Dagur - 03.07.1990, Blaðsíða 9

Dagur - 03.07.1990, Blaðsíða 9
8 - DAGUR - Þriðjudagur 3. júlí 1990 Þriðjudagur 3. júlí 1990 - DAGUR - 9 fþróttir F- Öldungamót í golfi: Karl Hólm vann Jóhannsbikarmn í fyrradag fór fram á Jaðarsvelli við Akur- eyri öldungamót í golfi þar sem keppt var um Jóhannsbikarinn. Leiknar voru 18 holur, með og án forgjafar. Mót þetta gef- ur stig til landsliðs öldunga í golfi og mættu 54 keppendur til leiks. Karl Hólm úr Golfklúbbnum Keili náði fyrsta sæti í flokki án forgjafar og lék á 78 höggum. Annar varð Guðmundur Valdi- marsson, Golfklúbbnum Leyni á 83 höggum og í þriðja sæti hafnaði Pétur Antonsson úr Golfklúbbi Grindavíkur á 83 höggum. í flokki með forgjöf var mjög jöfn keppni. Sverrir Einarsson úr Nesklúbbnum náði fyrsta sætinu á 71 höggi en í öðru sæti varð Karl Hólm sem einnig lék á 71 höggi. í þriðja sæti varð Guðmundur Vaidimarsson á 72 höggum og í fjórða sæti varð Ragnar Stein- bergsson úr Golfklúbbi Akureyrar á 72 höggum. 1ÓH 3. deild Úrslit í 6. umferð: Þróttur R.-Reynir BÍ-Völsungur Haukar-Einherji Þróttur N-TBA Dalvík-ÍK Þróttur R. 6 6-0-0 Haukar 6 5-0-1 ÍK 6 4-0-2 Þróttur N. 6 3-1-2 Daivík 6 2-1-3 Reynir 6 2-1-3 Völsungur 61-3-2 BÍ 61-2-3 TBA 61-0-5 Einherji 6 0-2-4 Markahæstir: Óskar Óskarsson, Þrótti R. Jóhann Ævarsson, BÍ Þráinn Haraldsson, Þrótti N. Júlíus Þorfinnsson, ÍK Brynjar Jóhannesson, Haukum Garðar Níelsson, Reyni Hörður Már Magnússon, ÍK 4. deild - D-riðill 2:0 1:1 2:0 10:0 3:5 21: 5 18 14: 7 15 19:11 12 20: 9 10 11:15 7 9:13 7: 8 15:14 2:25 6:17 7 6 5 3 2 9 8 8 6 5 4 4 Úrslit í 4. umferð: Kormákur-Hvöt Geislinn-Þrymur Hvöt Kormákur Neisti Geislinn Þrymur 1:3 3:0 3 3-0-0 9:4 9 3 2-0-1 14:4 6 3 2-0-1 11:3 6 3 1-0-2 3:18 3 4 0-0-4 3:11 0 Markahæstir: Albert Jónsson, Kormáki Magnús Jóhannesson, Neista Hörður Guðbjörnsson, Kormáki Oddur Jónsson, Neista Ásgeir Valgarðsson, Hvöt 4. deild - E-riðill Úrslit í 5. umferð: Magni-UMSE-b HSÞ-b-Austri SM-Narfi HSÞ-b UMSE-b Magni S.M. Austri Rau. Narfi 6 5 4 4 3 2:2 6:0 7:1 5 4-1-0 22: 3 13 5 2-2-1 17: 6 8 4 2-2-0 12: 6 8 5 2-1-2 11: 8 7 5 1-0-4 5:19 3 4 0-0-4 3:28 0 Markahæstir: Viðar Sigurjónsson, HSÞ-b Ásgrímur Reisenhaus, UMSE-b Kristján Kristjánsson, Magna Ari Hallgrímsson, HSÞ-b Skúli Hallgrímsson, HSÞ-b Jón Þorberg, SM 6 4 4 4 4 4 Knattspyrna/3. deild: Þróttarar burstuðu TBA - unnu 10:0 á Neskaupstað TBA fór litla frægðarför á Neskaupstað. Liðið fékk stór- an skell þar sem Þróttarar léku á als oddi og gerðu 10 mörk án þess að TBA næði að svara Sigurpáll Aðalsteinsson og félagar í TBA fóru heim til Akureyrar frá Neskaupstað með 10 mörk á bak- inu. fyrir sig. Þráinn Haraldsson gerði 4 mörk, Ólafur Viggós- son 3 og Kristján Svavarsson, Árni Freysteinsson og Bergvin Haraldsson eitt hver. Þetta var fimmta tap TBA liðsins í deild- inni og hefur Iiðið fengið á sig 25 mörk en aðeins skorað 2. Þrenna Örvars dugði ekki til Mikið markaregn var á Dalvík á föstudaginn þegar heimamenn fengu IK í heimsókn. Örvar Eiríksson gerði þrennu fyrir Dal- vík en það framtak dugði ekki til því gestirnir gerðu 5 mörk og fóru með öll stigin þrjú. ÍK lék undan stekkings vindi í fyrri hálfleik og tókst oft að leika svifaseina vörn Dalvíkinga grátt. ÍK menn gerðu fjögur mörk fyrir leikhlé en Örvar náði að minnka muninn með einu marki. í síðari hálfleik var vindurinn genginn niður og þá varð meira jafnræði með liðunum. Örvar bætti öðru marki við en ÍK-menn svöruðu með fimmta marki sínu. Örvar átti síðan síðasta orðið stuttu fyr- ir leikslok þegar hann skoraði þriðja mark sitt. Einherji lá í Hafnarfirði Einherjamenn máttu þola 2:0 tap gegn Haukum í Hafnarfirði. Framan af leiknum virtist Ein- herjaliðið sterkara en þá kom óvænt mark. Haukar fengu horn- spyrnu og eftir hana var boltinn skallaður inn á markteig þar sem Haukamanni tókst að pota hon- um í markið. Þrátt fyrir markið hélt Einherji áfram ágætum tök- um á leiknum en ekki lánaðist að binda endi á sóknirnar. Færin voru nokkur fyrir hendi en ekki tókst að nýta þau. Skömmu fyrir leikslok var dæmd vítaspyrna á Einherja þegar brotið var á sókn- armanni við vítateigslínuna. Margir töldu þennan dóm vafa- saman þar sem brotið hafi átt sér stað utan teigs en dómnum varð ekki haggað og úr vítaspyrnunni gulltryggðu Haukar 2:0 sigur. Jafnt á ísafírði Á fimmtudagskvöldið fóru Völsungar til ísafjarðar og spil- uðu þar við BÍ. Leiknum lauk með jafntefli sem verður að telja sanngjörn úrslit en oft á tíðum vantaði einhvern brodd í sóknir Völsunga til þess að þeir næðu að ljúka sóknunum með marki. Völsungarnir komust í 1:0 með marki Jóhannesar Garðarssonar en Jóhann Ævarsson jafnaði fáum mínútum síðar og 1:1 urðu lokatölur leiksins. JÓH Knattspyrna/4. deild E-riðill: HSÞ-b og SM uirnu bæði heimasigra - jafntefli á Grenivík HSÞ-b styrkti stöðu sína enn á toppi E-riðils 4. deildar um helgina þegar liðið lagði Austra stórt á heimavelli. Þá gerðu Magni og UMSE-b jafntefli á Grenivík í leik þar sem bæði lið þurftu á sigrinum að halda til að geta haldið í við HSÞ-b. Staða Magna er þó betri þar sem liðið á einn leik til góða. Leikurinn á Grenivík var mjög kaflaskiptur. UMSE-b sótti mun meira í fyrri hálfleik og réði þá að mestu yfir miðju vallarins. Fyrsta markið kom á 20. mínútu þegar Gísli Úlfarsson þrumaði boltan- um í marknet Magna. Fimmtán mínútum síðar bætti Arnar Krist- insson við öðru marki fyrir UMSE-b eftir mikil mistök hjá varnarmönnum Magna og þannig var staðan í leikhléi. í síðari hálf- leik virtust leikmenn UMSE-b missa tök sín á miðjunni og það dró dilk á eftir sér. Strax á 3. mínútu áttu Magnamenn hörku- skot í slána eftir mikinn darrað- ardans við markið. Þremur mínútum síðar skoraði Bjarni Áskelsson gott mark eftir horn- spyrnu og segja má að nær allan hálfleikinn hafi meira legið á UMSE-b vörninni. Allt virtist þó líta úr fyrir að þeir næðu að verja markið þar til á síðustu mínút- unni þegar dæmd var auka- spyrna. Varnarmenn UMSE-b gleymdu þá Ingólfi Ásgeirssyni algerlega í teignum og hann þakkaði fyrir sig og skallaði í markið. Stórt hjá HSÞ-b HSÞ-b vann stóran sigur á Austra í Mývatnssveit. Lokatölurnar urðu 6:0 eftir að staðan í hálfleik var 5:0. Yfirburðirnir voru miklir eins og markatalan gefur til kynna en ekki hefði verið ósann- gjarnt þó Austri hefði fengið dæmda vítaspyrnu þegar brotið var á sóknarmanni. HSÞ-b átti nokkur fleiri færi sem fóru for- görðum og hefði því sigurinn get- að verið stærri. ✓ Atta mörk í Hörgárdal SM sigraði Narfa með sjö mörk- um gegn einu í Hörgárdal. Narfa- menn fengu fá hættuleg færi í leiknum en SM nýtti betur sín færi þó góð færi hafi misnotast. Staðan í hálfleik var 4:1 og SM bætti þremur mörkum við í þeim síðari. Þeir Jón Þorberg, Heimir Finnsson og Helgi Steinsson gerðu tvö mörk hver en Guð- mundur Gíslason gerði mark Narfa. JÓH Kvennahlaup í Kjama Á laugardaginn fór fram Kvennahlaup í Kjarnaskógi sem í tóku þátt konur á öllum aldri. Þetta hlaup var liður í dagskrá sumaríþróttahátíðar ÍSÍ og fór fram víðar um landið. Mjög góð þátttaka var í hlaup- inu í Kjarnaskógi og skráðu um 240 konur sig til leiks. Hér má sjá nokkra þátttakendur skokka hringinn í Kjarnaskógi. Mynd:KL/JÓH Ðrengjalandsliðið í knattspyrnu valið: Fyrsti Dalvíkingurinn í knattspymulandsliði - SigurbjömJfeiðárssqn leikur við hlið tveggja Akureyringa í liðinu Sigurbjörn Hreiðarsson frá- Dalvík hefur veriðn valinn í drengjalandsliðið í knatt- spyrnu og er hann fyrsti Dal- víkingurinn til að komast í ! landslið í knattspyrnú. Valinn hefur verið 16 manna hópur fyrir Norðurlandamótið sem fram fer í Finnlandi í lok mán- aðarins og voru þrír leikmenn af Norðurlandi valdir í hópinn, auk Sigurbjörns þeir Guð- mundur Benediktsson úr Þór og Brynjólfur Sveinsson úr KA. Drengjalandsliðið kom samah:; í æfingabúðum á Dalvík um helg- ina en þjálfari þess er Kristinn Björnsson, þjálfari 3. deildarliðs Dalvíkinga. Á föstudagskvöldið var æfing á Árskógsstrandarvelli og á laugardagsmorgun kom hóp- urinn saman á létta æfingu fyrir leik við úrval úr 2. flokki karla hjá Akureyrarfélögunum KA og Þór. Leikurinn fór fram á Þórs- vellinum og lyktaði með 2:2 jafntefli. Mörk drengjalandsliðs- ins skoruðu þeir Guðmundur Benediktsson og Pálmi Haralds- son úr IA. Á sunnudagsmorgun mætti drengjalandsliðið 4. deildarliði SM á Dalvíkurvelli. Reyndar mætti SM með styrkt lið til leiks- ins því í raðir þeirra bættust tveir leikmenn frá Dalvík. Drengja- landsliðið sýndi hvað í því býr í þessum leik og lauk honum með 6:1 sigri þeirra. Guðmundur Benediktsson skoraði 3 mörk en þeir Sigurbjörn Hreiðarsson, Helgi Sigurðsson og Jóhann Steinarsson skoruðu hvert sitt mark. JÓH Knattspyrna/4. deild D-riðill: Hvatarmenn komnir í toppsætið Hvatarmenn frá Blönduósi tóku forystuna í D-riðli 4. deildar um helgina þegar þeir sóttu Kormák heim á Hvammstanga. Þá fengu Geislamenn á Hólmavík sín fyrstu stig í riðlinum. Hvöt náði fljótlega yfirhönd- inni í leiknum gegn Kormáki. Heimamönnum tókst ekki að ná valdi á leiknum og spilinu og það nægði Hvöt til að skora. Staðan í hálfleik var tvö mörk gegn engu en fljótlega í síðari hálfleik minnkaði Örn Gunnarsson mun- inn fyrir Kormák. Þrátt fyrir að eiga færi komust Kormáksmenn ekki lengra en Hvöt bætti þriðja markinu við og gerði út um leik- inn. Á Hólmavík mættust Geislinn og Þrymur og þar beið síðar- nefnda liðið sinn fjórða ósigur í riðlinum. Geislinn sigraði í leikn- um með fjórum mörkum gegn engu og fékk sín fyrstu stig jafn- framt sem þetta eru fyrstu mörk Geislamanna í riðlinum. JÓH Knattspyrna/2. deild: Selfyssingar í ham gegn Tindastólsmönnum Norðanliðin biðu öll ósigur þegar leikin var heil umferð í 2. deildinni á föstudagskvöld- ið. Eftirtektarverðast er stórt tap Tindastóls á heimavelli gegn Selfyssingum en Leiftur og KS töpuðu bæði leikjum sínum sunnan heiða. Fimm mörk á Króknum Fyrri hálfleikur var frekar slapp- ur á Sauðárkróki, en Tindastóls- liðið átti þó heldur meira í hon- um og nokkur góð marktækifæri fóru forgörðum hjá heimamönn- um. Eftir leikhlé komu Selfyssingar inn á völlinn með allt öðru hugarfari heldur en í fyrri hálf- leik og þar hafði e.t.v. eitthvað að segja að Heimir Karlsson, þjálfari þeirra, skipti sjálfum sér inn á í hléinu. Á 65. mín. kom síðan markið sem hafði legið í loftinu frá upp- hafi síðari hálfleiks. Dervic fékk boltann eftir mistök varnar- manna Tindastóls og skoraði örugglega framhjá Stefáni mark- verði. Þremur mínútum seinna kom útspark frá Stefáni sem hafnaði hjá Heimi Karls. og hann kom Selfyssingum í 2:0. Núna átti Tindastólsliðið nokkur færi sem sköpuðu hættu í teig Selfyss- inga, en samt virtust þeir vera orðnir hálfdaufir. Þegar Heimir Karls. náði síðan boltanum eftir enn ein varnarmistökin og skor- aði 3. mark Selfyssinga, var allur vindur úr Tindastólsliðinu og voru þeir heppnir að fá ekki fleiri mörk á sig en tvö í viðbót. Það voru þeir Dervic á 86. mín. og Páll Guðm. á 88. mín. sem luku leiknum með 5:0 sigri Selfyss- inga. Tindastólsliðið virðist vera far- ið að treysta ansi mikið á línu- vörðinn í varnarleik sínum og þar sem að mjög óákveðinn línu- vörður var með þeirra vallar- helming í seinni hálfleik skapað- ist mikil hætta hvað eftir annað við markið. SBG Blikarnir sterkari í fyrri hálfleik í leik KS og Breiðabliks í Kópavogi áttu Sigl- firðingar í vök að verjast. Til marks um það komust þeir aðeins fjórum sinnum í hálfleikn- um fram fyrir miðju en aldrei inn í teig. Blikarnir héldu knettinum án þess að skapa sér færi og mark kom ekki fyrr en á 43. mínútu þegar Guðmundur Guðmunds- son sendi fyrir markið þar sem Willum Þór Þórsson hamraði knöttinn í netið með skalla, gjörsamlega óverjandi fyrir Kristján í marki KS. Sama sagan hélt áfram í byrjun seinni hálfleiks og sunnanmenn sóttu án afláts. Breyting varð hins vegar á 55. mínútu þegar KS skipti Henning Henningssyni inná. Þá gjörbreyttist leikurinn og KS náði meiri tökum á leikn- um. Hvorugt liðið skapaði þó færi fyrr en á 63. mínútu þegar Hlynur Eiríksson skallaði yfir Blikamarkið í dauðafæri. Fjórum mínútum síðar small boltinn í stöng KS-marksins eftir skot Arnars Grétarssonar en KS náði að hreinsa. Fleiri umtalsverð færi voru ekki í leiknum og Breiða- blik hrósaði sigri. Mark Duffield var besti maður KS og reyndar besti maður vall- arins. HB/JÓH Malarleikur á miðju sumri Leifursmenn sóttu ekki gull í greipar ÍR. Leikurinn fór fram á malarvelli og setti það mjög mark sitt á leikinn. Leiftursmenn urðu fyrri til að skora þegar Örn Torfason skoraði með skalla á 5. mínútu. Hlynur Elísson jafnaði leikinn á 65. mínútu og 10 mínút- um seinna skoraði Bragi Björns- son sigurmark ÍR. Fyrri háfleikur einkenndist af mikilli baráttu en jafnræði var með liðunum. ÍR átti hins vegar meira í síðari háfleiknum. Tryggvi Gunnarsson var besti maður vallarins en Ómar Torfa- son var besti maður Leifturs en hann lék að þessu sinni sem aft- asti maður í vörninni. HB/JÓH Sumaríþróttahátíð ÍSÍ: Góður árangur UFA-keppenda Frjálsíþróttakrakkar úr Ung- mennafélagi Akureyrar gerðu góða ferð suður yfir heiðar um helgina. Þeir kepptu á laugar- daginn á barnamóti 12 ára og yngri í tengslum við ISI-hátíð- ina og á sunnudaginn átti UFA fulltrúa í Æskuhlaupinu. Á barnamótinu voru fjórir keppendur í hverju liði og þurfti Lið UFA sem tók þátt í barnainótimi í Mosfellsbæ. Frá hægri: Sigríður Hannesdóttir, Smári Sigurðsson, Jóhann Finnsson og Sigurbjörg Ólafsdótt- ir. Jaðarsvöllur: Halldór og Öm Blöndumeistarar Blöndumótið í golfi, sem er unglingamót, fór fram á Jaðars- velli á sunnudag. Keppt var í tveimur unglingaflokkum og spilað með og án forgjafar. Verðlaun á mótinu gaf Mjólk- ursamlag KEA. í eldri flokknum, án forgjafar, ## Holukeppni í golfi: Om og Anna efst Ur leik Magna og UMSE-b á Grenivík á föstudaginn. Hér kljást þeir um boltann Ásgrímur Rciscnhaus og Jón lllugason. Ásgrímur tekur hér flugferðina en þeir Jón, Ingólfur Asgeirsson Magnamaður og Arnar Kristinsson félagi Ásgríms í UMSE-b fylgjast með. Ingólfur og Arnar gerðu hvor sitt mark fyrir lið sín. JÓH Liður í sumarhátið ÍSI um helgina voru golfmót sem sam- tímis fóru fram á öllum völlum landsins. Á Jaðarsvelli við Akureyri mættu margir kepp- endur til leiks og var leikið með og án forgjafar. Úrslit í holukeppninni urðu þannig: Án forgjafar: högg 1. Örn Arnarson 73 2. Viðar Þorsteinsson 76 3. David Barnwell 77 4. Ólafur Gylfason 77 Með forgjöf: 1. Anna Freyja Eðvarðsd. 64 2. Halla Björg Arnardóttir 66 3. Sigurpáll Sveinsson 67 sigraði Örn Arnarson á 73 höggum, í öðru sæti varð Sigur- páll Sveinsson á 79 höggum og í þriðja sæti varð Þorleifur Karls- son á 83 höggum. í þessum flokki með forgjöf sigraði Björn Gísla- son á 66 höggum, í öðru sæti varð Kristófer Einarsson á 67 höggum og þriðja varð Halla Árnadóttir á sömu skor. í flokki 14 ára og yngri, án for- gjafar, sigraði Halldór Halldórs- son á 8ó höggum, annar varð Haukur Dór Kjartansson á 89 höggum og þriðji Birgir Haralds- son á 101. I þessum flokki með brgjöf sigraði Birgir Haraldsson á 65 höggum, Haukur Dór Kjartansson varð annar á 69 höggum og Halldór Halldórsson þriðji á sömu skor. JÓH Unnur Kristín Friðriksdóttir, sigur- vegari í flokki 13 ára telpna í Æsku- hlaupinu. hver keppandi að keppa í þremur greinum. í stigakeppninni varð UFA í öðru sæti með 62,5 stig á eftir ÍR sem hlaut 70 stig. UFA átti sigurvegara í þremur grein- um af 12. Smári Stefánsson sigr- aði í 50 m hlaupi og langstökki og Sigríður Hannesdóttir sigraði í spjótkasti. Á sunnudaginn var keppt í Æskuhlaupinu sem fram fór í Reykjavík. Árangur UFA kepp- endanna var mjög góður þar sem Jóhann Már Sigurðarson sigraði í flokki 14 ára pilta, Smári Stefáns- son sigraði í flokki 12 ára pilta og Unnur Kristín Friðriksdóttir sigr- aði í flokki 13 ára telpna. Sigurður P. Sigmundsson, far- arstjóri og formaður UFA segir að þessi árangur sýni að unglingastarfið sé smám saman að skila sér. Óhætt sé að segja að UFA eigi nú nokkra keppendur á landsmælikvarða. JÓH Golf: Akureyrarmót hefst á morgun Akureyrarmót í golfi hefst á morgun á Jaðarsvelli og stend- ur í fjóra daga. Keppt verður í fimm flokkum karla, öldunga- flokki, þremur flokkum kvenna og unglingaflokki. Keppendur geta tilkynnt þátt- töku fram til kvölds en fyrstu keppendur hefja keppni á morgun. Annar flokkur kvenna spilar 36 holur og öldungaflokkur 54 holur en að öðru leyti leika flokkarnir 72 holur og spila því í fjóra daga. Mótinu á því að ljúka á laugardagskvöld. JÓH

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.