Dagur - 27.06.1990, Blaðsíða 10

Dagur - 27.06.1990, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Miðvikudagur 27. júní 1990 myndosögur dogs ÁRLAND Ertu aö ræna á flóamark i aöi?! Þú ættir aö skammast 'þínl' y fUrM Þetta er Ameríka félagi! Þaö rænir enginn á flóamarkaöi hérna!.... Þetta er gjörsam- ANPRÉS ÖND HERSIR 5 O) ó V) BJARGVÆTTiRNIR 'Siðasti kassinnl... Allt i lagi... sjáöu tih Zaghul. Þú þarft aö koma meö aöra sendingu i næstu viku. Ég verð í Kili-j ...svo þú þarft sjálfur aö koma ^ þessu fyrir í skemmunni. Ég hef áhyggjur af aö geyma þarna vörur sem eru milljóna viröi. Talandi um þeninga, herra Carr... Þaö er eitt aö hætta flugmannsréít- ^indunum mínum... og annað aö hætta lífi minul... # Um i og y Sá bókstafur í íslensku rit- máli sem er hvað varasam- astur er bókstafurinn y. Margir málnotendur eiga í erfiðleikum með að sjá út hvenær þeir eiga að nota i og hvenær y og ekki síður þegar um er að ræða ei eða ey. í talmáli þurfa menn hins vegar engar áhyggjur að hafa af þessu vandamáli, þar eð framburðarmunur i og y er fyrir löngu horfinn úr íslensku máli. En hið ritaða orð er miskunnarlaust; það krefst þess að skrifað sé y þegar það á við og i þar sem það á við. Um þetta gilda margar og nokkuð flóknar reglur, sem hinn almenni málnotandi hefur ekki alltaf á reiðum höndum. Einfald- ast er að slá viðkomandi orði upp í orðabók ef rithátt- ur þess er ekki á hreinu eða spyrja einhvern kurtningja sem er vel að sér í íslensku máli. En þessa visku þekkja eflaust flestir lesendur og óþarfi að hafa mörg fleiri orð um hana. # Peisa/peysa Á dögunum mátti sjá svo- hljóðandi fyrirsögn í útbreiddasta dagblaðinu á Norðurlandi: „Nóg að gera í Norðurlandapeisum“. Marg- ir lesendur ráku upp afar stór augu þegar þeir sáu að skrifað var peisa i stað peysa, sem flestir hafa van- ist að sjá þegar á annað borð er fjallað um þessa ágætu, gjarnan prjónuðu, bolflík. Það má til sanns vegar færa, að rithátturinn peisa kemur ankannalega fyrir sjónir á prenti enda til muna sjaldséðari en peysa. Þá er von að menn spyrji; hvað er hið rétta i þessu máli? Samkvæmt orðabók eru báðar myndir orðsins til en þó er peisa „réttari“ rit- háttur þó ekki geti talist rangt að rita peysa. Mönn- um er því frjálst að nota hvorn ritháttinn sem þeir vilja, á meðan engar skýrar reglur eru til um réttmæti þeirra. Fleiri dæmi af svipuðum toga mætti nefna, t.a.m. hafa flestir vanist því að sjá orðið „bleyja“ ritað þannig, þótt orðabókin segi að við- komandi orð skuli stafsett „bleia“. Ekki eru allir tilbúnir til að samþykkja það en menn geta huggað sig við að þeir geta sagt þessi orð á hvorn vegínn sem þeir kjósa, þar eð ekki er hægt að greina muninn á i og y í framburði. dogskrá fjölmiðlo Sjónvarpið Miðvikudagur 27. júní 17.50 Síðasta rísaeðlan. (Denver, the Last Dinosaur.) 18.20 Þvottabimirnir. (Racoons.) 18.50 Táknmálsfréttir. 18.55 Úrskurður kviðdóms. (Trial by Jury). Leikinn bandarískur myndaflokkur um yfirheyrslur og réttarhöld í ýmsum saka- málum. 19.20 Umboðsmaðurinn. (The Famous Teddy Z). Bandarískur gamanmyndaflokkur. 19.50 Maurinn og jarðsvínið. Teiknimynd. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Grænir fingur (10). Matjurtagarðurínn. Rætt við Magnús Óskarsson tilrauna- stjóra á Hvanneyri í Borgarfirði, sem gef- ur góð ráð um tegundir og stofna, sem henta myndu til heimanota víðast hvar í landinu. 20.45 Orkugjafar framtíðarinnar. (Aus Licht und Wasser). Þýsk heimildamynd. 21.30 Drepum drekann. (Tod dem Drachen). Sovésk/þýsk kvikmynd gerð eftir leikriti Jevgenís Shvarts. í verkinu er fomri sögu um riddarann hugprúða, Lanselot, sem frelsar ungfrúna fríðu og borgina hennar úr klóm drekans illa, snúið upp á atburði okkar tíma af góðu hugviti. Ævintýra- minnin varpa spaugvisu ljósi á einræðis- herra okkar aldar og ekki síst það sem gerist eftir að þeim hefur verið steypt af stóli. Aðalhlutverk: Alexander Abdulov, Oleg Jankovskí og Eugen Leonov. 23.00 Ellefufréttir. 23.10 Drepum drekann. Framhald. 23.25 Dagskrárlok. Stöð 2 Miðvikudagur 27. júní 16.45 Nágrannar. 17.30 Fimm félagar. (Famous Five.) 17.55 Albert feiti. 18.20 Funi. (Wildfire.) 18.45 í sviðsljósinu. (After Hours.) 19.19 19:19. 20.30 Murphy Brown. Vinsæll bandarískur gamanmyndaflokk- ur. Aðalhlutverk: Candice Bergen, Pat Cor- ley, Faith Ford, Charles Kimbrough, Robert Pastorelli, Joe Regalbuto og Grant Shaud. 21.00 Okkar maður. Bjarni Hafþór Helgason á faraldsfæti um landið. 21.15 Rjargvætturinn. 22.05 Fieutwood Mac. í þessum þætti verður feril sveitarinnar rakinn, allt frá því hún byrjaði 1967 og þar til heimsfrægðin barði að dyrum á átt- unda áratugnum. Flutt verða lög á borð við „Tango In The Night", „Sara", „Rhi- annon" og „The Chain". 23.00 Svefnherbergisglugginn. (The Bedroom Window). Hörkuspennandi mynd frá upphafi til enda. Aðalhlutverk: Steve- Guttenberg, Eliza- beth McGovern og Isabelle Huppert. Stranglega bönnuð börnum. 00.30 Dagskrárlok. Rás 1 Miðvikudagur 27. júní 6.45 Veðurfregnir • Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 í morgunsárið. Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Fréttir á ensku að loknu fréttayfirliti kl. 7.30. Sumarljóð kl. 7.15, hreppstjóraspjall rétt fyrir kl. 8.00, menningarpistill kl. 8.22 og ferðabrot kl. 8.45. Auglýsingar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00. 9.00 Fréttir. 9.03 Litli barnatíminn - Kátir krakkar" eftir Þóri S. Guðbergsson. Hlynur örn Þórisson les (3). 9.20 Morgunleikfimi - Trimm og teygjur. 9.30 Landpósturinn - Frá Norðurlandi. 10.00 Fréttir. 10.03 Þjónustu- og neytendahornið. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Úr bókaskápnum. 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur. 11.53 Á dagskrá. 12.00 Fréttayfirlit. 12.10 Úr fuglabókinni. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir • Dánarfregnir • Aug- lýsingar. 13.00 í dagsins önn - Hvað eru börn að gera? Sumarbúðir á Eiðum. Umsjón: Inga Rósa Þórðardóttir. (Frá Egilsstöðum). 13.30 Miðdegissagan: „Vatn á myllu Kölska“ eftir Ólaf Hauk Símonarson. Hjalti Rögnvaldsson les (4). 14.00 Fréttir. 14.03 Harmonikuþáttur. 15.00 Fréttir. 15.03 Sumarspjall. 16.00 Fréttir. 16.03 Að utan. 16.10 Dagbókin. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. 17.00 Fréttir. 17.03 Tónlist eftir Beethoven. 18.00 Fréttir. 18.03 Sumaraftann. 18.30 Tónlist • Auglýsingar • Dánarfregnir. 18.45 Veðurfregnir • Auglýsingar. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Auglýsingar. 19.32 Kviksjá. 20.00 Fágæti. 20.15 Samtímatónlist. 21.00 Fósturböm. 21.30 Sumarsagan: „Manntafl" eftir Stef- an Zweig. Þórarinn Guðnason les (3). 22.00 Fréttir. 22.07 Að utan. 22.15 Veðurfregnir • Orð kvöldsins. 22.25 Úr fuglabókinni. 22.30 Birtu brugðið á samtímann. 23.10 Sjónaukinn. 24.00 Fréttir. 00.10 Samhljómur. 01.00 Veðurfregnir. Rás 2 Miðvikudagur 27. júní 7.03 Morgunútvarpið - Vaknið til lífsins. Leifur Hauksson og Jón Ársæll Þórðarson hefja daginn með hlustendum. 08.00 Morgunfréttir. - Morgunútvarpið heldur áfram. 9.03 Morgunsyrpa. 11.03 Sólarsumar með Jóhönnu Harðardóttur. Molar og mannlífsskot í bland við góða tónlist. - Þarfaþing kl. 11.30. 12.00 Fréttayfirlit. 12.20 Hádegisfréttir. - Sólarsumar heldur áfram. 14.03 HM-hornið. 14.10 Brot úr degi. 16.03 Dagskrá. 18.03 Þjóðarsálin - Þjóðfundur í beinni útsendingu, sími 91-686090. 19.00 Kvöldfréttir. 19.32 Zikk zakk. 20.00 íþrttarásin - íslandsmótið í knatt- spyrnu, 1. deild karla. 22.07 Landið og miðin. 23.10 Fyrirmyndarfólk. 00.10 í háttinn. 01.00 Næturvakt á báðum rásum til morguns. Fréttir eru sagðar kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9, 10, 11, 12, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24. Næturútvarpið 1.00 Með grátt í vöngum. 2.00 Fréttir. 2.05 Norrænir tónar. 3.00 Landið og miðin. 4.00 Fréttir. 4.03 Sumaraftann. 4.30 Veðurfregnir. 4.40 Glefsur. 5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam- göngum. 5.01 Zikk zakk. 6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam- göngum. 6.01 Áfram ísland. Ríkisútvarpið á Akureyri Miðvikudagur 27. júní 8.10-8.30 Svæðisútvarp Noröurlands. 18.35-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands. Bylgjan Miðvikudagur 27. júní 07.00 7-8-9... Hallur Magnússon og Kristín Jónsdóttir ásamt Talmálsdeild Bylgj- unnar. 09.00 Fréttir. 09.10 Páll Þorsteinsson. 11.00 Ólafur Már Björnsson. 14.00 Helgi Rúnar Óskarsson. 17.00 Síðdegisfréttir. 17.15 Reykjavík síðdegis. 18.30 Hafþór Freyr Sigmundsson. Klukkan 20 hefst 7. umferð í íslandsmót- inu í Hörpudeild. FH-Fram, KA-ÍBV, ÍA-Þór, Valur-KR. 22.00 Ágúst Héðinsson. 02.00 Freymóður T. Sigurðsson. Hljóðbylgjan Miðvikudagur 27. júní 17.00-19.00 Axel Axelsson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.