsku- og finnskumælandi
, fólk og tekur blaðið mið af þeirri
staðreynd. Það er eitt af fáum
blöðum sem inniheldur efni bæði
á sænsku og finnsku. Blaðið er 12
síður að stærð með finnskum
fjórblöðungi í miðopnu.
Meðan Magnús kynnti sér
starfsemina á Degi og ræddi við
blaðamenn sagði hann okkur frá
dvöl sinni hér. íslandsferðin er
bæði skemmtiferð og námsferð,
en hann fékk styrk til að kynna
sér fjölmiðlun hér á landi. Hann
var búinn að skoða sig um í
Reykjavík en vildi endilega fræð-
ast um staðarblöð á borð við
Dag, en Hangötidningen og Dag-
ur eiga margt sameiginlegt. Og
nú bíðum við bara eftir því að
taka á móti nýjum áskrifendum
frá Finnlandi. SS
Kvennalistinn:
Boðar til landsfundar
í Ejjafirði í nóvember
- reiknað með framboði í öllum
kjördæmum í næstu alþingiskosningum
Norður-Þingeyj arsýsla:
Heyskapur með fyrra fallinu