Dagur - 27.07.1990, Blaðsíða 5
Föstudagur 27. júlí 1990 - DAGUR - 5
JarðskjáJfti Sigurðar P. Sigmundssonar o.fl.
í blaðinu Degi hinn 21. júlí sl. er
grein, sem byggir á viðtali við
Sigurð P. Sigmundsson fram-
kvæmdastjóra Iðnþróunarfélags
Eyjafjarðar. Greinin er á bak-
síðu með flannastórri fyrirsögn:
„Álver í Eyjafirði eða á Keilis-
nesi? Jarðskjálftahætta setur
strik í reikninginn á Reykjanesi“.
Eftir Sigurði er haft, „að á
Reykjanesi sé viðurkennt að
jarðskálftahætta sé fyrir hendi og
margt bendi til að álver þar yrði
að vera rammgerðara mannvirki
en við Eyjafjörð.“ Þetta er tví-
tekið í greininni, sennilega til
áherSluauka. Þessi samanburður
er blekkjandi og beinlínis rangur,
það hygg ég, að flestir hér um
slóðir viti. Jarðskjálftahrina var
að vísu á Reykjanesskaga í mars
í vetur og var styrkleiki um 4 stig
á Richter, sem ekki telst nú
mikið. Slíkar hrinur munu hafa
komið þar áður. í Eyjafirði varð
mikill jarðskjálfti árið 1934 -
nefndur Dalvíkurskjálfti, vegna
þess að tjónið varð þar mest.
hann var 6,3 stig á Richter og þá
skemmdust, meira eða minna, 65
hús í Upsasókn og þar af gjör-
eyðilögðust 12. 247 manns urðu
húsviiltir af 548 í sókninni.
Skjálftinn átti upptök sín í Eyja-
firði, um 3-4 km frá Dalvík.
Undirrituðum er skjálfti þessi í
barnsminni vegna þess, að hér
inn um sveitir gekk jörð í bylgj-
um í snörpustu skjálftunum og
varð mönnum jafnvel fótaskort-
ur. Eftir þessa öflugu skjálfta
fylgdu hrinur fram á kvöld að
styrkleika 3,5-4 stig á Richter,
eða álíka og hrinan á Reykjanesi
í vetur.
Að kvöldi hins 27. mars 1963
varð hér mjög harður skjálfti og
átti hann upptök sín í mynni
Skagafjarðar. Stærsti kippurinn
var 7 stig á Richterkvarða, en á
eftir fylgdi hrina fram eftir nóttu,
með vægari skjálftum. Þessa
skjálfta gætti mikið í Eyjafirði.
Eyjafjörður er áreiðanlega öllu
frekar jarðskjálftasvæði en
Reykjanesskaginn enda hafa
ekki komið jafnharðir skjálftar
þar á þessari öld og þessir áður-
greindu í Eyjafirði. Auk þess eru
smærri skjálftar hér hreint ekki
fátíðari, enda er hér um sprungu-
svæði að ræða fyrir mynni fjarð-
arins. Dæmið í umræddri grein
myndi því snúast við, og bygging-
ar í Eyjafirði þyrftu að vera
rammgerðari en á Reykjanesi
miðað við þessar forsendur. Ég
vil benda Sigurði P. Sigmunds-
syni á að afla sér upplýsinga áður
en hann varpar svona fullyrðing-
um fram við fjölmiðla, eða var
hann kannski vísvitandi með
blekkingar? Eða er hann sjálfur
farinn að skjálfa vegna þess að
alltaf fjölgar þeim, sem sjá það
og viðurkenna hvílíkt reginslys
það yrði ef álver væri sett niður
við Eyjafjörð. Pá er Sigurður og
fleiri sí og æ að klifa á því, að
kröfur um mengunarvarnir eigi
að vera þær sömu, hvar sem álver
yrði staðsett. Undir það skal
tekið, en þá er jafnframt fyllsta
ástæða til að benda á og undir-
strika mismuninn á gagnsemi
mengunarvarna eftir staðháttum.
í þéttbýlu landbúnaðarhéraði
sem Eyjafirði myndu hinar bestu
mengunarvarnir, sem völ er á,
ekki gagnast betur en það, að
búskap með grasbíti a.m.k. yrði
að leggja þar niður í minnst 5 km
geisla frá álverinu, sbr. skýrslu
NILU um Dysnes. Á Keilisnesi
aftur á móti eru jafnvel tugir
kílómetra í landbúnaðarhéruð,
og að auki er veðurfar þar mun
hagstæðara með tilliti til þessara
hluta, þ.e. meiri úrkoma, meiri
vindur. Þar yrði ekkert lífríki í
hættu nema skófir og fléttur í
hrauninu. Þetta þarf sérstaklega
að hafa í huga þegar rætt er um
sömu mengunarvarnir alls staðar.
Og í lokin: Ný skýrsla frá
NILU um dreifingu eiturefna frá
hugsanlegu álveri við Dysnes
mun nú vera komin í hendur
íslenskra stjórnvalda. Heyrst
hefur, að í öllum meginatriðum
sé hún samhljóða skýrslunni frá
1985 og þarf engan að undra það.
Spurningin er þá þessi. Hvers
vegna er skýrsla þessi ekki birt
almenningi?
Þess skal getið, að upplýsingar
um jarðskjálfta eru fengnar hjá
jarðskjálftadeild veðurstofunnar.
Stefán Halldórsson,
Hlöðum.
Frá Dysnesi.
KjörbúÖ KEA
Byggðavegi 98
Helgartílboð
Kryddlegnar lambalærissneiðar
20% afsláttur
tilboðsverð kr. 977 kg
V/örukynning föstudag og
laugardag frá Kl. 15>19 á Coke
kynningarverð 6kr. 395
Úrval af fersku
lamba- og svínakjöti
MH'.
5
V/SA
Opið alla daga til kl. 20.00,
líka sunnudaga
KJÖRBÚÐ KEA
BYGGÐAVEGl 98
ERLÁGÚST
INNI í MYNDINNI
Gjalddagi húsnœðislána er 1. ágúst.
Gerðu ráð fyrir honum í tœka tíð.
16. ágúst leggjast dráttarvextir á lán með lánskjaravísitölu.
h september leggjast dráttaryextir á lán með byggingarvísitölu.
SPARAÐU ÞÉR ÓÞARFA ÚTGJÖLD AF DRÁTTARVÖXTUM
OG HAFÐU ALLTAF NÆSTU GJALDDAGA INNI í MYNDINNI.
[Íb HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK ■ SÍMI 696900
Gjalddagar húsnœðlslána eru:
1. febrúar- 1. maí - 1. ágúst- 1. nóvember.
Sum lán hafa fjóra gjalddaga á ári, önnur aðeins einn.