Dagur - 27.06.1990, Page 11
Miðvikudagur 27. júní 1990 - DAGUR - 11
íþróttir
7. umferð Hörpudeildar hefst í kvöld:
Mikilvægir leikir
Akureyrarliðanna
í kvöld hefst 7. umferð Hörpu-
deildarinnar í knattspyrnu.
KA leikur á Akureyrarvelli
gegn nýliðunum úr Yestmanna-
eyjum en Þórsarar eiga fyrir
höndum erfiðan leik á Akra-
nesi.
Leikur KA og ÍBV í kvöld er
mikilvægur KA mönnum eigi
þeir að blanda sér í baráttu efstu
liðanna í sumar. Eftir slæma
byrjun hefur liðið verið að ná sér
á strik og sannfærandi sigur á
Stjörnunni í síðustu umferð sýnir
að margt býr í liðinu. Andstæð-
ingarnir í kvöld eru sterkir og
það sýnir staða þeirra í deildinni
en Eyjamenn eru í fjórða sæti
með 12 stig eða aðeins stigi á eftir
Val og Fram.
Leikur Þórs og ÍA er slagur
botnliðanna. Þórsarar eru á botn-
inum með 4 stig en ÍA er í næst
neðsta sæti með 5 stig. Þessi lið
þurfa því bæði á sigri að halda
ætli þau sér að komast af fall-
hættusvæðinu. Skagamenn eiga
harma að hefna frá því í fyrra
þegar Þórsarar unnu báða leikina
2:1 en ÍA tapaði aðeins tveimur
leikjum á heimavelli í fyrra.
Aðrir leikir í Hörpudeild í
kvöld eru leikir FH og Fram í
Hafnarfirði og Vals og KR að
Hlíðarenda. Síðasti leikur
umferðarinnar er á föstudaginn
þegar Víkingur og Stjarnan
mætast. JÓH
Sund:
Elsa María vann
Sólnesbikarinn
Sundfélagið Óðinn stóð fyrir
minningarmóti um Jón G. Sól-
nes um síðastliðna helgi. Þátt-
takendur komu ekki úr öðrum
félögum að þessu sinni. Keppt
var í 11 greinum og fékk Elsa
María Guðmundsdóttir Sól-
nesbikarinn fyrir stigahæsta
afrek á mótinu sem var í 100 m
bringusundi sem hún synti á tím-
anum 1:19,13 mín. Þetta sund
tryggði henni einnig afmælis-
bikarinn sem veittur er fyrir
stigahæsta afrek kvenna á mót- inu.
Sigurvegarar í hverri voru sem hér segir: grein
200 m bringusund kvenna: Elsa María Guðmundsdóttir 2:54,26
100 m bringusund karla: Pétur Pétursson 1:19,68
100 m bringusund kvenna: Elsa María Guðmundsdóttir 1:19,13
100 m skriðsund karla:
Hlynur Túliníus 59,86
200 m fjórsund kvenna:
Þorgerður Benediktsdóttir 2:51,71
100 m flugsund karla:
Ómar Árnason 1:08,40
100 m baksund kvenna:
Þorgerður Benediktsdóttir 1:28,65
100 m baksund karla:
Hlynur Túliníus 1:13,21
100 m skriðsund kvenna:
Sonja Gústafsdóttir 1:10,85
200 m bringusund karla:
Wolfgang Sahr 2:53,33
800 m skriðsund kvenna:
Birna Sigurjónsdóttir 10:14,10
Hlynur Túliníus hlaut Jónsbik-
arinn fyrir stigahæsta afrek heima-
manna í skriðsundi á mótinu en
hann hlaut 529 stig fyrir 100 m
skriðsund. JÓH
Tölvustýrð markatafla vígð í kvöld
Á leik KA og ÍBV í kvöld verður vígð ný tölvustýrð markatafla sem sett hefur verið upp á Akureyr-
arvelli. Á þessari 15 fermetra töflu birtast upplýsingar um stöðu í leiknum og tíma.
KA og Þór munu formlega afherida Akureyrarvelli þessa töflu síðdegis í dag. Að sögn Ólafs Sig-
mundssonar, sem séð hefur um þessa framkvænid fyrir félögin, eru Landsbankinn og Visa-ísland aðal-
styrktaraðilar þcssa framtaks og var gerður samningur við þessa aðila um auglýsingar á töflunni í upp-
hafi. Að þeim samningi útrunnum hafa félögin þetta auglýsingapláss til ráðstöfunar. Nokkur fyrirtæki
og einstaklingar á Akureyri hafa einnig lagt þessu málefni lið.
Markataflan er af gerðinni Benet og er frönsk að gerð. Henni verður stýrt úr vallarhúsinu með sér-
stöku stjórnborði og eru allar upplýsingar um stöðu leiksins og tíma mjög skýrar fyrir áhorfendur. JÓH
Mj ólkurbikarkeppnin:
KS mætir Vflángum
í 16 liða úrslitum
- Siglfirðingar sigruðu Tindastól 5:4 í fyrrakvöld
I fyrrakvöld fór fram á Siglu-
firöi leikur í Mjólkurbikar-
keppninni þar sem áttust við
KS og Tindastóll. Þessi liö
kepptu um sæti í 16 liða úrslit-
um og var Ijóst fyrir leikinn að
andstæðingarnir yrðu 1. deild-
arlið Víkinga. Siglfirðingar
höfðu betur í miklum marka-
leik og skoruðu fimm mörk
gegn fjórum mörkum Tinda-
stóls.
( Þessi lið virtust hafa lítinn
áhuga á að fara suður yfir heiðar
Knattspyrna, 2. flokkur karla:
Þór og KA skildu jöfn
- Völsungar töpuðu stórt á Húsavík
Akureyrarliðin KA og Þór
skildu jöfn í fyrrakvöld þegar
lið 2. flokks karla mættust.
Hvort lið skoraði eitt mark. Á
sama tíma léku lið Völsungs og
KR í 2. flokki á Húsavík og þar
máttu heimamenn hirða bolt-
ann fimm sinnum úr netinu án
þess að skora sjálfir.
Leikur KA og Þórs fór fram
við mjög erfiðar aðstæður. Spilað
Golf:
Öm í landsliðið
Örn Arnarson, kylfingur frá
Akureyri, hefur verið valinn í
landslið Islands sem keppir á
Evrópumeistaramóti ungl-
inga í golfi, 18 ára og yngri.
Mótið fer fram á Grafarholts-
velli í Reykjavík dagana 11.-
15. júlí.
Ásamt Erni skipa landsliðið
þeir Kjartan Gunnarsson Golf-
klúbbi Selfoss, Ástráður Sig-
urðsson Golfklúbbi Reykjavík-
ur, Sturla Ómarsson Golfklúbbi
Reykjavíkur, Hjalti Nielsen
Golfklúbbnum Leyni og Júlíus
Hallgrímsson Golfklúbbi Vest-
mannaeyja.
Þessir sex kylfingar voru
valdir úr 12 manna hópi sem æft
hefur saman að undanföniu und-
ir stjóm Hannesar Þorsteinsson-
ar sem er fyrirliði landsliðsins.
JÓH
var á malarvelli KA í norðan
kuldaveðri og rigningu og bar
leikurinn þessum erfiðu aðstæð-
um merki. Tvo af fastamönnum
vantaði í KA liðið en Þórsurum
tókst samt ekki að nýta sér það.
Eftir um 10 mínútna leik var
dæmt víti á KA eftir að boltinn
hafði farið í hönd eins leik-
manns. Þórir Áskelsson skoraði
örugglega úr vítinu og skömmu
síðar gerðu Þórsarar aftur harða
hríð að markinu og áttu skot í
stöng. Segja má að ekki hafi ver-
ið margt bitastætt í þessum leik
fyrr en skömmu fyrir leikslok
þegar Skapti Ingimarsson jafnaði
leikinn.
Á Húsavík töpuðu Völsungar
stórt fyrir KR. Eftir 10 mínútur
fékk einn Völsunga rautt spjald
og við það riðlaðist leikur þeirra.
Undir lok hálfleiksins komu þrjú
mörk KR nánast í röð og í síðari
hálfleik bættu þeir tveimur mörk-
um við. JÓH
og mæta Víkingum því í bæði
þessi lið vantaði sterka menn.
Fleira spilaði inn í, m.a. að aðal-
markvörður Siglfirðinga lenti í
bílslysi um helgina og sat á
bekknum í fyrrakvöld.
Skammt var liðið af leiknum
þegar Tindastólsmenn skoruðu.
Þar var að verki Árni Ólason.
Sauðkrækingarnir sóttu stíft í
byrjun og á 21. mínútu bætti
Stefán Pétursson öðru marki við.
í kjölfarið fylgdu fleiri marktæki-
færi gestanna en á 34. mínútu
minnkaði Hlynur Eiríksson mun-
inn og þá loks hrökk heimaliðið í
gang. Þessar síðustu mínútur
hálfleiksins urðu sviptingamiklar
því ekki liðu nema fjórar mínút-
ur þar til Hafþór Kolbeinsson
jafnaði leikinn. Áfram pressuðu
Siglfirðingar og skömmu fyrir
leikslok sendi Gunnar Gestsson
boltann í eigið mark og þar með
var staðan orðin 3:2 fyrir KS.
Síðari hálfleikurinn hófst líkt
og sá fyrri með mikilli pressu
Tindastólsmanna. Á fyrstu mín-
útunum fengu þeir kjörin mark-
tækifæri en lánaðist ekki að nýta
þau. Sitt marktækifæri nýtti hins
vegar Hlynur Eiríksson á 8. mín-
útu hálfleiksins og bætti við
fjórða marki Siglfirðinga. í næstu
sókn Tindastólsmanna var brotið
á Inga Þór Rúnarssyni innan víta-
teigs KS og dæmt víti sem Hólm-
ar Ástvaldsson skoraði örugglega
úr.
Fimmtán mínútum síðar komst
Ingi Þór aftur inn fyrir KS vörn-
ina en rnissti boltann frá sér og
glataði þar með upplögðu tæki-
færi til að jafna. Varamaður KS,
Hugi Sævarsson, gerði fimmta
matk Siglfirðinga stuttu síðar og
undir lokin svaraði Guðbjartur
Magnason fyrir Tindastól en
lengra komust Tindastólsmenn
ekki og Siglfirðingar komast í 16
liða úrslit Mjólkurbikarkeppn-
innar. ÁS/JÓH
Hugi Harðarson skoraði flmmta mark KS gegn Tindastól.