Dagur - 27.06.1990, Blaðsíða 12
Kodak 'Tr
Express
1 Cæöaframköllun
k
Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324.
Akureyri, miðvikudagur 27. júní 1990
Brúarbygging yfir Svartá gengur samkvæmt áætlun, og verður lokið fyrir Landsmót hestamanna. Mynd: sbg
Allt að smella saman við undirbúning Landsmóts hestamanna:
Ný 36 metra brú á Svartá
opnuð fyrir umferð um helgina
- flestum verkum á svæðinu lokið
Vísindanefnd Alþjóðahvalveiðiráðsins
vill leyfa veiðar á allt að 400 hrefnum:
Ekki mjög bjartsýnn á
að veiöarnar verði leyfðar
- segir Gunnlaugur Konráðsson,
hrefnuveiðimaður
Vísindanefnd Alþjóðahval-
veiðiráðsins hefur samþykkt
fyrir sitt leyti að veiðar á 200-
400 hrefnum hér við land muni
ekki skipta máli fyrir stofn-
stærðina. Þetta álit vísinda-
nefndarinnar mun koma til af-
greiðslu á ársfundi Alþjóða-
hvalveiðiráðsins sem hefst í
Hollandi 1. júlí nk.
Gunnlaugur Konráðsson
hrefnuskytta frá Árskógssandi
hefur stundað hrefnuveiðar frá
árinu 1968 og segist ætla á
hrefnuveiðar mjög fljótlega ef
þessar veiðar verða samþykktar,
en hann segist ekki mjög bjart-
sýnn á að þær verði leyfðar, því
of margir fulltrúar í Alþjóða-
hvalveiðiráðinu láti stjórnast af
tilfinningum en ekki rökhyggju,
auk þess sem öfgamenn ráði þar
orðið of miklu.
Hrefnuveiðar voru bannaðar
árið 1985, en það ár voru veidd
um 150 dýr hér við land. Kvóta
var komið á hrefnuveiðar árið
1977, en síðasta kvótalausa árið
voru veidd rúm 200 dýr, sem er
innan við þann fjölda sem vís-
indanefndin samþykkir nú að
veidd séu.
Gunnlaugur er nú orðinn eini
hrefnuveiðimaðurinn við Eyja-
fjörð, en hann hefur haldið bát
sínum, Naustavík EA-151 sem er
28 tonna bátur, á veiðum við
Hornafjörð og fiskað um 170
tonn á sl. tveimur mánuðum.
Hann á nú aðeins eftir að veiða
um 20 tonn af eigin kvóta, en
kvóti bátsins er 144 tonn af
þorski, 3 tonn af ufsa og 3 tonn af
ýsu. GG
Aðalfundur Félags sauðfjárbænda við Eyjaíjörð:
„Það eru ýmsar blikur á lofti“
- segir Guðmundur Víkingsson,
bóndi í Garðshorni á Þelamörk
Síðasta vikan í undirbúningi
fyrir Landsmót hestamanna á
Vindheimamelum er nú hálfn-
uð. Opna á landsmótssvæðið á
föstudaginn í endanlegu
ástandi. Vel gengur að smíða
Svartárbrúna sem mun gera
það að verkum að tvær leiðir
verða inn á svæðið.
Þó að kólnað hafi í veðri og
rignt, hafa þeir sem starfa við
undirbúninginn ekkert látið það
á sig fá. Bara klætt sig aðeins bet-
ur eins og Þórarinn Sólmundar-
son, einn af framkvæmdastjórn-
armönnum sagði við Dag. Sl.
sunnudag var fólk hvatt til að
koma og vinna sjálfboðavinnu og
mætti fjöldi manns til að leggja
hönd á plóginn þó að veður væri
Vorslátrun er þessa dagana að
Ijúka hjá laxeldisstöð ísnó í
Kelduhverfi. A annað hundrað
tonnum af laxi verður slátrað
og fer sá fiskur aðallega á
Bandaríkjamarkað. Að sögn
Páls Gústafssonar, fram-
kvæmdastjóra, eru söluhorfar
ágætar. „Eg segi ekki að ég sé
ánægður með söluverðið, en
við Iátum okkur það lynda,“
sagði Páll.
hráslagalegt.
Flestum verkum á svæðinu er
nú lokið og aðeins eftir að fín-
pússa, koma fyrir leiðbeininga-
skiltum og laga til.
Fjöldi hestamanna mun koma
ríðandi til landsmótsins bæði að
sunnan og vestan. Þeir sem koma
ríðandi sunnan að yfir Kjöl verða
að leggja af stað á föstudag eða
laugardag til að vera komnir í
tíma, en ekki er vitað um fjölda
þeirra.
Að sögn Þórarins mun vera
löngu búið að lofa góðu veðri yfir
landsmótsdagana og allt útlit fyr-
ir að þau loforð standist þó að
þetta kuldakast hafi komið.
Brúarsmíði á Svartá við Saur-
bæ er nú að verða lokið og er það
Fiskeldi á framtíðina fyrir sér, þó að
það hafi verið erfitt hjá mörgum.
Ég á von á að fiskeldisstöðvum
fjölgi frekar en fækki,“ sagði Páll
Gústafsson að lokum. -bjb
fyrirtækið Stálbær í Reykjavík,
sem Sveinn Pálmason frá
Reykjavöllum í Skagafirði rekur,
sem hefur unnið það verk. Vega-
gerð ríkisins veitti alls kyns
tæknilega ráðgjöf og mælingar,
en síðan er það Lýtingsstað-
ahreppur er stendur fyrir smíð-
inni. Ríkissjóður veitti á þessu
ári einni milljón króna til fram-
kvæmdanna, en annan kostnað
sér hreppurinn um. Brúin er 36
metra íöng og mikið þarfaþing
fyrir landsmótsgesti, því með til-
komu hennar skapast möguleiki
á hringakstri og umferðarþungi á
Hólmabraut ætti að minnka.
Elín Sigurðardóttir, oddviti
Lýtingsstaðahrepps sagði í sam-
tali við Dag að ætlunin væri að
opna brúna formlega fyrir um-
ferð næstkomandi laugardag og
vonandi að það tækist, en veður
hefur eitthvað verið að ergja
smíðaflokkinn.
Enn eru að berast til eyrna
Dags, sögur af svimandi upphæð-
um sem Þjóðverjar borga fyrir
húsnæði yfir landsmótsdagana.
Nýjustu fregnir herma að borg-
aðar séu 150.000 íslenskar krón-
ur í leigu á einu húsi í þessa fáu
daga. SBG
„Það eru ýmsar blikur á lofti,
en menn eru að vonast til að
hagstæðir samningar náist við
ríkisvaldið við endurskoðun á
búvörusamningnum,“ sagði
Guðmundur Víkingsson, bóndi
í Garðshorni á Þelamörk og
stjórnarmaður í Félagi sauð-
fjárbænda við Eyjafjörð, en sl.
mánudag var haldinn aðal-
fundur þess í Hlíðarbæ.
Guðmundur sagði að ákvörð-
un um að hætta að selja og leigja
fullvirðisrétt milli manna gerði
sauðfjárbændum nokkuð erfitt
fyrir. „Ég veit dæmi þess hér í
Éyjafirði að bóndi hafi ekki get-
að selt jörð sína vegna þess að
henni fylgdi fullvirðisréttur. Sá
sem vildi kaupa jörðina hafði
ekkert með fullvirðisréttinn að
gera vegna þess að hann ætlaði
að nýta hana fyrir ferðamanna-
þjónustu," sagði Guðmundur.
Að sögn Guðmundar hefur
sauðfjárframleiðsla dregist
umtalsvert saman í Eyjafirði á
undanförnum árum. Sauðfjár-
bændur hafa snúið sér í auknum
mæli að öðrum búgreinum eða
sækja vinnu annað. Guðmundur
kvaðst ekki sjá breytingu á þess-
ari þróun á næstu árum. Hann
sagði að sauðfjárbændur við
Eyjafjörð væru ekki mjög hrifnir
af hugmyndum um svæðaskipt-
ingu búfjárframleiðslunnar. Ef
hugmyndir um hana næðu fram
að ganga væri líklegt að sauð-
fjárframleiðsla við fjörðinn færi
undir niðurskurðarhnífinn.
„Stjórn Félags sauðfjárbænda við
Eyjafjörð hefur bent á að nær sé
að athuga hverja einstaka jörð,
en ekki skipta framleiðslunni upp
eftir svæðum,“ sagði Guðmund-
ur.
Siggerður Bjarnadóttir gerði hlé á fiskmatinu og ekur 40 tonna grjótbíl í Grímsey:
„Maður var eins og barinn harðfiskur fyrstu dagana“
Laxeldisstöð ísnó í Kelduhverfi:
Vorslátrun að ljúka
- allt á Bandaríkjamarkað
Verð á laxi í Bandaríkjunum
breytist dag frá degi og sagði Páll
að það væri ómögulegt að segja
til um nákvæmt verð. ísnó hefur
einnig selt fisk til Japans.
Fiskeldið hjá ísnó í Keldu-
hverfi gengur þokkalega að sögn
Páls. Reiknað er með 250 þúsund
tonna ársframleiðslu. ísnó hóf
fiskeldið fyrir 10 árum og hefur
gengið ágætlega síðan. Um 25
manns eru í vinnu hjá ísnó. „Við
erum bjartsýnir með framhaldið.
„Yfirleitt flækist ég milli
staða og met fisk á sumrin en
nú ákvað ég að breyta til. Ég
sló til þegar auglýst var eftir
bílstjóra og fékk starfið.
Þetta er rosalegur hristingur
og maður var eins og barinn
harðfiskur eftir fyrstu dagana
en þetta er gaman,“ segir Sig-
gerður Bjarnadóttir sem í
sumar vinnur á 40 tonna
grjótflutningabíl Ístaks við
hafnarframkvæmdir í Gríms-
ey. Hún er fædd og uppalin í
Grímsey en býr á Akureyri
og ákvað að breyta til og fara
á heimaslóðir í sumar.
„Nei, ég hef aldrei komið
nálægt svona stórum bíl áður. Á
sínum tíma lærði ég að 10 tonna
Scania og hef af og til æft mig í
litlum vörubíl en ekkert unnið
við svona akstur fyrr en nú.
Þetta gengur miklu betur en ég
átti von á. í raun vissi ég ekki í
hvað ég var að lofa mér og þeir
voru, að ég held, hálf ragir við
að ráða mig en þeir setja ekkert
út á aksturinn hjá mér þannig
að maður gefur hinum sjálfsagt
ekkert eftir,“ sagði Siggerður
við Dag.
Þrír grjótflutningabílar ístaks
eru nú í Grímsey og aka þeir
grjóti frá flugvallarstæðinu að
höfninni. Framkvæmdirnar
ganga vel og þegar keyrslunni í
hafnargarðana lýkur verður efni
mokað upp úr nýju höfninni.
Siggerður hefur því nóg að gera
í keyrslunni fram eftir sumri.
„Ég átti nú ekki von á að fá
starfið en þeir hringdu og sögðu
mér að koma í hveili. Það var
nú svona og svona að bakka í
fyrstu og ég hef sjálfsagt fengið
meira auga en hinir tveir en
hingað til hefur þetta allt gengið
að óskum,“ sagði vöruflutn-
ingabílstjórinn Siggerður
Bjarnadóttir. JÓH